Morgunblaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.04.2009, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. APRÍL 2009 SVEFNSÓFA 20 - 30% AFSLÁTTUR! H E I L S U R Ú MRekkjan ehf ≤≥ Suðurlandsbraut 48 (Bláu húsin í Faxafeni) ≥≥ 108 Reykjavík 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 EITT MESTA ÚRVAL LANDSINS AF SVEFNSÓFUM! Verð frá 37.840 kr. FRÉTTASKÝRING Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is TÖF á annarri greiðslu láns Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins (IMF) til Íslands, í tengslum við efnahagsáætlun sjóðs- ins og íslenskra stjórnvalda, hefur lítil sem engin áhrif á stöðu efnahags- mála hér á landi, segir Franek Rozwadowski, fulltrúi IMF á Íslandi. Töfin á láninu, miðað við upphaflegar áætlanir, er meðal annars tilkomin vegna tæknilegra ástæðna við grein- ingu á stöðu efnahagsmála hér á landi og einnig vegna óróa í stjórn- málum landsins, og þá helst stjórn- arskiptanna fyrr á árinu. „Vinnan hefur tekið lengri tíma en búist var við, meðal annars við endurskipu- lagningu bankakerfisins. Þá skipti einnig töluverðu miklu að það urðu pólitískar breytingar í landinu fyrr á árinu og á meðan þær gengu yfir lá vinnan nánast alveg niðri,“ sagði Rozwadowski í samtali við Morgun- blaðið í gærkvöldi. Fyrsta borgun af láninu, sem í heild er áætlað að verði 2,1 milljarður dollara, var greidd í desember í fyrra og nam sú greiðsla um 830 milljónum dollara. Þeir peningar hafa ekki verið notaðir nema að litlu leyti og gerir áætlun IMF og íslenskra stjórnvalda ekki ráð fyrir því að grípa þurfi til þess að nota peninga frá sjóðnum beint til að greiða niður skuldir. Áætlað var að 155 milljóna dollara greiðsla kæmi til viðbótar í byrjun mars á þessu ári, að loknu verðmati á eignum og skuldum gömlu og nýju bankanna. Vegna tafa við end- urbyggingu bankakerfisins og al- menns óróa hefur efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda og IMF tafist um tvo og hálfan mánuð a.m.k. miðað við fyrstu áætlanir. Rozwadowski segir að IMF og ný ríkisstjórn muni þurfa að ræða sam- an að loknum kosningum, sem fara fram 25. apríl nk., og vinna eftir áætlun til að ná þeim markmiðum sem sett hafa verið. „Við verðum til taks strax að loknum kosningum. Um leið og ný ríkisstjórn kallar okk- ur til viðræðna þá geta þær hafist. Þær munu vafalítið standa yfir í nokkra daga og síðan mun vinnan halda áfram eftir venjubundnum leiðum [...] Það sem mestu máli skiptir er að halda áfram að vinna eftir áætlun til þess að ná þeim markmiðum sem hafa verið sett. Það skiptir ekki sköpum hvort lána- greiðslur skila sér nokkrum vikum eða mánuðum síðar en reiknað hafði verið með,“ sagði Rozwadowski. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis- ráðherra og formaður Samfylking- arinnar, lét hafa eftir sér í þættinum Zetunni á mbl.is í gær að óvissa í rík- isfjármálum, meðal annars vegna þess að ósamið væri um vaxtakjör á lánum til Íslands, væri ein ástæða þess að ekki væri enn búið að af- greiða aðra útborgun á láni IMF. Þá liggur fyrir, eins og greint hef- ur verið frá í Morgunblaðinu, að IMF mun aðeins inna fyrrnefnda greiðslu af hendi þegar endurmats- skýrslu um stöðu efnahagsmála er lokið og stjórn sjóðsins hefur sam- þykkt hana. Órói seinkar vinnu  Fulltrúi IMF segir vinnu hafa legið niðri meðan stjórnar- skiptin urðu í byrjun árs  Mikilvægt að halda áfram Morgunblaðið/Kristinn Viðræður Fulltrúi IMF, sem er á meðal hagfræðinga sjóðsins sem hingað komu í byrjun árs, sést hér ræða málin við Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra og Indriða Þorláksson, ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu. BLAÐAMENN Morgunblaðsins, Agnes Bragadóttir og Þorbjörn Þórð- arson, hafna því alfarið í svari til Fjár- málaeftirlitsins að hafa brotið þagn- arskyldu samkvæmt ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki. Vísa þau meðal annars til þess að ekki sé hægt að rjúfa aftur þagnarskyldu sem þegar hefur verið rofin. Blaðamennirnir birtu í greinum sínum upplýsingar úr lánabók Kaup- þings banka hf. annars vegar og Glitnis hf. hins vegar, meðal annars um lán til eigenda bankanna og tengdra aðila. Í bréfi sem Fjármála- eftirlitið skrifaði þeim í byrjun mán- aðarins kemur fram það álit eftirlits- ins að Agnes og Þorbjörn hafi brotið þagnarskyldu samkvæmt 58. grein laga um fjármálafyrirtæki. Þar kem- ur fram að starfsmenn fjármálafyr- irtækja eru bundnir þagnarskyldu um allt sem þeir fá vitneskju um í starfi og lýtur að málefnum viðskipta- manna og að sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi er bundinn þagnarskyldu með sama hætti. LEX lögmannsstofa hefur komið efnislega samhljóða andsvörum Agnesar og Þorbjörns á framfæri við FME. Þau telja það rökleysu að ætla að tilgreint ákvæði gildi þegar blaða- maður fær afhentar upplýsingar frá heimildarmanni sem með því brýtur gegn þagnarskyldu. Með afhendingu upplýsinganna hafi heimildarmaður blaðamannsins rofið þagnarskyldu og eðli málsins samkvæmt sé ekki unnt að rjúfa þá þagnarskyldu aftur. Þau telja að túlkun FME á þessu ákvæði sé beinlínis í andstöðu við fyr- irliggjandi lögskýringargögn og gild- andi rétt. Nefna að hún sé í andstöðu við tjáningarfrelsisákvæði stjórnar- skrár og samsvarandi ákvæði Mann- réttindasáttmála Evrópu enda sé sú takmörkun sem í henni felist í full- komnu ósamræmi við grundvallar- gildi í lýðræðisþjóðfélagi sem og það frelsi sem fjölmiðlum er nauðsynlegt til að sinna aðhaldshlutverki sínu. „Enn fremur er ljóst að landslög gera beinlínis ráð fyrir því að fjölmiðlar fjalli um allt það sem almenning kann að varða, þar með talið upplýsingar sem eru háðar trúnaði lögum sam- kvæmt. Þagnarskylduákvæðum er því fráleitt ætlað að vera skjól fyrir starfsemi sem almenningur á rétt á upplýsingum um [...] ,“ segir m.a. í svarinu. helgi@mbl.is Þagnarskylda hafði þegar verið rofin Blaðamenn hafna túlkun FME Í HNOTSKURN »Brot Agnesar, að matiFME, tengist efni grein- arinnar „Sjónarspil og sýnd- arleikir Glitnis og FL“ sem birtist 23. nóvember 2008. »FME telur að ÞorbjörnÞórðarson hafi brotið gegn lögunum með greininni „500 milljarðar til eigenda“ sem birtist 7. mars sl. Agnes Bragadóttir Þorbjörn Þórðarson „Það eru margir möguleikar fyrir ís- lensk stjórnvöld er varðar gjald- miðlamál til framtíðar. Upptaka evru er einn möguleiki, að halda sig við krónuna er annar, og svo fram- vegis. Okkar hlutverk er fyrst og fremst að ræða um kosti og galla þessara leiða við stjórnvöld til þess að hjálpa þeim að taka ákvörðun,“ segir Franek Rozwadowski, fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) hér á landi. Sjálfstæðisflokkurinn hefur und- anfarna daga auglýst að hann vilji taka upp evru sem gjaldmiðil hér á landi, í samvinnu við IMF, í lok efna- hagsáætlunar og þá í samvinnu og sátt við Evrópusambandið. Rozwadowski segir önnur mál vera mikilvægari í augnablikinu en að taka tillit gjaldmiðilsins, þó að vitaskuld þurfi skýra stefnu í því máli sem öðrum. „Í okkar huga er ekki enn komið að þeim tímapunkti að þessi mál séu til lykta leidd. Það þarf fyrst að gera bankakerfið starfhæft og koma á meiri stöð- ugleika.“ IMF tilbúinn að ræða kosti og galla við evru Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is HÁSKÓLI Íslands mun bjóða 35 námskeið í sumar og gera stúdentum mögulegt að taka próf í um 100 fög- um í haust. Kostnaður vegna sum- arnámsins er áætlaður 50 milljónir króna og verður greiddur úr rík- issjóði. Þetta kom fram á blaða- mannafundi í Háskólanum í gær. Að sögn Kristínar Ingólfsdóttur rektors verður boðið upp á nám á öll- um fræðasviðum en kynnt verður á næstu dögum hvaða námskeið verða í boði. Fjöldi prófa verður mun meiri en námskeiðin þar sem nemendum verður boðin aðstaða til sjálfsnáms og verkefnavinnu. Kristín sagði að við ákvörðun um námskeiðsframboð yrði m.a. tekið til- lit til þverfagleika, þ.e. að sem flestir gætu nýtt sér námskeiðin, þvert á deildir. „Við gerum ráð fyrir að lág- marksfjölda þurfi til að námskeið verði haldið,“ sagði hún. Þá væri unn- ið að því að nemendur gætu fengið nám metið milli háskóla á landinu. Katrín Jakobsdóttir mennta- málaráðherra sagði að með fjárveit- ingunni nú auk 660 milljóna auka- fjárveitingar til Lánasjóðs íslenskra námsmanna sem ákveðin var í síð- ustu viku, væri nú útlit fyrir verulegt framboð á námi í sumar. Auk HÍ mundu Háskólinn í Reykjavík, Há- skólinn á Akureyri og Háskólinn á Bifröst bjóða upp á sumarnám. Formaður Stúdentaráðs, Hildur Björnsdóttir, fagnaði sumarnáminu. „Nú vona ég að áhersla verði lögð á að bjóða fjölbreytt námskeið sem nýtast sem flestum og ég veit að þetta mun bæta úr þeim gífurlega at- vinnuleysisvanda sem verður í sumar meðal námsmanna.“ Gert er ráð fyrir að 5–7000 stúd- entar verði án atvinnu í sumar. Bjóða 35 námskeið í sumar HÍ fær 50 milljónir til að mæta kröfum stúdenta um sumarnám Morgunblaðið/Kristinn Samstarf Kristín Ingólfsdóttir, rektor HÍ, Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra og Hildur Björnsdóttir, formaður Stúd- entaráðs, kynntu sumarnámið. Í svörum LEX fyrir hönd Agnesar Bragadóttur og Þorbjörns Þórðarsonar kemur fram það álit að þótt Fjármálaeftirlitið haldi fast við þá túlkun að þau hafi brotið þagnarréttarákvæði sé fráleitt að beita þau viðurlögum. FME sé skylt að líta til veigamikils hlutverks fjölmiðla í lýðræðisþjóðfélagi, til tilgangs umfjöllunar þeirrar og þeirrar staðreyndar að um var að ræða innlegg í þjóðfélagsumræðu sem varðar almenning. Vakin er athygli á því að ekki verði séð að umfjöllunin hafi haft neikvæð áhrif á hagsmuni viðkomandi aðila. Það gefi augaleið að taki FME ákvörð- un um að beita viðkomandi viðurlögum sé um að ræða stórfellda takmörk- un á tjáningarfrelsi þeirra sem blaðamanna. Fram kemur það álit að hags- munir þeirra af því að fá notið stjórnarskrárvarins tjáningarfrelsis sem samtvinnað sé hagsmunum almennings í þessu tilviki, verði að vega þyngra en hagsmunir einstakra aðila af því að upplýsingar um viðkomandi fjár- hagsmálefni þeirra fari leynt. Ákvörðun um viðurlög fæli í sér brot á tján- ingarfrelsisákvæði stjórnarskrár sem sé rétthærra almennum lögum. Fráleitt að beita viðurlögum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.