Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 EVRÓVISJÓN er vissulega söngva- keppni en oftar en ekki mætti halda að verið væri að keppa í smekkleysu og kjánaskap. Keppnin í ár er svo sem ekki kjánalegri en þær hafa ver- ið seinustu ár, þó svo margt sé svo með endemum kjánalegt að áhorf- endur verða hreinlega orðlausir. Fyrsti skammtur af ruglinu kom í fyrrakvöld og ekki laust við að mað- ur finni fyrir timburmönnum. Á ein- hver verkjatöflu? Vissulega er af nógu að taka og erfitt að meta hvaða þjóð býður upp á mesta kjánaskapinn. Við Íslend- ingar erum, aldrei þessu vant, bara frekar venjuleg þó svo grafíkin (höfrungar og freigátur sem minna á sólarstrandargötulist) sé býsna kjánaleg. Eiginlega fáránleg miðað við texta lagsins, en þetta er víst Rússum að kenna. Búlgarar kjánalegastir Flestir sem undirritaður hefur rætt við um kjánaganginn í Evró- visjón í ár eru sammála um að Búlg- arar eigi skilið að hreppa gullverð- launin. Búlgarar féllu enda úr keppni, spurning hvort kjánagang- urinn varð þeim að falli? Maður í öskudagsvíkingabúningi að reyna að syngja eins og geldingur, hálfnakinn karl að dansa og vandræðalegir kvendansarar í grænum gardínum. Ekki voru Tékkar betri, með ótrúlega kjánalega hugmynd um sígaunaof- urhetju. Er þetta tékkneskur húm- or? Tékkar duttu út. Eru þeir sem greiddu atkvæði búnir að fá nóg af kjánaskapnum? Kynþokkalaust Mörgum varð það áfall að kjána- legi Hvít-Rússinn Petr Elfimoff skyldi ekki komast í aðalkeppnina, með sína beru bringu og hvítu útvíðu glansbuxur, slegið, aflitað englahár og hvíttuðu tennur. Sannarlega tískuslys á ferðinni en ekki söng maðurinn illa. Allur hvít-rússneski hópurinn var smekk- leysan holdi klædd, alveg óskaplega kjánalegur. Hvít-Rússar duttu úr keppni, kannski út af kjánagang- inum. En kjánagangurinn virðist ekki vera fyrirstaða í Evróvisjón, þvert á móti ef marka má úrslitin í fyrra. Rússneska lagið var eitt það allra versta og kjánalegasta í sögu keppninnar. Belga-Elvis Elvis-eftirherman frá Belgíu kemst ofarlega á kjánalistann. Finnst einhverjum þetta sniðugt í Belgíu? Finnar sendu að þessu sinni frá sér lag sem á aðeins heima á froðudiskóteki á Ibiza. Úff. Svart- fjallaland reyndi að vera sexí en mis- tókst illa. Fátt er kjánalegra en fólk sem heldur að það sé sexí en er það ekki. Tyrkjum tókst það hins vegar ágætlega sem og Rúmenum en Rúmenar fá mun hærri einkunn fyr- ir kynþokkann. Ekkert kjánalegt þar. Enda komust bæði Tyrkir og Rúmenar áfram, kannski á kyn- þokkanum einum saman. Makedóníumenn virðast vera tveimur áratugum eftir á hið minnsta þegar kemur að klæðaburði og hártísku. Arm- ensku skvísurnar voru hins veg- ar svo furðulega til fara að mað- ur missti heyrn. Malta stóð upp úr Eitt söngatriði virtist hins veg- ar alveg laust við tilgerð, smekkleysi og kjánagang. Malta. Þar steig þétt- vaxin díva á svið og söng fallega ball- öðu. Ekkert rugl í gangi. En nennir einhver að horfa á Evróvisjón ef engin eru kjánalætin? Er þetta ekki löngu hætt að vera söngvakeppni? Er þetta ekki bara keppni í furðu- legheitum, súrrealísk söngskemmt- un til að hlæja að í partíum? Ég get varla beðið eftir aðalkeppninni. Hún verður frábær! helgisnaer@mbl.is Keppni í kjánaskap? Hjálp! Búlgarar fóru yfir strikið í ár í kjánalátum. Langt yfir strikið. Elvis Patrick Ouchene frá Belgíu þóttist vera Elvis. Rosa sniðugt. Reuters Jóhanna Þurfti nú endilega að klína höfrungum og skipum í bakgrunninn? Makedónía Halló, halló, er ekki örugglega árið 2009 í Makedóníu? Tékkar Hvaða rugl er þetta? Síg- aunaofurhetja og fiðludúkka? ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is Hart í bak (Stóra sviðið) Creature - gestasýning (Kassinn) Ó, þú aftur - afmælissýning leikhópsins Hugleiks (Smíðaverkstæðið) Í Óðamansgarði - ópera í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík Kardemommubærinn (Stóra sviðið) Fim 14/5 kl. 20:00Aukas. U Fim 14/5 kl. 20:00 U Fös 15/5 kl. 20:00 Ö Fös 15/5 kl. 20:00 U Sun 17/5 kl. 20:00 Ö Mið 20/5 kl. 20:00 Ö Fös 22/5 kl. 20:00 Ö Fös 15/5 kl. 20:00 U Lau 16/5 kl. 20:00 Ö Sun 17/5 kl. 20:00 Ö Fös 22/5 kl. 20:00 Ö Sun 24/5 kl. 20:00 Mið 27/5 kl. 20:00 Lau 23/5 kl. 20:00 Ö Fim 28/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 18:00 U Lau 30/5 kl. 14:00 U Lau 30/5 kl. 17:00 U Fim 4/6 kl. 18:00 U Fös 5/6 kl. 18:00 U Lau 6/6 kl. 14:00 U Lau 6/6 kl. 17:00 U Lau 16/5 kl. 14:00 U Lau 16/5 kl. 17:00 U Sun 17/5 kl. 14:00 U Sun 17/5 kl. 17:00 U Sun 24/5 kl. 14:00 U Þri 26/5 kl. 18:00 U Mið 27/5kl. 18:00 U Sun 7/6 kl. 14:00 U Sun 7/6 kl. 17:00 U Lau 13/6 kl. 14:00 U Lau 13/6 kl. 17:00 U Sun 14/6 kl. 14:00 U Sun 14/6 kl. 17:00 U Sun 30/8 kl. 14:00 Sýningar haustsins komnar í sölu Yfir 50 uppseldar sýningar. Sýningum lýkur 15. maí Kolklikkaður leikhúskonsert - aðeins fjórar sýningar Aðeins tvær sýningar Snarpt sýningatímabil - miðaverð aðeins 1.500 kr. 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Söngvaseiður (Stóra sviðið) Einleikjaröð- Sannleikurinn (Litla sviðið) Lau 23/5 kl. 19:00 ný aukaU Lau 23/5 kl. 22:00 ný aukaU Lau 20/6 kl. 19:00 ný sýning Lau 27/6 kl. 19:00 ný sýning Ökutímar (Nýja sviðið) Mið 13/5 kl. 20:00 5kort U Fim 14/5 kl. 20:00 6kort U Fös 15/5 kl. 19:00 U Lau 16/5 kl. 16:00 7kort U Sun 17/5 kl. 19:00 U Mið 20/5 kl. 19:00 8kort U Fim 21/5 kl. 20:00 U Fös 22/5 kl. 19:00 aukas Ö Lau 23/5 kl. 19:00 aukas Sun 24/5 kl. 20:00 aukas Mið 27/5 kl. 20:00 9kort U Fim 28/5 kl. 20:00 10kort U Fös 29/5 kl. 19:00 Ö Aðeins sýnt í maí. Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust Mið 13/5 kl. 20:00 4kort U Fim 14/5 kl. 20:00 5kort U Fös 15/5 kl. 20:00 6kort U Lau 16/5 kl. 16:00 7kort U Sun 17/5 kl. 16:00 U Sun 17/5 kl. 20:00 8kort U Mið 20/5 kl. 20:00 U Fim 21/5 kl. 16:00 U Fim 21/5 kl. 20:00 9kort U Fös 22/5 kl. 20:00 10kort U Lau 23/5 kl. 20:00 U Sun 24/5 kl. 16:00 U Mið 27/5 kl. 20:00 ný aukasU Fim 28/5 kl. 20:00 U Fös 29/5 kl. 20:00 U Lau 30/5 kl. 20:00 U Mán 1/6 kl. 16:00 ný aukaU Mið 3/6 kl. 20:00 U Fim 4/6 kl. 20:00 U Fös 5/6 kl. 20:00 ný aukasU Lau 6/6 kl. 16:00 U Lau 6/6 kl. 20:00 U Sun 7/6 kl. 16:00 U Fim 11/6 kl. 20:00 U Fös 12/6 kl. 20:00 ný aukasU Lau 13/6 kl. 14:00 U Sun 14/6 kl. 16:00 U ATH sýningar í haust Fös 4.sept. kl. 19.00 Lau 5. sept. kl. 19.00 Sun 6. sept. kl. 19.00 Fim 10. sept.kl. 19.00 Fös 18. sept. kl. 19.00 Söngvaseiður. Sala hafin á sýningar í haust. Þú ert hér (Litla sviðið) Fös 22 /5kl. 21:00 ný aukas Aukasýning vegna fjölda áskorana. Við borgum ekki (Nýja sviðið) Uppsetning Nýja Íslands. Fös 5/6 kl. 20:00 fors. Lau 6/6 kl. 19:00 frums.U Lau 6/6 kl. 22:00 Mið 10/6 kl. 20:00 Fim 11/6 kl. 20:00 Fös 12/6 kl. 20:00 Lau 13/6 kl. 20:00 Sun 14/6 kl. 20:00 Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is Fúlar á móti ATH! sýnt í Íslensku Óperunni Sími 511 4200 Takmarkaður sýningafjöldi Fim 14/5 kl. 20:00 U Fös 15/5 kl. 20:00 U Sun 17/5 kl. 20:00 U Fös 22/5 kl. 20:00 Ný sýnÖ Fim 28/5 kl. 20:00 Ný sýnÖ Fim 4/6 kl. 20:00 Ný sýn Fös 5/6 kl. 20:00 Ný sýn Lau 6/6 kl. 20:00 Ný sýn Sun 7/6 kl. 20:00 Ný sýn Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is ■ Í kvöld kl. 19.30 Frá Novgorod til Napólí Stjórnandi: Eivind Gullberg Jensen Einleikari: Olga Kern Johannes Brahms: Tragískur forleikur Sergej Rakhmanínov: Píanókonsert nr. 2 Felix Mendelsohn: Sinfónía nr. 4, ítalska ■ Föstudagur 22. maí kl. 19.30 Á suðrænum slóðum Stjórnandi: Rumon Gamba Einsöngvari: Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir Brett Dean: Amphitheatre Ottorino Respighi: Gosbrunnar Rómarborgar Joseph Haydn: Arianna a Naxos Benjamin Britten: Phaedra Edward Elgar: In the South

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.