Morgunblaðið - 25.04.2009, Blaðsíða 62
62 MenningLISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. APRÍL 2009
FERILL Placido Domingo nálgast
hálfa öld en nú býr einn frægasti
tenór síðustu áratuga sig undir að
syngja baritónrulluna Simon Bocc-
anegra í samnefndri óperu Verdis.
Domingo syngur hlutverkið í Co-
vent Garden og einnig í New York,
Berlín og Madríd.
Söngvarinn mun fyrst hafa viðr-
að það í viðtali árið 2001 að hann
dreymdi um að syngja „bara einn
Simon Boccanegra. Það er einstakt
verk, afar tilfinningaþrungið. Þessi
maður leitar að dóttir sinn í mörg
ár. Endurfundirnir er einhver ótrú-
legasta sena í nokkurri óperu.“
Blaðamenn sem fjallað hafa um
væntanlega frumraun Diomingo
sem Boccanegra, telja að það muni
henta honum vel, nú á síðustu stig-
um ferilsins. Þá hafi hann komið
fram sem baritónn þegar hann söng
fyrst fyrir í óperuhúsi Mexíkóborg-
ar fyrir 50 árum. Stjórnendur þar
skynjuðu hæfileika hins unga
söngvara og réðu hann, sem tenór.
Domingo
baritónn
Syngur hlutverk
Simon Boccanegra
Domingo Söngvarinn fyllir óp-
eruhús hvar sem hann kemur fram.
MENNINGHARHÚSIÐ Mið-
garður í Varmahlíð í Skagafirði
verður á morgun tekið í notkun
á nýjan leik eftir gagngerar
endurbætur.
Fjölbreytileg menningar-
dagskrá fer fram í Miðgarði á
morgun, sunnudag, af þessu
tilefni og hefst hún klukkan
13.00.
Við það tækifæri verður
Sæluvikan, lista- og menning-
arhátíð Skagfirðinga, sett.
Í dagskrárlok verða bornar fram heimilislegar
veitingar og gestum gefst kostur á að ganga um
Miðgarð og skoða þessa glæsilegu byggingu.
Menningarhátíð
Miðgarður opnaður
eftir breytingar
Karlakórinn Heim-
ir mun verða hag-
vanur í Miðgarði.
EINAR Hákonarson listmálari
opnar í dag klukkan 14.00 sýn-
ingu á 40 nýjum olíu-
málverkum að Laugavegi 95.
Einar Hákonarson er meðal
þekktari íslenskra listmálara.
Hann er fígúratífur express-
jónisti og hefur alla tíð verið
stefnufastur í listsköpun sinni.
Í verkum hans hefur mann-
eskjan í umhverfi sínu verið
rauður þráður í gegnum 40 ára feril. Verk Einars
prýða fjölda opinberra bygginga og hefur hann
haldið yfir 30 einkasýningar.
Sýningin er opin frá klukkan 14.00 til 18.00 og
stendur til 10 maí.
Myndlist
Einar Hákonarson
sýnir ný verk
Einar Hákonarson
PÉTUR Östlund er einn
fremsti trommuleikari þjóð-
arinnar. Á sjöunda áratugnum
gerði hann garðinn frægan
með Hljómum frá Keflavík, en
um árabil hefur hann verið bú-
settur í Svíþjóð, þar sem hann
leikur djass og kennir trommu-
leik. Meðal þeirra sem Pétur
hefur leikið með eru Niels-
Henning Örsted Pedersen,
John Scofield og Art Farmer
Í dag, laugardag, klukkan 15, heldur Pétur
námskeið í Hljóðfærahúsinu/Tónabúðinni, að
Síðumúla 20, þar sem hann gefur innsýn í
trommutækni sína. Aðgangur er ókeypis.
Tónlist
Pétur Östlund
kynnir tæknina
Pétur Östlund við
trommusettið.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
EINLEIKURINN Djúpið eftir Jón
Atla Jónasson, sem var frumsýndur
í Skotlandi í byrjun mánaðarins,
hefur verið valinn sem eitt verka í
jaðarhluta leiklistarhátíðarinnar í
Edinborgar, Edinburgh Fringe,
sem haldin verður í byrjun ágúst.
Undanfarnar vikur hefur verkið
verið flutt víða í Skotlandi í leik-
stjórn Skotans Graeme Maley, en
með aðalhlutverkið, og eina hlut-
verkið, fer annar Skoti, Liam
Brennan.
Jón Atli vill ekki gera of mikið úr
því að aðstandendum verksins hafi
verið boðið að flytja það á Ed-
inborgarhátíðinni, enda sé hátíðin
öllum opin í sjálfu sér.
„Þetta er þó skemmtilegt æv-
intýri og gott að fá inni í góðum sal,“
segir hann og samsinnir því þó að
það sé ákveðin viðurkenning á gæð-
um verks að vera valið þangað inn,
en einn úr framkvæmdanefnd hátíð-
arinnar sá Djúpið og óskaði eftir því
að fá það á hátíðina í framhaldinu.
Sagði bara til hamingju
Að sögn Jóns Atla verða engar
breytingar gerðar á verkinu fyrir
sýninguna, það sé gott eins og það
er, „en staðsetningin gefur kannski
einhverja möguleika hvað varðar
lýsingu og sviðsmynd. Ég á þó ekki
von á miklum breytingum, þetta er
hrá og fín uppsetning og hvílir al-
gerlega á herðum Maleys og hann
gerir þetta vel,“ segir Jón Atli, sem
verður á ferð úti til að svara þeim
fyrirspurnum sem kunni að berast í
kjölfar sýningarinnar og eins „að sjá
strákana gera þetta“, eins og hann
orðar það. „Ég þarf ekki að hafa
áhyggjur af því að þetta verði ekki í
lagi, ég sá það frá fyrstu æfingu að
hann væri alveg með þetta og sagði
ekki neitt, sagði bara til hamingju.“
Eins og fram kemur hefur verkið
verið sýnt víða á Skotlandi und-
anfarið og Jón Atli segir að það hafi
almennt fengið fínar viðtökur og
góðar umsagnir, enda skilji áhorf-
endur í skoskum sjávarþorpum
verkið eflaust mjög vel í ljósi þess
hve þeir eiga mikið sameiginlegt
með íbúum fiskiþorpa á Íslandi; þeir
hafi glímt við sama veruleika og
sömu erfiðleika í gegnum tíðna.
„Reynsluheimur þeirra er svo svip-
aður, þetta er svo svipuð menning,
þetta eru nágrannar okkar að vissu
leyti.“
Djúpið, The Deep, verður sýnt í
Assembly Rooms-salnum í Ed-
inborg á Edinburgh Fringe-
hátíðinni í ágúst. Þess má svo geta
að verkið verður frumsýnt hér á
landi í íslenskum búningi í Borg-
arleikhúsinu í lok maí með Ingvar
E. Sigurðsson í aðalhlutverki.
Einleiksverk Jóns Atla Jónassonar á ferð um Skotland Valið á leiklistarhátíð
Djúpið til Edinborgar
Íslenska útgáfan Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki sínu í Djúpinu, sem verður frumsýnt hér í lok maí.
Í HNOTSKURN
»Djúpið byggist á eintalisjómanns sem fastur er í
sökkvandi skipi.
»Leikritið er byggt á frá-sögnum af skipsvoðum við
Ísland á 20. öld.
»Verkið er flutt á skoskrigelísku í þýðingu leik-
stjórans.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
CARNEGIE-listaverðlaunin, sem
stofnsett voru 1998 af sænska bank-
anum Carnegie, eru með helstu slík-
um verðlaunum í heimi, en þau eru
ætluð norrænum listamönnum.
Verðlaunin eru veitt árlega og að
þessu sinni hafa 23 listamenn verið
tilnefndir til verðlaunanna.
Dómnefnd verðlaunanna valdi
listamennina 23 úr hópi 148 lista-
manna, en síðan velur hún þrjá lista-
menn til verðlauna og einn styrkþega
í lok maí. Tveir íslenskir listamenn
voru tilnefndir til verðlaunanna að
þessu sinni, þeir Kristján Guð-
mundsson og Egill Sæbjörnsson.
Fyrstu verðlaun nema tæpum sex-
tán milljónum króna, önnur verðlaun
um tíu milljónum og þriðju verðlaun
um sex milljónum. Að auki verður
listamanni af yngri kynslóðinni veitt-
ur styrkur sem nemur hálfri annarri
milljón króna.
Verk listamannanna 23 verða sýnd
í Charlottenborg sýningarsalnum í
Kaupmannahöfn 17. ágúst næstkom-
andi, en síðan fer sýningin í ferð um
Norðurlönd og verður einnig sett up
í Lundúnum, Nice í Frakklandi og
Peking. Verkin verða líka gefin út á
bók.
Carnegie listverðlaunin verða veitt í næsta mánuði
Kristján og Egill tilnefndir
til norrænna verðlauna
Morgunblaðið/Einar Falur
Kristján Guðmundsson Tekur tím-
ann við verkið Blá færsla.
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
SVONEFNDIR 15:15 tónleikar hafa
verið haldnir í Norræna húsinu sl.
sjö ár. Að þessu sinni hafa tónleik-
arnir yfirskriftina „Á nýjum nótum“.
Frumfluttur verður annar þáttur
ballettsvítu sem Jónas Tómasson er
að skrifa fyrir Duo Harpverk, Katie
Buckley hörpuleikara, og Frank
Aarnink slagverksleikara, en þátt-
urinn heitir Bel Air de Dans.
Sænska tónskáldið Jenny Hettne
hefur líka skrifað verk fyrir Duo
Harpverk. Wavering Wood, Whirl-
ing Metal heitir það og kallar meðal
annars á spiladósir og málning-
arpensil.
In Distance heitir verk eftir kín-
verska tónskáldið Tan Dun, sem
flutt verður í fyrsta sinn á Íslandi.
Cantilene heitir verk eftir Áskel
Máson sem er umskrifun á verki
hans fyrir lágfiðlu og marimbu, Mel-
odia. Cantilene verður flutt á flautu,
hörpu og marimbu og kemur Ás-
hildur Haraldsdóttir flautuleikari til
liðs við þau Katie Buckley og Frank
Aarnink við flutninginn.
Síðasta verk tónleikanna verður
Secreta eftir tékkneska tónskáldið
Peter Graham sem samið er fyrir
flautu og slagverk.
Eins og nafnið gefur til kynna
hefjast tónleikarnir kl. 15:15, en
þeir verða haldnir á morgun, 26.
apríl.
Á nýjum nótum
Ný norræn tónlist verður frumflutt á
15:15 tónleikum Norræna hússins
Ég geri ekki upp á
milli barnanna, guð
minn góður, þetta eru allt
saman dýrgripir. 64
»
ÞEGAR skúlptúristinn Andrea del
Verrocchio vann að verki fyrir alt-
ari kirkju í Flórens um 1480 réð
hann sér aðstoðarmenn og talið er
að einn þeirra hafi verið Leonardo
da Vinci.
Gary M. Radke, sýningarstjóri
Leonardo da Vinci: Hand of the Ge-
nius, sýningar sem verður opnuð í
Atlanta í haust, segist hafa komist
að því að tvær af sjö mannverum í
verkinu séu í raun eftir da Vinci, og
færir í samtali við The New York
Times rök fyrir þeirri skoðun.
Vísbendingar
um da Vinci?