Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 32
32 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 Sudoku Frumstig 6 4 2 6 8 3 5 4 1 7 2 9 4 8 3 6 7 1 9 8 7 3 5 4 7 6 4 5 7 2 1 9 9 1 7 3 4 9 1 5 6 4 9 3 5 1 5 8 9 8 6 4 3 1 7 2 7 8 5 9 2 7 1 4 3 7 5 6 6 5 4 9 2 1 3 9 2 5 8 7 4 6 2 4 7 3 9 6 8 1 5 8 6 5 7 1 4 9 3 2 9 2 6 1 3 5 4 8 7 4 8 1 9 6 7 5 2 3 5 7 3 4 8 2 1 6 9 6 1 8 5 2 9 3 7 4 7 9 2 8 4 3 6 5 1 3 5 4 6 7 1 2 9 8 5 3 7 9 6 4 2 8 1 8 1 6 5 2 3 4 7 9 9 4 2 8 7 1 3 6 5 6 8 3 4 5 2 1 9 7 7 9 4 1 3 8 5 2 6 1 2 5 7 9 6 8 4 3 3 5 9 2 8 7 6 1 4 4 7 8 6 1 5 9 3 2 2 6 1 3 4 9 7 5 8 6 8 1 4 2 9 7 3 5 3 5 2 8 6 7 9 1 4 4 7 9 1 3 5 6 2 8 8 2 4 6 7 3 1 5 9 5 6 7 2 9 1 8 4 3 1 9 3 5 8 4 2 7 6 7 4 5 9 1 8 3 6 2 9 1 6 3 5 2 4 8 7 2 3 8 7 4 6 5 9 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. Í dag er fimmtudagur 14. maí, 134. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Jesús sagði við hann: Far þú, trú þín hefur bjargað þér. Jafn- skjótt fékk hann sjónina og fylgdi hon- um á ferðinni. (Mark. 10,52.) Víkverji verður að viðurkenna aðhann var búinn að snúa bakinu í sjónvarpið þegar kynnarnir of- urglöðu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva voru búnir að greina frá hvaða níu þjóðir væru komnar áfram í úrslitin. Útlitið var svart, en svo gerðist það. „Ísland!“ hrópuðu kynnarnir í Moskvu í kór þegar þeir tilkynntu 10. og síðustu þjóðina sem komst áfram úr fyrri undankeppninni. Samstarfsfélagar Víkverja hrópuðu „já“ líkt og ís- lenska landsliðið í handbolta hefði skorað sigurmark á lokasekúndunni. x x x Víkverji, sem er ekki Evróvisjón-sérfræðingur, telur að íslensku keppendurnir, með Jóhönnu Guð- rúnu Jónsdóttur í broddi fylkingar, hafi svo sannarlega átt það skilið að komast í úrslitakeppnina. Lagið er prýðilegt, mjög vel sungið og laust við alla yfirborðsmennsku. Klassísk „ofurballaða“ sem minnir um margt á söngkonuna Celine Dion, sem er ekki ókunnug Evróvisjón. Hún söng framlag Sviss árið 1988 og stóð að lokum uppi sem sigurvegari. x x x Það var svo ekki annað að sjá áviðbrögðum bloggara en að Ís- lendingar hafi verið ánægðir með úr- slitin, enda landsmenn Evróvisjón- aðdáendur inni við beinið. Það verð- ur því óneitanlega skemmtilegra að fylgjast með keppninni nk. laug- ardag og íslensku keppendunum taka lagið á nýjan leik í Moskvu. Jó- hanna Guðrún spurði og Evrópa svaraði. „Já, það er satt.“ x x x Þá vill Víkverji benda ökumönn-um á útvarpsstöðina Rondó, sem RÚV sendir út stafrænt á höf- uðborgarsvæðinu. Þar fær sígild tónlist og djass að njóta sín. Ástæð- an fyrir því að Víkverji vill benda ökumönnum á þessa útvarpsstöð er sú að tónlistin hefur afar róandi áhrif á hlustendur. Asinn er þegar of mikill á götum borgarinnar á álags- tímum og virkar Rondó því eins og vin í eyðimörkinni. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 fikta við gald- ur, 4 nötraði, 7 halda til haga, 8 fuglar, 9 skolla, 11 nákomin, 13 geð- vonska, 14 spilið, 15 fjöl, 17 auðlind, 20 sarg, 22 bogin, 23 slitið, 24 bjóða, 25 ræktaða landið. Lóðrétt | 1 undirokun, 2 aki, 3 mjög, 4 viðlag, 5 sálir, 6 birgðir, 10 baun- ir, 12 miskunn, 13 bók- stafur, 15 skinnpoka, 16 rótarskapur, 18 heims- hlutinn, 19 hægt, 20 elska, 21 syrgi. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fannfergi, 8 færni, 9 digra, 10 tíu, 11 síðla, 13 reiða, 15 volks, 18 flesk, 21 kol, 22 messa, 23 ærleg, 24 gustmikil. Lóðrétt: 2 afræð, 3 neita, 4 eldur, 5 gegni, 6 ofns, 7 fata, 12 lok, 14 ell, 15 voma, 16 lustu, 17 skatt, 18 flæmi, 19 efldi, 20 kugg. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rc3 Rf6 4. e3 e6 5. Rf3 Rbd7 6. Dc2 Bd6 7. g4 h6 8. h3 a6 9. c5 Bc7 10. Bd2 b5 11. cxb6 Rxb6 12. Bd3 Bd6 13. e4 Be7 14. O- O-O Bb7 15. Kb1 Hc8 16. Hhg1 c5 17. dxc5 Bxc5 18. g5 dxe4 19. Rxe4 Rxe4 20. Bxe4 Bxe4 21. Dxe4 Dd5 22. De2 hxg5 23. Rxg5 Hh4 24. Bc3 Dc4 25. Df3 Hf4 26. Db7 Bxf2 27. Hgf1 Rd5 28. Be5 Hf5 29. Hc1 Dd3+ 30. Ka1 Hd8 31. Dc6+ Ke7 Staðan kom upp á heimsbikarmóti FIDE sem lauk fyrir skömmu í Nalc- hik í Rússlandi. Azerinn Shakhriyar Mamedyarov (2725) hafði hvítt gegn Rússanum Peter Svidler (2726). 32. Hxf2! Hxg5 svartur hefði einnig tap- að eftir 32… Hxf2 33. Dc5+ Ke8 34. Dxf2. 33. Db7+ Hd7 34. Hxf7+! Kxf7 35. Dxd7+ Kg8 36. Bxg7 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Kostir og gallar. Norður ♠D96 ♥G ♦K10942 ♣10753 Vestur Austur ♠Á43 ♠2 ♥Á9743 ♥KD62 ♦G76 ♦D85 ♣G2 ♣ÁKD98 Suður ♠KG10875 ♥1085 ♦Á3 ♣64 (10) Sagnbaráttan. Í þessari uppteikningu sleppur suð- ur mjög líklega einn niður í 4♠, en A-V tapa 5♥ ef vörnin tekur tígulstungu í byrjun. Það er því N-S í hag að komast sem fyrst í 4♠. Sem er auðvelt ef þeir nota innrammaðar hindranir. Austur vekur á 1♣ og suður stekkur í 2♠. Vestur doblar neikvætt. Á jöfnum hættum er norðri óhætt að vaða í 4♠, vitandi það að makker á góðan sexlit og ekkert óvænt til hliðar. Norður fer með húsbóndavaldið. Ef Robson- stíllinn er viðhafður, yrði norður að passa 2♠ og leyfa A-V að tala sig sam- an á þriðja þrepi. Kostir Robson-stílsins eru aukin tíðni og meiri óvissa í herbúðum mót- herjanna. Gallarnir eru aftenging makkers frá hindrunarferlinu, hætta á harðri refsingu og meiri líkur á því að missa geim eða slemmu. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert í rómantískum hugleið- ingum og ættir að gera þér glaðan dag með ástvini þínum. Þú ert athugull og nærfærni þín vekur aðdáun annarra. (20. apríl - 20. maí)  Naut Það er líklegt að þú rífist við systkini þín eða nágranna í dag því all- ir vilja halda fast við sínar skoðanir. Þótt þú sért upptekinn af efnislegum gæðum getur þú um leið verið gjaf- mildur. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er töluvert álag á þér núna bæði í einkalífi og starfi. Rólegar stundir með sjálfum þér gefa þér orku til að takast á við flest. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Fólk sem er að reyna að ganga í augun á þér móðgar þig hugsanlega al- veg óvart. Mundu að vinir þínir hafa áhrif á hugsanir þínar og þannig á framtíð þína. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú leggur þitt svo sannarlega af mörkum núna og hefur ákveðið að tjalda því sem til þarf. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú hefur unnið lengi að sérstöku verkefni og nú er svo komið að þú kemst ekki lengra án aðstoðar annarra. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Skreytingar eru ágætar fyrir þá sem vilja hafa allt mjög fínt. Allt sem er skrýtið, nýtt og forvitnilegt togar þig til sín. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Í nokkrar dásamlegar stundir finnst þér þú hafa öðlast stjórn á tímanum. Það er eitt og annað sem þú átt ógert en verður að ráða fram úr. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Láttu ekki hugfallast þótt sumar hugmyndir þínar hljóti ekki strax framgang. Mikilvægir ein- staklingar kunna að meta það sem þú hefur fram að færa núna. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Taktu þér smástund í að ákveða hvernig þú getur bætt vinnuað- stæður þínar. Styrkur persónuleika þíns hefur áhrif á fólk. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú þráir athygli. List og glæsileiki verða að vera fyrir hendi, svo þér finnist að hann sé að lifa lífinu sem honum var ætlað. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Fólkið sem þú umgengst gæti litið þig öðrum augum en þú það. Sýndu þolinmæði og fylgdu því eftir í rólegheitunum. Stjörnuspá 14. maí 1998 Jóhanna Sigurðardóttir talaði samfellt í fimm og hálfa klukkustund í umræðum á Al- þingi um húsnæðisfrumvarp og sló þar með eldra met sem var fimm klukkustundir. 14. maí 1999 Hornsteinn var lagður að Sult- artangavirkjun í Þjórsá en virkjunin, sem afkastar 120 megavöttum, var tekin í notk- un í nóvember. 14. maí 2002 Utanríkisráðherrafundur Atl- antshafsbandalagsins hófst í Reykjavík. Meðal þátttakenda voru Colin Powell frá Banda- ríkjunum, Silvio Berlusconi frá Ítalíu og Jack Straw frá Bretlandi. Einn af gestum fundarins var Igor Ivanov frá Rússlandi. Fundinum var lýst sem „útför“ kalda stríðsins. 14. maí 2003 Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, og Dorrit Moussa- ieff voru gefin saman á Bessa- stöðum, en hann varð 60 ára þennan dag. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Matthildur Soffía Marías- dóttir frá Hjörs- ey verður níræð í dag, 14. maí. Í til- efni þess býður hún vinum og vandamönnum að fagna með sér tímamótunum á morgun, föstudaginn 15. maí kl. 18 í Félagsheimili Orkuveitunnar í El- liðaárdal. Allir hjartanlega vel- komnir og gjafir afþakkaðar. 90 ára „ÆTLI það verði ekki bara dúfa,“ sagði Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumaður þegar hann var spurður hvað hann ætlaði að hafa í matinn á af- mælisdaginn. „Ég rækta þær sjálfur og þetta er eitt það allra besta sem ég fæ.“ Dúfnastofn Úlfars er um 30 fuglar af sérstakri tegund dúfna sem ræktaðar eru til matar. Úlfar hefur ræktað dúfur í um 20 ár og kveðst hafa náð góðum árangri. Lykillinn er m.a. sá að dúfurnar fá að fljúga úti í stóru búri og eru fóðraðar á átta mismunandi tegundum af korni. „Þær eru feitar og pattaralegar og eru ræktaðar upp í mig.“ Líklega hafa fremur fáir Íslendingar lagt sér dúfur til munns en hvernig skyldu þær nú bragðast? „Þetta er mitt á milli þess að smakk- ast eins og aliönd og hreindýr,“ upplýsir Úlfar fúslega. Hver dúfa vegur um 450 grömm þegar búið er að reyta, svíða og gera hana klára. „Ein dúfa og þá ertu bara nokkuð góður,“ segir Úlfar. Hann léttsteikir bringurnar, lagar soð úr beinunum og lærin eru soðin upp á gamla mátann. Af þessu tilefni er flaggað víða um borg og bæ, eða skyldi það vera vegna þess að Ólafur Ragnar Grímsson, for- seti Íslands, á einnig afmæli í dag? runarp@mbl.is Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari er 45 ára Ræktar dúfur upp í sig Nýirborgarar Vestmannaeyjar Guð- björg Silla fæddist 1. des- ember kl. 19.54. Hún vó 3.000 g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar eru Dóra Björk og Viðar Ein- arsson. Keflavík Ester Gyða fæddist 22. febrúar kl. 21.35. Hún vó 3.880 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Sunna Elín Sigurðardóttir og Guð- mundur Ólafsson. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.