Morgunblaðið - 25.04.2009, Page 48
48 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
ÍSLENDINGAR gætu verið meðal
þeirra þjóða sem endurreisa efna-
hagslíf sitt á grunni græna hagkerf-
isins. Það gerir kröfu um sjálfbæra
nýtingu náttúruauðlinda og atvinnu-
og framleiðsluhætti sem virða jafn-
rétti kynslóðanna til sömu lífsgæða og
við njótum. Nýr forseti Bandaríkj-
anna, Barack Obama, hefur lýst því yf-
ir að kapphlaupið um að þróa bestu
lausnirnar sé hafið og hann vill að
Bandaríkjamenn verði fyrstir til að
þróa grænt hagkerfi. Nú er því ann-
aðhvort að hrökkva eða stökkva fyrir
Íslendinga. Við eigum tvo kosti í stöð-
unni: Að nýta auðlindir okkar og þekk-
ingu á sjálfbæran hátt til að skapa
þjóðinni atvinnu eða sitja eftir í skugg-
anum og láta öðrum eftir störfin sem
skapast við að þróa nýtt og líf-
vænlegra samfélag.
Græna hagkerfið er engin klisja eða
draumsýn náttúruverndarfólks. Það
er eina raunhæfa lausnin til að end-
urreisa efnahagslíf heimsins á grunni
siðferðilegrar ábyrgðar og réttlætis
gagnvart komandi kynslóðum. Barack
Obama lagði fram í febrúar end-
urreisnaráætlun þar sem lagður er
grundvöllur að nýju grænu hagkerfi
Bandaríkjanna með 5 milljónum nýrra
starfa á næstu árum. Fram-
kvæmdastjórn Evrópusambandsins
hefur einnig lagt fram áætlanir um
innleiðingu grænna lausna til að end-
urreisa laskað efnahagslíf aðildarland-
anna. Íslendingar hafa allar forsendur
og einstakt tækifæri til að taka upp
grænt hagkerfi
Í græna hagkerfinu er hugvit og
mannauður virkjaður til nýsköpunar
og gamalgrónar atvinnugreinar eru
endurskapaðar í þeim tilgangi að
leggja nýjan grunn að þróttmiklu at-
vinnulífi. Með markvissri eflingu at-
vinnugreina undir merkjum græna
hagkerfisins má fjölga störfum á Ís-
landi verulega næstu árin :
Græn orka og vistvæn mat-
vælaframleiðsla gætu orðið vörumerki
Íslands á alþjóðavettvangi og merk-
isberi græna hagkerfisins. Til þess að
svo geti orðið skiptir miklu að Íslend-
ingar hafi sjálfbæra orkustefnu að
leiðarljósi. Þeir hljóta að forðast
ágenga orkunýtingu á jarðhitasvæð-
um og koma í veg fyrir að vatns-
orkuvirkjanir skaði landslag og nátt-
úru. Orkuna þarf að nýta í starfsemi
sem sómir sér vel í grænu hagkerfi. Á
næstu árum skapast mörg störf í
orkurannsóknum ekki síst á sviði jarð-
varma og djúpborana. Stórbæta þarf
orkunýtingu við raforkuvinnslu jarð-
hitavirkjana. Miklir möguleikar liggja
einnig í þróun raforku í samgöngum.
Heimsbyggðin kallar nú á rafvæddan
bílaflota og almenningssamgöngur.
Möguleikar Íslendinga til að taka þátt
í þeirri þróun hljóta að vera miklir.
Grænar samgöngur skapa ný störf.
Grænn landbúnaður skapar ný
störf með lækkun raforku til garð-
yrkju og með því að gera bændum
kleift að þróa og selja afurðir beint frá
búi án takmarkandi reglugerða.
Markaðssókn landbúnaðarins undir
merkjum vistvænna afurða gæti aukið
útflutningsverðmæti. Grænn sjávar-
útvegur skapar einnig ný störf með
eflingu fullvinnslu og nýsköpunar í
sjávarútvegi, sérstakri markaðssókn
undir merkjum vistvænna afurða og
sérstakri fiskveiðilögsögu dagróðra-
báta.
Grænn iðnaður skapar fjölda nýrra
starfa. Efla þarf t.d. sprotafyrirtæki í
tölvu-, matvæla-, lyfja- og lífefnaiðn-
aði. Rannsóknir og þróun vistvænna
orkugjafa eins og t.a.m vetnis, met-
anóls og lífefna þarf einnig að efla.
Kísilflöguverksmiðjur, stórar gagna-
miðstöðvar og vatnsfyrirtæki nýta
orkuauðlindir okkar á sjálfbæran hátt
og skapa fjölda starfa. Innleiðing
græns hagkerfis og aðildarviðræður
við Evrópusambandið myndi skapa
þessum iðnaði traustan rekstr-
argrundvöll og möguleika til aukinnar
sóknar á erlendum mörkuðum.
Í ferðaþjónustu og grænni ferða-
mennsku má skapa fjölmörg ný störf.
Þjóðgarða landsins þarf að efla og
bæta aðstöðu ferðamanna s.s. með
lagningu göngustíga, fræðslu og ýmiss
konar þjónustu. Efla þarf menning-
artengda ferðamennsku og afla Ís-
landi trúverðugleika á alþjóðavett-
vangi.
Heilsutengd ferðaþjónusta skapar
ný störf á næstu árum. Vinna þarf að
alþjóðlegu vottunarkerfi heilsutengdr-
ar ferðaþjónustu og skapa samstarfs-
grundvöll á milli heilbrigðiskerfisins
og ferðaþjónustunnar. Menningar- og
afþreyingarstarfsemi skapar ný störf
með öflugum stuðningi við innlenda
listsköpun og listastofnanir. Einnig
þyrfti að samhæfa markaðssetningu
íslenskrar menningar á erlendum
vettvangi og leggjast strax í öflugt
átak í þeim efnum. Uppbygging há-
skóla og sérskólanáms um land allt
mun skapa ný störf á næstu árum.
Innleiðing græna hagkerfisins á Ís-
landi mun tryggja sjálfbæra nýtingu
auðlinda til lands og sjávar, þar sem
atvinnuuppbygging er í sátt við um-
hverfi og náttúru og þar sem komandi
kynslóðum eru tryggð sömu eða meiri
gæði en okkur sem lifum í dag. Í sam-
vinnu við vinaþjóðir okkar í Evrópu og
Ameríku getur Ísland lagt sitt á vog-
arskálarnar til að skapa góða framtíð
fyrir börnin okkar. Græna hagkerfið
er hagkerfi framtíðarinnar.
Við undirrituð erum í Samfylking-
unni og störfum með henni í þeirri trú
að við getum með málefnalegu starfi
og samræðum styrkt hana til að gera
græna atvinnusköpun að einni meg-
instoðinni í stefnuskrá flokksins. Á
landsfundi fundum við að í röðum
flokksfólks var mikill stuðningur við
þá stefnu. Stuðningur þingflokks
Samfylkingarinnar við staðfestingu
stóriðjusamnings við Helguvík er döp-
ur arfleifð fyrri ríkisstjórnar, tryggð
við gefin loforð í von um ný störf, sem
við þó óttumst að reynist tálsýn ein og
beini takmörkuðum kröftum inn á
blindgötu. Samfylkingin heitir í stefnu
sinni áherslu á græna atvinnusköpun,
þar sem græn orka er notuð í vist-
væna framleiðslu. Það er leiðin.
Eftir Lárus Vilhjálmsson, Ósk
Vilhjálmsdóttur og Sig-
urbjörgu Sigurgeirsdóttur
» Við eigum tvo kosti í
stöðunni: Að nýta
auðlindir okkar og
þekkingu á sjálfbæran
hátt til að skapa þjóðinni
atvinnu eða sitja eftir í
skugganum og láta öðr-
um eftir störfin …
Lárus
Vilhjálmsson
Lárus Vilhjálmsson er fjármálastjóri,
Ósk Vilhjálmsdóttir myndlistarkona
og ferðaskipuleggjandi og Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir stjórnsýslufræð-
ingur. Þau skrifa fyrir hönd
Nýgræðinga.
Ósk
Vilhjálmsdóttir
Sigurbjörg
Sigurgeirsdóttir
Hagkerfi framtíðarinnar
ÞÁ HEFUR Sam-
fylkingin tekið afdrátt-
arlausa afstöðu til
Evrópusambandsins.
Sú afstaða hefur í
gegnum árin verið
mis-sýnileg í kosn-
ingabaráttu flokksins.
Aðild að Evrópusam-
bandinu var stærsta
kosningabaráttumál
Samfylkingarinnar
fyrir kosningarnar 2003, en í kosn-
ingunum 2007 voru málefnin lögð til
hliðar til þess að halda öllum rík-
isstjórnarmöguleikum opnum. En
fyrir þessar kosningar á að fara aft-
ur í gamla gírinn. Á ársfundi Seðla-
banka Íslands sagði Jóhanna Sig-
urðardóttir að það væri
forgangsverkefni næstu rík-
isstjórnar að sækja um aðild að Evr-
ópusambandinu og taka upp evru.
Samkvæmt nýjustu skoð-
anakönnun er framtíðin svört fyrir
íslenska þjóð. Vinstri flokkarnir
njóta samanlagt tæplega 60% fylgis.
Á landsfundi Vinstri grænna nýverið
var samþykkt að hafna hugsanlegu
ríkisstjórnarsamstarfi við Sjálfstæð-
isflokkinn og leitast frekar við að
halda núverandi vinstri stjórn gang-
andi. En landsfundurinn hjá þeim
snerist ekki aðeins um pólitísk bón-
orð, heldur var stefna flokksins einn-
ig mótuð og endurskoðuð. Í stefnu
flokksins í alþjóðamálum er eftirfar-
andi klausa varðandi aðild að Evr-
ópusambandinu:
Hugsanlegur ávinningur af aðild
Íslands að Evrópusambandinu rétt-
lætir ekki frekara framsal á ákvörð-
unarrétti um málefni íslensku þjóð-
arinnar og er aðild að
Evrópusambandinu því hafnað.
Þar höfum við það. Vinstri grænir,
sem vilja ekkert annað en vinstri-
stjórn, hafna aðild að Evrópusam-
bandinu. Það verður áhugavert að
fylgjast með viðræðum flokkanna
eftir kosningar, fari
þær jafn illa og skoð-
anakannanir gefa til
kynna. Mun Samfylk-
ingin sópa Evrópusam-
bandsumsókn undir
teppið? Eru ráðherra-
embætti og völd mik-
ilvægari en málefnin í
augum Vinstri grænna?
Er jafnvel hægt að fá
þá til að skipta um
skoðun með því að gefa
forsætisráðherraemb-
ættið til Steingríms? Ég býst við því
að það verði mikið um flautublástur
og „Hæ Samfylking“ þar á bæ.
Þetta mál er ekki það eina sem
flokkarnir eru ósammála um. Má
þar nefna afstöðu til álvers í Helgu-
vík. Þeir eru þó sammála um að
skatta verði að hækka og að óráð sé
að koma bönkum úr ríkiseigu. Því
var oft kastað fram af vinstri flokk-
unum að Framsóknarflokkurinn
hefði hlekkjað sig eins og fylgidýr
við Sjálfstæðisflokkinn, jafnvel þótt
flokkarnir hafi fengið endurnýjað
umboð aftur og aftur. En nú fáum
við loks að sjá hvort Vinstri grænir
eru aðeins í orði en ekki á borði.
Annar hvor flokkurinn verður að
gefa eftir ætli þeir að halda áfram
ríkisstjórnarsamstarfi eftir kosn-
ingar, annars sannast það að Sjálf-
stæðisflokkurinn er einn um það að
ganga hreint til verks!
Hvor flokkurinn
gefur eftir?
Eftir Benedikt
Hallgrímsson
Benedikt Hallgrímsson
» Á ársfundi SÍ sagði
Jóhanna Sigurð-
ardóttir að það væri for-
gangsverkefni næstu
ríkisstjórnar að sækja
um aðild að Evrópusam-
bandinu og taka upp
evru.
Höfundur er formaður Týs, f.u.s. í
Kópavogi
ÍSLENDINGAR
eru Evrópuþjóð og
eiga sameiginlegra
hagsmuna að gæta í
flestum veigamiklum
málum á meðal full-
valda þjóða Evrópu-
sambandsins. Áríðandi
er að kanna möguleika
Íslands innan ESB.
Aðildarviðræður eru
eina leiðin sem varpað
geta ljósi á raunverulega kosti og
galla aðildar.
Brýnt er að hefja markvissan und-
irbúning viðræðna nú þegar. Íslend-
ingar verða að setja sér metnaðarfull
samningsmarkmið, um landbúnað,
sjávarútveg og aðra auðlindanýtingu
í ljósi afgerandi sérstöðu fámennrar
eyþjóðar. Höfum hugfast að sérhver
aðildarsamningur er jafnrétthár
stofnsáttmála Evrópusambandsins.
Bent hefur verið á að Ísland eigi
nú einstaka möguleika að ná árangri
í aðildarviðræðum. Núverandi fram-
kvæmdastjóri stækkunarmála er já-
kvæður gagnvart viðræðum við Ís-
lendinga og Svíar taka brátt við
forystu ESB. Okkur ber skylda til að
kanna möguleika Íslands til hins ýtr-
asta.
Aðild að ESB og EMU mynt-
samstarfi Evrópu stuðlar að efna-
hagslegum stöðuleika umfram aðra
kosti sem Íslendingar standa nú
frammi fyrir. Öflugt hagkerfi sem
býr við litlar sveiflur er eitt mesta
hagsmunamál Íslend-
inga. Skilyrði EMU eru
ströng og fáar þjóðir
innan þess munu í raun
uppfylla öll skilyrðin
miðað við núverandi
stöðu heimsmála. Sú
staðreynd, ásamt smæð
íslenska hagkerfisins,
gæti hugsanlega aukið
möguleika Íslands á að
taka upp Evru sem
gjaldmiðil innan
skamms tíma ef til að-
ildar kæmi.
Þjóðin hefur síðasta orðið. Nauð-
synlegt er að niðurstöður aðild-
arviðræðna liggi fyrir sem fyrst svo
þjóðin geti tekið rökrétta afstöðu til
aðildarsamnings. Náist ekki að upp-
fylla helstu markmiðin verður samn-
ingurinn væntanlega felldur í þjóð-
aratkvæðagreiðslu.
Nú reynir á frumkvæði í þessu
stærsta máli lýðveldisins. Förum í
aðildarviðræður án fordóma og án
tafa. Grípum tækifærið núna.
Tækifæri Íslands
innan Evrópu
Eftir Agnar H.
Johnson
Agnar H. Johnson
» Aðild að mynt-
samstarfi Evrópu
stuðlar að efnahags-
legum stöðuleika um-
fram aðra kosti sem Ís-
lendingar standa nú
frammi fyrir.
Höfundur er framkvæmdastjóri
NÚ langar mig, rétt
fyrir kosningar, að
beina máli mínu til ykk-
ar sem vön eruð að
kjósa alltaf sama flokk-
inn sama hvað á dynur.
Afstaða sem þessi er
skiljanleg; maðurinn er
einn vani, breytingar
eru sársaukafullar og
það að skipta um skoð-
un hefur löngum þótt til
marks um ístöðuleysi.
Það væri lélegur áhangandi fót-
boltaliðs sem gæfist upp og færi að
halda með einhverju allt öðru liði
vegna þess að gamla liðinu hans hefði
vegnað illa nokkur misseri og það
fallið niður um deild. Annað hvort
heldur maður með einhverju liði eða
ekki, annað væri einungis tækifær-
ismennska, auk þess sem það hefði
nokkur útgjöld í för með sér að kaupa
nýja trefla og treyjur með einkenn-
ismerki nýja liðsins.
Já, hollusta er góð dyggð út af fyrir
sig en á þó ekki alls staðar heima.
Stjórnmál lúta til að mynda öðrum
lögmálum en fótbolti og
snúast um eitthvað allt
annað en tryggð.
Stjórnmálaflokkar
keppa um hylli okkar
kjósenda, en við sem
kjósendur tilheyrum
engu þessara liða. Okk-
ar hlutverk er að taka
þátt í lýðræðinu með því
að greiða atkvæði þeim
flokki sem við teljum að
helst verðskuldi traust
okkar hverju sinni.
Til að lýðræðið geti
þjónað tilgangi sínum sem best verð-
um við kjósendur að hafa í huga að
þegar kemur að stjórnmálum er það
að skipta um skoðun ekki ving-
ulsháttur heldur ábyrgð. Stöðugt
koma nýjar upplýsingar fram í dags-
ljósið sem við þurfum að vega og
meta og endurskoða hug okkar út frá
þeim. Og valdhafar eiga það til að
koma sér of makindalega fyrir í há-
sætinu og gleyma raunverulegu hlut-
verki sínu.
Það er engu samfélagi hollt að
sömu klíkur haldi völdum of lengi og
það er mikilvægt að kjósendur séu
vakandi fyrir spillingu og leyfi ekki
valdhöfum að komast upp með hvað
sem er. Þeir sem (mis)farið hafa með
valdið hér á landi síðustu áratugi hafa
ekki aðeins klúðrað málum eft-
irminnilega heldur einnig gerst sekir
um skeytingarleysi gagnvart því um-
boði sem þeim hefur verið falið.
Við þurfum ekki að hafa alltaf
sömu spilltu öflin við stjórnvölinn.
Fjöldinn allur af hæfu og reynslu-
miklu fólki bíður þess að komast að
og nýta krafta sína til fulls.
Ps: Þið sem eruð óákveðin – Ekki
sitja heima. Hvert atkvæði skiptir
máli. Við þurfum að hreinsa til. Við
þurfum breytingar og við þurfum
þær strax.
Eftir Guðrúnu Evu
Mínervudóttur
Guðrún Eva
Mínervudóttir
» Stjórnmál lúta öðr-
um lögmálum en fót-
bolti og snúast um allt
annað en tryggð. Flokk-
arnir keppa um hylli
okkar en við tilheyrum
engu þessara liða.
Höfundur er skáld.
Lífið er ekki fótbolti