Morgunblaðið - 25.04.2009, Side 36
Lýti eða list? Skiptar skoðanir eru um veggjakrot en það á vart heima nokkurs staðar nema með samþykki.
Ljósmynd/Garðar Eðvaldsson
Eftir Garðar Eðvaldsson, Poulu Rós Mittelstein og
Sunnu Celeste Ross
Egilsstaðir | Undanfarnar vikur hafa íbúar á Egils-
stöðum tekið eftir því að veggjakrot er farið að sjást á
veggjum í bænum. Eitthvað sem hingað til hefur verið
óþekkt vandamál.
Að sögn Óskars Bjartmarz yfirlögregluþjóns hefur
nokkuð borið á skemmdarverkum undanfarið, þar á
meðal veggjakroti. Þrjú til fjögur mál varðandi
veggjakrot hafa komið á borð lögreglunnar á Egils-
stöðum á þessu ári. Óskar segir tímabært að bregðast
við: „Það verður að stöðva þetta.“
Að sögn Soffíu Lárusdóttur, forseta bæjarstjórnar á
Fljótsdalshéraði, hafa engar kvartanir varðandi
veggjakrot borist til bæjarstjórnarinnar og sagðist
hún ekki telja veggjakrot vera vandamál á Egils-
stöðum. Veggjakrot er leyft í bragga Sláturhússins,
sem er menningarmiðstöð ungmenna á Fljótsdalshér-
aði. Að mati Soffíu ættu fleiri slíkir staðir að vera í
boði.
Halldór B. Warén sláturhússtjóri segir sumt veggja-
krot mjög flott en tekur þó fram að það eigi ekki við
um það sem blasi við fólki á förnum vegi. „Það er bara
eitthvert krot.“
Ólöglegt veggjakrot, eins og að þekja eignir ann-
arra án leyfis, jafngildi því að brjóta rúðu eða brjótast
inn í hús. Það eigi að taka eins á slíkum málum og
öðrum lögbrotum. Að hans mati á auðvitað að bjóða
upp á sérstaka veggi fyrir þá sem vilja spreyta sig.
Hann segist hafa verið spurður hvort það væri í lagi
að krota á ákveðinn gám í miðbæ Egilsstaða. „Ég er
viss um að ef ég hefði sagt nei hefðu þeir ábyggilega
gert það!“ segir Halldór og hlær.
„Það verður að
stöðva þetta“
Farið að bera á veggjakroti á Egilsstöðum
Höfundar eru þátttakendur í fréttaritaranámskeiði UNICEF.
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Reykjanesbær og ná-
grannasveitarfélögin Garður,
Grindavík og Sandgerði taka nú þátt
í hátíðinni List án landamæra í
fyrsta sinn en hún er haldin víða um
land um þessar mundir. Á hátíðinni
vinna fatlaðir og ófatlaðir saman við
listsköpun af ýmsum toga. Opnunar-
hátíðarnar í sveitarfélögunum 4 á
Suðurnesjum voru mjög vel sóttar.
List án landamæra var hleypt af
stokkunum á Evrópuári fatlaðra árið
2003 og fékk svo góðar viðtökur að
hún hefur verið haldin árlega síðan.
Markmið hátíðarinnar er að brjóta
niður þá múra sem mannfólkið hefur
tilhneigingu til að byggja milli fatl-
aðra og ófatlaðra með því að sameina
þessa hópa í listinni. Slíkt leiðir til
meiri skilnings milli fólks, samfélag-
inu til góðs.
Garðmenn riðu á vaðið á Suður-
nesjum með opnunarhátíð Gaman
saman á bæjarskrifstofum sveitarfé-
lagsins þar sem skólarnir og skamm-
tímavistun fyrir fatlaða leiddu saman
hesta sína. Sýningin stendur til 7.
maí. Reykjanesbær, Sandgerði og
Grindavík héldu sína dagskrá á sum-
ardaginn fyrsta. Í Reykjanesbæ var
þema opnunarhátíðarinnar Sumar-
dagurinn fyrsti en þar voru gestir
leiddir í allan sannleika um þetta sér-
íslenska fyrirbæri, en sumardag-
urinn fyrsti hefur verið haldinn há-
tíðlegur frá örófi alda. Var það gert
með tónlist, leikþáttum og upplestri
undir leikstjórn Kristlaugar Sigurð-
ardóttur rithöfundar, Kikku.
Að opnunarhátíð lokinni var sýn-
ingin Glerborgin opnuð í Bíósal
Duushúsa og 3 einstaklingar opnuðu
sýningu í Svarta pakkhúsinu. Verkin
í Bíósalnum eru unnin undir hand-
leiðslu Guðmundar R. Lúðvíkssonar
en sýnendur eru 31 talsins. Sú sýn-
ing stendur til mánudagsins 27. apríl
en sýningin í Svarta pakkhúsinu til
30. apríl.
Dagana 27.-30. apríl verður Lista-
verkasýning í Hæfingarstöðinni í
Reykjanesbæ en þar munu þjón-
ustuþegar stöðvarinnar sýna verk
sín.
Christine Carr leikkona flutti ljóð-
ið Sumardagurinn frysti eftir Þór-
arin Eldjárn á opnunarhátíðinni í
Reykjanesbæ við mikla kátínu gesta.
Ljóðið er nokkuð einkennandi fyrir
þá veðráttu sem gjarnan ríkir þenn-
an fyrsta sumardag Íslendinga sem
og skemmtilega kímni skáldsins.
Menn elta sífellt ólar
við öfl sem landið hrista:
Enginn sá til sólar
á sumardaginn fyrsta.
Í veðri alveg óðu
átti að halda daginn.
Fánar stífir stóðu
á stöngum víða um bæinn.
Skrúðgöngurnar skröltu
skjálfandi um stræti,
í halarófu röltu
og reyndu að sýna kæti.
Mjóir menn og feitir
marga hlutu gusu.
Léku lúðrasveitir
lög sem úti frusu.
Múrar brotnir niður
Gróðurinn lifnar við Leikþátturinn Vorlaukarnir var meðal dagskrárliða á
opnunarhátíðinni í Reykjanesbæ og í kjölfarið fylgdi söngurinn Nú er sum-
ar, gleðjist gumar.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir