Morgunblaðið - 25.04.2009, Qupperneq 55
✝ Gunnar JóhannÁgúst Guðjónsson
fæddist í Stykk-
ishólmi 19. ágúst
1915 og ólst upp í
Efri-Hlíð og á Hof-
stöðum í Helgafells-
sveit þar sem hann
var bóndi í 56 ár.
Hann lést á Sjúkra-
húsinu í Stykk-
ishólmi 16. apríl síð-
astliðinn.
Foreldrar hans
voru Guðjón Jó-
hannsson, f. 4. júní
1886 á Skildi í Helgafellssveit,
skipstjóri í Stykkishólmi en lengst
af bóndi á Hofstöðum, d. 5. okt.
1973, og Jónína Þorbjörg Árna-
dóttir, f. 23. mars 1891, í Mikla-
holti í Miklaholtshreppi, húsmóðir
á Hofstöðum, d. 7. júní 1980.
Systkini Gunnars eru: 1) Haraldur,
f. 31. mars 1913, d. 11. apríl 1913.
2) Berta Hansína, f. 15. apríl 1914,
d. 2. júní 2003. 3) Anna, f. 22.
ágúst 1917, d. 29. apríl 1986, 4)
Árni Breiðfjörð, f. 4. júlí 1919, d.
13. mars 2007. 5) Kristrún, f. 8.
jan. 1924. 6) Ruth, f. 29. júní 1926,
d. sama dag. 7) Einar, f. 6. ágúst
1931, d. sama dag. Uppeldissystir
þeirra Sólveig Eiríksdóttir, f. 28.
ágúst 1930. Gunnar kvæntist 10.
des. 1942 Laufeyju Guðmunds-
Rún og Mist. c) Ármann, f. 22.
ágúst 1972, maki Alda Sigrún
Magnúsdóttir, þeirra sonur Viktor,
fyrir á hún einn son. d) Hrafnhild-
ur, f. 26. ágúst 1973, maki Haukur
Randversson, þeirra synir Vignir
Gunnar og Arnar Ingi. e) María, f.
26. ágúst 1977, maki Jóhann Víðir
Númason, synir þeirra Óskar
Freyr og Guðjón Fannar. 3) Guð-
jón Gunnarsson, f. 11. nóvember
1951, d. 2. sept. 1974. 4) Guð-
mundur Árni Gunnarsson, f. 15.
september 1955, maki Erla Þórð-
ardóttir, þeirra börn a) Guðjón
Smári, f.16. feb.1988, unnusta
Snædís Sveinsdóttir, f. 20. jan.
1988, b) Jóhanna Ösp, f. 26. mars
1991. Fyrir á hann dótturina Lauf-
eyju, f. 26. maí 1984, maki Einar
Þröstur Reynisson, þeirra dóttir
Magnea Líf. Fyrir á Erla fimm
börn og átta barnabörn. 5) Jónína
Þorbjörg, f. 3. nóvember 1958,
maki Benedikt Benediktsson, f. 7.
október 1956, börn: a) Sævar Ingi,
f. 29. jan. 1977, maki Nadine El-
isabeth Walter, börn: Símon Andri
og Signý Ósk. b) Hafþór Rúnar, f.
29. jan. 1977, maki Grazyna
Magda Kulinska, þeirra synir
Samúel Alan og Magni Blær. c)
Benný Eva, f. 13. júlí 1980, maki
Jón Halldór Kristjánson, börn:
Sara Jónína og Kristján Eggert,
fyrir á Jón einn son.
Útförin fer fram í Stykkishólms-
kirkju í dag, laugardaginn 25.
apríl, og hefst athöfnin klukkan
14.
dóttur, f. 14. júní
1922, frá Þingeyri
við Dýrafjörð. Hún
er dóttir Guðmundar
Hákonarsonar, Þing-
eyri, og Valgerðar
Einarsdóttur, Þing-
eyri. Börn Gunnars
og Laufeyjar eru: 1)
Valgerður Kristín, f.
11. september 1943,
maki Jón Valberg
Ásgeirsson, f. 15.
júní 1939, börn: a)
Hilmar, f. 22. októ-
ber 1964, maki, Mar-
grét Ólöf Jónsdóttir, þeirra synir
Atli Már og Hlynur Smári. b) Sig-
rún, f. 29. júní 1967, maki Ingvar
Sigurðsson, dætur þeirra Aldís
Edda og Elma. c) Þröstur, f. 16.
febrúar 1970, maki Íris Þrúður
Ólafsdóttir, börn: Ásgeir Ísak,
Darri Freyr og Karen. d) Heiðrún
Björk, f. 30. ágúst 1980, maki Pét-
ur Veigar Pétursson, þeirra synir
Jón Arnór og Patrik Nökkvi, fyrir
á hún Aron Hrafnsson. 2) Kolbrún,
f. 6. ágúst 1946, maki Jón Guð-
mundson, f. 1. júní 1937, börn: a)
Ágúst, f. 16. ágúst 1968, maki Jó-
hanna Kristín Berthelsen, börn:
Daníel Jóhann, Guðbjörg María og
Alexander Freyr. b) Þór, f. 18.
sept. 1969, maki Vala Karen Guð-
mundsdóttir, þeirra dætur Vaka
Elsku pabbi minn, ég skynjaði það
sterkt þegar ég sat við rúmið hjá þér
í veikindum þínum stuttu fyrir and-
látið að þess yrði ekki langt að bíða
að kallið kæmi. Við áttum saman
ágætt spjall á sálargrundvelli á með-
an þú svafst, það rifjaðist upp eitt og
annað sem á daga okkar hafði drifið.
Þetta spjall ásamt draumi sem mig
dreymdi styrkti mig í því að komið
væri að leiðarlokum, þú ert örugg-
lega hvíldinni feginn enda kominn á
94. aldursár.
Það er svo margt sem rifjast upp
frá æskunni, enda var ég svo heppin
að geta verið með þér öllum stundum
í uppvextinum. Ég man þegar ég var
með þér að moka kolum úr kerrunni
inn í litla skúrinn, þá hef ég senni-
lega verið fjögurra ára gömul og
þóttist getað hjálpað eitthvað til. Ég
man líka eftir því þegar þú fékkst
fyrsta bílinn þinn, Land Roverinn,
árið 1963. Þú hafðir farið til Reykja-
víkur að sækja hann og við systkinin
vissum hvenær þú varst væntanleg-
ur, við biðum spennt og fórum úr
glugga í glugga til þess að fylgjast
með hverjum bíl sem fór um þjóð-
veginn. Það var stoltur maður sem
kom heim með þennan bíl, enda
máttir þú líka vera það því þú hafðir
svo sannarlega unnið fyrir honum.
Land Roverinn kom að góðum not-
um, hann var skólabíll á veturna,
fjölskyldan ferðaðist á honum á
sumrin og síðan var hann nýttur til
fjárflutninga í Hraunsfjörðinn á vor-
in. Þá voru kindurnar hafðar í kerru
en lömbin fengu að vera aftur í jepp-
anum og þar sátum við bróðir minn
og pössuðum þau. Það var svo gam-
an í þessum fjárflutningum í
Hraunsfjörðinn og ég held að þér
hafi alltaf þótt jafn gaman að koma
þangað.
Þú áttir svo góðar minningar um
vegarlagninguna í gegnum Ber-
serkjahraunið og út í Árnabotn sem
þú hafðir tekið þátt í sem ungur mað-
ur. Þú elskaðir gróðurilminn á þess-
um slóðum og ég get verið svo sam-
mála þér að það er á fáum stöðum
sem gróðurilmurinn er jafn yndis-
legur. Í minningunni um heyskapinn
á Hofsstöðum er Farmallinn og
gamla greiðusláttuvélin ofarlega í
huga. Ég horfði oft hugfangin á
hvernig þú raðaðir hverjum hlut á
sinn stað í sláttuvélina, hlaupastelp-
an og síðan ljárinn sem var með
mörgum spíssblöðum, það þurfti að
brýna hvert blað fyrir sláttinn. Þú
kunnir vel til verka með ljáinn og ég,
litla krakkakrílið, horfði með aðdáun
á hvert blað verða gljáandi beitt.
Þegar ljárinn var kominn á sinn stað
var komið að því sem ég beið eftir, en
það var að sjá grasið falla. Ég gekk á
eftir í sláttufarinu, tók upp nýslegið
grasið, fann hvað það var mjúkt og
ilmandi. Ég var líka með þér við að
plægja jarðveginn, það er ómetan-
legt að þekkja ferilinn frá því að
jarðvegur er unninn til þess að gras-
ið er slegið. Kindurnar þínar voru
líka svo fallegar, þú ræktaðir hrein-
hvítar kollóttar ær sem voru með
gott byggingarlag. Þú varst mikið
snyrtimenni, allt var svo hreint sem
þú gekkst um hvort sem það var úti-
hús eða umhverfi og þú kenndir okk-
ur að bera virðingu fyrir náttúrunni.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt
þig að föður, elsku pabbi, þú gafst
mér svo margt sem er mér dýrmætt.
Ég veit að þér líður vel að vera kom-
inn heim.
Jónína Þorbjörg Gunnarsdóttir.
Hann Gunnar tengdafaðir minn er
látinn. Ég kynntist honum fyrst er
ég kom að Hofsstöðum með vinnu-
vélar til ræktunarframkvæmda
haustið 1960. Ég sá strax að hann
var maður sem vildi vanda til verka
og þannig var um hans búskap.
Snyrtimennska, ræktun og góð fóðr-
un á búpeningi skiluðu sér í góðum
afurðum. Gunnar lifði á tímum mik-
illa breytinga í íslenskum landbúnaði
allt frá tímum handverkfæra og lít-
illar ræktunnar til víðáttumikilla
túna og nýjustu véltækni. Hann
fylgdist vel með þeirri þróun. Gunn-
ar og Laufey bjuggu að Hofsstöðum
þar til þau hættu búskap vegna ald-
urs og versnandi heilsu. Þau hjón
gáfu börnum sínum jörðina eftir að
hætt var búskap og er þar nú sælu-
reitur fjölskyldna þeirra í frítímum á
þessum fallega stað. Gunnar var
myndarlegur maður, þéttur á velli
og þéttur í lund og hafði sínar skoð-
anir á hlutunum. Það var alltaf gam-
an að ræða við hann allan þann tíma
sem við áttum leið saman. Stálminn-
ugur var hann og fróður og hélt því
til lokadags. Hann hafði gaman af
því að ferðast um landið, sjá búskap í
öðrum landshlutum og áttum við
Valgerður nokkrar skemmtilegar
ferðir með þeim hjónum, meðal ann-
ars um Vestfirði og víðar.
Seinustu árin bjuggu þau hjónin í
þjónustuíbúð við dvalarheimilið í
Stykkishólmi. Þar bjuggu þau sér
fallegt heimili og nutu öryggis og fé-
lagsskapar við aðra íbúa. Þó heilsan
væri farin að gefa sig virtist hann
alltaf ótrúlega hress þegar við kom-
um í heimsókn. Að lokum þakka ég
Gunnari alla þá vinsemd sem hann
sýndi mér alla tíð.
Jón V. Ásgeirsson.
Elsku langafi okkar.
Láttu nú ljósið þitt,
loga við rúmið mitt,
hafðu þar sess og sæti,
signaður Jesús mæti.
Við biðjum góðan Guð um að
styrkja elsku langömmu okkar sem
misst hefur svo mikið. Minningin um
langafa mun lifa í hjörtum okkar
allra.
Aron, Jón Arnór og Patrik
Nökkvi.
Kallið er komið. Síminn hringir.
Ég hentist fram úr rúminu
og ansa símanum snemma morg-
uns. Ég fæ þær fréttir um að tengda-
pabbi sé að kveðja.
Bóndinn á Hofsstöðum er látinn.
Gunnar var mjög góður maður.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Vald. Briem.)
Kæri tengdapabbi, ég þakka þér
fyrir árin sem ég og fjölskylda mín
áttum með þér.
Við erum rík í hjarta okkar
að hafa fengið að kynnast þér.
Þú hafðir alltaf einhvað nýtt að
segja og fræða okkur.
Ég geymi minninguna um árin
okkar saman.
Kveðja,
Erla Þórðardóttir.
Gunnar Guðjónsson
Minningar 55
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
Alvöru blómabúð
Allar skreytingar unnar af fagfólki
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499
Heimasíða: www.blomabud.is
Netfang: blomabud@blomabud.is
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Hjartans þakkir fyrir sýnda samúð við andlát og
útför ástkærs föður, tengdaföður, afa og langafa,
KJARTANS SVEINSSONAR
frá Vík í Mýrdal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Eir.
Þórir Kjartansson, Friðbjört Elísabet Jensdóttir,
Sveinn Kjartansson, Hólmfríður Böðvarsdóttir,
Bertha Pálsdóttir,
Eyrún Kjartansdóttir, Haukur Helgason,
Sigrún Kjartansdóttir, Þorbjörn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu
vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og langafa,
GEIRS VALDIMARSSONAR,
Sandabraut 10,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks A-deildar og heima-
hjúkrunar Sjúkrahúss Akraness fyrir hlýhug í hans
garð.
Lóa Guðrún Gísladóttir,
Elín Þóra Geirsdóttir, Valur Jónsson,
Guðný Elín Geirsdóttir, Hörður Jónsson,
Valdimar Eyjólfs Geirsson, Sigríður Ellen Blumenstein,
Hrafnhildur Geirsdóttir, Ólafur Rúnar Guðjónsson,
Anna Lóa Geirsdóttir, Engilbert Þorsteinsson,
Erla Geirsdóttir, Ársæll Alfreðsson,
Gísli Geirsson, Margrét Berglind Ólafsdóttir
og afabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar elskulegs eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
SÆVARS FRÍMANNSSONAR,
Frostafold 187,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunar-
heimilisins Eirar, deild 2 N fyrir hlýhug og góða
umönnun.
Hildur Björk Sigurgeirsdóttir,
Jóhann Gunnar Sævarsson, Sólveig Guðmundsdóttir,
Gerður Guðrún Sævarsdóttir,
Edda Björk Sævarsdóttir, Indriði Björnsson,
afabörn og langafabarn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og
langafi,
HAFSTEINN ÓLAFSSON,
Bakkagerði 7,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans Landakoti
þriðjudaginn 7. apríl.
Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn
27. apríl kl. 15.00.
Dís Guðbjörg Óskarsdóttir,
Ægir Hafsteinsson,
Ólafur Hafsteinsson, Erna Júlíusdóttir,
Hafdís Hafsteinsdóttir, Guðjón Valgeirsson,
Vilborg Hafsteinsdóttir,
Hanna Hafsteinsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur sonur minn, stjúpsonur og bróðir,
FRIÐRIK ÁGÚSTSSON,
Norðurási,
Bröttuhlíð 16,
Hveragerði,
lést á heimili sínu sumardaginn fyrsta, 23. apríl.
Útför hans fer fram í kyrrþey.
Sigrún Friðriksdóttir,
Eggert Haraldsson,
Haraldur Eggertsson,
Karl Eggertsson,
Eggert Eggertsson,
Sigríður Fanney Eggertsdóttir.