Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Morgunblaðiðhefur und-anfarna daga flutt fréttir af kaupréttarsamn- ingum tveggja stjórnenda í hluta- félaginu Teymi. Einkahlutafélög í eigu stjórnendanna keyptu 70 milljón hluti í félaginu á því töfr- um slungna ári 2007. Fengin voru lán frá Glitni fyrir kaup- unum, en stjórnendurnir voru ekki í persónulegum ábyrgðum fyrir lánunum. Ábyrgðin féll, samkvæmt samningnum, á Teymi sjálft. Aukinheldur fylgdi bréfunum söluréttur, sem átti að verða virkur í lok ágúst 2010. Ef gengi bréfa í félaginu hefði hækkað, hefðu stjórnendurnir hagnazt. Þeir gátu hins vegar ekki tapað á samningunum. Skuldin, sem nú er við Íslands- banka, nam í lok febrúar sl. um 830 milljónum króna. Í Morg- unblaðinu í gær var upplýst að þvert á það, sem skilja mátti af orðum fjármálastjóra Teymis í blaðinu á þriðjudag, kom ekkert fram í ársreikningi félagsins fyr- ir árið 2007 um að félagið væri í ábyrgðum fyrir lánum til stjórn- endanna. Þannig vissu hátt í þús- und hluthafar, sem þá áttu í al- menningshlutafélaginu Teymi, ekki hvernig í pottinn var búið; hvaða áhættu félagið tók fyrir þeirra hönd með þessu fyr- irkomulagi. Samningar af þessu tagi voru síður en svo einsdæmi í upp- sveiflunni. Kaupréttarsamningar voru gerðir við stjórnendur og lykilstarfsmenn í almennings- hlutafélögum og oft með sölu- rétti, sem þýddi í raun að ekki var hægt að tapa á samningunum. Hins vegar var hægt að hagnast vel á þeim. Í tilviki Kaupþings voru persónulegar ábyrgðir starfsmanna vegna lána fyrir hlutabréfum felldar niður og svipuð fyrirheit voru gefin í Glitni. Dregið hefur verið í efa að þessir gjörningar standist, en málin eru enn ófrágengin. Þegar kaupréttarsamningar upp á tugi eða hundruð milljóna voru gerðir við fólk fylgdi því gjarnan frasinn að verið væri að „tengja saman hagsmuni stjórn- enda og félagsins“. Sem er ekki vitlaus hugmynd. Hins vegar hafa ýmsir fært rök fyrir því að vegna þess að hagsmunir stjórn- endanna voru beintengdir við hlutabréfaverð hafi kaupréttar- samningarnir stuðlað að fjár- málahruninu. Stjórnendurnir hafi átt ríkari hagsmuni af háu hlutabréfaverði til skamms tíma en heilbrigðum rekstri til lengri tíma og þess vegna hneigzt til að taka of mikla áhættu. Svo mikið er víst að í mörgum tilfellum – eins og í Teymi – fóru hagsmunir stjórnenda, félagsins og hluthafanna eingöngu saman á meðan vel gekk og hlutabréf hækkuðu. Á niðurleiðinni skildi leiðir – hluthafar (og nú kröfu- hafar) tapa, en stjórnendurnir þurfa ekki að taka ábyrgð á gjörðum sínum. Sambærileg mistök hljóta menn að forðast þegar endur- reisa á heilbrigt viðskiptalíf hér á landi. Hagsmunir stjórn- enda og hluthafa fóru eingöngu sam- an þegar vel gekk} Samtengdir hagsmunir? Meiri ólga erinnan banda- laga stéttarfélaga en sést hefur síð- ustu ár. Nú síðast samþykkti Félag íslenskra hjúkr- unarfræðinga að yfirgefa BHM og áður höfðu m.a. suð- urnesjasjómennirnir í Verka- lýðs- og sjómannafélagi Kefla- víkur viðrað að ganga úr Starfsgreinasambandinu, þar sem formaður þeirra situr þó einnig við stjórnvölinn. Þeir vilja heldur tilheyra ASÍ eða einhverjum öðrum. Hjúkrunarfræðingar vilja afslátt af iðgjöldum sínum til höfuðsamtakanna – þrjár millj- ónir króna. Ljóst er að nú í efnahags- kreppunni skiptir hver króna máli. Bákn verður ekki fóðrað. Hafi höfuðstöðvarnar því ekki staðið sig gagnvart aðild- arfélögunum munu þau vilja burt. Þau munu ekki líða að kjarabarátta þeirra verði eins- konar atvinnubótavinna starfs- manna höfuðsamtakanna. Félagar í VR sýndu að þeir kærðu sig ekki um formann sem hafði gleymt uppruna sínum. Velta má því fyr- ir sér hvort heild- arsamtök stétt- arfélaganna hafi misst sjónar af grasrótinni. Getur verið að launamenn vilji fyrst og fremst að stéttarfélög þeirra berjist fyrir bættum kjörum þeirra og verjist launaskerðingunum? Þeir vilji að hagsmuna- samtökin berjist fyrir sameig- inlegum hagsmunamálum þeirra að þeirra eigin forskrift. Nú ríður á að peningunum sem launamenn leggja stéttar- félögunum til sé varið í að efla samstöðuna svo réttindi þeirra séu tryggð og launin í sam- ræmi við reglur. Í góðærinu skipti hver króna ekki máli og menn því hljóðir þótt þær færu í niðurgreiðslu á veru annarra í sumarhúsum eða í líkams- ræktarkort fyrir samstarfs- félagann. Stéttarfélögin þurfa að huga að upprunanum og ástæðu þess að þau urðu til. Þau þurfa að veita skjól í áföllum og verja réttindin og kjörin. Stéttarfélögin þurfa að huga að upprun- anum og ástæðu þess að þau urðu til } Hagræðing stéttarfélaganna V ið viljum að allir hafi vinnu, skárra væri það, enginn er svo illgjarn að vilja atvinnuleysi í landinu. En skiptir ekki máli hvernig við höld- um uppi atvinnustiginu? Allir höfðu vinnu í Sovétríkjunum gömlu, allir voru að gera eitthvað. Bílaumferð var lengst af sára- lítil en samt voru upp í fjórir lögregluþjónar á götuhornum til að stýra umferðinni. Þeir gerðu ekki neitt gagn en voru að nafninu til í vinnu, a.m.k. voru þeir ekki skráðir atvinnulausir. Og að sjálfsögðu er það ákveðin mannúð að hlífa okkur við því að vera á atvinnuleysiskrá. En til lengdar er þetta vond lausn ef hugsað er um þjóðarhag. Einu sinni var hagfræðingur spurður hvort ekki væri aðalatriðið að halda uppi atvinnustig- inu, allt annað yrði að víkja. Hann svaraði held- ur hvatskeytslega að ef menn vildu fórna öllu fyrir hátt at- vinnustig væri best að reisa virkjanir og önnur stór mannvirki án þess að nota stórvirkar vinnuvélar, líklega best að nota ekkert stærra en teskeiðar. Þá fengju svo margir vinnu. Síðustu áratugi hafa alltaf heyrst raddir um að stefna beri að því að fullvinna sjávaraflann. Í sjálfu sér er ekkert að því að menn vilji reyna að tryggja að Íslendingar njóti sjálfir virðisaukans af því gera hráefni verðmætara, búa til eitthvað dýrt úr því. En vandinn er að margir útlendingar eru afskaplega hrifnir af því að sjá það sem okkur þykir ekki neitt merki- legt: fisk eins og hann er þegar hann kemur úr sjónum. Þeir vilja sjá haus, sporð, hreistur, helst slor og allt heila klabbið. Þeir vilja frekar þannig vöru vegna þess að alls staðar í búðunum þeirra er meira en nóg af fiski og kjöti sem er svo „fullunnið“ að almenningur er hættur að gera sér grein fyrir upprunanum. Sumir halda að allur matur verði til í verksmiðjum. Stundum fæst hærra verð fyrir óunninn fisk en unninn á erlendum mörkuðum. Hvers vegna eigum við að láta fólk strita við full- vinnslu jafnvel þegar hún skilar ekki raun- verulegum gjaldeyristekjum? Allir hljóta að sjá að þá erum við í besta falli að halda uppi at- vinnubótavinnu á kostnað fyrirtækjanna sem borga kaupið. Við eigum að láta ráðamenn fyrirtækjanna ákveða hve mikið þeir láta fullvinna af fisk- inum og hve mikið þeir selja óunnið. Þeir hafa meira vit á því en skriffinnar í ráðuneytum. Ég hef nokkra samúð með þeim vinstrisinnum sem nú eru að reyna að stýra okkur út úr kreppunni með sínum aðferðum. En öðru hverju óttast ég að gömul afturhalds- hugmyndafræði þeirra sem vilja reyna að miðstýra og of- stýra öllu atvinnulífinu úr ráðuneytum sé ótrúlega öflug í huga sumra ráðherra og þingmanna. Til dæmis þeirra sem eru svo staðnaðir að ef minnst er á hugmyndir um að einkakvæða ákveðna þætti í rekstri ríkisstofnana spyrna þeir strax harkalega við fótum. Einkavæðing hefur stund- um mistekist. En er löggæsla á Íslandi virkilega í hættu ef rekstur lögreglubíla verður boðinn út? Springur þá sam- tímis á öllum dekkjunum? Bang? kjon@mbl.is Kristján Jónsson Pistill Fiskur er bestur með haus og sporði Sveitarstjórnarmenn vilja persónukjör FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is J óhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra sagði á blaðamannafundi á Ak- ureyri í fyrradag að rík- isstjórnin stefndi að því að taka upp persónukjör við sveit- arstjórnarkosningarnar sem fram fara næsta vor. Málið verði unnið í samráði við alla þingflokka og Sam- band íslenskra sveitarfélaga og fljót- lega verði kallaðir saman tengiliðir allra flokka og sambandsins. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði og formaður Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, segir að áætl- anir ríkisstjórnarinnar falli að stefnu- mörkun sambandsins, sem staðfest var á síðasta landsþingi hinn 13. mars sl. Á landsþinginu skilaði lýðræð- ishópur sambandsins af sér tillögum. Meðal þeirra var tillaga um aukið lýð- ræði í sveitarfélögum, þ. á m. per- sónukjör. Þessi tillaga fór svo inn í endur- skoðaða stefnumörkun og aðgerða- áætlun stjórnar sambandsins 2009- 2010. Þar var stjórn sambandsins m.a. falið að láta taka saman yfirlit um kosti og galla mismunandi leiða til að efla lýðræði og stuðla að beinni að- komu og þátttöku íbúa við stjórn og ákvarðanatöku á vettvangi sveit- arstjórna. Halldór segir að þótt út- færslan sé óútfærð liggi fyrir vilji sveitarfélaganna til að láta reyna á persónukjör. Persónukjörið felst í því að flokkar sem bjóða fram leggja fram óraðaða lista en ekki raðaða eins og nú er gert. Bent hefur verið á þann galla við persónukjör að samherjar á list- anum séu að berjast innbyrðis um að ná öruggum sætum á listanum á sama tíma og þeir eru að berjast við andstæðingana. Halldór Halldórsson segist einmitt hafa velt þessu atriði talsvert fyrir sér. Persónukjör myndi væntanlega leiða til þess að prófkjör flokkanna legðust af en sá möguleiki væri fyrir hendi að „prófkjörsbaráttan“ færðist inn í kosningabaráttuna sjálfa. Í þessu sambandi hafi það verið rætt í hópi sveitarstjórnarmanna hvort gera eigi tilraun í nokkrum sveit- arfélögum frekar en að byrja með persónukjör í öllum sveitarfélögum landsins á sama tíma. Halldór bendir á að til standi að gera tilraun með rafrænar kosningar í sveitarstjórnarkosningum. Gefa eigi tilraunasveitarfélögum kost á að prófa þetta áður en farið verður að framkvæma rafrænar kosningar alls staðar. „Þó að flestir séu tölvuvanir og tæknin sé áreiðanlega til staðar eru þetta flókin og um leið viðkvæm mál þegar hvert atkvæði skiptir máli og ekkert má verða til þess að upp komi kerfisgallar sem geti spillt kosn- ingum eða a.m.k. ímynd þeirra,“ segir Halldór. Frumvarp um persónukjör til Al- þingis náði ekki fram að ganga, m.a. vegna þess að 2⁄3 hluta atkvæða þurfti til að samþykkja það. Ásmundur Helgason, yfirlögfræðingur Alþingis, segir að ekkert sérákvæði sé í stjórn- arskránni um að það þurfi aukinn meirihluta á Alþingi til að gera þess háttar breytingar á lögum um kosn- ingar til sveitarstjórna. Einfaldur meirihluti ráði því örlögum slíks frumvarps. Morgunblaðið/ÞÖK Fyrstu tölur Ef persónukjör nær fram að ganga þurfa leiðtogarnir ekki bara að bíða eftir fyrstu tölum, heldur einnig eftir því hvernig þeim vegnar. Ríkisstjórnin heldur til streitu áformum sínum um persónukjör og vill taka það upp í næstu sveitarstjórnarkosningum. Sveitarstjórnarmenn eru áhuga- samir um slíkt fyrirkomulag. ÞÓTT lögin um persónukjör hafi ekki náð fram að ganga á síðasta þingi nýttu Íslendingar sér sem aldrei fyrr þann möguleika í nýliðn- um kosningum að hafa áhrif á listana með útstrikunum og breyt- ingum á röð frambjóðenda. Í tveim- ur tilvikum leiddu breytingarnar til þess að frambjóðandi féll niður um sæti en þó ekki út af þingi. Strikað var 24 þúsund sinnum yf- ir nöfn frambjóðenda. Var það meira en tvöfalt fleiri útstrikanir en í kosningunum fyrir tveimur ár- um þegar strikað var 10.500 sinn- um yfir nöfn í heildina. Útstrik- anirnar samsvöruðu tæpum 13% af atkvæðafjöldanum en í kosning- unum 2007 samsvöruðu útstrikanir tæpum 6% af gildum atkvæðum flokkanna á landinu öllu. Í sveitarstjórnarkosningum á undanförnum árum hefur alltaf verið talsvert um útstrikanir. 13% NÝTTU RÉTT SINN ››

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.