Morgunblaðið - 25.04.2009, Side 60
60 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
Sudoku
Frumstig
1 5 7
6 7
7 8
2
8 9 2 3 4
5 4 8 7
4 9 1
3 8
1 2 6
4 7
9 5 2 1
2 6 5 4
8
3 4 9 6 1
6
1 8 3 7
9 7 2
3 7
2 9
8 5 9 6
7 1 9 4 3
3 1 6
2 9
6
9 4
7 6 5 8
7 8 6 4 5 1 2 3 9
2 1 4 3 9 7 6 5 8
3 9 5 2 6 8 1 7 4
6 4 3 7 1 5 8 9 2
5 2 1 9 8 3 4 6 7
9 7 8 6 4 2 3 1 5
1 5 7 8 2 6 9 4 3
8 3 9 1 7 4 5 2 6
4 6 2 5 3 9 7 8 1
3 6 8 4 7 9 1 2 5
4 5 2 1 6 3 7 8 9
9 7 1 2 5 8 4 6 3
6 2 5 7 3 4 8 9 1
1 3 9 6 8 5 2 4 7
8 4 7 9 2 1 5 3 6
7 9 3 5 4 2 6 1 8
2 1 6 8 9 7 3 5 4
5 8 4 3 1 6 9 7 2
9 7 8 3 4 1 2 6 5
3 6 4 8 5 2 9 1 7
5 1 2 7 6 9 4 8 3
7 4 3 9 8 5 6 2 1
8 2 6 1 3 4 7 5 9
1 9 5 2 7 6 3 4 8
4 3 7 6 1 8 5 9 2
2 5 1 4 9 3 8 7 6
6 8 9 5 2 7 1 3 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 25. apríl,
115. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Ég lít svo á, að ekki séu
þjáningar þessa tíma neitt í sam-
anburði við þá dýrð, sem oss mun
opinberast. (Rm. 8, 18.)
Í dag er kjördagur. Víkverji þarfþví að koma sér niður í Ráðhús
Reykjavíkur til að lýsa yfir ein-
dregnum og skilyrðislausum stuðn-
ingi sínum við stjórnmálaflokk.
Hann getur sett einn staf – X – við
einn flokk. Það þýðir „ég styð þau“.
x x x
Tjáningin á vilja kjósandans erekki mikið flóknari en þetta,
enda er kjósandinn ekki álitinn mik-
ið flóknari persóna en svo, í hrein-
ræktuðu fulltrúalýðræði Íslendinga.
Nánast er gert ráð fyrir því að kjós-
andinn geti alltaf fundið sér einn
flokk til að treysta skilyrðislaust.
x x x
Víkverji getur til dæmis ekki settX við D en skrifað þar hjá „því
grunngildin eru svo góð, þótt þið far-
ið alls ekki eftir þeim“. Hann getur
ekki sett X við V en skrifað þar hjá
„þrátt fyrir að ég sé ósammála nán-
ast öllu sem þið segið“. Og ekki get-
ur hann krossað við B en látið fylgja
með „þótt þið berið ábyrgð á gallaðri
einkavæðingu og síauknum ríkisút-
gjöldum á þenslutímum“.
x x x
Og upptalningin heldur áfram.Ekki mætti Víkverji haka við
Lýðræðishreyfinguna, en skrifa „til
að hæðast að hinum flokkunum“ á
kjörseðilinn. Ekki gengi að krossa
við Borgarahreyfinguna með skila-
boðunum „þótt þið hafið ekki hug-
mynd um hvernig á að leysa vanda
þjóðarinnar“. Síðast en ekki síst
gæti hann ekki veitt Samfylkingunni
atkvæði sitt „þótt hún hafi flotið sof-
andi að feigðarósi, fjármögnuð með
vafasömum hætti“. Svona útskýr-
ingar og neðanmálsgreinar myndu
auðvitað ógilda seðilinn.
x x x
Kannski væri rétt að gefa kjós-endum kost á því að setja ann-
að tákn en X við framboðin á kjör-
seðlinum. Bókstafurinn Æ gæti
verið hentugur í þetta. Þannig gæti
Víkverji nánast andvarpað atkvæði
sínu á það framboð sem hann er
hvað síst mótfallinn. „Æ, ég kaus...“
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 draum-
óramaður, 8 smá, 9 geta,
10 muldur, 11 dauf ljós,
13 hermdi eftir,
15 grön, 18 hengilmæna,
21 gyðja, 22 vöggu, 23
fiskar, 24 rétta.
Lóðrétt | 2 gáfaður, 3
reiður, 4 koma í veg fyr-
ir, 5 koma að notum, 6
tólg, 7 skott, 12 ótta, 14
skaut, 15 klippa lítið eitt
af, 16 ráfa, 17 grasflöt,
18 uglu, 19 ryskingar, 20
sjá eftir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 mygla, 4 rúmar, 7 tólin, 8 gætin, 9 sál, 11 róar,
13 lama, 14 ostra, 15 fork, 17 gras, 20 enn, 22 andóf, 23
ístra, 24 neita, 25 arnar.
Lóðrétt: 1 mætur, 2 gelta, 3 agns, 4 rugl, 5 motta, 6
renna, 10 áttan, 12 rok, 13 lag, 15 fóarn, 16 ruddi, 18
rætin, 19 staur, 20 efna, 21 nípa.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6
5. Rxc6 bxc6 6. Bd3 d5 7. 0-0 Rf6 8. Rd2
Be7 9. c4 0-0 10. Dc2 h6 11. b3 Bb7 12.
Bb2 a5 13. Hac1 Rd7 14. Hfe1 a4 15.
He3 axb3 16. axb3 Bf6 17. Bxf6 Dxf6
18. b4 Re5 19. Be2 Hfd8 20. Rb3 dxc4
21. Bxc4 Ba6 22. Bxa6 Hxa6 23. Rc5
Hb6 24. Hb1 Hd4 25. Heb3 Hb8 26. h3
Hbd8 27. Hf1 Hd2 28. Dc1 He2 29. He3
Hb2 30. Hb3 He2 31. He3 Hb2 32. Hb3
Hxb3 33. Rxb3 Rd3 34. Dc4 Rf4 35.
Kh2
Staðan kom upp á alþjóðlega Reykja-
víkurskákmótinu sem lauk fyrir nokkru
í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhús-
inu. Hjörvar Steinn Grétarsson (2.279)
hafði svart gegn portúgalska stórmeist-
aranum Luis Galego (2.494). 35. …
Hd3! 36. Hc1 Dh4 37. Kg1 Dg5 og hvít-
ur gafst upp enda ræður hann ekki við
margvíslegar hótanir svarts.
Svartur á leik.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Rusinow.
Norður
♠108754
♥72
♦K65
♣843
Vestur Austur
♠KD ♠3
♥1083 ♥DG96
♦G10 ♦Á98742
♣ÁD10976 ♣G5
Suður
♠ÁG962
♥ÁK54
♦D3
♣K2
Suður spilar 4♠ doblaða.
Sú regla í vörn að spila „ofan af röð“
er ekki gallalaus. Helst er það ásinn út
sem veldur vanda, en hann getur verið
frá Á-K eða frá ásnum án kóngsins.
Þessi tvíræðni fór í taugarnar á Sydn-
ey Rusinow (1907-53), en við hann er
kennd sú aðferð að spila næst hæsta
spilinu frá röðum: kóng frá Á-K,
drottningu frá K-D og svo framvegis.
Sniðug regla, en heldur ekki hnökra-
laus, því með tvílit er byrjað á hærra
spilinu þótt um „röð“ sé að ræða.
Ónefndur rússneskur sagnhafi nýtti
sér þessa tvíræðni í spilinu að ofan.
Vestur kom út með ♦G – smátt úr
borði, austur kallaði og lítið úr suðrinu!
Tígultían kom næst og austur dúkkaði,
enda bjóst hann við ♦D hjá makker
sínum. En nei, suður átti hana, hreins-
aði upp hjartað með trompun og enda-
spilaði vestur með ♠Á og spaða.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Ekki er víst að hrúturinn fái mikla
svörun þótt hann láti ljós sitt skína. Haltu
því öllu í röð og reglu.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert dularfull persóna sem dregst
að hinu óvenjulega. Samskiptahæfileikar
þínir eru með besta móti og fólki finnst þú
hafa góðan húmor.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Láttu þér ekki mislíka þótt ein-
hverjir hörfi undan þegar þú sækir fast að
þeim. Samræður við foreldra eru mikil-
vægari en ella á sama tíma.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú þarft að athuga vel hvernig þú
setur hlutina fram því það skiptir sköpum
að allir skilji hvert þú ert að fara. Gerðu
það sem í er þínu valdi og láttu aðra um
sitt.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Næstu daga áttu eftir að vekja mun
meiri eftirtekt en áður. Lítillæti er dyggð
sem reynir á undir þessum kringum-
stæðum.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér finnst eins og einhverjir vilji
leggja stein í götu þína. Veltu því fyrir þér
af hverju þú ætlar að hafa tekjur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Hingað til hefurðu verið fljótur að
treysta nýjum vinum fyrir nákvæmum
persónuupplýsingum. Fólk tekur eftir
þessu og fylgist með verklagi þínu sem
segir allt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það gæti verið rétt í stöðunni
að leyfa hlutunum að þróast af sjálfu sér.
Allt sem tengist ást, rómantík, ánægju og
skemmtun kemur vel út í þínu merki á
næstu vikum.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Bogmaðurinn ætti að leggja
vini lið í dag. Mundu að þú færð borgað
fyrir að fara að fyrirmælum annarra. En
það er ekkert að óttast, ekki láta ímynd-
unaraflið hlaupa með þig í gönur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú þarft að leggja þig alla/n
fram í samskiptum þínum við aðra í dag.
Hafðu ekki áhyggjur en gerðu það sem
þarf til að ná tökum á þessu á ný.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það getur verið erfitt að stand-
ast þá freistingu að kaupa einhvern hlut.
Njóttu þess með þeim sem hafa stutt þig
og lagt hönd á plóg. Vertu samt ekki of
smámunasamur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Varfærni og umburðarlyndi fleyta
manni langt. Einhver á eftir að sýna raun-
verulegan styrk sinn í þessum deilum.
Stjörnuspá
25. apríl 1840
Fregnir bárust með dönsku
kaupfari um andlát Friðriks
konungs sjötta og ríkistöku
Kristjáns konungs áttunda. Þá
voru liðnir nær fimm mánuðir
síðan konungur dó. Minning-
arhátíðir voru í Dómkirkjunni
og Bessastaðaskóla.
25. apríl 1913
Eldgos hófst austur af Heklu
og stóð það fram eftir maí-
mánuði. „Eldarnir komu upp á
tveim stöðum og gusu margir
gígar á báðum,“ sagði í Skírni.
Hraun runnu við Lambafit og
Mundafell.
25. apríl 1915
Hótel Reykjavík og ellefu önn-
ur hús við Austurstræti, Póst-
hússtræti og Hafnarstræti
brunnu í mesta eldsvoða á Ís-
landi til þess tíma. Tveir menn
fórust.
25. apríl 1944
Fyrsta íslenska óperettan, Í
álögum, var frumflutt í Iðnó.
Höfundur tónlistar var Sig-
urður Þórðarson en höfundur
texta Dagfinnur Sveinbjörns-
son. Tónlistarfélagið stóð að
sýningunni. Pétur Á. Jónsson
óperusöngvari fór með aðal-
hlutverkið.
25. apríl 1991
Bifreið var ekið á hæsta tind
Íslands, Hvannadalshnjúk á
Öræfajökli, í fyrsta sinn.
25. apríl 1999
Haldið var í fyrsta sinn upp á
Dag umhverfisins, á fæðing-
ardegi Sveins Pálssonar nátt-
úrufræðings. Tilgangurinn
með deginum var að hvetja
fólk til að kynna sér samskipti
manns og náttúru og efla um-
ræðu um umhverfismál.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Þetta gerðist …
JÓHANNA Sigmarsdóttir, sóknarprestur og pró-
fastur á Eiðum, er ein þeirra sem búin eru að
kjósa utan kjörfundar og þarf því ekki að gera sér
ferð á kjörstað á afmælisdaginn. Ástæðan fyrir því
að hún kaus utankjörfundar er sú að hún þurfti að
fara til Reykjavíkur þar sem prestastefna hefst á
þriðjudag en hún notar einnig ferðina til að hitta
börnin sín tvö. Í dag ætla þau að borða saman
hreindýralæri í tilefni 65 ára afmælisins. Áður
verður Jóhanna þó búin að fá sér göngutúr, þ.e. ef
veðrið á höfuðborgarsvæðinu leyfir.
Það þykja e.t.v. ekki sérstök tímamót að verða
65 ára og í sumar verða mun merkilegri tímamót í lífi Jóhönnu því þá
verður hún amma í fyrsta sinn. „Ég er nefnilega svo seinþroska,“ seg-
ir hún og hlær.
Á höfuðborgarsvæðinu eru flestar fermingar afstaðnar en víða úti
á landi er fermt í júní. Jóhanna mun halda fjórar fermingarmessur í
júní. Síðan ætlar hún m.a. að messa í kirkjunni í Loðmundarfirði 19.
júlí. Eitthvað ætlar Jóhanna þó að skjótast í sumarbústaðinn sem hún
á með systkinum sínum. Hið yfirvofandi ömmuhlutverk er þó aug-
ljóslega það sem Jóhanna hlakkar mest til. runarp@mbl.is
Jóhanna Sigmarsdóttir prestur á Eiðum 65 ára
Verður amma í sumar
Nýirborgarar
Reykjavík Þórbergur
fæddist 23.janúar.
Hann vó 3.625 g og var
54 cm langur. For-
eldrar hans eru Rúnar
Pálmason og Vilborg
Þórðardóttir.
Akranes Lena Margrét
fæddist 2. janúar kl. 6.18.
Hún vó 3.890 g og var 53
cm löng. Foreldar hennar
eru Erla Helga Svein-
björnsdóttir og Sigurður
Oddsson.
Reykjavík Þórir Leó
fæddist 24. febrúar kl.
1.14. Hann vó 3.200 g og
var 50 cm langur. For-
eldrar hans eru Heiðrún
Grétarsdóttir og Kristján
Hrafn Guðmundsson.