Morgunblaðið - 25.04.2009, Side 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
Vinstri grænir koma einhverrahluta vegna alltaf upp um sitt
rétta eðli rétt fyrir kosningar. Og nú
hafa þeir gert það þriðja sinni í vik-
unni.
Fjórum dögum fyrir kosningar gafSteingrímur J. Sigfússon til
kynna að hann langaði til að þjóð-
nýta Icelandair.
Þremur dögumfyrir kosn-
ingar lýsti Kol-
brún Halldórs-
dóttir yfir megnri
andúð á því að Ís-
land nýtti sér þær
olíuauðlindir, sem
kann að vera að
finna á Dreka-
svæðinu.
Í gær, daginn fyrir kosningar,stöðvuðu svo ráðherrar VG á rík-
isstjórnarfundi afgreiðslu þjónustu-
tilskipunar ESB, sem taka átti upp í
EES-samninginn.
Ögmundur Jónasson heilbrigðis-ráðherra vill kaupa sér tíma,
undir því yfirskini að senda þurfi
málið til umsagnar hagsmunaaðila.
Kannski til BSRB?
VG hefur áður ályktað að Íslandeigi að beita neitunarvaldi gegn
tilskipuninni. Ögmundur sagði í
þingræðu að færi tilskipunin í gegn,
ætti að íhuga að segja upp EES-
samningnum.
Það er nokkuð ljóst hvað Vinstrigrænir eru að gera með þessu
síðasta útspili sínu fyrir kosningar.
Þeir eru að segja við Samfylk-
inguna: Haldið ykkur á mottunni í
ESB-málinu. Þið megið bara þakka
fyrir að við beitum ekki neit-
unarvaldi eftir kosningar og setjum
sjálfan EES-samninginn í uppnám.
Þetta verður frábær vinstristjórn.
Ögmundur
Jónasson
Allt er þegar þrennt er
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 4 léttskýjað Lúxemborg 15 heiðskírt Algarve 22 heiðskírt
Bolungarvík -2 snjókoma Brussel 18 léttskýjað Madríd 24 léttskýjað
Akureyri 3 skýjað Dublin 9 skúrir Barcelona 18 heiðskírt
Egilsstaðir 8 skýjað Glasgow 14 skýjað Mallorca 21 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 9 skýjað London 17 heiðskírt Róm 20 léttskýjað
Nuuk 0 alskýjað París 18 heiðskírt Aþena 18 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað Amsterdam 18 heiðskírt Winnipeg 3 skýjað
Ósló 16 heiðskírt Hamborg 19 heiðskírt Montreal 13 heiðskírt
Kaupmannahöfn 13 heiðskírt Berlín 19 heiðskírt New York 16 heiðskírt
Stokkhólmur 18 heiðskírt Vín 18 léttskýjað Chicago 24 léttskýjað
Helsinki 13 heiðskírt Moskva 11 skýjað Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
25. apríl Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.17 0,3 6.17 3,8 12.29 0,1 18.37 4,1 5:20 21:33
ÍSAFJÖRÐUR 2.23 0,1 8.14 2,0 14.38 -0,0 20.35 2,1 5:11 21:51
SIGLUFJÖRÐUR 4.23 0,0 10.44 1,2 16.42 0,1 22.55 1,2 4:54 21:34
DJÚPIVOGUR 3.32 2,0 9.34 0,3 15.49 2,3 22.06 0,3 4:46 21:05
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á sunnudag og mánudag
Austlæg átt, 5-10 m/s, en
hvassari með suðurströndinni.
Víða dálítil væta og hiti 0 til 7
stig.
Á þriðjudag
Suðaustlæga átt og rigning
sunnan- og vestantil, annars
úrkomulítið. Hiti 3 til 9 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag
Austlægar áttir með vætu um
landið sunnan- og austanvert,
annars þurrt að kalla. Hiti
breytist lítið.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hæg norðlæg átt og víða bjart-
viðri, síst norðaustan til.
GYLFI Magnússon, viðskiptaráðherra, segir að
þó að ef til vill sé ekki of seint að breyta áformum
um endurskipulagningu bankanna þannig að ríkið
kaupi aðeins innistæðurnar, líkt og Jón G. Jónsson
lagði til í grein í Morgunblaðinu í gær, sé slík
breyting ólíkleg. Unnið hafi verið eftir öðru við-
miði frá því í haust og rætt við lánardrottna og
fleiri í samræmi við það. Það gæti verið erfitt og
tímafrekt að fá erlenda kröfuhafa til að sætta sig
við slíka breytingu sem jafngilti 90° beygju eða
jafnvel U-beygju
„Mér finnst frekar ólíklegt að þetta verði gert
en það bíður nú reyndar nýrrar
ríkisstjórnar að ákveða það.“
Í greininni varar Jón mjög
við afleiðingum þess að endur-
reistir bankar verði of stórir.
„Ég er ekki viss um að það
fari illa þó að ríkið eignist hlut í
bönkunum eins og stefnt hefur
verið að undanfarna mánuði.
Það hefur verið lögð mikil
vinna í að meta eignirnar og
það mat virðist vera skynsamlegt þannig að ef rétt
er að málum staðið, ættu bankarnir að vera með
sæmilega heilbrigðan efnahagsreikning og þess
vegna gæti ríkið lagt þeim til fé, án þess að stór
hluti þess tapist,“ sagði Gylfi. Hann tók fram að
grein Jóns væri góð og hann væri sammála mörgu
sem þar kæmi fram, þó ekki öllu.
Gylfi benti á að ef bankarnir yrðu mjög litlir
yrðu þeir veigaminni og ættu erfiðara með að
þjónusta íslenskt atvinnulíf sem hefði ekki aðgang
að erlendu fjármagni. Raunar væri á mörkunum
að þeir væru nógu stórir til að sinna bankaþjón-
ustu við stærstu fyrirtæki landsins. runarp@mbl.is
Bankarnir mega ekki vera of litlir
Ekki of seint að umbylta endurreisn bankanna en ólíklegt að það verði gert
Gylfi Magnússon
Sauðárkrókur | Kaupfélag Skagfirð-
inga fagnaði því á sumardaginn
fyrsta að 120 ár voru liðin frá stofnun
þess. Af þessu tilefni var ný verk-
stæðisbygging á Sauðárkróki tekin
formlega í notkun. Öllum hér-
aðsbúum var boðið til afmælisfagn-
aðar í byggingunni. Þar var hátíð-
ardagskrá með söng, hljóðfæraleik og
ávörpum auk þess sem Jón Að-
alsteinn Baldvinsson vígslubiskup
flutti blessunarorð. Nýja húsið er
3.560 fermetrar. Þar verða til húsa
bílaverkstæði og rafmagnsverkstæði.
Húsið er byggt áfast við Vélaverk-
stæði kaupfélagsins og verða þar með
þessi þrjú verkstæði öll undir sama
þaki. Hér er um hreina byltingu að
ræða fyrir starfsmenn verkstæðanna
en þau hafa búið við þröngan og
óhentugan húsakost um árabil.
Hönnuður verkstæðishússins er
Bjarni Reykjalín en aðalverktaki var
Friðrik Jónsson e.h.f. á Sauðárkróki.
Í tilefni af afmælinu færði kaup-
félagið Heilbrigðisstofnuninni á
Sauðákróki 12 milljónir kr. að gjöf.
Einnig var við þetta tækifæri frum-
flutt lag um kaupfélagið. Álftagerð-
isbræður sungu við undirleik Stefáns
R. Gislasonar. Höfundur lagsins er
Geirmundur Valtýsson og Guð-
brandur Þ. Guðbrandsson samdi
texta.
Morgunblaðið/Örn Þórarinsson
Gjöf Hafsteinn Sæmundsson og Örn Ragnarsson veittu viðtöku gjafabréfi
úr hendi Stefáns Guðmundssonar, stjórnarformanns Kaupfélagsins.
Bygging blessuð, gjafir
gefnar og lag frumflutt