Morgunblaðið - 25.04.2009, Page 45
Umræðan 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
ÞAÐ hefur sýnt sig á síðustu árum að
Sjálfstæðisflokki er vart treystandi fyrir
stjórn landsins. Þar í flokki bregðast menn
og stefnan er ónýtari en allt sem ónýtt er.
Þar er siðleysið slíkt að menn hika ekki við
að þiggja fúlgur fjár frá stórfyrirtækjum.
Mér er sagt að ennþá sé verið að reyna að
fela upplýsingar um þingmenn þar í flokki,
þingmenn sem þáðu háar upphæðir frá fyr-
irtækjum sem í dag eru ýmist komin á haus-
inn eða á barmi gjaldþrots.
Í dag fara menn þar í flokki fram með
slíkum óheiðarleika að til háborinnar skammar hlýtur
að teljast. Kosningabarátta sjálfstæðismanna er byggð
á lygi, þeir ætla að ljúga sig frá svindli og sukki. Þeir
kunna ekki að skammast sín.
Brosandi mót betri tíð
Síst vil ég velta mér uppúr glæpsamlegum athæfum
þeirra sem á undan fóru. En ég veit að eini flokkurinn
sem virkilega hefur sýnt vilja til að rannsaka það sem
miður fór er Vinstrihreyfingin – grænt framboð. Ég
treysti á flokkinn sem staðið hefur vörð um velferð
okkar. Ég treysti á flokkinn sem mun standa vörð um
launataxta – flokkinn sem vill að breiðu bökin og
sterku axlirnar taki þátt í að bera byrðar. VG er eini
flokkurinn á Íslandi sem sýnt hefur vilja til
að endurheimta þá fjármuni sem stolið var
frá okkar yndislegu þjóð. Í sátt við land og
þjóð boða Vinstri græn vænsta veg til fram-
tíðar. VG vill bæta siðferðið í íslenskum
stjórnmálum og flokkurinn vill ábyrga stjórn
efnahagsmála. VG hefur falslausa framtíð-
arsýn.
Nú stökkva sjálfstæðismenn fram og ljúga
því að VG ætli að hækka skatta, lækka laun,
eyðileggja atvinnuvegi, rústa heilbrigðiskerfi
og svo framvegis.
Þegar VG talar um að hækka skatta þá er
einungis talað um að hækka skatta á há-
tekjufólk. VG ætlar ekki að lækka laun, VG mun
standa vörð um launataxta – hér eftir sem hingað til.
VG vill fá þá sem sterkastir eru til að taka á sig þyngri
byrðar.
Hræðsluáróður sjálfstæðismanna sýnir okkur óheið-
arleika þeirra um leið og hann sýnir heiðarleika okkar.
VG mun með heiðarlegum vinnubrögðum bæta það sem
Sjálfstæðisflokkurinn lagði í rúst með bruðli, braski,
fláttskap og frjálshyggju.
Trúið mér, kæru vinir, VG er sá flokkur sem við get-
um treyst.
Fortíð og framtíð
Eftir Kristján Hreinsson
Kristján Hreinsson
Höfundur er skáld og skipar heiðurssæti á lista VG
í Kraganum.
FRÉTTIR berast um það að í kosning-
unum á laugardag ætli sér margir að skila
auðu eða sitja heima. Það sé gert í þeim til-
gangi að refsa stjórnmálamönnum fyrir að
hafa ekki staðið vaktina sem skyldi.
Vera má að sú afstaða sé réttmæt að
mörgu leyti. Hins vegar er ólíklegt að sá
refsivöndur hitti þá sem skyldi. Líklegra er
að með þeirri athöfn muni kjósendur taka út
refsinguna á sjálfum sér eftir kosningar.
Með því að stuðla að hreinni vinstristjórn
væri verið að kalla eftir aukinni skattlagn-
ingu, flóknara skattkerfi og auknu valdi
stjórnmálamannanna. Það felst í því mikil þversögn að
gefa frat í pólitíkina með því að stuðla að auknu valdi
stjórnmálamanna!
Boðaðir hafa verið fasteignaskattar á ný, sem þýða í
rauninni að eftir því sem íbúðareigandinn losar sig út
úr skuldaklafanum fær hann að borga meira í ríkissjóð.
Óljóst er hvernig þeir sem farnir eru af vinnumarkaði
eiga að finna fé til að borga slíkan skatt.
Kosningarnar sem fram fara á laugardaginn munu
ákvarða þá stefnu sem Ísland mun taka á næstu miss-
erum. Framundan er erfið barátta í efnahagsmálum,
sem mun reyna mikið á hverja þá flokka sem
koma til með að stýra landinu eftir kosn-
ingar.
Það er því mikilvægt að sú stefna sem tek-
in verður leiði okkur út úr vandanum en ekki
í enn frekari vandamál og flækjur.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram
stefnu sína í efnahagsmálum. Með sköpun
nýrra starfa, hagræðingu og skynsamlegri
nýtingu auðlinda munum við ná að vinna
okkur út úr kreppunni. Slík lausn byggist
vissulega ekki á töfralausnum eða krafta-
verkum, en hún er raunsæ og raunhæf og
hún mun skila Íslandi aftur út úr vandanum.
Samfylking og Vinstri grænir, sem hafa
boðað stjórnarsamstarf eftir kosningar, boða stefnu
skattahækkana, fasteignaskatta og ríkisvæðingar at-
vinnulífsins. Hugmyndir þeirra um atvinnuuppbygg-
ingu felast í því að skattgreiðendur greiði launin og
þannig bítur hringavitleysan í skottið á sér.
Þannig verða engin ný verðmæti til og mjög dýr-
mætur tími fer til spillis.
Refsum ekki okkur sjálfum. Kjósum xD.
Refsum ekki okkur sjálfum
Eftir Örvar Má Marteinsson
Örvar Már
Marteinsson
Höfundur er í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn
í Norðvesturkjördæmi.
ÉG HEF ákveðið að
bjóða fram mína krafta
og tekið fimmta sæti á
lista framsóknarmanna
í Reykjavík norður. Ég
hef alla mína starfsævi
unnið við hjúkrun,
stjórnun og umönnun
aldraðra.
Heilbrigðismál eru
mér því mjög hugleikin
og við framsóknarmenn
viljum tryggja öllum landsmönnum
möguleika á bestu heilbrigðisþjón-
ustu sem völ er á.
Ég legg mikla áherslu á að
vernda og styrkja aðgengi ein-
staklinga að grunnþjónustunni. Al-
menningur þarf að hafa gott að-
gengi að heilsugæslunni, það verður
að leggja höfuðáherslu á heilsu-
vernd og forvarnastarf því þetta
skilar sér margfalt til baka til þjóð-
félagsins. Ég vil standa vörð um
trygga þjónustu fyrir aldraða og
sjúka.
Til að þetta sé hægt þá þarf að
forgangsraða og í því samhengi að
líta til nágrannalanda okk-
ar eins og t.d. Norður-
landanna og skoða með
hvaða hætti málin hafa
verið leyst þar. Heilsu-
gæslan á að sjálfsögðu að
vera fyrsti valkostur sjúk-
linga. Skoða þarf enn frek-
ar lyfjanotkun og reyna að
stýra henni á sem ódýr-
astan hátt. Aukin sam-
vinna við hin Norð-
urlöndin er áhugaverður
kostur í þessu sambandi.
Sama á við um aðrar
rekstrarvörur í heilbrigðisgeir-
anum. Ég tel að stefna skuli að
byggingu hátækni-háskólasjúkra-
húss sé þess nokkur kostur og skoða
vandlega færar leiðir.
Læknar, hjúkrunarfræðingar og
aðrir heilbrigðisstarfsmenn eru
dýrmætur mannauður sem vinna
við þröng skilyrði og mikið álag alla
daga og mikilvægt að missa ekki
þetta vel menntaða fólk úr landi.
Hlúum að þeim.
Eftir Birnu Kristínu
Svavarsdóttur
Birna Kristín
Svavarsdóttir
Höfundur býður sig fram í 5. sæti á
lista framsóknarmanna í Reykjavík
norður.
Tryggt aðgengi að
heilbrigðisþjónustu –
fyrir okkur öll
ÉG LÍT yfir farinn
veg og hugsa hvað það
var sem breytti þessari
annars jákvæðu og um-
burðarlyndu þjóð í það
skrímsli sem erlendar
fréttastöðvar þreytast
ekki á að fjalla um. Al-
þingi götunnar, í formi
búsáhaldabylting-
arinnar, hefur öðlast
sess í íslensku sam-
félagi. Íslensk þjóð hefur lengi látið
flest yfir sig ganga án þess að mót-
mæla þannig að hlustað sé á.
Vitundarvakning
Rétt er að tæpa stuttlega á því
sem ég tel vera fræið sem tók að
spíra meðal fólks og varð til þess að
við, Íslendingar, höfum loks valið að
bregðast við þeirri tilfinningu okkar
þegar við upplifum að mælirinn sé
fullur. Langlundargeð er ekki leng-
ur dyggð þegar undan svíður og
mannvirðingin er svínbeygð. Með
skeleggri framkomu sinni og sterkri
siðferðiskennd hefur Svandís Svav-
arsdóttir aðstoðað okkur við að
vakna af djúpum góðæris-dvalanum.
Eftir að borgarfulltrúinn hafði geng-
ið úr skugga um að ekki væri allt
með felldu í REI-umhverfinu, var
steinum velt og upp gaus vond lykt.
Ég ætla ekki að rekja það mál hér,
en bendi á að eftir þetta ferli varð
vakning, a.m.k. í Reykja-
vík. Það var fjörugt á pöll-
um Ráðhússins, bæði þá
og einnig rúmum þremur
mánuðum síðar. Fólkið
sýndi áhuga og gerði kröfu
á opna umræðu.
Unga fólkið
er dýrmætt
Mikið vatn hefur runnið
til sjávar á skömmum
tíma. Ungt fólk hefur oft
legið undir ámæli fyrir að
vera dekruð kynslóð. Sá
dómur afsannaðist í einu eft-
irminnilegasta atviki mótmælanna í
janúar, þegar unga fólkið stöðvaði
ofbeldishóp sem ætlaði að taka yfir
við Stjórnarráðið. Sonur minn var
einn þeirra sem slógu skjaldborg um
lögreglu gagnvart reiðum hópi fólks
sem gerði ekki greinarmun á stjórn-
völdum og laganna vörðum og ljóst
er að fáliðaður lögregluflokkurinn
hefði ekki mátt sín mikils gagnvart
fjölmenninu.
Við í VG eigum dýrmætan fjársjóð
þar sem UVG (Ung vinstri græn)
eru, róttækan arm sem veita mun
stjórnvöldum aðhald. Það býr von-
arneisti innra með unga fólkinu,
stundum sjáum við hann sem bál, en
við skulum gæta þess að slökkva
ekki á voninni, hún er gjöf!
Vonin og
Alþingi götunnar
Eftir Ásu Björk
Ólafsdóttur
Asa Björk
Ólafsdóttir
Höfundur er héraðsprestur og
skipar 6. sæti á lista VG
í Suðvesturkjördæmi.
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út-
gáfudaga aðsendar umræðugreinar
frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt
til að hafna greinum, stytta texta í
samráði við höfunda og ákveða hvort
grein birtist í umræðunni, í bréfum
til blaðsins eða á vefnum mbl.is.
Blaðið birtir ekki greinar, sem eru
skrifaðar fyrst og fremst til að kynna
starfsemi einstakra stofnana, fyrir-
tækja eða samtaka eða til að kynna
viðburði, svo sem fundi og ráðstefn-
ur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Formið er undir liðnum „Senda
inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is.
Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við greinum
sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið, en næst þegar kerfið er notað
er nóg að slá inn netfang og lykilorð
og er þá notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri hámarks-
lengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt en boðið er upp á birtingu
lengri greina á vefnum.
Nánari upplýsingar gefur starfs-
fólk greinadeildar.
Móttaka aðsendra greina
www.live.is Sími: 580 4000 | Myndsendir: 580 4099 | skrifstofa@live.is
ÁrsfundurLífeyrissjóðsverzlunarmannaverðurhaldinn
mánudaginn 25. maí 2009 kl. 17 á Grand Hótel.
Dagskrá fundarins:
Venjuleg ársfundarstörf.1.
Staða Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í breyttu umhverfi2.
- kynning á niðurstöðum úttektar Capacent á starfsemi
og árangri sjóðsins.
Greint frá stefnumótun stjórnar.3.
Önnur mál.4.
Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á
ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Reykjavík 20. apríl 2009
Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Ím
y
n
d
u
n
a
ra
fl
•
LV
•
IM
5
10
5