Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
RÍKISSTJÓRNIN lýsti því yfir við
stjórnarmyndunina að hún vildi eiga
samstarf við aðila vinnumarkaðarins
um nýjan stöðugleikasáttmála og að
komið yrði á fót föstum samstarfsvett-
vangi stjórnvalda við aðila vinnumark-
aðarins og önnur lykilhagsmuna-
samtök um þróun íslensks samfélags.
Segja má að allir kjarasamningar í
landinu losni í sumar. Setja á kraft í
vinnu við endurskoðun kjarasamninga
og kanna á sama tíma hvort tekst að
koma heim og saman þeim sáttmála
sem verkalýðshreyfingin lagði til og
er nú tekinn upp að umtalsverðu leyti
í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar, að sögn Halldórs Grönvold,
aðstoðarframkvæmdastjóra ASÍ. Í
samstarfssáttmála ríkisstjórnarflokk-
anna er víða lofað að haft verði sam-
ráð við aðila vinnumarkaðarins við úr-
lausn stærstu verkefna.
„Að hluta til eru teknar upp í
stjórnarsáttmálann beinar tilvitnanir
og tilvísanir í drögin sem voru lögð
fyrir þau í stjórnarmyndunarviðræð-
unum. Að svo miklu leyti sem það er
mælikvarði, þá virðast þau vera tilbú-
in að leggja upp í þessa vegferð á þeim
grunni. En það er alveg ljóst að það er
margt sem eftir er að fylla út í,“ segir
Halldór.
Talsverður þrýstingur er kominn
fram innan verkalýðshreyfingarinnar
á að ekki verði gengið frá framleng-
ingu kjarasamninga án launahækk-
ana. Sex verkalýðsfélög á landsbyggð-
inni voru andvíg frestun umsaminna
launahækkana 1. mars sl. til 1. júlí. og
komnar eru fram kröfur um að hækk-
anirnar komi í vasa launafólks í sumar.
Fleira kemur þó til en launabreyt-
ingar. „Við þessar aðstæður er allt
undir, þ.m.t. velferðarkerfið á vinnu-
markaði, atvinnuleysistryggingarnar
og reglur um ábyrgð á launum við
gjaldþrot, stuðningur við endur-
menntun, úrræði fyrir atvinnulausa
o.fl.,“ segir Halldór. Auk þessa er
ljóst að hreyfingin ætlar ekki að horfa
þegjandi á hvar skorið verður niður
eða sköttum breytt.
Samráðið sett í gang
Viðræður stjórnvalda og vinnumarkaðarins hefjast eftir
helgi Setja á kraft í vinnu að endurnýjun kjarasamninga
Mikil fundarhöld blasa við Fulltrúar stærstu launþegasamtaka fóru á fund
formanna stjórnarflokkanna í seinustu viku og kynntu áherslur sínar.
Formlegt samráð launþegahreyf-
ingar, Samtaka atvinnulífsins og
ríkisstjórnar fer í gang í næstu
viku. Samhliða hefjast viðræður
um endurnýjun kjarasamninga.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
FYRRVERANDI bæjarstjóri
Blönduósbæjar hefur stefnt bæj-
arstjórninni sem hún á sæti í fyrir
brot á lögum um jafna stöðu og jafn-
an rétt kvenna og karla, eftir að
meirihluti bæjarfulltrúanna hafnaði
sátt sem hún bauð upp á. Hún krefst
tæplega 2,3 milljóna kr. í skaðabætur
og miskabætur auk dráttarvaxta og
málskostnaðar.
Jóna Fanney Friðriksdóttir var
fyrst ráðin bæjarstjóri á Blönduósi
2002 og endurráðin 2006 eftir að list-
inn sem hún tók sæti á fékk meiri-
hluta í bæjarstjórn. Hún sagði starfi
sínu lausu í byrjun október 2007 og
stóð að ráðningu Arnars Þórs Sæv-
arssonar. Að því er fram kemur í
stefnu ákvað meirihlutinn að ráða
nýjan bæjarstjóra á sömu kjörum og
hún hafði haft, tæpar 670 þúsund
krónur á mánuði. Jóna Fanney setti
þá fjárhæð inn í drög að ráðningar-
samningi sem ákveðið var að forseti
bæjarstjórnar myndi undirrita. Hún
komst að því síðar að drögunum var
breytt og launafjárhæðin hækkuð um
81 þúsund kr. Samningurinn var ekki
lagður fyrir bæjarstjórn til staðfest-
ingar fyrr en á þessu ári og hefur Val-
garður Hilmarsson, forseti bæjar-
stjórnar, viðurkennt að þar hafi orðið
mistök.
Jóna Fanney krafðist þess að laun
hennar frá kosningum 2006 yrðu leið-
rétt til samræmis við laun arftaka
hennar en því var hafnað. Klofnaði
meirihluti E-listans vegna málsins og
ákvað Jóna Fanney að sitja áfram
sem óháður bæjarfulltrúi. Allir hinir
bæjarfulltrúarnir, allt karlmenn,
mynduðu nýjan meirihluta.
Spenna á markaðnum
Bæjarstjórn hefur nú hafnað sátta-
tillögu sem lögfræðingur Jónu Fann-
eyjar lagði fram og byggðist á því að
bæjaryfirvöld játuðu að hafa brotið á
henni og greiða málskostnað auk 500
þúsund kr. miskabóta. Hefur hún því
stefnt bænum.
Valgarður Hilmarsson segir að
bæjarstjórnin fallist ekki á sjónarmið
bæjarstjórans fyrrverandi. „Þetta
hefur ekkert með jafnréttismál að
gera,“ segir Valgarður. Hann skýrir
hækkun launa nýs bæjarstjóra með
því að hann hafi verið ráðinn til
tveggja ára en ekki fjögurra og sé
með styttri biðlaunarétt en fyrri bæj-
arstjóri. Þá skýrir Valgarður launa-
hækkunina með því að spenna hafi
verið á vinnumarkaðnum á þessum
tíma, sérstaklega hjá stjórnendum.
Stefnir félögum
sínum í bæjarstjórn
Jóna Fanney
Friðriksdóttir
Valgarður
Hilmarsson
Tillögu fyrrverandi bæjarstjóra hafnað
Á sama tíma og verkalýðshreyf-
ingin, atvinnurekendur og stjórn-
völd undirbúa víðtækt samráð og
allir kjarasamningar landsins eru
að renna út, heyrast háværir
brestir í stærsta landssambandi
ASÍ, Starfsgreinasambandinu.
Fram hefur komið að Verkalýðs-
og sjómannafélag Keflavíkur íhug-
ar úrsögn úr SGS. Félagið er eitt
svonefndra Flóabandalagsfélaga
sem undirbúa nú viðræður um
sameiningu, sem yrði stærsta
stéttarfélag landsins.
Á aðalfundi Afls starfsgreina-
félags á Austurlandi um helgina var
rætt um hugmyndir um úrsögn
stærstu félaga SGS úr sambandinu.
„AFL Starfsgreinafélag mun í
sumar leita samráðs við félags-
menn sína, m.a. með rýnihópum og
öðrum aðferðum, og undirbúa
mögulega úrsögn úr Starfsgreina-
sambandinu svo og „öðrum lands-
samböndum“ eins og það er orðað í
tilkynningu stjórnar.“
Afl skoðar úrsögn úr Starfsgreinasambandinu
ÞÓ AÐ Kári hafi þanið sig ákaflega sunnanlands und-
anfarna daga virðist blástur hans ekki ná til gestanna í
Árbæjarlaug. Þessar ungu snótir léku sér þar í, að því
er virtist, mesta blíðviðri.
Norðanlands hefur að undanförnu verið ákaflega
hlýtt og Kári ekki verið jafnstútfullur af lofti þar, enda
losar hann sig við það allt saman á sunnanverðu land-
inu. Í dag verður súld eða rigning suðvestanlands en
hætta á þoku á Austurlandi. Hlýjast verður áfram á
Norðurlandi, allt að 17 stig, og víðast hvar léttskýjað.
Morgunblaðið/Eggert
Líf og fjör í lauginni á ljúfum degi
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Mallorca
frá kr. 89.990
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Mallorca 10. júní í
2 vikur. Þú bókar sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú
gistir. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins í sumarfríinu á þessari einstöku
sumarleyfisperlu á ótrúlegum
kjörum.
Ath. bjóðum einnig frábært sér-
tilboð á einum allra vinsælasta
gististað okkar í Alcudia, Paraiso
Alcudia ***. Frábær kostur á
einstökum kjörum.
M
bl
11
11
69
1Verð kr. 89.990 - 2 vikur
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn,
2-11 ára í íbúð í 14 nætur. Stökktu tilboð 10.
júní. Verð m.v. 2-3 í stúdíó/íbúð kr. 99.990.
Aukalega m.v. sértilboð á Paraiso Alcudia kr.
10.000 á mann.
10.-24. júní í 2 vikur
Frábært sértilboð til
Ótrúlegt verð - allra síðustu sætin!