Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 20
20 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 Enn segir maður við sjálfan sig; jæja, þá er sumarið komið. Ekki í fyrsta skipti á árinu. Vonandi stingur þetta þriðja eða fjórða sumar ársins ekki af fyrr en í haust.    Þrennt sannfærir mig að þessu sinni um að sumarið sé komið í alvörunni: 1. hitastigið; 2. golfvöllurinn verður opn- aður á laugardaginn; 3. KA og Þór mætast í 1. deild karla í fótbolta annað kvöld – á lifandi grasi.    Eitt enn minnir reyndar á árstíðina. Steingrímur J. Sigfússon sagði í fyrradag að Akureyri og Eyjafjörður tækju vel á móti ríkisstjórinni „með sól og sunnanvindi og yndislegri ang- an framan úr sveitum, sem minnir okkur á þann kraftmikla landbúnað sem hér stendur traustum fótum“. Anganin er sem sagt fjórða atriðið (og mér finnst hún góð). Einhverjir farnir að bera á.    Vinur minn fagnaði sextugsafmæli á dögunum og þá rifjaðist upp atburður frá því tíu árum fyrr. Nokkrir grall- arar lögðu það á sig að vakna í rauða- bítið á afmælisdaginn, útbjuggu mikla kínverjaflækju sem þeir settu utan við svefnherbergisglugga afmælisbarns- ins. Kveiktu svo í og glottu bak við næsta horn. En ekki fer allt eins og ætlað er.    Aldrei þessu vant eyddu hjónin nótt- inni ekki í svefnherberginu heldur sváfu hinum megin í húsinu og rumsk- uðu ekki við sprenginguna. Elsti son- urinn, sem var í heimsókn og slæmur í bakinu, hafði lagst til hvílu í hjóna- rúminu. Gárungarnir segja hann enn á róandi lyfjum …    „Nei, það eru aðrir en ég í þessari rík- isstjórn sem sitja með sveittan skalla,“ svaraði Össur Skarphéð- insson, brosandi, spurningu frétta- manns á Akureyri í fyrradag, spurður hvort hann hefði setið með sveittan skalla vegna lagafrumvarps sem er í undirbúningi.    Tekin var mynd af ríkisstjórninni og Þorsteini Gunnarssyni rektor að lokn- um blaðamannafundi ráðherranna sem fór fram í húsnæði skólans. Í myndatökunni bærðist ekki hár á höfði tveggja ráðherranna, Stein- gríms J. og Kristjáns Möller. Samt var hávaðarok.    Heiðar Jóhannsson heitinn, Heiddi mótorhjólakappi, hefði orðið 55 ára á morgun. Af því tilefni verður efnt til samkomu sem hefst á Ráðhústorgi kl. 19.30, ekið verður af stað um áttaleyt- ið, komið við í kirkjugarðinum og síð- an grillaðar pylsur við Mótorhjóla- safnið á Krókeyri kl. 20.30. Safnið er einmitt verið að reisa í minningu Heidda. Allir eru velkomnir á hjólum, bílum eða tveimur jafnfljótum.    Vorhátíð Lunda- og Gerðahverfis verður haldin á laugardaginn. Hreins- unarstarf hefst kl. 10.30 en frá 11.30 til 13.30 verður boðið upp á veitingar og ýmis skemmtiatriði fyrir börnin.    Ég er illa svikinn ef ekki verður gam- an í Ketilhúsinu í kvöld. Þar fara nefnilega fram vortónleikar stór- sveitar Félags harmonikuunnenda við Eyjafjörð og það hefur margoft sann- ast að þar sem nokkrar nikkur koma saman, þar er fjör. Skemmtunin hefst kl. 20. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Akureyri Þarf fleiri orð um það? AKUREYRI Skapti Hallgrímsson Bónus Gildir 14.-17. maí verð nú áður mælie. verð ÍS frosinn heill kjúklingur ............ 450 598 450 kr. kg Emmess skafís, 1 l..................... 398 598 398 kr. ltr Emmess hn./daim toppar, 4 stk.. 398 498 100 kr. stk. Svínalundir, innfluttar ................. 1.198 1.398 1.198 kr. kg Caj-P grillsósa, 500 ml............... 398 498 796 kr. ltr KS ferskt lambaprime 1998 ....... 1.798 1.998 1.798 kr. kg KS frosið lambafillet ................... 2.698 2.998 2.698 kr. kg KS frosið lambalæri ................... 1.078 1.198 1.078 kr. kg Pepsi max í dós, 500 ml............. 69 89 138 kr. ltr Pepsi í dós, 500 ml.................... 69 89 138 kr. ltr Fjarðarkaup Gildir 14.-16. maí verð nú áður mælie. verð Nautainnralæri úr kjötborði......... 2.395 2.995 2.395 kr. kg Lambafille m/fitu úr kjötborði ..... 2.998 3.498 2.998 kr. kg Hamborgarar, 2x115g m/brauði . 298 398 298 kr. pk. FK kjúklingabringur .................... 1.665 2.220 1.665 kr. kg Móa BBQ læri/leggur ................. 582 831 582 kr. kg Ísfugl ferskur kjúklingur, 1/1....... 620 885 620 kr. kg Ali spareribs.............................. 1.064 1.418 1.064 kr. kg Ali jurtakryddaðar svínakótilettur . 1.574 2.098 1.574 kr. kg Hagkaup Gildir 14.-17. maí verð nú áður mælie. verð Ferskar kjúklingabringur ............. 1.799 2.998 1.799 kr. kg Kjúklingalæri m/legg Bbq........... 584 899 584 kr. kg Kjúklingalæri m/ sólþ. tómötum . 584 899 584 kr. kg Nautaat piparsteik ..................... 1.979 2.998 1.979 kr. kg Argentískar nautakótilettur.......... 1.574 2.098 1.574 kr. kg VSOP lambafile m/fitu ............... 2.999 3.998 2.999 kr. kg Jói Fel. túnfisksalat, 200 g.......... 299 389 299 kr. stk. Hámark próteindrykkur, súkkul.... 199 248 199 kr. stk. Nóa rjómasúkkulaði, 200 g ........ 259 329 259 kr. stk. Egils pepsi, 2 l........................... 139 192 139 kr. stk. Krónan Gildir 14. maí-17. maí verð nú áður mælie. verð Ungnauta piparsteik .................. 1.749 3.498 1.749 kr. kg Ungnauta mínútusteik................ 1.898 3.198 1.898 kr. kg Lambaprime ............................. 1.799 2.998 1.799 kr. kg Danskar grísalundir.................... 1.299 2.598 1.299 kr. kg Lambalærissneiðar .................... 1.679 2.398 1.679 kr. kg Grillborgarar með brauði, 4 stk.... 499 569 499 kr. pk. Grísahnakki, úrb. sneiðar............ 849 1.698 849 kr. kg Krónu kjúklingur, ferskur, heill ..... 498 698 498 kr. kg Krónuís súkkulaði ...................... 299 299 299 kr. pk. Snúður m/súkkulaði .................. 99 169 99 kr. stk. Nóatún Gildir 14.-17. maí verð nú áður mælie. verð Lambalæri ................................ 1.189 1.698 1.189 kr. kg Lambafille m/fiturönd................ 2.789 3.998 2.789 kr. kg Grísakótilettur, kryddaðar ........... 839 1.498 839 kr. kg Ungnautaborgari, 90 g ............... 99 159 99 kr. stk. Ungnautaborgari, 120 g ............. 159 249 159 kr. stk. Ungnautaborgari, 175 g ............. 198 279 198 kr. stk. Ungnautaglóðarborgari, 120 g .... 149 199 149 kr. stk. Ísl. m. kjúklingabringur, skinnl..... 1.793 2.698 1.793 kr. kg Stórlúðusteik m/hvítl./rósmarín.. 1.679 2.398 1.679 kr. kg Klaustursbleikja, flök.................. 1.349 1.798 1.349 kr. kg Helgartilboð Lækkað verð á kjötvörum Morgunblaðið/Árni Tilboð Stórmarkaðirnir bjóða lækkað verð á kjöti og fleiri vörum um helgina. Á myndinni er Katrín Að- albjörnsdóttir að kaupa í matinn. Eftir Unu Sighvatsdóttur una@mbl.is S veitarómantíkin mun svífa yfir vötnum á Smíðaverk- stæði Þjóðleikhússins næstu vikurnar þar sem piltur og stúlka fella hugi saman í íslenskri sveit með söng á vör. Ástarsaga parsins unga er flutt af áhugaleikhópnum Hugleik og raun- ar einnig samin af leikhópnum, upp- haflega fyrir rúmum 20 árum. Það er nokkuð óvenjulegt fyrir Hugleik, sem frumflytur vanalega glænýtt verk á hverju ári. Í ár er hins vegar sérstakt tilefni til að breyta út af vananum, því Hug- leikur á nú 25 ára afmæli og hefur því heldur betur slitið barnsskónum, enda orðið elsta starfandi áhugaleik- félag í Reykjavík. Þrír af leikurum sýningarinnar nú tóku líka þátt í uppsetningunni 1987 en þeir fara þó ekki með sömu hlutverkin. Úr leikriti í söngleik „Það var ákveðið að halda upp á afmælið með því að endurskrifa þetta verk sem var voðalega vinsælt hjá þeim árið 1987,“ segir leikstjór- inn, Oddur Bjarni Þorkelsson. Upphaflega hét leikritið „Ó, þú …“ og var byggt á Pilti og stúlku eftir Jón Thoroddsen sem telst vera fyrsta íslenska skáldsagan. Hin nýja og endurskrifaða leik- gerð ber hins vegar hinn viðeigandi titil „Ó, þú aftur …“ Að sögn Odds hefur sagan verið þéttuð og einföld- uð frá fyrri útgáfu, en þemað er enn hin sígilda ást milli pilts og stúlku. Þetta eru þó ekki einu breyting- arnar sem ráðist var í, því ákveðið var að breyta verkinu í söngleik. „Það hefur nú alltaf verið mikil tónlist í Hugleik, þannig að hug- myndin var sú, fyrst valið var að endurgera þetta verk, að þá lægi beinast við hjá músíkölskum leik- hópi að breyta hreinu leikriti í söng- leik. Enda tekst með músíkinni bæði að leiða söguna áfram og líka fara út í ákveðið töfraraunsæi og verða svo- lítið lausbeislaður,“ segir Oddur. Íslenskt hráefni í alla staði Öll lögin sem sungin eru í sýning- unni eru, líkt og sýningin sjálf, frum- samin og á hin þingeyska gleði- hljómsveit Ljótu hálfvitarnir heiðurinn af henni. Þeir sem hafa áhuga á að halda áfram að humma með lögunum þegar heim er komið geta svo keypt geisladisk með tón- listinni að sýningu lokinni. Verkið er því allt, frá upphafi til enda, unnið úr alíslensku hráefni. „Já, kallast þetta ekki frumsköpun eða sprotafyrirtæki þessa dagana?“ spyr Oddur sem játar því að verkið eigi sér líka ýmsar skírskotanir í Ís- land nútímans þótt gamalt sé. „Það koma aðeins við sögu tæki- færissinnaðir frambjóðendur, fjölda- mótmæli og fleira sem hljómar kunnuglega, en annars erum við verkinu frekar trú. Fyrst og fremst viljum við bara búa til skemmtilega og notalega söngstund.“ „Ó, þú …“ aftur 20 árum síðar Skjátur Engin íslensk sveit er án kinda, eins og Hugleikarar vita. Þær Kristín Nanna Vilhelmsdóttir og Svala Georgsdóttir klæða sig upp í hina ástkæru sauðaliti í hlutverki sínu sem kindur í sýningunni „Ó, þú aftur...“ Í HNOTSKURN »Leikhópurinn Hugleikurvar stofnaður árið 1984 og fagnar því 25 ára afmæli í ár með sérstakri afmælissýn- ingu. »„Ó, þú aftur …“ er frum-sýnt næstkomandi föstu- dagskvöld, 15. maí, á Smíða- verkstæði Þjóðleikhússins en síðasta sýning verður 29. maí. »Öll tónlist í sýningunni ereftir Ljótu hálfvitana. Grös Kynleg grös koma við sögu í verkinu og einni grasakonan Anna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.