Morgunblaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 26
26 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009
SIÐAVENDNI
er mikil í op-
inberu lífi Ind-
verja og hinar
vinsælu Bolly-
wood-stjörnur
mega ekki fara
yfir strikið frem-
ur en annað dauð-
legt fólk.
Nýlega barst
lögreglunni í Mumbai, sem áður hét
Bombay, kvörtun vegna leikarans
Akshay Kumars og var hann sak-
aður um blygðunarleysi, að sögn
BBC. Hann var að sýna Levi’s-
gallabuxur á tískusýningu en nam
skyndilega staðar hjá eiginkonu
sinni, Twinkle Khanna, og bað hana
að hneppa frá.
Að vísu bara efsta hnappnum á
klaufinni en þetta var „ruddalegt og
ósiðlegt“, að mati kærandans, Anil
P. Nayar, sem er félagsráðgjafi.
Kumar er ein af skærustu stjörnum
Bollywood og hefur leikið í mörgum
geysivinsælum kvikmyndum.
kjon@mbl.is
Klaufaleg
hugmynd
Akshay Kumar
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
KOM, sá og sigraði. Þannig mætti ef
til vill lýsa móttökunum sem almenn-
ingur og fjölmiðlar hafa veitt Barack
Obama Bandaríkjaforseta í fyrstu
Evrópuheimsókn hans eftir embætt-
istökuna. Á fréttamannafundi í
London á fimmtudag tjáði hann sig
um G-20-fundinn og árangur hans en
leyfði síðan spurningar. Hvarvetna
veifuðu fréttamenn til að vekja at-
hygli Obamas sem brosti, spurði
hvort þetta væri uppboð og uppskar
hlátrasköll. Og hann lét sig hafa það
að blikka konu í hópnum.
Þótt fréttamenn kveddu hann með
lófaklappi heyrðust einnig raddir í
Evrópu um að hann hefði verið eins
og fjarrænn, kaldur. Svipuð gagn-
rýni hefur reyndar heyrst vest-
anhafs, sumum þykir forsetinn ekki
sýna nógu oft tilfinningar sínar.
Obama þykir hafa komist allvel frá
sínum fyrsta leiðtogafundi þótt hann
hafi ekki getað talið leiðtoga Frakk-
lands og Þýskalands á að fylgja for-
dæmi Bandaríkjamanna og Breta og
dæla skattfé út í efnahaginn til að
leysa hann úr frostinu. Evrópuríkin
óttast verðbólgu í kjölfarið og finnst
mikilvægara að herða eftirlit með
fjármálafyrirtækjum. En Obama
sýndi sveigjanleika og kom til móts
við þær kröfur. Honum tókst líka að
finna málamiðlun þegar til harðra
deilna kom um skattaskjól á G-20-
fundinum milli forseta Frakklands,
Nicolas Sarkozys, og Hu Jintaos,
forseta Kína. Þeir eru sagðir hafa
hvæst hvor á annan.
Obama lagði á blaðamannafund-
inum á það áherslu að Bandaríkja-
menn þyrftu á aðstoð annarra ríkja
að halda, nú þyrfti hnattrænt sam-
starf. „Ef málið snýst bara um að
Roosevelt og Churchill setjist saman
og fái sér koníaksglas er auðveldara
að semja,“ sagði hann. „En þannig er
ekki heimurinn sem við lifum í og
þannig á hann ekki að vera.“
The New York Times sagði Obama
hafa sýnt þá nærgætni gagnvart vin-
um sem forvera hans, George W.
Bush, hefði skort. „Við óttumst hins
vegar að nú sé hvorki rétti tíminn né
rétti málstaðurinn til að halda aftur
af sér. Ef hagvöxtur í heiminum held-
ur áfram að minnka – og það bendir
allt til þess – verður forsetinn að fara
að sýna meiri hörku.“
Góð frammistaða Obamas
Beitti sér persónulega á G-20-fundi og fann málamiðlun
í deilu Nicolas Sarkozys og Hu Jintaos um skattaskjól
FORSÆTISRÁÐHERRA Dan-
merkur, Anders Fogh Rasmussen,
lýsti í gær opinberlega yfir fram-
boði sínu í emb-
ætti fram-
kvæmdastjóra
Atlantshafs-
bandalagsins en
ætlunin er að
ákveða á leið-
togafundinum
um helgina hver
taki við af Hol-
lendingnum Jaap
de Hoop Scheff-
er.
Talið er víst að öll aðildarríkin
að Tyrklandi undanskildu styðji nú
í reynd Fogh sem yrði fyrsti Norð-
urlandabúinn til að taka við emb-
ættinu í 60 ára sögu NATO. En
ráðamenn í Tyrklandi hafa lýst yf-
ir andstöðu sinni. Þeir hafa lengi
gagnrýnt harkalega að Danir skuli
leyfa kúrdískri gervihnattasjón-
varpsstöð, Roj TV, að hafa bæki-
stöð í landinu en Tyrkir saka hana
um að senda út áróður kúrdískra
uppreisnarmanna.
Annað sem þeir finna að Fogh er
að hann skyldi leggja áherslu á
tjáningarfrelsið þegar deilt var
sem mest um skopteikningar af
Múhameð spámanni sem birtar
voru upprunalega í Jyllandsposten.
Til blóðugra óeirða kom víða í ríkj-
um múslíma vegna myndanna.
kjon@mbl.is
Fær Fogh
embættið?
Anders Fogh
Rasmussen
AÐ MINNSTA kosti fjórtán manns
lágu í valnum í gærkvöldi eftir að
byssumaður hóf skothríð í bænum
Binghamton í New York-ríki. Hermt
er að maðurinn hafi tekið 20 til 40
manns í gíslingu áður en hann hafi
fyrirfarið sér.
David Paterson, ríkisstjóri New
York, sagði að árásarmaðurinn hefði
orðið þrettán manns að bana áður en
hann fyrirfór sér. Fjórir voru fluttir
á sjúkrahús vegna alvarlegra skot-
sára og tveir þeirra gengust undir
skurðaðgerð í gærkvöldi.
Árásin var gerð í byggingu stofn-
unar sem aðstoðar innflytjendur og
flóttafólk sem leitað hefur hælis í
New York-ríki. Fólkið var á sam-
komu í byggingunni þegar árásar-
maðurinn hóf skothríðina.
Að sögn CNN-sjónvarpsins var
árásarmaðurinn 42 ára karlmaður
frá upphéruðum New York. Hermt
er að maðurinn hafi lagt bíl við bak-
dyr byggingarinnar til að hindra að
fólkið gæti komist út.
Mikill fjöldi vopnaðra lögreglu-
manna og sérsveitarmanna um-
kringdi bygginguna. bogi@mbl.is
Fjórtán manns
lágu í valnum
AP
Fjöldamorð Lögreglumenn á vett-
vangi skotárásarinnar í gær.
GESTIR í skemmtigarði í Taichung á Taívan
virða fyrir sér risastóra brúðumynd af Lemuel
Gúlliver, hinni frægu sögupersónu breska
skáldsins Jonathans Swifts. Ferðir Gúllívers,
sem ritaðar voru á 18. öld, hafa lengi verið tald-
ar sígildar ævintýrasögur enda komst hann bæði
í kynni við þjóðir risa og dverga og ýmis furðu-
lönd í hinu fjarlæga Kyrrahafi. Það var þá að
miklu leyti ókannað af Evrópumönnum. En þeg-
ar sögurnar komu út voru þær ekki síður lesnar
sem samfélagsgagnrýni og háð undir rós, stríðs-
óðir kóngar og aðall álfunnar fá það óþvegið.
Afrek unnið í borginni Taichung á Taívan
Reuters
Böndum komið á Gúllíver
arlanda Atlantshafsbandalagsins
sem hófst í gærkvöldi.
Hættan meiri í Evrópu
Forsetinn fjallaði einnig um efna-
hagskreppuna í heiminum og nefndi
Ísland sem dæmi um hversu háðar
þjóðir heims væru hver annarri.
„Það er ekki meira en mannsaldur
síðan að erfitt hefði verið að ímynda
sér að það að einhver skyldi ekki
geta greitt fyrir hús á Flórída gæti
stuðlað að hruni bankakerfisins á Ís-
landi,“ sagði Obama. „Það sem erfitt
er að hugsa sér núna er að við skyld-
um ekki hafa gripið til ráðstafana
fyrr til að móta framtíð okkar.“
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BARACK Obama, forseti Banda-
ríkjanna, sagði í ræðu í Strassborg í
gær að hann hygðist beita sér fyrir
heimi án kjarnavopna og kvaðst ætla
að útlista það metnaðarfulla mark-
mið í annarri ræðu í Prag um
helgina.
„Jafnvel núna þegar kalda stríðinu
er lokið gæti útbreiðsla kjarnavopna
eða þjófnaður á efnum í slík vopn
leitt til gereyðingar hvaða borgar
sem er á jörðinni,“ sagði Obama þeg-
ar hann ávarpaði um 2.000 manns í
Strassborg fyrir fund leiðtoga aðild-
Forsetinn kvaðst einnig vilja bæta
samskipti Bandaríkjanna og evr-
ópskra aðildarlanda NATO og við-
urkenndi að stjórnvöld í Washington
hefðu sýnt bandamönnum sínum
hroka. Hann bætti þó við að tog-
streituna mætti einnig rekja til
„lúmskrar“ andúðar á Bandaríkjun-
um og ósanngjarnrar gagnrýni af
hálfu Evrópulanda.
Obama skoraði á Evrópuríkin að
leggja meira af mörkum til barátt-
unnar gegn liðsmönnum al-Qaeda í
Afganistan og sagði að Evrópulönd-
um stafaði jafnvel meiri hætta en
Bandaríkjunum af hryðjuverka-
starfsemi í heiminum.
Hyggst beita sér fyrir
heimi án kjarnavopna
Obama nefnir Ísland sem dæmi um samofið heimshagkerfi
Hvernig tóku Bretar Obama?
Hrifningin er mikil og er til þess
tekið hvað eiginkonan, Michelle
Obama, hafi komið vel fyrir.
Fremur látlaust fataval hennar er
líka sagt eiga vel við á kreppu-
tímum.
Brutu hjónin siðareglur?
Michelle lagði arminn utan um
Elísabetu drottningu sem mun
vera brot á hirðsiðum. En henni
var fyrirgefið brotið, ekki síst
vegna þess hve vel fór á með
þeim.
S&S
Hláturmildur Obama á frétta-
mannafundi eftir G-20 fundinn.