Morgunblaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 04.04.2009, Blaðsíða 51
Velvakandi 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. APRÍL 2009 Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand MANSTU EFTIR GRÉTU, GÖMLU KÆRUSTUNNI MINNI? ÞESSARI MEÐ STERKU KJÁLKAVÖÐVANA? MIKIÐ ROSALEGA GAT HÚN BORÐAÐ HRATT ÉG SKIL EKKI AF HVERJU ÞÚ LEYFÐIR HENNI AÐ SLEPPA VIÐ ELSKUM HVORT ANNAÐ UNGT FÓLK Í DAG ÞIÐ ERUÐ HRÆSNARAR! EKKERT ANNAÐ! HALDIÐ ÞIÐ AÐ ÞIÐ GETIÐ PLATAÐ JÓLASVEININN? AF HVERJU EKKI? VIÐ ERUM KLÁRIR KRAKKAR OG HANN ER BARA GAMALL KARL MAMMA, Í HÁDEGINU, ÞEGAR ÉG TÓK UPP SAMLOKUNA SEM ÞÚ GERÐIR HANDA MÉR, VAR SULTAN BYRJUÐ AÐ SOGAST INN Í BRAUÐIÐ Á MORGUN VIL ÉG AÐ ÞÚ SETJIR SULTUNA Í SÉRSTAKT ÍLÁT SVO ÉG GETI SMURT HENNI Á BRAUÐIÐ MITT RÉTT ÁÐUR EN ÉG BORÐA ÞAÐ, SVO ÞAÐ VERÐI EKKI KLÍSTRAÐ OG ÓGEÐSLEGT ÉG HEF LÍKA TEKIÐ EFTIR ÞVÍ AÐ ÞÚ NOTAR ALLTAF SNEIÐAR ÚR MIÐJU BRAUÐINU. ÉG VIL BARA FÁ ENDANA, ÞVÍ ÞEIR DRAGA EKKI Í SIG SULTU ÓTRÚLEGT! HÚN GERÐI ÞAÐ AFTUR! HÚN VILL AÐ VIÐ SKRIFUM UNDIR ÞETTA ÁÐUR EN VIÐ RÁÐUMST INN Í KASTALANN HVAÐ ER ÞETTA? HÉR STENDUR AÐ VIÐ LOFUM AÐ GERA VIÐ ALLAR RISPUR Á HÚSGÖGNUM SEM VIÐ KOMUM TIL MEÐ AÐ VALDA Í ÞESSARI INNRÁS ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ ÞÚ HAFIR HLEYPT HENNI INN, ÞRÁTT FYRIR AÐ ÞÚ VISSIR AÐ LEONA HELMSLEY ÆTTI HANA! HÚN LÆTUR EINS OG HÚN EIGI HÚSIÐ! HÚN ER EKKI SVO SLÆM... HVAÐA HÁVAÐI ER ÞETTA? ÉG ER AÐ LÁTA ENDUR- INNRÉTTA ELDHÚSIÐ HVAÐ ER ÞETTA? ÞETTA ER ROTTA SEM VINKONA MÍN Á. ÉG ER AÐ PASSA HANA Á MEÐAN HÚN ER Á SPÁNI HÚN HEITIR „NARTA“ ÆÐI! MEGUM VIÐ FÁ SVONA ROTTU? KANNSKI ÞEGAR ÉG DEY ÆTLAR ÞÚ AÐ SEGJA MÉR LEYNDARMÁLIÐ? LEYNDAR- MÁLIÐ? HVAÐA LEYNDAR- MÁL? MIG LANGAR BARA AÐ TAKA MYNDIR AF KÓNGULÓAR- MANNINUM ÉG FRÉTTI AÐ HANN VÆRI KOMINN AUSTUR ÞESS VEGNA KOM ÉG AFTUR TIL NEW YORK HELDUR ÞÚ ENNÞÁ AÐ HANN SÉ KÓNGU- LÓARMAÐURINN? HANN sýndi frambærilega takta, drengurinn sem æfði þrumuskot á leik- vellinum við Fossvogsskóla á dögunum. Morgunblaðið/Heiddi Flottir taktar Morgunblaðið/Heddi Traust er víðtækt hugtak TRAUST er víðtækt hugtak, samt gera flestir sér grein fyrir merkingu þess orðs. Mikið er fjallað um traust almennt þessa daga enda þjóð í vanda stödd. Brostið traust, kemur oft fyrir í hinni almennu umræðu nú til dags. Fólk treystir ekki alþingismönnum mörgum hverjum, né viðskiptabönkunum og hluta starfsfólks þeirra. Og kannske varla hvert öðru og er þá illa farið. Mér hefur fundist að sumir al- þingismenn hafi ekki þorað að segja sannleikann, heldur séu í algjörum blekkingarleik við fólk sem það von- ast svo til að kjósi sig að mánuði liðn- um. Tveir landsfundir stjórnmála- flokka voru haldnir fyrir skömmu. Eitt af aðalatriðum beggja, sem kom fram í framsögu formanna þessara flokka, var að biðjast fyrirgefningar og afsökunar á þeirra gjörðum, eða ekki gjörðum. Eins og þjóðfélagið er statt nú um stundir, hljóta einhverjir að bera meiri ábyrgð en aðrir og eru því varla traustsins verðir. Alþing- ismaður, ef ekki fleiri framámenn, hafa sagt að besta leiðin til að koma þjóðinni út úr ógöngum sé að spara. Ef hver viðkomandi heldur og beinir slíku til eldri borgara veit sá sem hér skrifar að um hreinan blekkingarleik er að ræða. Hefur viðkomandi alþingismaður vitneskju um hvað mikið af 12-15 milljörðum, sem fólk fór með sér heim (eftir bankahrunið) og er jafnvel búið að tapa 15-33% ofan á allt annað, hefur skilað sér til baka? Skyldi nú ekki vera að allnokkrir milljarðir væru enn í vörslu fólks? Nú eftir stendur stór hluti fólks sem ekki treystir bönkum fyrir sínu lausafé og geymir á ýmsan máta. Nú hefur lögum verið breytt á þann hátt að hver einasta króna sem eldra fólk öðlast, sem vextir, arður eða hvað sem það nefnist, fer beint til Trygg- ingastofnunar ríkisins til frádráttar á bótum sem viðkomandi nýtur frá þeirri stofnun. Glæsilegt, ekki satt? Dettur ein- hverjum í hug að arðvænt sé að liggja með fé á vöxtum til þess eins að fóðra Tryggingastofnun rík- isins? Hverju á eldra fólk að treysta þegar uppi er staðið, nema á sjálft sig? Virðing- arfyllst, Svanur Jóhannsson. Framsæknu konur ÞIÐ framsæknu fyr- irmyndarkonur, sem sækist eftir jafnræði við karlmenn á frama- brautinni í þeirri her- ferð að komast á Al- þingi og í sveitastjórnargeirann ásamt öðrum mikilsmetnum störfum í lífinu, vil ég spyrja: Af hverju viljið þið ekki fara á togara og önnur veiðiskip til jafns við karlmenn eða í vinnu hjá borg- inni að hreinsa ruslið sem líklega einungis karlmenn stunda? Mér finnst að þið konur sem viljið vinna alþingis- og sveitastörf eigið að fara fram á að vinna þessi þrifa- og kalsa- störf sem þessi bæði störf bjóða upp á. Það samræmist ekki að sækjast eftir völdum en hundsa kalsasöm störf sem ekki skjóta manni upp á stjörnuhimininn. Ég skora á alþing- iskonur að vinna að jafnrétti bæði á sjó og landi og á götum úti í rusla- hreinsun. Lifið heil. Kristjana Vagnsdóttir. Penninn – húsgögn ÉG vil taka undir grein sem „ánægð- ur viðskiptavinur“ Pennans sendi inn og birtist í Velvakanda 27. mars sl. Ég hef margsinnis verið í við- skiptum við starfsmenn húsgagna- deildar Pennans í Hallarmúla og hef fengið þar alveg afbragðs þjónustu, bæði faglega og ekki síst glaðlegt og skemmtilegt viðmót. Penninn má vera stoltur af þessu góða starfsfólki sem í felst mikill mannauður og vona ég innilega að Penninn geti haldið áfram að vera til staðar fyrir okkur sem viljum góða þjónustu. Annar ánægður viðskiptavinur.      Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Félag kennara á eftirlaunum | Fræðslu- og skemmtifundur í Stangarhyl 4, hefst kl. 13.30. Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9 og Hana-nú-ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergi | Alla virka daga kl. 9-16.30 er dagskrá fyrir fólk á öllum aldri. Miðvikud. kl. 11.30 er leikfimi (frítt). Þriðjud. og föstud. kl. 10.30 er stafganga. Á mánud. kl. 9 og föstud. kl. 13 er leikfimi (frítt) í ÍR-heimilinu v/ Skógarsel. Vatnsleikfimi í Breiðholtslaug kl. 10.50. S. 575-7720. Hraunsel | Bókmenntaklúbbur föstu- daga kl. 10-12. Sjá febh.is Hæðargarður 31 | Lokadagskrá í vor- ferðina í Borgarnes og flutningur Tungu- brjóta og Soffíuhóps á ljóðadagskránni „Og þá rigndi blómum …“ liggur frammi. Enn eru nokkur sæti laus. Fundur í bók- menntahópi á þriðjudag kl. 20. Lestr- arefni m.a. Óvinafagnaður og Ofsi eftir Einar Kárason. Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snælands- skóla v/Víðigrund kl. 9.30. Uppl. í síma 564-1490, 554-5330 og 554-2780. Lífeyrisþegadeild Landssambands lögreglumanna | Sunnudagsfundur deildarinnar er á morgun kl. 10 á Grett- isgötu 89. Síðasti fundur vetrarins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.