Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 16
16 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is SKRÁÐ atvinnuleysi í liðnum apríl var 9,1% og jókst úr 8,9% í mars, eða um 1,8%. Að meðaltali voru 14.814 manns atvinnulausir í apríl eða 268 fleiri að jafnaði en í mars. Á sama tíma á árinu 2008 var atvinnuleysi 1%, eða 1.717 manns að jafnaði. Alls er 9.601 karl án atvinnu eða 10,4% allra karla á vinnumarkaði. Konur á atvinnuleysisskrá voru 5.213, eða 7,4% kvenna á vinnumarkaði. Þetta kemur fram í yfirliti Vinnumálastofn- unar, sem birt var í gær. Atvinnuleysi ungs fólks hefur hald- ist hlutfallslega lítið breytt und- anfarna mánuði. Í lok mánaðarins voru 16.750 manns á atvinnuleys- iskrá. Þar af voru 6.330 manns á aldr- inum 16-29 ára, eða 37,8% þeirra sem voru á skrá. Aldurshópurinn 25-29 ára er sá fjölmennasti á skránni, eða 2.742 manns. Langtímaatvinnuleysi 20% Þá vekur það áhyggjur að lang- tímaatvinnuleysi er nú tekið að aukast og þeir sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði voru 3.269 í lok apríl, en voru 1.749 í lok mars. Þeir sem hafa verið lengi á atvinnuleys- isskrá, þ.e. 6 mánuði eða lengur, eru nú um 20% allra á skránni. Þeim sem hafa verið atvinnulausir í meira en eitt ár er ekki tekið að fjölga að ráði en þeir voru 361 í lok mars. Miðað við atvinnuhorfur, má búast við því að hratt fjölgi í þessum hópi þegar líður á árið. Samkvæmt yfirliti Vinnumála- stofnunar jókst atvinnuleysi í apríl um tæp 4% á höfuðborgarsvæðinu frá marsmánuði, en hefur dregist saman um rúm 2% á landsbyggðinni. Mest hefur dregið úr atvinnuleysi á Norð- urlandi eystra þar sem atvinnuleysið minnkaði úr 8,8% í mars í 8,3% í apríl. Einnig hefur dregið úr atvinnuleysi á Austurlandi (úr 5,5% í 5,2%) og á Suðurlandi (úr 7,4% í 7,2%). Annars staðar hefur atvinnuleysið staðið í stað eða aukist lítið eitt. Atvinnuleysið er nú mest á Suðu- nesjum eða 14,3% en minnst á Vest- fjörðum eða 2,5%. Mest atvinnuleysi er í Reykjavík, 7.120 skráðir, Kópa- vogi (1.670), Hafnarfirði (1.483), Reykjanesbæ (1.259) og Akureyri (1.077). Þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi aukist að meðaltali milli mars og apríl hefur atvinnulausum á skrá fækkað um 72 frá í lokum mars til loka apríl. Fækkunin kemur fram á landsbyggð- inni þar sem fækkað hefur um 278 manns, en á höfuðborgarsvæðinu hef- ur fjölgað um 206 manns frá lokum mars til loka apríl. Lítil breyting hefur orðið milli mánaða á fjölda erlendra ríkisborg- ara á atvinnuleyisskrá. Þeir voru 2.104 í lok apríl. Þar af voru Pólverjar 1.382, eða 66% þeirra útlendinga sem eru á skrá. Langflestir hinna erlendu ríkisborgara voru áður starfandi í byggingariðnaði eða 863. Eru þeir um 41% allra útlendinga á skrá. Samtals voru 3.169 af þeim sem voru skráðir atvinnulausir í lok apríl í hlutastörfum, þ.e. þeir sem eru í reglubundnum hlutastörfum eða með tilfallandi eða tímabundið starf á síð- asta skráningardegi í apríl. Þetta eru um 19% af þeim sem voru skráðir at- vinnulausir í lok apríl. Af þeim 3.169 sem voru í hluta- störfum í lok apríl eru 2.137 ein- staklingar sem sóttu um atvinnuleys- isbætur samkvæmt áðurnefndum lögum og hefur fækkað lítið eitt frá fyrra mánuði, en þeir voru 2.202 í lok mars og 2.105 í lok febrúar. Í apríl voru 1.330 sjálfstætt starf- andi skráðir á atvinnuleysisskrá vegna samdráttar í rekstri skv. áð- urnefndum lögum. Þeim hefur fjölgað jafnt og þétt, voru 1.274 í lok mars og 1.017 í lok febrúar. Óvissa um horfurnar Vinnumálastofnun segir að yfirleitt batni atvinnuástandið frá apríl til maí, m.a. vegna upphafs árstíða- sveiflu. Í fyrra var atvinnuleysið svip- að í báðum mánuðum og mældist 1%. Nú sé hins vegar mun meiri sam- dráttur í hagkerfinu. Gera megi ráð fyrir að talsverður fjöldi skólanema komi á atvinnuleys- isskrá, en minna sé um ráðningar vegna atvinnuástandsins nú en und- anfarin ár. Á móti komi að meira er um að boðið sé upp á sumarnám í ýmsum háskóladeildum. Erfitt sé að áætla atvinnuleysi um þessar mundir vegna mikillar óvissu í efnahagslífinu, en líklegt sé að at- vinnuleysið í maí 2009 muni lítið breytast og verða á bilinu 8,8%-9,3%. Atvinnuleysið í apríl var 9,1%  6.330 þeirra sem eru á atvinnuleysisskránni er ungt fólk á aldrinum 16-29 ára  Mikil fjölgun í hópi þeirra sem hafa verið atvinnulausir í 6 mánuði eða lengur  10,4% allra karla á vinnumarkaði án atvinnu Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Atvinnuleysið Dregið hefur úr atvinnuleysinu á landsbyggðinni að und- anförnu en að sama skapi hefur það vaxið á höfuðborgarsvæðinu. Námsmenn, sem ætla að halda áfram námi í haust en hafa ekki fengið sumarvinnu og hyggjast sækja um greiðslu atvinnuleys- isbóta, eiga að sækja um á heima- síðu Vinnumálastofnunar, www.vmst.is. Þegar umsókn hefur verið send rafrænt með þeim hætti þarf að skila inn gögnum og undirrita umsókn. Nemendur koma í Borgartún 7 í Reykjavík eða næstu þjón- ustuskrifstofu úti á landi til að skrifa undir umsókn og skila gögn- um. Framhaldskólanemar geta sótt um á netinu frá og með 15. maí og miðast greiðslur þá við 20. maí. Háskólanemar geta sótt um á netinu frá og með 25. maí og mið- ast greiðslur þá við 1. júní. Greiðslur til þeirra sem sækja um eftir ofangreindar dagsetn- ingar miðast við dagsetningu um- sóknar. Bótatímabil atvinnuleys- istrygginga er frá 20. hvers mánaðar til 19. næsta mánaðar og stefnir Vinnumálastofnun að fyrstu greiðslu til þessara hópa hinn 1. júlí næstkomandi. Atvinnulausir námsmenn sæki um á netinu 17.408 atvinnulausir í dag Þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi aukist að meðaltali í apríl fækk- aði atvinnulausum í mánuðinum. Ástæðan er sú að störfum hefur fjölgað á landsbyggðinni. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is SVÖRT perlumöl úr Hornafirði er undirstaðan í steinteppum sem lögð hafa verið á gólf nokk- urra húsa að undanförnu. Eigandi Horns er að þróa þessa vöru í samvinnu við fyrirtækið Gólfefni sem annast sölu á höfuðborgarsvæð- inu. Mikið er af möl í landi Horns, ekki vantar það. Þar er tíu kílómetra löng fjara út á Stokksnes og þótt fyrirtækið Litlahorn, sem er í eigu Ómars Antonssonar, hafi í mörg ár selt þaðan steypuefni fyllist jafnóðum í skörðin. Sandur til Arizona Síðustu árin hefur Ómar selt svarta möl til fyrirtækis í Arizona í Bandaríkjunum. „Ég var að selja efni til Reyðarfjarðar vegna uppbygg- ingarinnar þar þegar allt í einu birtist hér maður frá eyðimerkurríkinu Arizona sem vantaði svarta möl. Þetta er litur sem er vand- fundinn í veröldinni og hann vildi geta boðið hann,“ segir Ómar. Bandaríska fyrirtækið sel- ur efni í sundlaugar um öll Bandaríkin og víð- ar. Hefur efni frá því farið á um 50 þúsund sundlaugar á ári. Ómar þurfti að kosta miklu til við að koma sér upp hafnaraðstöðu og bryggju við nám- urnar til að geta þróað þessa starfsemi og sinnt innlendum jafnt sem erlendum mörk- uðum. Í útflutninginn fer mest möl sem er 1 til 4 millimetrar í þvermál. Þarf að flokka hana vel og þvo svo sem minnst fari með af efni sem ekki nýtist í framleiðsluna. Þegar vinnslan stendur sem hæst á sumrin eru notuð 700 tonn af vatni á dag við malarþvottinn. Perlumölin hefur verið flutt út til Bandaríkj- anna í þrjú ár og hafa alls farið um 20 þúsund tonn. Ómar hefur ekki fengið pöntun fyrir árið í ár en reiknar með að minna fari vegna sam- dráttar í sundlaugarbyggingum í Bandaríkj- unum. Litlahorn selur töluvert af möl innanlands en er einnig að undirbúa útflutning til Færeyja og Danmerkur. Til Færeyja fer hefðbundið steypuefni en efni í steinteppi til Danmerkur. Til þess að geta betur sinnt útflutningi á efni í steinteppi þarf hann þó að bæta vélakostinn því að efnið þarf að vinna meira en til annarra nota og helst þarf að vera hægt að afhenda það í pokum. Það kallar á frekari fjárfestingar sem Ómar segir erfitt að hugsa um á þessum síð- ustu og verstu tímum. Ómar telur að miklir möguleikar felist í notkun perlumalarinnar í gólfefni. Steinteppi frá honum hafa verið lögð á gólf fjögurra bygg- inga hér á landi, meðal annars stórt hús á Keflavíkurflugvelli, anddyri nýrrar sundlaug- ar á Höfn og hluta gólfa veitingastaðarins Humarhafnarinnar þar í bæ. „Salan er jafnt og þétt að aukast enda er þetta eitt ódýrasta og besta gólfefni sem menn geta fengið,“ segir Ómar. Hann segir verðmæti efnisins aukast mikið við vinnslu fyrir steinteppi. Í svörtu perlumölinni á Stokksnesi er aðal- lega blágrýti og gabbró sem skolast hefur úr fjöllunum. Mölin er búin að veltast lengi um í sjónum og hefur fengið góða slípun í hundruð eða þúsundir ára. Ómar segir þessar mjúku línur steinanna gefi steinmottunum úr Horna- firði einstaka eiginleika og auki endingu þeirra. Með hornfirska perlumöl fasta undir fótum  Ómar Antonsson þróar útflutningsvöru úr möl  Efnið er sett á sundlaugar um öll Bandaríkin Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Perlumöl Ómar Antonsson og Erlingur Brynjólfsson hjá Litlahorni ehf. moka upp efni í stein- teppi sem lagt var á stigann á veitingahúsinu Humarhöfninni á Höfn. Í HNOTSKURN »Bærinn Horn er austan Skarðs-fjarðar, upp af Stokksnesi. Horna- fjörður er kenndur við jörðina. »Horn er ein af mestu jörðum í Nesj-um og rík að hlunnindum, reka, sel- veiði, dún- og eggjatekju, auk mal- artekju. »Í Hornsvík stunduðu Nesjabændurútræði langt fram á 19. öld. »Á Stokksnesi kom breska setuliðiðsér upp aðstöðu og Bandaríkjamenn ráku þar ratsjárstöð. »Á Horn koma um 35 þúsund manns áári. Náttúran hefur aðdráttarafl og gamla íbúðarhúsið. Engin þjónusta er við ferðamenn á Horni, enn sem komið er.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.