Embla - 01.01.1949, Page 57

Embla - 01.01.1949, Page 57
Uppi á lofti, næst svefnherbergi hjónanna, var stofa, sem nefnd var „hornstofan". Það var setustofa systranna, — dætra hjónanna, og þar kenndu þær þeiin stúlkum, sem komið var til þeirra til hannyrðanáms. Þær systur voru ágætir kennarar eins og faðir þeirra. Þær kunnu að vekja áhuga og starfsgleði. En þó var ekki minna vert um þau áhrif, sem þær höfðu á unglinga með hátt- prýði sinni, sem var óviðjafnanlega fast mótuð, og með hlýleika og gæðum, sem aldrei bar neinn skugga á. í hornstofunni var oft glatt á hjalla, þó að ekki væri slegið slöku við það, sem átti að gera. Ógleymanlegar verða þær stundir, sem maður naut þar, ekki sízt rökkurstundirnar, þegar ekki var farið út á skíði. Þá tók Ástríður, dóttir hjónanna, gítarinn sinn og lék uppáhaldslögin og hinar systurnar sungu með, en hugfangnir unglingar gleymdu stund og stað. Hve sæl, ó, hve sæl er hver leikandi lund. En lofaðu’ engan dag fyrir sólarlagsstund. Nokkur ár liðu, með óbreyttum önnum og starfi hinna full- orðnu, með vonum og gleði hinna ungu. Systkinin í Ólafsdal voru flest orðin fulltíða, en hin yngstu á unglingsaldri, glæsilegur hópur afbragðs mannsefna, sem virtust eiga bjarta framtíð í vændum. En svo kom tímabil þeirrar reynslu, sem engan hafði órað fyrir. Fyrsta sorgarfregnin barst heim, að látinn væri Karl, sonur þeirra hjóna, sem stundaði nám við háskólann í Kaup- mannahöfn. Svo leið eitt ár, en á næstu fjórum árum þar á eftir misstu þau eina dóttur hvert árið. Tvær dóu heima, Sigríður og Ástríður, en tvær á sjúkrahúsum, Ingibjörg og Þórdís. Margir foreldrar myndu hafa orðið bugaðir eða niðurbrotnir af slíkri reynslu. En lijónin í Ólafsdal reyndust sterk og sameinuð í sorg- inni eins og í gleðinni. Þau báru harma sína í hljóði, en húsmóð- irin sagði eitt sinn: „Með Torfa er hægt að bera allt“. En enda þótt húsbændurnir reyndu að halda uppi sama glaða heimilisanda og áður, þá fundu allir, sem kunnugir voru, hve mikils heimilið hafði misst af því, sem það áður átti. Og nú var „hornstofan" lokuð og ekki um hana gengið. Tíu ár liðu, sem ég var fjarri Ólafsdal. En þá fluttist ég aftur í F.MBLA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118

x

Embla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Embla
https://timarit.is/publication/759

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.