Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 38
Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Sími 551 9000 750kr. 750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA Angels and Demons kl. 6 - 9 B.i.14 ára Boat that rocked kl. 6 - 9 B.i.12 ára Angels and Demons kl. 5:30 - 8:30 B.i. 14 ára State of Play kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára I love you man kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Crank kl. 5:50 - 8 -10:10 B.i. 16 ára X men Orgins.... kl. 6:30 - 9 B.i.14 Draumalandið kl. 6 (með enskum texta) 8 -10 LEYFÐ Angels and Demons kl. 6 - 9 B.i.14 ára X-Men Origins: Wolverine kl. 6 - 8 B.i.16 ára Boat that rocked kl. 10 B.i.12 ára SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI -M.M.J., kvikmyndir.com Þú færð 5 % endurgreitt í HáskólabíóSími 462 3500 750k r. UNCUT EMPIRE - S.V. MBL HÖRKUSPENNANDI MYND FRÁ LEIKSTJÓRA THE LAST KING OF SCOTLAND TOTAL FILM ÓTRÚLEGA FYNDIN MYND Í ANDA KNOCKED UP OG FORGETTING SARAH MARSHALL 750k r. HÖRKU HASAR! 750k r. SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI “Spennandi, fyndin og hraðskreið út í gegn! Miklu betri en Da Vinci Code.” -T.V., - kvikmyndir.is BRÁÐSKEMMTILEG GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA NOTTING HILL OG FOUR WEDDINGS AND A FUNERAL HHHH „Traustir leikarar, geggjaður húmor og - að sjálfsögðu - tónlist sem rokkar feitt!“ Tommi - kvikmyndir.is Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú b “Spennandi, fyndin og hraðskreið út í gegn! Miklu betri en Da Vinci Code.” -T.V., - kvikmyndir.is -M.M.J., kvikmyndir.com 750k r. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 Jæja, þá er yðar einlægur stadd-ur í Tíblisi, höfuðborg fyrr-verandi sovétlýðveldisins Georgíu, af öllum stöðum en um helgina fer hér fram þriggja daga tónlistarhátíð sem kallast Tbilisi Open Air – Alter/Vision. Hún fer fram miðsvæðis í þessari millj- ónaborg, á opnu svæði, Tbilisi Hippodrome. Heitið Alter/Vision gefur tildrög hennar til kynna, en á henni er nokkuð sérstæður pólitísk- ur broddur.    Það hefur vart farið framhjáneinum að Evróvisjón fer fram þessa sömu helgi í Rússlandi en Georgía dró sig út úr þeirri keppni eftir að sett hafði verið út á texta keppnissveitarinnar en þar var hent grín að sjálfum Pútín. Georgíu- menn, sem elda nú af miklum móð grátt silfur við rússneska björninn, harðneituðu að breyta efni textans og hefur orðið allnokkurt fréttamál úr þessu. Lagið, sem heitir „We Don’t Wanna Put In“ og er flutt af Stefane and 3G er meira að segja farið að skríða upp vinsældalista í Bretlandi. Málið hefur svo leitt af sér óvænt menningarátak í Georgíu en téðri hátíð er í raun beint gegn Evró- visjón og ægivaldi Rússanna en eitt af slagorðum hennar er „Tónlistin brýtur af sér hlekki“ eða „Music Breaks Free“. Þannig er enginn að- gangseyrir að hátíðinni og búist er við tugum þúsunda áhorfenda. Á ní- unda áratugnum voru stórar tónlist- arhátíðir haldnar í landinu en lá- deyða hefur verið í þeim efnum lengi vel. Þessari hátíð er m.a. ætlað að rífa upp tónlistar- og menningar- lífið í landinu, innlendar sveitir munu troða upp en ýmsar erlendar sveitir hafa og verið lóðsaðar inn.    Hljómsveitalistinn er nokk vír-aður, blanda af heimstónlist, raftónlist og rokktónlist. Þekktustu sveitirnar eru líkast til Berl- ínarsveitin Jazzanova og hin forn- fræga breska sveit, Transglobal Underground. En svo verða hér „heitar“ breskar sveitir eins og Traveling Band frá Manchester; hin óræða og skemmtilega nefnda bræðingssveit Haggis Horns auk sveita frá Danmörku, Frakklandi, Úkraínu, Póllandi, Rússlandi og að sjálfsögðu Georgíu. Afar exótískt verður að segjast. Og svo er það hin alíslenska Cynic Guru, sem blaðamaður er í samfloti með, en hún er leidd af fiðluleik- aranum knáa Roland Hartwell. Einn skipuleggjandinn að georgísku há- tíðinni kynntist sveitinni fyrir þrem- ur árum og hefur lagt hart að henni að heimsækja landið síðan. Og það er loks orðið að veruleika, undir þessum undarlegu formerkjum. Þetta er óneitanlega dálítið sér- kennilegt mál en afar spennandi líka. En meira síðar. Ætli sé ekki best að skoða sig aðeins um … Niður með Evróvisjón – og Rússland FRÁ TÍBLISI, GEORGÍU Arnar Eggert Thoroddsen » [S]vo er það hin al-íslenska Cynic Guru, sem blaðamaður er í samfloti með, en hún er leidd af fiðlu- leikaranum knáa Roland Hartwell. Stefane & 3G Georgíska framlagið hlaut ekki náð fyrir augum ópólitískrar nefndar Evróvisjónkeppninnar í ár. www.tbilisiopenair.com

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.