Morgunblaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@ mbl.is
VERIÐ er að skoða möguleika á að
tengja betur starfsemi Íslensku óp-
erunnar og Íslenska dansflokksins
við tónlistar- og ráðstefnuhúsið við
Austurhöfn, jafnvel með framtíð-
araðsetur í huga undir æfingar, sýn-
ingar og skrifstofuaðstöðu.
Er þetta hluti af hugmyndum um
breytta nýtingu á tónlistarhúsinu eft-
ir að verkið hefur verið endur-
fjármagnað af ríki og borg. Innan
veggja menntamálaráðuneytisins er
verið að vinna að endurskoðun á
menningarstefnu ríkisins í ljósi efna-
hagsaðstæðna og nýting tónlistar-
hússins er stór liður í þeirri vinnu.
Verði niðurstaðan sú að óperan og
dansflokkurinn fái inni í tónlistarhús-
inu bætast þau í hóp með Sinfón-
íuhjómsveit Íslands, sem frá upphafi
hefur verið reiknað með að flytji
starfsemi sína og aðstöðu í húsið.
Jafnframt hefur verið talað um að Ís-
lenska óperan fái inni í fyrirhuguðu
tónlistarhúsi í Kópavogi. Gunnar I.
Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi,
segir þessar hugmyndir um breytta
nýtingu tónlistarhússins í Reykjavík
engu breyta um þeirra áform. Ef
óperan fari þar inn þurfi að gera
miklar breytingar á húsinu. „Óperan
mun aldrei geta átt heima þarna
nema til bráðabirgða,“ segir Gunnar
sem ætlar að bíða eftir því að efna-
hagsfárviðrið gangi niður.
Óperustjórinn spenntur
Þegar rætt var við Stefán Bald-
ursson óperustjóra í gær var hann
nýkominn úr skoðunarferð um tón-
listarhúsið ásamt stjórn óperunnar.
Hann er vel kunnugur framkvæmd-
inni og sat á sínum tíma í dómnefnd
sem fór yfir tillögur að hönnun tón-
listarhússins. Ekki er annað að heyra
en að hann sé spenntur fyrir hug-
myndinni.
„Húsið er upphaflega ekki hannað
fyrir óperuflutning en ég hef alltaf
haldið því fram að þarna sé hægt að
flytja óperur í stóra aðalsalnum. Það
er vel þess virði að skoða þetta og alls
ekki útilokað að við getum farið þarna
inn. Enn er óráðstafað ýmsum rým-
um í húsinu þannig að þetta er ekki
óraunhæfur kostur,“ segir Stefán og
telur stjórn óperunnar verða að
skoða þennan möguleika gaumgæfi-
lega. Vegna ástandsins í þjóðfélaginu
hafi áformum um tónlistarhús í Kópa-
vogi verið ýtt til hliðar í bili. Kópa-
vogsbæ sé vel kunnugt um viðræður
óperunnar við ríki og borg.
Stefán segir salarkynni hússins
hafa upp á margt að bjóða varðandi
æfingar og annað en óperan kæmi
fyrst og fremst til með að flytja sín
verk í aðalsalnum. Ekki þurfi að gera
miklar breytingar á honum, enda sé
hann hannaður með fyrsta flokks
hljómburð í huga.
„Í ljósi kringumstæðna er skyn-
samlegt að reyna að nýta húsið á sem
fjölbreytilegastan hátt, ekki síst hjá
þeim menningarstofnunum sem
reknar eru á vegum hins opinbera.“
Fyrstu danssporin stigin
Katrín Hall, listrænn stjórnandi
Íslenska dansflokksins, segir áform
um að flytja flokkinn í tónlistarhúsið
á algjöru frumstigi. „Ég vil skoða
þetta með jákvæðum huga en fyrst
verður húsnæðið að henta okkar þörf-
um,“ segir Katrín og telur að hug-
myndin hefði mátt koma fram strax í
upphafi hönnunar á húsinu. Nú þurfi
að gera á því nokkrar breytingar ef
dansinn eigi að fá þar aðstöðu. Að
ýmsu er að hyggja í þeim efnum, ekki
bara fyrir sýningar, heldur æfingar,
búningsklefa, skrifstofur og fleira.
Íslenski dansflokkurinn er með að-
stöðu í Borgarleikhúsinu og hefur þar
samning til ársins 2012. Þó að sam-
starfið við leikfélagið hafi gengið vel
segir Katrín að draumur dansflokks-
ins hafi alltaf verið sá að reist yrði
sérstakt danshús. Nú verði hins veg-
ar að taka mið af breyttum aðstæðum
og skoða betur þennan möguleika
með tónlistarhúsið.
Sungið og dansað í húsinu?
Tölvumynd/Austurhöfn
Tónlistarhús Svona kemur tónlistar- og ráðstefnuhúsið við Austurhöfn til með að að líta út að utan. Ólafur Elíasson
listamaður hannaði glerhjúpinn utan um húsið en í því verða fjórir salir, aðalsalurinn tekur um 1.800 manns í sæti.
Íhugað að Íslenska óperan og Íslenski dansflokkurinn fái aðstöðu í tónlistarhúsinu við Austurhöfn
Breytir ekki áformum okkar um tónlistarhús í Kópavogi, segir Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt endurnýjuðusamkomulagi um tónlistar-
húsið við Austurhöfn á verk-
inu að vera lokið í byrjun árs
2011 og húsið tekið í notkun í
apríl það ár.
»Bygging tónlistarhúss viðSalinn og Gerðarsafn í
Kópavogi átti að hefjast á síð-
asta ári en hefur verið sett í
bið. Einkaaðilar ætluðu að
koma að fjármögnun hússins
til hálfs á móti bænum.
AUSTURHÖFN-TR, félagið sem tek-
ið hefur yfir byggingu tónlistar-
hússins, reiknar með 856 millj-
ónum króna í raunvexti á
byggingartíma til 2011. Án vaxta er
stofnkostnaður áætlaður 13,3
milljarðar en til að hafa lánaheim-
ildina ekki of þrönga er sam-
bankalánið upp á 14,5 milljarða.
Stefán Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Austurhafnar-TR,
segir að 14,5 milljarðar króna séu
því kostnaðarverð hússins. Afar
villandi sé að tala um að 28 millj-
arðar króna fari í tónlistarhúsið,
líkt og fram kom í Morgunblaðinu í
gær. Sú tala var fengin með því að
taka framlag ríkis og borgar til
tónlistarhússins upp á ríflega 800
milljónir á ári í 35 ár, eins og
samningur um byggingu og rekst-
ur hússins frá 2006 kvað á um.
Stefán segir það villandi að taka
árlegar afborganir og vexti á
löngum lánum, margfalda það með
árafjölda og tala um það sem
kostnaðarverð. „Þetta er eins og
að segja um mann sem kaupir íbúð
á 25 milljónir, og tekur lán til 40
ára fyrir stærstum hluta verðsins,
að hann hafi keypt fyrir 50 millj-
ónir, sem gæti verið það sem hann
borgar í vexti og afborganir á 40
árum. Ef ríki og borg eiga húsið
áfram gætu þau hvenær sem er
borgað lánin upp,“ segir Stefán.
856 milljónir króna í vexti á byggingartíma
Sóknarnefnd Sel-
fosssóknar óskar
eftir því að séra
Gunnar Björns-
son komi ekki aft-
ur til starfa sem
sóknarprestur við
Selfosskirkju.
Gunnar var ný-
lega sýknaður í
Hæstarétti af
ákæru um að hafa
sýnt tveimur stúlkum kynferðislega
áreitni. Gunnari var á sínum tíma
veitt lausn frá störfum um stund-
arsakir. Biskupsstofa hefur upplýst
að hann snúi aftur til starfa 1. maí nk.
Sóknarnefndin óskaði eftir því, eft-
ir dóm undirréttar, að Gunnar kæmi
ekki aftur til starfa. Sagði Eysteinn
Ó. Jónasson sóknarnefndarformaður
að vegna atriða sem fram komu í
dómnum væri ekki við hæfi að Gunn-
ar kæmi inn í það mikla barnastarf
sem unnið væri. „Það var afstaða
okkar að þar sem orð væri gegn orði
myndu börnin njóta vafans.“ Æsku-
lýðssamband þjóðkirkjunnar hefur
lýst sömu skoðun.
Lögmaður Gunnars hefur rætt við
fulltrúa Biskupsstofu um bætur
vegna þess tjóns sem málið hefur
valdið honum. Honum hafa ekki verið
boðin starfslok, samkvæmt upplýs-
ingum Biskupsstofu.
Sr. Gunnar
snúi ekki til
starfa á ný
Eysteinn Ó.
Jónasson