Morgunblaðið - 22.05.2009, Síða 1
F Ö S T U D A G U R 2 2. M A Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
137. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«DAGLEGTLÍF
REYNIR SEGIR GYÐJ-
URNAR GETA HJÁLPAÐ
«SVEITIR VILJA Í SVEIT
SVEITABÖLLIN ERU
FÖST Í KERFINU
ÞRASTARUNGARNIR teygðu upp gogginn í von um góðan
bita. Skógarþrestirnir eru ljúfir vorboðar, eins og Jónas Hall-
grímsson orti, og við komu þeirra fyllist loftið af fögrum
söng. Skógarþrestir verpa tvisvar til þrisvar sinnum yfir sum-
arið, 4-6 eggjum í senn. Eggin klekjast á 12-13 dögum og ung-
arnir eru svo ósjálfbjarga í um hálfan mánuð.
Margir lesendur hafa lýst mikilli ánægju með vorlegar
fuglamyndir Ómars Óskarssonar, ljósmyndara Morgunblaðs-
ins, sem birst hafa undanfarið hér á forsíðunni.
VORBOÐINN LJÚFI VAKIR YFIR UNGUNUM SÍNUM
Morgunblaðið/Ómar
Skógarþrösturinn verpir tvisvar til þrisvar sinnum á hverju sumri og kemur upp mörgum ungum
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
„VANDINN er sá að bankarnir eru með of mikið af eign-
um í erlendri mynt sem bera lága vexti en of mikið af
skuldbindingum í krónum sem bera háa vexti. Það er afar
óþægileg staða að vera í og veldur taprekstri þeirra,“
segir Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra.
Til að vinna upp þennan taprekstur hafa ríkisbank-
arnir, Nýja Kaupþing, Íslandsbanki og Landsbankinn,
lækkað hratt hjá sér innlánsvexti. Það lækkar greiðslur
sem bankarnir þurfa að greiða eigendum innlána. Það er
í samræmi við tilmæli frá Seðlabanka Íslands.
Í fundargerð peningastefnunefndar Seðlabanka Ís-
lands frá síðasta stýrivaxtafundi, sem birt var í gær, seg-
ir að nauðsynlegt sé að grípa til ýmissa aðgerða í því
skyni að endurreisa lífvænlegt bankakerfi. „Til þess þarf
að minnka kostnað, minnka umfang reksturs, draga úr
gjaldeyrisáhættu og sjá til þess að lánskjör endurspegli
raunverulegan fjármögnunarkostnað bankanna. Ég get í
sjálfu sér tekið undir þetta allt saman,“ segir Gylfi Magn-
ússon. „Það hjálpar mjög mikið ef innlendir vextir al-
mennt nálgast erlenda vexti. Hluti af vandanum var fólg-
inn í því að vextir í krónum voru svo miklu hærri en
erlendir vextir og þar með vextir af útlánum í erlendri
mynt sem bankarnir voru með.“
Í síðasta hefti peningamála Seðlabanka Íslands kemur
fram að innlán innlendra aðila í bankakerfinu nemi meira
en 1.600 milljörðum króna. Rekstur bankanna er nú arð-
bærari en ekki er ljóst hversu miklu þeir hafa tapað.
Ríkisbankarnir
reknir með tapi
Greiða sparifjáreigendum minna með lækkun vaxta
1.600 milljarðar eru í innlánum
Háir vextir þýða meiri kostnað
Erlendar eignir bera lága vexti
Því lækka bankar innlánsvexti
Rekstur bankanna nú arðbærari Bankakerfið | 16
VEL hefur veiðst undanfarið og
koma bátar með hlaðafla að landi.
Það var mál manna í nokkrum ver-
stöðvum í gær að fiskurinn væri
vænn og mikil fiskgengd á mið-
unum. Það er enginn skortur á fiski
en hins vegar mun vera farið að
þrengja verulega að mörgum hvað
varðar veiðiheimildir á þorski.
Menn segja erfitt að komast hjá
þorski á miðunum.
Á Snæfellsnesi hafa verið mjög
góð aflabrögð, sama hvaða veið-
arfærum er difið í sjó. Sömu sögu
er að segja úr Grindavík en þar hef-
ur aflast vel á handfæri. Á Tálkna-
firði hafa sjómenn verið að landa
mjög fallegum fiski, kjaftfullum af
síli. Grímseyingar þurfa að fara 10-
12 ár aftur í tímann til að muna
jafngóð aflabrögð í maímánuði og
nú. | 4
Góður afli og vænn
fiskur hvarvetna
Morgunblaðið/RAX