Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 1 4. M A Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 129. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is «KVENNABOLTINN RÚLLAR SIGURMARK BREIÐA- BLIKS Í SÍÐUSTU SPYRNU «SJÓNVARPSÞÆTTIR HEIÐUR OG SÆMD Í SNÆFELLS SÖGU Eftir Magnús Halldórsson og Þórð Snæ Júlíusson MINNST 10 milljarða króna vantar í eignasafn Sjóvár svo að eiginfjár- hlutfall félagsins teljist jákvætt, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Sjóvá uppfyllir því ekki lágmarkskröfur um gjaldþol, sem er nauðsynlegt eigið fé til að geta starfað sem tryggingafélag sam- kvæmt lögum. Heimildir Morgunblaðsins herma að slæma stöðu Sjóvár megi rekja til þess að fyrrverandi eigandi fé- lagsins, Milestone, færði eignir inn í það á árinu 2007. Eignirnar, sem meðal annars eru erlendar fast- eignir og innlend verðbréf, voru færðar til Sjóvár til að jafna út við- skiptaskuld sem hafði skapast á milli félaganna í tengslum við kaup Milestone á Moderna í Svíþjóð. Milestone gat gert þetta vegna sterkrar stöðu bótasjóðs Sjóvár. Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, segir vátrygginga- rekstur Sjóvár góðan og að sá hluti starfseminnar standi traustum fót- um. Hagur viðskiptavina tryggður „Það er hins vegar ljóst að vegna markaðsaðstæðna hefur verið mikið tap af fjárfestingastarfsemi félags- ins,“ segir Árni. „Við höfum unnið að endurskipulagningu félagsins á síðustu mánuðum og nú hillir undir lok þeirrar vinnu. Markmiðið með endurskipulagningunni er að tryggja hagsmuni viðskiptavina og hámarka verðmæti félagsins. Við gerum ráð fyrir að með endur- skipulagningunni muni félagið standa uppi með sterkan efnahags- reikning og trausta vátrygginga- starfsemi. Við gerum ekki ráð fyrir að endurskipulagning hafi áhrif á daglega starfsemi félagsins eða við- skiptavini þess og mun félagið áfram veita sömu góðu þjónustu og hingað til.“  Veðsettu bótasjóð | Viðskipti Vantar minnst 10 milljarða til að tryggja stöðu Sjóvár Sjóvá vantar að minnsta kosti 10 milljarða Milestone veðsetti bótasjóð félagsins Vátryggingareksturinn er þó traustur Mun ekki hafa áhrif á daglegan rekstur FYRSTU kerskálar álvers Norður- áls í Helguvík rísa hægt og rólega. Kraftur kemst þó ekki í fram- kvæmdina fyrr en fjármögnun verk- efnisins og tengdra virkjana lýkur. Unnið er að byggingu fyrstu tveggja kerskála væntanlegs álvers. Þeir eru fyrir fyrsta 90 þúsund tonna áfanga verksmiðjunnar. Starfsmenn ÍAV eru liðlega hálfn- aðir við burðarvirki skálanna og byrjaðir að reisa stálbogana yfir. Þá er verið að steypa undirstöður fyrir kerin og steypa veggi spennistöðv- ar. Þá er búið að vinna mikið í lóð- inni og nánast lokið allri jarðvinnu fyrir fyrsta áfanga álversins. Einnig er unnið að hafnargerð á vegum Reykjaneshafnar. Ágúst Hafberg, framkvæmda- stjóri viðskiptaþróunar og sam- skipta hjá Norðuráli, segir að áfram verði unnið að þessu verki fram eftir ári. Jafnframt er unnið að fjár- mögnun verkefnisins. Ágúst segir að ljúka þurfi umhverfismati línulagna og virkjana og afla nauðsynlegra leyfa og fjármögnun þessara verk- efna. Hann segir ekki hægt að segja til um það á þessari stundu hvenær hægt verði að setja framkvæmdir við álverið á fullt skrið. helgi@mbl.is Fyrstu kerskálarnir rísa rólega í Helguvík Morgunblaðið/RAX  SEÐLABANKINN mat hver kostnaðurinn af fjármálaáfalli gæti orðið og birti í fjármálastöðugleika- skýrslu í maí í fyrra. Með hlið- sjón af al- þjóðlegri reynslu taldi bankinn að heildartap við fjármálaáfall gæti numið allt að 400 til 500 milljörðum króna eða 30-40% af vergri landsframleiðslu eins árs, en það myndi dreifast á allmörg ár. Matið gerði Seðlabankinn eftir að hafa fengið einn færasta fjármála- kreppusérfræðing heims, Andrew Gracie, til að meta mögulegar leiðir vegna svartrar stöðu bankanna. Morgunblaðið hefur glærur sér- fræðingsins undir höndum. Með Gracie voru áætlanir gerðar tækist Glitni ekki að fjármagna sig fyrir stóran gjalddaga í október og færi í þrot. Ráðuneytisstjórar helstu ráðuneyta fengu kynningu. »8 Seðlabankinn undirbjó sig vegna svartrar stöðu banka  HOLUMYNDAVÉL verður í sum- ar notuð til að fylgjast með sambýli lunda og sjósvölu í Elliðaey. Sam- búðin hefur vak- ið athygli vís- indamanna, en sjósvölurnar virðast nýta sér dugnað lundans við holugröftinn og gera sér hreiður í lunda- holum. Sambýli lunda og sjó- svölu af því tagi sem sést hefur í Elliðaey mun ekki vera þekkt ann- ars staðar. Í Eyjum er stærsta lundabyggð í heimi og stærsta sjó- svölubyggð í Evrópu er einnig í Vestmannaeyjum. »13 Sambýli lunda og sæsvölu vekur athygli vísindamanna  LANGTÍMAATVINNULEYSI er tekið að aukast og þeir sem verið hafa á skrá lengur en sex mánuði voru 3.269 í lok apríl, en voru 1.749 í lok mars, og eru nú um 20% allra á atvinnuleysisskrá. Þeim sem hafa verið atvinnulausir í meira en eitt ár er ekki tekið að fjölga að ráði en þeir voru 361 í lok mars. »16 Langtímaatvinnuleysi er um 20% og fer vaxandi Jafnt var í kjöri til stjórnar Byrs sparisjóðs á aðalfundi í gær. B-listi fékk 48% og þrjá menn og A-listi 46% og tvo menn kjörna í stjórnina. VIÐSKIPTI Fengu þrjá menn í stjórn Byrs Áhættudreifing er lykilatriði í upp- byggingu sparnaðar til lengri tíma og ekki síst við núverandi að- stæður. Búast má við lækkun vaxta á innlánum. Heppilegt að dreifa innlánum Jóhanna Hrefnudóttir opnaði Krakkahöllina, sem er eins konar hoppkastalahöll fyrir fjölskyldur, til að slá á neikvæðnina í þjóðfélag- inu. Hoppandi ánægð í Krakkahöllinni HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK R E Y K J A V Í K U N I V E R S I T Y LÖGFRÆÐI BA / ML LÁTTU TIL ÞÍN TAKA! W W W .H R .I S Umsóknarfrestur er til 31. maí VIÐ HR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.