Morgunblaðið - 25.04.2009, Side 9
Bæjarlind 6, opið kl. 10-16
Eddufelli 2, opið kl. 10-14
Kjólar við buxur
kr. 7.900
Litir: svart og grábrúnt
Hverfisgötu 6 • 101 Reykjavík • Sími 562 2862
KYNNINGAR-
DAGAR
24. apríl - 2. maí
15% AFSLÁTTUR
Stærðir 42-54
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
Hótel í miðbænum. Góður aðbúnaður.
295 dkr. fyrir manninn í 2ja manna herb. með
wc og sturtu
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20. www.loeven.dk
Sofðu vel! Í Kaupmannahöfn
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Gleðilegt
sumar
Engjateigi 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is
Engjateigi 5 • Sími 581 2141
www.hjahrafnhildi.is
Sumarjakkar
í úrvali
LAGERSALA LÍN DESIGN
www.lindesign.is/lagersala
Úrval rúmteppa, púða, dúka, rúmfatnaðar ásamt ýmsu öðru.
Sýniseintök og lítillega útlitsgallaðar vörur með allt að
80% afslætti.
Lagersalan er á Malarhöfða 8, í brekkunni fyrir aftan Ingvar
Helgason. Opið laugardag & sunnudag 10–16.
AÐEINS ÞESSA EINU HELGI.
Smiðjuvegi 11 (gul gata) Kópavogi.
LAGER
HREINSUN
föstudag 11-18 - laugardag 11-18 - sunnudag 13-18
Skór á alla fjölskylduna
vegna flutninga
á Smiðjuvegi 11 (gul gata) Kópavogi
Opnunartími
FRÁBÆR VE
RÐ!
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
HJÁ Landssambandi íslenskra út-
vegsmanna líta menn á Grænbók
Framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, um sjávarútvegsmál, sem
verðugt framlag til umræðunnar og
segja einlægan vilja hjá Fram-
kvæmdastjórninni til að hverfa frá
hinu gallaða kerfi. Þeir efast hins
vegar mjög um að hún nái breyting-
um fram, gegn harðri andstöðu að-
ildarríkjanna.
Handónýtt kerfi í ESB
„Í raun undirstrikar skýrslan að
hin sameiginlega sjávarútvegsstefna
ESB er handónýtt kerfi sem á ekk-
ert skylt við ábyrgar fiskveiðar,“
segir Sigurður Sverrisson, kynning-
ar- og upplýsingafulltrúi. Hann segir
Framkvæmdastjórnina viðurkenna
að reglan um hlutfallslegan stöðug-
leika haldi ekki, en það sé staðfesting
á því sem LÍÚ hafi lengi haldið fram.
Þeirri reglu hafi lengi verið teflt
fram sem tryggingu fyrir því að Ís-
lendingar haldi fiskveiðiréttindum
sínum gangi þeir í sambandið.
Skýrslan sýni að svo sé alls ekki.
„Þeir setja fram sem einn valkost
að taka upp framseljanlegar veiði-
heimildir. Það er kannski stóra frétt-
in. Þeir glíma við gríðarlega offjár-
festingu og ríkisstyrki í bandalaginu,
en aðildarríkin eru ekkert að hverfa
frá því. Það má kannski segja að þeir
vilji fara sömu leið og farin var hér
upp úr 1990,“ segir Friðrik Friðriks-
son, lögfræðingur LÍÚ. Hið endan-
lega umboð og vald verði hins vegar
áfram í Brüssel. Svo lengi sem valdið
verði þar breytist afstaða LÍÚ ekki í
grundvallaratriðum.
Frábær staða Íslendinga í ESB
„Ef Evrópusambandið fer þá leið
að breyta reglunni um hlutfallslegan
stöðugleika í þessa átt, þá mun ís-
lenskur sjávarútvegur verða í frá-
bærri aðstöðu til þess að auka sínar
veiðiheimildir,“ segir Aðalsteinn
Leifsson, stjórnmálafræðingur og
lektor við Háskólann í Reykjavík. Í
Grænbókinni er velt upp þeim mögu-
leika að taka upp framseljanlegar
aflaheimildir að íslenskum og norsk-
um sið. „En um leið segi ég að þetta
er umræðuskjal þar sem öllu er velt
upp og líkurnar á því að hlutfallslega
stöðugleikanum verði breytt eru að
mínu mati engar. Það byggist á því
að 26 af 27 aðildarríkjum hafa sagst
andsnúin því,“ bætir hann við.
Framkvæmdastjórnin veltir því
upp að til að ná efnahagslegum
markmiðum í fiskveiðum væri betra
að hin sterku fyrirtæki gætu sótt sér
frekari heimildir víðar en bara í sínu
eigin ríki. Þannig stangist á hlutfalls-
legur stöðugleiki og hins vegar hag-
ræðing í greininni. „Ef farið væri
þessa leið og við gengjum í ESB þá
myndi það skapa gríðarleg tækifæri
fyrir okkur, þar sem við erum með
mun hagkvæmari og sterkari sjávar-
útveg heldur en í flestum ríkjum
Evrópusambandsins.“
Músík í eyrum útvegsmanna
Í Grænbókinni er talað um að eyða
styrkjum, koma í veg fyrir brottkast,
fá meira virði úr hverjum fiski úr sjó
með betri vöru sem gefur hærra
verð, auka virkni eftirlits, koma til
móts við byggðarlög sem eru háð
sjávarútvegi með því að tryggja rétt-
indi smábáta til strandveiða og að ná
jafnvægi á milli auðlindar og sóknar
með hagkvæmari veiðum.
Að mati Aðalsteins ætti þetta að
hljóma sem tónlist í eyrum LÍÚ og
sjálfra útgerðarmannanna. „Þetta
sýnir að Framkvæmdastjórnin er að
setja fram hugmyndir sem eru okk-
ur Íslendingum mjög að skapi.
Ef þessi framtíðarsýn nær fram að
ganga sjáum við fram á virkilega
spennandi tíma fyrir íslenskan sjáv-
arútveg innan ESB,“ segir hann.
Íslenskur útvegur gæti
aukið veiðiheimildirnar
LÍÚ telur græn-
bók staðfesta fyrri
skoðun sína á ESB
GRÆNBÓKIN sem nú er komin út er upplýsingaskjal. Í henni er lögð til ger-
bylting á fiskveiðistjórnunarkerfi Evrópusambandsins. Slíkt skjal kemur út á
10 ára fresti og tekur þá fyrir hvað má betur fara í stefnunni. Leitað verður
viðbragða við henni út þetta ár og svo unnið úr þeim í samvinnu við Ráð-
herraráð ESB og aðildarríkin. Eftir það verður til stefnumótandi skjal, hvít-
bók. Ætlunin er að breytt stefna líti dagsins ljós á árinu 2012 og markmiðið
eftir það að framkvæmd nýrrar stefnu verði orðin fullkomin um 2020.
Reuters
Ný stefna 2012 – árangur 2020
Hve hagkvæmur er íslenskur sjáv-
arútvegur miðað við evrópskan?
Íslendingar veiða um 1,7 milljónir
tonna af fiski á ári og hér starfa um
4.000 manns í greininni. Í ESB eru
hins vegar um 220.000 manns í
greininni og þar eru veiddar um 6
milljónir tonna á ári. Offjárfesting í
skipum og útbúnaði er rótgróið
vandamál í evrópskum sjávarútvegi.
Hvert er ástand fiskistofna á haf-
svæðum undir stjórn ESB?
88% fiskistofna ESB eru ofveidd að
einhverju marki. Þar af eru 30%
fiskistofnanna svo illa stödd að óvíst
er talið hvort þeir nái sér aftur á
strik. Evrópskar útgerðir veiða fisk-
inn mikið smáan, áður en hann getur
fjölgað sér. 93% þorsks sem veiddur
er í Norðursjó hafa aldrei getið af sér
afkvæmi.
S&S