Morgunblaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 50
50 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009
Sudoku
Frumstig
8 3 1
3 2 7 9
4
6 7 4
1 5 8 7 6
5 3
8 1
1 9
8 3 4
8 5 3
6 4 7
9 2
8 6 5 1 4
3 9
1
7 3
1 8 5
2 1 9
3 8 1
1 2
5
8 6 7 5
4 5
3 8 1 4
7 4 9 8
2 9 3
6 7
2 1 4 5 3 7 8 6 9
5 7 9 1 8 6 2 4 3
6 8 3 2 9 4 1 7 5
7 6 2 4 1 9 3 5 8
4 5 1 8 7 3 9 2 6
9 3 8 6 5 2 7 1 4
1 9 7 3 6 5 4 8 2
3 2 6 7 4 8 5 9 1
8 4 5 9 2 1 6 3 7
6 9 2 7 8 1 4 5 3
8 4 1 2 3 5 9 7 6
5 3 7 6 9 4 2 8 1
2 6 3 1 5 8 7 9 4
1 5 9 4 2 7 6 3 8
7 8 4 9 6 3 1 2 5
4 7 8 3 1 2 5 6 9
3 1 6 5 7 9 8 4 2
9 2 5 8 4 6 3 1 7
5 2 8 9 4 7 6 1 3
9 3 6 2 1 5 8 7 4
4 7 1 8 3 6 5 2 9
7 9 2 5 6 1 3 4 8
6 1 4 3 8 9 7 5 2
8 5 3 7 2 4 9 6 1
2 6 7 1 9 8 4 3 5
3 4 9 6 5 2 1 8 7
1 8 5 4 7 3 2 9 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 4. apríl, 94. dagur
ársins 2009
En hjálparinn, andinn heilagi, sem
faðirinn mun senda í mínu nafni, mun
kenna yður allt og minna yður á allt
það, sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.)
Heitt vatn skipar stóran sess í lífiVíkverja, sem er fastagestur í
sundlaugum Reykjavíkur. Fyrr í
þessari viku hafði Víkverji t.d. sjáv-
arpottinn í Laugardalnum út af fyrir
sig og gat því látið sig fljóta í heitu
vatninu, falinn þéttri gufu sem ein-
staka sólstafur smaug í gegnum og
eitt augnablik sannfærðist Víkverji
um að sennilega væri hann staddur í
himnaríki. Ekki er vellíðanin minni í
gufubaðinu og sánu. Sæluhrollur
hríslast ævinlega um Víkverja um
leið og fæti er stigið í sjóðandi heita
gufu, ekki síst eftir almennilega heitt
og kalt-meðferð, þ.e.a.s. þegar Vík-
verji dembir sér í ískalt bað og sjóð-
heita gufu til skiptis þangað til lík-
aminn kemst í allt að því vímukennt
ástand. Víkverji er þakklátur finnsku
hugviti fyrir að hafa fært sér slíka al-
sælu í formi sánu og er raunar stað-
ráðinn í því að byggja sér einhvern
tíma einkasaunu heima hjá sér – góð-
æri eður ei.
x x x
Sundlaugamenning Íslendinga ertil fyrirmyndar og Víkverji er
þakklátur fyrir að búa í landi þar sem
nóg er af heitu vatni til að fullnægja
þessari nautn hans. Hinsvegar mættu
Íslendingar ýmislegt læra af öðrum
þjóðum í þessum efnum. Í hinum full-
komnasta heimi allra heima (í huga
Víkverja) eru pottarnir og sánan að-
skilin sportinu, þ.e.a.s sundlaugunum
og hasarnum, til að fullkomna slök-
unina. Og í fyrra uppgötvaði Víkverji
reyndar að þessi fullkomni heimur er
til. Hann er í Japan. Baðhúsamenn-
ing Japana er í mörgu lík sundlauga-
menningu Íslendinga nema hvað þar
eru baðhúsaferðirnar nánast eins og
helgisiður. Í Japansför sinni heim-
sótti Víkverji margar slíkar onsen-
eða sento-laugar. Það voru jafnt út-
hverfa-onsen í Kyoto, gamlar kletta-
laugar í flæðarmáli Shirahama, lúxus-
onsen á Odaiba-eyju í Tókýó og
sveita-onsen við rætur Fuji-fjalls.
Alls staðar er sama áherslan á innri
og ytri hreinsun og slökun. Víkverji
var heillaður. Þegar hann er búinn að
byggja sér einkasána í framtíðinni
verða íslensk/japönsk onsen næsta
verkefni. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 roggin, 8 hár-
flóki, 9 leika skák, 10
gagn, 11 veðurfarið, 13
flýtinn, 15 skrafs, 18 kal-
viður, 21 hold, 22 fal-
legur, 23 atlæti, 24
sneiða hjá.
Lóðrétt | 2 angist, 3
eyddur, 4 valska, 5 doka
við, 6 má til, 7 sár, 12
reið, 14 kúst, 15 veislu,
16 ilmur, 17 skrifað, 18
mæna, 19 stillt, 20
gleðja.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fjálg, 4 japla, 7 efast, 8 rufum, 9 tin, 11 kugg,
13 þröm, 14 ólmur, 15 kurl, 17 árás, 20 urt, 22 ögrun, 23
unnur, 24 nakin, 25 torfa.
Lóðrétt: 1 flesk, 2 ágang, 3 gott, 4 járn, 5 páfar, 6 aum-
um, 10 ilmur, 12 gól, 13 þrá, 15 kvörn, 16 Rúrik, 18 rýn-
ir, 19 sárna, 20 unun, 21 tukt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4
Rd7 5. Rg5 Rgf6 6. Bd3 e5 7. Bc4 Rd5
8. R1f3 exd4 9. Dxd4 R7f6 10. O-O Be7
11. c3 O-O 12. Re4 Be6 13. He1 h6 14.
Rc5 Bc8 15. Bd2 b6 16. Re4 Bf5 17.
Rxf6+ Bxf6 18. Re5 Hc8 19. Bf4 Be6
20. Bg3 b5 21. Bb3 Rb6 22. Bxe6 fxe6
23. Dg4 He8 24. h3 Dd2 25. He2 Dd5
26. b3 c5 27. He4 Dd2 28. c4 bxc4 29.
bxc4 Dg5 30. De2 Hcd8 31. Rf3 Df5 32.
Be5 Bxe5 33. Hxe5 Df4 34. Hxc5 e5 35.
Hxe5 Hxe5 36. Dxe5 Dxc4 37. De7 Hd7
38. De8+ Kh7 39. He1 Dxa2
Staðan kom upp í atskák á Amber-
mótinu sem lauk fyrir skömmu í Nice í
Frakklandi. Peter Leko (2751) frá
Ungverjalandi hafði hvítt gegn Rúss-
anum Alexander Morozevich (2771).
40. Rg5+! og svartur gafst upp enda
yrði hann mát eftir 40…hxg6 41. Dh5+
Kg8 42. He8#.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Enginn er eyland.
Norður
♠Á10632
♥D94
♦K10
♣975
Vestur Austur
♠K875 ♠D9
♥32 ♥ÁG65
♦865 ♦G973
♣G643 ♣Á108
Suður
♠G4
♥K1087
♦ÁD42
♣KD2
Suður spilar 3G.
Þótt hlutskipti sagnhafa sé einmana-
legt er hann alls ekki einn í heiminum –
andstæðingarnir eru á sínum stað,
boðnir og búnir til að hjálpa ef rétt er
að þeim farið. Spil dagsins er frá sjöttu
umferð Íslandsmótsins. Meirihluti
sagnhafa fékk níu slagi í þremur
gröndum en allmargir fóru þó niður.
Hjartagosinn er mikilvægur og hann
þarf helst að finna. Hvernig á að spila
með laufi út upp á ás og meira laufi til
baka?
Það væri alla vega góð byrjun að
spila HJARTATÍU þriðja slag. Tían
hefur aðdráttarafl og það er erfitt fyrir
vestur að standast þá freistingu að
leggja á með gosann. En í þessu tilfelli
fylgir vestur áhyggjulaus lit með smá-
spili. Þá er rökrétt að fara upp með
drottninguna og svína síðar fyrir gosa
austurs. Sú svíning er 90%, ekki 50%.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það er óþarfi að byrgja allt inni
þegar þú átt aðgang að góðum sálufélaga.
Segðu færra og stattu við það, annað
hefði sorglegar afleiðingar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú getur fundið aðferð til að njóta
þeirra sem þú dýrkar, án þess að það lami
þig. En hvað þýðir það nákvæmlega? Ein-
hvers staðar innra með þér veistu það.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert sjálfsörugg/ur og vilt
leggja þitt af mörkum til að breyta heim-
inum. Bíddu í tvær vikur með að setja
fram kröfur þínar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þegar vinur trúir þér fyrir leynd-
armáli verður þú að reynast traustsins
verður. Nú er rétti tíminn til að beita
þrýstingi ef þess þarf.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Nú er kjörið tækifæri til að kynna
nána vini þína hvorn fyrir öðrum. Líttu til
þess sem vel hefur gengið og er þér og
þínum til skemmtunar.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Það er leiðindaeiginleiki að segja
ranga hluti á röngum tíma og afsök-
unarbeiðnirnar verða margar og þreyt-
andi.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Einhver gæti beðið þig um að láta
skoðun þína í ljós á einhvers konar hönn-
un í dag. Ekki láta yfirlæti eða dramb
verða þér að falli.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Leggðu áherslu á að hafa alla
pappíra í röð og reglu og vita nákvæm-
lega hver staðan er hverju sinni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þótt það sé freistandi að halda
friðinn og verða við kröfum annarra er
það ekki endilega rétta lausnin til fram-
búðar.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert eitthvað að bralla, en það
er mikilvægt að fara ekki fram úr sjálfum
sér. Þú ert í þeirri stöðu að geta tekið
skref fram á við.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Annaðhvort ertu ónóg/ur
sjálfri/um þér eða þá að þú heldur að aðrir
efist um dómgreind þína.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Hugsanlegt er að eitthvað sem
fiskurinn gerir í dag veki á honum at-
hygli. Ef tækifæri til ferðalaga gefst
skaltu grípa það fegins hendi.
Stjörnuspá
4. apríl 1897
Hið íslenska prentarafélag var
stofnað. Það er nú hluti af
Félagi bókagerðarmanna og
elsta starfandi verkalýðsfélag
landsins.
4. apríl 1995
Ragnar Th. Sigurðsson ljós-
myndari og Ari Trausti Guð-
mundsson jarðeðlisfræðingur
komust á Norðurpólinn kl.
21.24, sennilega fyrstir Íslend-
inga. Þeir fóru þangað með
flugvél og lögðu að baki 42
þúsund kílómetra.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Hrafnkell Ás-
geirsson er sjö-
tugur í dag, 4.
apríl. Hann elsk-
ar íslenska nátt-
úru og kýs því að
eyða þessum sér-
staka degi í sum-
arbústað í Gríms-
nesinu með konu
sinni Oddnýju M. Ragnarsdóttur,
börnum, barnabörnum og nánustu
ættingjum. Hrafnkell sendir bestu
kveðjur til vina sinna nær og fjær.
70 ára
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is
Stefán Ágústs-
son, Skólastíg 14,
Stykkishólmi, er
sjötugur í dag, 4.
apríl. Hann
dvelst á afmæl-
isdaginn á sól-
skinseyjunni Te-
nerife í góðu
yfirlæti.
70 ára
RAGNHEIÐUR Lárusdóttir var nýlent í París er
blaðamaður hafði samband við hana. En sex-
tugsafmælisdeginum ætlar hún að eyða ásamt
eiginmanninum á golfhóteli suður af París. „Ég
er komin í afmælisgírinn,“ segir Ragnheiður.
Þetta er ekki fyrsti afmælisdagurinn sem hún
tekur sér kylfu í hönd, því golfferðirnar eru
orðnar nokkrar í gegnum tíðina og var m.a.
dvalið við golfleik í Dóminíska lýðveldinu þegar
hún varð fimmtug. „Þetta er baktería sem ekki
er hægt að lækna mig af,“ segir hún. Það sé líka
kærkomið að geta heimsótt golfvelli erlendis
þegar vorið heima láti bíða eftir sér.
Að lokinni Frakklandsdvölinni fer hún til Austurríkis að hitta börn,
tengdabörn og barnabörn á skíðasvæði við landamæri Sviss. „Þannig
teygist úr afmælisveislunni,“ segir Ragnheiður sem kveðst þó ekki
stunda skíðaíþróttina af neinum krafti. „Ég geri meira af því að
ganga á veturna og læt öðrum eftir skíðaástundina. Það er samt
einkar gaman að vera á þessum skíðasvæðum, landslagið er fallegt og
mikið hægt að vera úti. Ég mun þó að sjálfsögðu bregða mér eitthvað
á skíði líka þó að ég láti hæstu brekkurnar eiga sig.“ annaei@mbl.is
Ragnheiður Lárusdóttir 60 ára
Ólæknandi golfbaktería