Morgunblaðið - 25.04.2009, Side 61
Velvakandi 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
OG? MÉR SÝNIST
EINHVER HAFA
SOFIÐ VEL
Í NÓTT
MIG
DREYMDI
RISA-
SMÁKÖKUNA
SEM VILDI
LÁTA ÉTA
SIG AFTUR
HVERNIG
LÆT ÉG MÉR
LÍÐA BETUR
EFTIR JÓLIN?
ÞÚ GETUR KLAPPAÐ
SÆTUM HUNDI
HVAÐ GET ÉG ÞÁ GERT TIL
AÐ LÁTA MÉR LÍÐA BETUR
VEISTU HVAÐ ER
ÞAÐ VERSTA VIÐ
KONUR?
BÍDDU
!
LEYFÐU MÉR
AÐ GISKA...
ER ÞAÐ EKKI
EIGINMAÐURINN ÞEIRRA?
ÉG
ER ÚR
LEIK
MÉR TÓKST ÞAÐ!
ÉG GREIP HANN!
ÆTLI MAÐUR GETI
ORÐIÐ LEIÐUR Á ÞVÍ
AÐ LIGGJA HÉRNA Í
SÓFANUM?
ÉG LIGG SAMT EKKI
ALLTAF Í SÓFANUM...
STUNDUM SIT
ÉG Í HONUM
ÞÚ ERT EKKERT FYRIR
SVONA PÆLINGAR,
ER ÞAÐ NOKKUÐ?
ÞETTA ER NÝI GÍTAR-
KENNARINN HANS
KALLA, SÓLEY HNETA
GAMAN AÐ
KYNNAST ÞÉR
KALLI SEGIST VILJA LÆRA
Á GÍTAR EN HANN VILL EKKI
LEGGJA MIKLA VINNU Í ÞAÐ
ÞAÐ MIKILVÆGASTA ER AÐ
HANN SKEMMTI SÉR!
ALLT Í LAGI...
ÉG VEIT EKKI HVERSU
MIKILVÆGT ÞAÐ ER
SKÖMMU SÍÐAR...BLAÐASÖLUMAÐURINN
ER HRÆDDUR VIÐ
ÞENNAN FANT...
OG HANN
VEIT AÐ ÉG GET
EKKI ALLTAF
VERIÐ HÉRNA
TIL AÐ PASSA
UPP Á HANN
KÓNGULÓAR-
MAÐURINN
ER FARINN
EN ÉG ER
ENNÞÁ HÉR
EKKI MEIÐA MIG! ÉG LOFA
AÐ SELJA „DAILY BUGLE“
EKKI FRAMAR
Kosningar 25. apríl
KÆRU Íslendingar,
hverja ætlið þið að
kjósa í kosningunum?
Vinstristjórn eða eitt-
hvað annað sem ég vil
kalla miðjustjórn? Eft-
ir allar þær yfirlýs-
ingar sem hafa gengið
á milli Vinstri grænna
og Samfylkingarinnar í
þessari kosningabar-
áttu virðast þeir á önd-
verðum meiði í all-
flestum málum. Það er
ESB og svo hjá Vinstri
grænum að hækka
skatta á flestallar fjöl-
skyldur og fyrirtæki í landinu og
líka að lækka laun hjá opinberum
starfsmönnum. Hvað þýðir það?
Lækka líka í leiðinni laun hjá því
fólki sem komið er á eftirlaun, þá
lækka lífeyrisgreiðslurnar hjá því
fólki líka. Hvað finnst lífeyrisþegum
um það Ögmundur? Heldur þú að
þetta fólk kjósi þig og þinn flokk. Og
hvað um fólkið sem er að missa
íbúðina sína vegna ykkar. Þið hafið
ekkert gert þessa 80 daga sem þið
hafið farið með stjórn landsins.
Hvað um ofurlaun þessara manna
sem stjórna lífeyrissjóðunum? Þið
talið ekkert um það, 20-40 milljónir
á ári, eru það ekki góð laun? Nei,
kjósendur góðir, kjósum ekki
Vinstri græna né Samfylkinguna
sem stjórnar ASÍ. Það sést best á
styrkjununum sem Samfylkingin
fekk hjá ASÍ en engir flokkar aðrir.
Kjósum Framsóknarflokkinn sem
vill 20% lækkun á höfuðstól íbúð-
arlána okkar eða kjósið þá Sjálf-
stæðisflokkinn, það eru bestu kost-
irnir í dag.
Hannes Helgason.
Skattheimta ríkisins
Í ÞEIRRI umræðu hvort auka eigi
skatta hefur gleymst að geta þess
hvað landsmenn greiða nú þegar í
skatta af sjálfsaflafé sínu. Komið
hefur margoft fram, fram m.a. í
þætti Egils Helgasonar „Silfri Eg-
ils“, að landsmenn greiða 50% af því
fé til sameiginlegra þarfa þjóð-
félagsins. Þetta er eitt hæsta hlutfall
í Vestur-Evrópu. Það þýðir að
fyrstu sex mánuði ársins greiða
landsmenn öll sín laun að meðaltali
til sameiginlegra þarfa.
Eins og ástandið er hér á landi
um þessar mundir er hækkun skatta
ekki vænleg til að bæta ástandið.
Aukin skattheimta er ekki ábæt-
andi, hún dregur úr vinnuvilja fólks
og eykur skattsvik. Hægt er að
nálgast ríkisreikning á netinu, þar
kemur vel í ljós hvert allt þetta
skattfé fer í ríkiskerfinu. Það vekur
furðu að skoða ríkisreikninginn og
maður fer að furða sig á þessari ör-
þjóð og í hvað hún hefur látið koma
sér, því öll þessi eyðsla er ekki það
sem þjóðin hefur óskað eftir sjálf en
kjörnir fulltrúar, oftar en ekki
fulltrúar hagsmunaafla, bundið hana
á klafa. Samt er sagan ekki öll sögð
því eyðsla sveitarfé-
laga er ekki í rík-
isreikningi og er það
kapítuli út af fyrir sig.
Senda ætti rík-
isreikning árlega til
allra skattgreiðenda –
þeir eiga heimtingu á
því. Það ætti ekki að
vera meira verk en að
senda símaskrána öll-
um landsmönnum.
Skattgreiðandi.
Húsnæðismál
Í TILEFNI af þeim
fjölda óseldra íbúða
sem eru á fast-
eignamarkaðnum og frostinu sem
þar ríkir læt ég þessa tillögu mína
vaða: Hvernig væri að við hjálp-
uðum ungu barnafólki að hefja bú-
skap með því t.d. að gefa hverju
barni við fæðingu tvær milljónir
sirka til útborgunar í húsnæði?
Nokkurs konar afborgunarfrí hús-
bréf. Persónuafslátt frá fæðingu
sem tryggði því og væri bundið í
heimili. Foreldrarnir yrðu að nota
þessar milljónir í útborgun á hús-
næði.
Ef ykkur líst ekki á þessa leið þá
er líka hægt að hugsa sér þessar
tvær milljónir á sérkjörum, t.d. án
verðtryggingar og með extra lágum
vöxtum og greiddist upp á fyrstu 16
árum barnsins með t.d. persónu-
afslætti foreldranna, vaxtabótum
eða barnabótum sem færu þá í hús-
næði, ekki neyslu. Þar með væri
kominn eins konar skyldusparnaður
hjá ungu foreldrunum og barninu
tryggt húsnæði í leiðinni. Ef t.d.
unga fólkið væri komið með tvö börn
þá væru þar með komnar fjórar
milljónir til útborgunar í húsnæði.
Best væri náttúrlega ef þetta yrði
afturvirkt til 1977 svo ég græddi á
þessu líka.
Jón Helgi Guðmundsson.
Ónýtt atkvæði
ÉG las í Morgunblaðinu á dögunum
að allt að 10% stuðningsmanna
Sjálfstæðisflokksins ætluðu að skila
auðu í kosningunum. Gerir fólk sér
ekki grein fyrir, að auð og ógild at-
kvæði í kjörkassa er sama og óbeinn
stuðningur við þann flokk sem flest
atkvæði hlýtur? Ef fólk vill ekki
stuðla að styrk stærsta flokksins
(núna Samfylking) þá á það að gefa
einhverju af nýju og litlu framboð-
unum atkvæði sitt.
Lesandi Morgunblaðsins.
Lyklakippa í óskilum
MITSUBISHI-lyklakippa með
tveimur lyklum fannst við Grett-
isgötu 46. Eigandi vinsamlegast hafi
samband í síma 561-4268 eða 847-
4759.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Bólstaðarhlíð 43 | Vorfagnaður ’09
verður á fimmtudaginn 14. maí kl. 17.
Ragnar Bjarnason og Þorvaldur Hall-
dórsson sjá um stuðið. Söngur, grín og
dans. Veislumatur frá Lárusi Loftssyni.
Skráning í s. 535-2760 fyrir 12. maí.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi
kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Árleg vor-
sýning verður í Gjábakka um næstu
helgi. Handverksfólk er beðið að skila
sýningarmunum til Þórhildar og Krist-
ínar mánudag 27.4. og þriðjudag 28.4.
Félagsheimilið, Gullsmára 13 | Vorsýn-
ing í Gullsmára 13, 1.-3. maí. Þeir sem
eru með muni á sýninguna skilið þeim
eigi síðar en miðvikudaginn 29. apríl f.h.
Félagsstarf í Gerðubergi | Mánud. kl. 9
og föstud. kl. 13 er leikfimi og heitt á
könnunni í ÍR-heimilinu v/Skógarsel.
Mánud. kl. 9.50 og miðvikud. er vatns-
leikfimi í Breiðholtslaug. Kl. 10.30
þriðjud. og föstud. stafaganga og miðvi-
kud. kl. 10.30 fjölbreytt leikfimi. Pútt-
völlur v/Breiðholtslaug er opinn. S. 575
7720.
Hraunsel | Miðvikudaginn 6. maí er
hálfsdagsferð til Reykjavíkur í heimsókn
í Þjóðmenningarhús sem er 100 ára.
www.febh.is.
Hæðargarður 31 | Tangó, glerlist, tölvu-
leiðbeiningar, taichi, framsögn, hlát-
urjóga, hannyrðir, línudans, útskurður,
World Class, bókmenntir, söngur,
gönguhlaup, hljóðbók, spænska, mynd-
list, qigong, baráttuhópur um bætt
verðurfar, skapandi skrif, postulíns-
málun og „Þegar amma var ung...“ S.
411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Snælands-
skóla v/Víðigrund kl. 9.30-10.30. Uppl. í
síma 564 1490, 554 5330 og 554 2780.
Vesturgata 7 | Kl. 15 koma frambjóð-
endur frá Sjálfstæðisflokknum í heim-
sókn. Jórunn Frímannsdóttir, Illugi
Gunnarsson og Þórlindur Kjartansson.
Dansað í kaffitímanum.
@