Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 14.05.2009, Blaðsíða 29
Minningar 29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. MAÍ 2009 ✝ Níels Þór-arinsson fæddist í Hafnarfirði 8. októ- ber 1912. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafn- arfirði 6. maí 2009. Hann var sonur hjónanna Borghildar Níelsdóttur, f. 2. maí 1886, d. 14.7. 1973, og Þórarins Kristins Guðmundssonar, f. 2.8. 1884, d. 29.12. 1954. Kona Níelsar er Anna Ragnheiður Erlendsdóttir, f. 3.9. 1926. Börn þeirra eru: 1) Steina Borghildur viðskiptafræðingur, f. 18.9. 1964, sambýlismaður Gunnar Níelsson viðskiptafræðingur, f. 9.2. 1963, þau og eiga 2 dætur, Hafdísi Erlu, f. 27.8. 1997, og Önnu Lilju Dögg, f. 19.3. 2004. 2) Jóhanna, f. 1970, d. 1970. Einnig ól Níels upp son Önnu, Víglund Þorsteinsson vél- stjóra og bónda, f. 21.5. 1952, en faðir Víglundar, Þorsteinn Víg- lundsson, frá Höfða í Bisk- upstungum lést árið 1955. Víg- lundur giftist Lovísu Maríu Erlendsdóttur, en þau slitu sam- vistum. Sambýliskona Víglundar er Svava Theodórsdóttir rekstr- Hafnarfirði, en því starfi gegndi hann í 15 ár, þar til hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir. Gamlir nem- endur skólans minnast Níelsar ennþá með mikilli hlýju, en aldrei þurfti hann að brýna raustina við nemendur. Útgeislun hans var með þeim hætti að þeir hlýddu um- svifalaust án þess að mögla. Samhliða vinnu og eftir starfslok hélt Níels áfram byggingu húsins við Norðurbrautina og síðar Kletta- hraunsins sem hann náði að ljúka við, en þar bjó hann uns veikindin tóku yfirhöndina. Þá sinnti hann einnig garðrækt, trjárækt og kart- öflurækt alveg til ársins 2007, en það var síðasta árið sem hann setti sjálfur niður kartöflur og tók upp. Honum féll aldrei verk úr hendi og kunni því illa að liggja í rúminu og vera veikur. Níels hjólaði mikið á sínum yngri árum, bæði innanbæjar og inn á hálendið sem þótti nýnæmi á þeim tíma og stundaði tjaldúti- legur í þeim leiðöngrum. Á Sólvangi naut Níels umönnunar frábærs starfsfólks síðustu stund- irnar og sérstakar þakkir fær Ólaf- ur Skúli Ingibergsson nýrna- sérfræðingur fyrir ómetanlega umönnun í gegnum árin. „Ég bið að heilsa öllum“ voru síð- ustu orð Níelsar. Útför Níelsar fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag, 14. maí, og hefst athöfnin kl. 15. Meira: mbl.is/minningar arfræðingur. Níels ólst upp í Hafnarfirði og bjó einnig að Selsgarði á Álftanesi stuttan tíma þegar hann var barn að aldri. Eftir það bjó hann lengst af á Reykjavíkurvegi 9, Hafnarfirði. Níels lauk barnaskólaprófi frá Barnaskóla Hafn- arfjarðar og byrjaði snemma að vinna fyrir sér eins og tíðkaðist á þeim tíma við fisk- breiðslu og fiskþurrkun. Einnig starfaði hann við afgreiðslustörf í Steingrímsbúð í Hafnarfirði jafn- framt því sem hann hóf störf sem kvikmyndasýningarmaður 15 ára gamall. Starfi kvikmynda- sýningarmanns gegndi hann í 30 ár samhliða öðrum störfum. Fólust þau störf m.a. í lagningu Sogslínu til höfuðborgarsvæðisins, verkstjórn við byggingu beggja hafnargarð- anna í Hafnarfirði, verkstjórn hjá byggingarfélaginu Þór og Dröfn, Hafnarfirði, reisingu álversins í Straumsvík o.fl. stórra bygging- armannvirkja í Hafnarfirði. Árið 1970 réðst svo Níels til starfa sem húsvörður við Víðistaðaskóla í Það var sem tíminn stöðvaðist eitt andartak þegar hringt var í mig og mér sagt að Nilli væri látinn. Nilli var einstakur karakter, hann var ljúf- menni í hvívetna og sá ég hann aldrei bregða skapi. Það var mikið gæfu- spor þegar þau móðir mín felldu hugi saman og hófu búskap á Norður- brautinni í Hafnarfirði. Þau unnu þá bæði hjá Dröfn, sem var með skipa- smíðar og húsbyggingar í Hafnar- firði en þar var Nilli verkstjóri. Þau eru nokkur stórhýsin á Strandgöt- unni og víðar sem Nilli og hans menn byggðu á árum áður. Má þar nefna Sparisjóðshúsið og Venusarhúsið. Ég var í sveit öll sumur á Sauða- felli í Dölum sem krakki og ungling- ur. Eitt sinn sem oftar komu mamma og Nilli í heimsókn og var þá steypu- vinna fyrirhuguð á bænum. Nilli tók að sér að stjórna lögun steypunnar en þar nutu hæfileikar hans sín, enda kom í ljós ein sú fallegasta steypa sem sést hafði að mati fróðra manna þegar slegið var frá. Það var alltaf gaman þegar Nilli og mamma komu því þá var farið í útilegu með tjald og prímus. Ferðir sem urðu ólgeyman- leg ævintýri í huga ungs drengs. Það er margs að minnast þegar að leiðarlokum er komið. Minningin um góðan og elskulegan fósturpabba mun lifa með mér um ókomin ár. Hafðu þökk fyrir allt það sem þú gafst mér. Víglundur Þorsteinsson. Hinn 6. maí sl. andaðist Níels Þór- arinsson fyrrum húsvörður Víð- istaðaskóla. Hann kom til okkar í Víðistaðaskóla haustið 1970, hljóðlát- ur og hlýr, traustur og trúr í hverju verki, Þá var skólinn að taka til starfa og var þó enn mörg næstu árin í byggingu.Það var því margt sem á nýráðnum húsverði hvíldi og lán fyrir skólann að fá Níels í starfið, marg- reyndan í margvíslegum byggingar- störfum hér í Hafnarfirði. Skólinn naut þess, að húsvörðurinn kunni vel til verka á iðnaðarsviðinu og var jafn- framt góðgjarn en fastur fyrir í sam- skiptum sínum við nemendur. Það skiptir miklu máli fyrir allt skóla- starf, að sambúð húsvarðar og nem- enda takist vel. Í Víðistaðaskóla var sú sambúð með ágætum.Níels Þór- arinsson hafði ríka réttlætiskennd. Hann var einn af þessum sönnu og traustu jafnaðarmönnum, meðvitað- ur um gildi jafnaðarstefnunnar fyrir samfélagið og í samskiptum manna, missti aldrei sjónar tilgangi hennar og markmiðum. Hann hafði því góð- an skilning á mannúð og mannrækt og það er gott veganesti í uppeldis- og skólastarfi. Öllu starfsfólki skól- ans varð fljótlega ljóst, hvílíkur mannkostamaður þessi hægláti en þó um leið ákveðni húsvörður okkar var. Það var gott að vera í návist hans og vinátta varð til sem entist út yfir líf og dauðaÞað er alltaf sárt að kveðja góða vini, en minningarnar lifa og lýsa. Þeir lifa góðu lífi í vitund okkar og verkunum sem unnin eru af trú- mennsku og hjartahlýju. Þannig skynjum við Níels Þórarinsson á kveðjustund. Víðistaðaskóli naut huga hans og handar, þegar skólinn steig sín bernskuspor. Fyrir það er þakkað. Skólinn naut líka verka Önnu konu hans, en þau hjónin voru samhent í því að vinna skólanum allt það gagn sem þau máttu. Farðu sæll á guðs þíns fund Níels Þórarinsson og hafðu þökk fyrir störf þín í þágu Víðistaðaskóla og alla samveruna þar. Guð blessi þig og þína á kveðju- stund. Hörður Zóphaníasson, fyrrverandi skólastjóri Sigurður Björgvinsson, núverandi skólastjóri. Níels Þórarinsson ✝ Guðmundur Ósk-arsson, fv. lög- regluvarðstjóri, fædd- ist á Eyri (Sveinungseyri) í Gufudalshreppi í A- Barðastrandarsýslu 30. ágúst 1926. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópa- vogi 5. maí 2009. For- eldrar hans voru Guð- rún Jóhanna Guðmundsdóttir, f. 1. apríl 1888, d. 16. jan- úar 1981 og Sumarliði Óskar Arinbjörnsson, f. 14. desem- ber 1889, d. 25. júní 1954. Systkini Guðmundar voru Steinunn, f. 2. júlí 1913, d. 23. júní 1969, Arnór, f. 27. sammæðra eru: Guðmundur Ragn- ar, f. 1983, faðir Björn Ragnar Björnsson, f. 1958, Kristín María, f. 1988 og Ragnheiður Elísabet, f. 1992. 2) Óskar, f. 1959. Guðmundur stundaði ýmis störf um ævina, svo sem venjuleg sveita- störf, verkamanna- og fiskvinnu, byggingavinnu og stjórn þunga- vinnuvéla. Hann hóf síðan störf hjá Lögreglunni í Kópavogi í október árið 1961 og vann þar óslitið þar til hann lét af störfum í lok júní árið 1990. Hann stundaði nám við Lög- regluskólann og lauk prófi þaðan árið 1966. Guðmundur var áhuga- samur um skógrækt og var m.a. fé- lagi í Skógræktarfélagi Kópavogs. Hann ferðaðist mikið um landið, bæði vegna vinnu og í frístundum. Útför Guðmundar fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 14. maí, kl. 15. Meira: mbl.is/minningar júlí 1914, d. 10. ágúst 1995, Sæmundur Magnús, f. 6. des. 1915, d. 11. ágúst 1989, stúlka, f. 19. júlí 1917, d. 19. júlí 1917, Kristinn, f. 30. júlí 1918, d. 30. nóv. 2008, Guðbjörg, f. 26. mars 1920, d. 10. maí 2003 og Guðrún, f. 17. apríl 1928. Hinn 11. júní 1955, kvæntist Guðmundur, Ragnheiði Ein- arsdóttur frá Val- þjófsstað í Fljótsdal, f. 20. maí 1923, d. 28. janúar 1994. Börn þeirra eru: 1) Þuríður, f. 1957, maki Kristinn Karl Guðmundsson, f. 1951. Börn Í dag er kvaddur hinstu kveðju sómamaðurinn Guðmundur Óskars- son. Leiðir okkar lágu fyrst saman í lögreglunni í Kópavogi 1980. Nokkru síðar var ég skipaður aðstoðarmaður hans á vaktinni. Guðmundur var einn af þessu náttúrumönnum sem ekki vildu breyta hlutunum breytinganna vegna. Hann hélt mikilli tryggð við gamlar hefðir og fór vel með sitt. Guðmundur var mikill hagleiks- maður á tré og járn og bera verk hans á Hraunbrautinni best vitni þar um. Hann var fastur fyrir, en allan þann áratug sem ég starfaði með honum reyndist hann mér sem besti uppalandi og vinátta okkar entist alla tíð. Guðmundur hóf störf í lögreglunni 1961 og var með fyrstu lögreglu- mönnum sem ráðnir voru í lögregl- una í Kópavogi og starfaði þar uns hann lét af störfum vegna aldurs. Nokkru eftir að hann lét af störfum greindist hann með illvígan sjúkdóm sem að lokum lagði hann að velli. Hann tók á veikindum sínum með mikilli stillingu og æðruleysi og alltaf var stutt í stríðnina og húmorinn. Guðmundur missti konu sína fyrir mörgum árum og var söknuður hans mikill. Guðmundur var afskaplega barn- góður og synir okkar minnast enn heimsókna til hans á lögreglustöðina þar sem Guðmundur tók vel á móti þeim. Við hjónin þökkum Guðmundi samfylgdina og alla vináttu við okkur og sendum börnum hans, Þuríði og Óskari, og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúðarkveðjur. Lárus Ragnarsson. Guðmundur Óskarsson ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HALLGRÍMUR H. EINARSSON, Barðavogi 7, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 15. maí kl. 13.00. Kristbjörg Vilhjálmsdóttir, Vilhjálmur Hallgrímsson, Inga Kolbrún Hjartardóttir, Sigríður Rut Hallgrímsdóttir, Páll Arnórsson, Anna Sigurlín Hallgrímsdóttir, afabörn og langafabarn. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, SIGFÚS ÞÓRÐARSON fv. bankastarfsmaður, Selfossi, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 16. maí kl. 11.00. Erla Sigurjónsdóttir, Kristín Sigfúsdóttir, Yngvi Karl Jónsson, Anna Þórný Sigfúsdóttir, Stefán Þorleifsson, Þórarinn Sigfússon og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar og frænda, BALDURS JÓNSSONAR frá Fjósatungu, síðast til heimilis á Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Grenihlíðar, dvalar- heimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Guð veri með ykkur. Systkini hins látna og fjölskyldur. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, GUNNSTEINN LÁRUSSON skósmíðameistari, Látraströnd 20, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 15. maí kl. 13.00. Þeim sem vildu minnast hans er bent á heimahlynningu Krabbameinsfélags Íslands, sími 540 1990. Guðbjörg Ólafsdóttir, Lárus Gunnsteinsson, Dagmar Rósa Guðjónsdóttir, Ólafur Grétar Gunnsteinsson, Kjartan Gunnsteinsson, Heiðrún Ósk Sigfúsdóttir, afabörn og langafabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, VALUR BJÖRN VALDIMARSSON, Bæjarholti 1, Hafnarfirði, sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 7. maí, verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 15. maí kl. 15.00. Úlfhildur Jónasdóttir, María Valsdóttir, Steinar Örn Kristjánsson, Húnbogi Valsson, Dagný Annasdóttir, Kolbeinn Valsson, Monika Danisova, Óðinn Valsson, Bára Eyfjörð Heimisdóttir, Hjörleifur Valsson, Ágústa María Arnardóttir, Hagbarður Valsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.