Morgunblaðið - 04.04.2009, Page 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009
Fullar búðir
af nýjum vörum
Kringlan – Smáralind
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
STÖÐ 2 verður ekki með hefð-
bundna útsendingu á kosninganótt
að þessu sinni, eins og venjan hefur
verið frá því stöðin hóf útsendingar
árið 1986. Þess í stað verður
skemmtiþáttur með kosningaívafi
að kvöldi kosningadagsins 25. apr-
íl.
Óskar Hrafn Þorvaldsson,
fréttastjóri Stöðvar 2, segir að
kostnaður við útsendingu á kosn-
inganótt hlaupi á tugum milljóna
og í þessu árferði verði menn að
sníða sér stakk eftir vexti. „Við er-
um lítil og fátæk einkarekin stöð,
sem getur ekki keppt við Rík-
issjónvarpið þótt við fegin vildum,“
segir Óskar.
Ríkissjónvarpið mun halda sínu
striki á kosninganótt, að sögn Óð-
ins Jónssonar fréttastjóra. Um
verður að ræða hefðbundna út-
sendingu, þar sem fléttað verður
saman nýjustu úrslitum, við-
brögðum stjórnmálamanna og sér-
fræðinga og öðru efni. Útsendingin
mun standa eins lengi um nóttina
og þörf þykir. Þá verður sérstök
kosningavaka á Rás 1.
Ríkisútvarpið hóf kosn-
ingaumfjöllun í gærkvöldi með um-
ræðuþætti leiðtoga stjórn-
málaflokkanna. Síðan verða
borgarafundir í hverju kjördæmi
og hefst sá fyrsti á mánudaginn. Á
undan borgarafundunum verða ít-
arlegar fréttaskýringar, að sögn
Óðins. Kvöldið fyrir kosningar
verður hefðbundinn umræðuþáttur
formanna flokkanna í sjónvarpssal.
„Við verðum með öfluga umfjöllun
og leggjum áherslu á að skapa gott
samband við kjósendur,“ segir Óð-
inn.
Síðustu vikuna fyrir kosningar
verður Stöð 2 með hálftíma þátt á
hverju kvöldi. Þar munu fulltrúar
allra flokka, sem bjóða fram á
landsvísu, fjalla um afmarkað um-
ræðuefni sem brennur á þjóðinni,
að sögn Óskars Hrafns. Formenn
flokkanna munu sitja fyrir svörum
kvöldið fyrir kosningar og verður
sá þáttur í kappræðustíl.
Botninn verður sleginn í kosn-
ingaumfjöllun Stöðvar 2 með
þriggja tíma skemmtiþætti undir
stjórn Loga Bergmanns og hefst
hann klukkan 21 á kosningadaginn.
RÚV verður eitt um hituna
Morgunblaðið/Kristinn
Stöð 2 Fréttamenn stöðvarinnar munu ekki birta landsmönnum fyrstu
tölur úr kjördæmum landsins eins og þeir hafa gert áratugum saman.
BARNSHAFANDI konur æfa hér með-
göngusund í sundlaug Hrafnistu í Reykjavík. Í
meðgöngusundi er lögð áhersla á stöðugleika-
þjálfun fyrir mjóbak og mjaðmagrind, auk liðk-
andi og styrkjandi æfinga fyrir allan líkamann.
Sundið hefur reynst vel gegn ýmsum kvillum á
meðgöngunni og hefur verið kennt í Reykjavík
samfleytt frá árinu 2001, að því er fram kemur á
vefnum medgongusund.is.
Sundleikfimi fyrir barnshafandi konur
Morgunblaðið/Heiddi
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
„ÉG hef mikla samúð með blaða-
mönnunum í þessu og vona að þeir
verði ekki hengdir og ef þeir verða
hengdir þá mun ég hreinlega skera
þá niður úr snörunni,“ sagði Gylfi
Magnússon viðskiptaráðherra eftir
ríkisstjórnarfund í gær. Átti hann
þar við rannsókn Fjármálaeftirlits-
ins á hugsanlegum brotum fjögurra
blaðamanna, Agnesar Bragadóttur,
Egils Helgasonar, Kristins Hrafns-
sonar og Þorbjörns Þórðarsonar, á
bankaleynd.
„Ég held að fjölmiðlar gegni mjög
mikilvægu hlutverki við að upplýsa
þessi mál og veita aðhald, þannig að
ég myndi nú halda að það væru mjög
ríkir almannahagsmunir fyrir því al-
mennt að blaðamenn geti upplýst
sérstaklega ef það er um einhver
stórmál eins og mjög miklar og óeðli-
legar lánveitingar banka,“ sagði
Gylfi. Hann kvað FME verða að
framfylgja lögunum og því væri
kannski erfitt að andmæla því að
stofnunin skoðaði málið, en sagði
jafnframt að málið væri innlegg í
umræðuna um fyrirhugaða endur-
skoðun bankaleyndar.
Gagnrýnin ómálefnaleg
Fjármálaeftirlitið sendi frá sér til-
kynningu í gær vegna málsins og
sagði gagnrýni á sig hafa verið ómál-
efnalega. Stofnunin geti ekki ákveðið
hvaða lagaákvæðum skuli fylgt eftir
og hverjum ekki. Þá sé bankaleyndin
byggð á ákvæði stjórnarskrár og al-
þjóðlegum mannréttindasáttmálum
og verði ekki afnumin með öllu,
nema með breytingu á stjórnlögum.
Þá skýrir FME lög um banka-
leynd. Í þeim felist „sú meginregla
að trúnaðarskylda fylgi upplýs-
ingum“. Þeir sem fái upplýsingar
bundnar bankaleynd megi ekki
miðla þeim áfram. Það megi þeir
fréttamenn vita, sem hafi þekkingu
til að fjalla um fjármálamarkaði.
Einnig segir í tilkynningunni að
traust og trúverðugleiki bankakerf-
isins verði ekki endurheimtur ef
grundvallarréttindi eins og friðhelgi
einkalífs verði virt að vettugi og
trúnaðar ekki gætt við viðskiptavini
banka um viðkvæmar upplýsingar.
Bankaleynd komi ekki í veg fyrir eft-
irlit eða rannsóknir á hugsanlegum
lögbrotum, heldur geri lög ráð fyrir
greiðum aðgangi stjórnvalda að upp-
lýsingum banka sem séu þeim nauð-
synlegar svo þau geti sinnt hlutverki
sínu. onundur@mbl.is
Myndi hreinlega skera
blaðamenn úr snörunni
FME: Trúverðugleiki fæst ekki aftur án friðhelgi einkalífs
FJÓRAR umsóknir bárust í gær um
starf sölumanns hjá Fánasmiðjunni
á Þórshöfn í kjölfar fréttar Morg-
unblaðsins um að staðan hefði verið
auglýst án árangurs í fjóra mánuði.
„Tveir þeirra sem sóttu um eru úr
Reykjavík, einn frá Akureyri og einn
frá Selfossi. Þeir vita hvar starfið er
og eru því greinilega tilbúnir að færa
sig um set. Við höfðum áður fengið
umsækjendur sem hættu við þegar
þeir heyrðu hvar vinnan var,“ segir
Karen Rut Konráðsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Fánasmiðjunnar.
Hún var farin að velta því fyrir sér
hvort fólk væri hrætt við að vinna á
landsbyggðinni. Það hefði ef til ekki
rétta mynd af henni.
ingibjorg@mbl.is
Við hún Fánasmiðjunni á Þórshöfn
gekk illa að fá sölumann.
Tilbúnir í
sölumennsku
Fjórir sóttu um
L-LISTI fullveld-
issinna hefur
hætt við framboð
í komandi alþing-
iskosningum.
Þetta var ákveð-
ið á fundi full-
veldissinna í gær
en hreyfingin
ætlar að halda
áfram að starfa
sem „frjáls framboðs- og sjálfstæð-
ishreyfing“.
„Það er nú fyrst og fremst vegna
þess að við sjáum að það er ekki lag
fyrir framboðið sem við héldum að
væri,“ sagði Bjarni Harðarson, einn
forsvarsmanna listans, í samtali við
mbl.is um ástæður þess að hætt var
við framboð. Hann bætti við að full-
veldissinnar hefðu náð ákveðnum
árangri í baráttunni gegn aðild Ís-
lands að Evrópusambandinu með
því að stuðla að því að vinstri-græn
og sjálfstæðismenn sveigðu ekki frá
andstöðu við ESB-aðild.
L-listi hættir
við framboð
Bjarni Harðarson
Hættir við þingframboð
MBL.IS | SJÓNVARP