Morgunblaðið - 22.05.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 22.05.2009, Blaðsíða 22
22 UmræðanBRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2009 HEITIÐ á greininni er fengið að láni af ágætri skáldsögu Indr- iða G. Þorsteinssonar rithöfundar. Af nafninu má leggja með þeim hætti að við Íslendingar höfum löngum búið eins og væri fyrir utan og of- an veröldina. Við höfum aldrei síðan á víkingatímanum tekið al- mennilega þátt í mannkynssögunni. Við höfum horft á heiminn berast á bana- spjót og friðmælast, lifa í lystisemdum og svelta þess á milli. Þegar mikið lá við var kallað á okkur til að segja sögur, út- vega mat, en annars mundi enginn eftir okkur og stundum mundum við heldur ekki eftir öðrum. Þegar Saxo hinn danski skrifaði sögu Dana undir aldamótin 1200 þurfti hann að styðjast við íslenskar heimildir. Án íslenskrar aðstoðar hefði engin dönsk saga verið skrifuð. Í formála sínum seg- ir Saxo: Ei skal ég heldur láta iðni Íslendinga liggja í þagnargildi. Sökum þess hve hrjóstrugt föðurland þeirra er hafa þeir orðið að lifa hófsömu lífi, og leggja þeir í vana sinn að segja frá afrekum annarra og bæta þeir sér þannig veraldlega fá- tækt sína með auðlegð andans. Semsagt fyrir átta hundruð árum lýsti sagnaritari Dana Íslendingum með nákvæmlega þeim hætti, sem vís- að er til í bókarheiti Indriða. Þjóð sem bjó Norðan við stríð. Heimdraganum hleypt En þar kom að, að á legg komst kyn- slóð sem vildi komast að heiman, og leita fjár og frama í fjarlægum löndum, rétt eins og víkingarnir til forna. Kyn- slóð sem vildi taka þátt í mannkynssög- unni. Til þess þurfti hæfilega blöndu af bjartsýni og viðskiptamenntun og ekki síst dágóðan farareyri. Um það bil fimmtán þúsund milljarða króna, svona til að skóa sig upp. Síðan var hægt að fara í kaupstað. Sú kaupstað- arferð endaði ekki betur en svo, að unga kyn- slóðin lenti á því, og týndi öllum pening- unum. Ekki er vitað hvar. Og nú situr heim- ilisfólkið uppi með reikn- inginn, eftir þrjú af tíu stærstu gjald- þrotum veraldarsögunnar. Þetta kallar maður að stimpla sig inn. Fólk í nágrannalöndunum sem lánaði víking- unum situr eftir með sárt ennið og kannski á það ekkert betra skilið. En þegar við ætluðum að breyta heim- ilisfanginu aftur í Norðan við stríð kom í ljós að veröldin hefur elt okkur uppi og krefst þess að við stöndum fyr- ir máli okkar. Vettvangur baráttunnar Þeir stjórnmálamenn eru margir, sem telja að við getum með ein- hverjum hætti sótt um aðild að mann- kynssögunni upp á nýtt og um leið fengið aflát fyrir kjánaskap okkar með því að ganga í Evrópubandalagið. Aðr- ir telja að við getum haldið okkur til hlés eins og áður og lánardrottnarnir muni gefast upp ef við erum nógu dug- leg við að þykjast ekki skilja hvað þeir eru að tala um. Alveg burtséð frá hvaða leið verður valin til að kljást við vonlausan skulda- baggann, þá er hitt víst: Við getum ekki látið hjá líða að verja okkur. Hefðbundnar aðferðir, svo sem bréfa- skriftir, mótmæli og „hreinskilni“ í einkaviðræðum, leysa ekki vanda okk- ar. Það kom vel fram í atburðunum í breska þinginu í síðustu viku, þegar Gordon Brown sagði ósatt um íslenska banka. Íslensk stjórnvöld brugðust hart við og töldu að íhaldsmenn vildu koma höggi á Gordon fyrir að hafa log- ið upp á Íslendinga. En íhaldsmenn höfðu engan áhuga á því. Þeir höfðu áhuga á að koma höggi á Gordon Brown fyrir að hafa ekki verið nógu harður við Íslendinga. Það má ekki verða sport í Bretlandi, hvað þá í heiminum öllum, að tala nið- ur til Íslendinga. Gordon Brown og Al- istair Darling og David Cameron geta sagt um okkur það sem þeim þóknast. Og það berst um allan heiminn. Þeir tala við okkur í heimspressunni, við tölum við þá í íslensku pressunni. Í heimspressunni heyrist ekki bofs okk- ur til varnar. Lausleg könnun á því hvernig fjallað hefur verið um Ísland í nokkr- um breskum blöðum á undanförnum mánuðum leiddi í ljós að það var yf- irgnæfandi á neikvæðum nótum. Öm- urlegasta fyrirsögnin var þessi úr The Telegraph: Iceland: Downfall of a fool- ish little nation. Í Guardian voru fyrirsagnir um hörku í innheimtu hjá íslenskum bönk- um í bland við frásagnir af líkn- arfélögum sem höfðu tapað söfnunarfé til áratuga. Í Times var fjallað um milljarðana sem hurfu (Billions down a black hole). The Sun fjallaði um hina vafasömu gosa (The Dodgy geysers). Nú ríður á að sýna að við höfum lært eitthvað af áföllum okkar. Nú þurfum við að sýna dug og tala við heiminn. Við þurfum að koma úr fel- um. Við þurfum að taka þátt í stríðinu. Fyrir norðan stríð Eftir Björn Jónasson » Það má ekki verða sport í Bretlandi, hvað þá í heiminum öll- um, að tala niður til Ís- lendinga. Björn Jónasson Höfundur er bókaútgefandi, búsettur erlendis. V i n n i n g a s k r á 3. útdráttur 20. maí 2009 BMW 318i + 5.200.000 kr. (tvöfaldur) 6 7 1 7 3 V i n n i n g u r Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur) 2 4 4 1 3 2 9 8 7 4 1 3 8 3 6 6 2 7 1 V i n n i n g u r Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 21901 24996 29120 50257 63755 64416 23758 28956 33229 63482 63888 74161 V i n n i n g u r Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) 1 3 7 1 1 4 1 5 2 0 2 3 2 3 0 0 2 1 4 6 4 1 4 5 1 3 0 7 5 9 8 3 1 6 8 3 8 0 4 7 2 1 1 6 0 9 2 0 5 6 3 3 1 3 5 9 4 6 5 9 3 5 1 3 6 0 6 0 5 9 8 7 0 3 0 5 1 5 5 2 1 3 6 1 5 2 2 1 3 5 3 2 6 5 3 4 6 7 4 1 5 2 3 3 7 6 2 4 8 4 7 2 0 5 9 1 9 3 2 1 4 4 6 0 2 2 4 2 8 3 6 2 5 9 4 6 9 2 8 5 2 5 5 2 6 3 7 9 9 7 2 2 2 0 3 4 3 9 1 4 6 8 6 2 2 4 4 0 3 8 0 3 6 4 6 9 4 4 5 2 6 7 0 6 3 9 9 8 7 3 0 7 0 4 0 1 2 1 5 7 5 8 2 3 5 7 7 3 8 0 4 7 4 7 4 6 0 5 2 9 5 9 6 5 0 6 6 7 4 9 7 4 4 3 5 1 1 6 2 7 4 2 5 2 1 7 3 9 6 5 4 4 7 8 5 8 5 3 0 4 3 6 5 0 7 0 7 5 5 9 0 4 7 5 8 1 6 8 0 2 2 7 1 9 3 3 9 7 0 7 4 8 8 1 1 5 3 8 0 1 6 5 2 7 9 7 7 1 1 8 4 8 4 1 1 7 1 0 3 2 7 9 4 7 4 2 3 8 7 4 9 0 2 2 5 4 5 9 3 6 5 6 1 7 7 8 7 6 6 5 3 6 3 1 7 4 4 0 2 8 1 3 3 4 2 6 4 5 4 9 1 4 5 5 5 8 1 3 6 6 5 1 4 7 0 8 4 1 7 5 8 7 2 8 6 3 5 4 3 0 8 4 5 0 2 3 7 5 5 9 1 2 6 6 7 4 4 8 2 9 9 1 9 4 4 0 2 8 8 7 8 4 3 8 2 1 5 1 2 2 0 5 6 8 0 4 6 7 3 6 3 9 9 9 8 1 9 6 1 1 2 9 6 2 6 4 4 8 9 5 5 1 2 8 4 5 8 6 1 4 6 8 0 6 9 V i n n i n g u r Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur) 4 2 8 9 2 7 2 1 2 5 2 2 8 3 8 5 3 7 1 3 6 4 9 3 6 4 5 8 0 6 8 6 7 1 1 4 5 7 7 9 0 0 8 2 1 7 8 8 2 8 5 5 1 3 7 6 4 8 5 0 3 1 5 5 8 0 7 3 6 7 2 6 6 6 0 7 9 7 1 2 2 1 8 2 9 2 8 6 8 4 3 7 8 7 7 5 0 3 5 1 5 8 0 8 4 6 7 3 5 4 1 1 4 9 9 8 2 1 2 1 9 1 8 2 8 8 8 7 3 9 1 3 6 5 1 5 9 2 5 8 1 3 5 6 7 8 7 0 1 3 4 9 9 9 3 0 2 2 1 7 9 3 1 4 8 4 3 9 1 6 7 5 1 8 7 4 5 8 7 3 9 6 8 3 1 3 1 4 3 2 1 0 1 5 8 2 2 7 2 8 3 1 5 3 4 3 9 6 8 7 5 1 9 0 2 5 8 8 9 3 6 9 3 5 8 1 7 8 0 1 1 0 0 9 2 2 8 3 3 3 1 9 3 8 4 0 0 8 5 5 1 9 2 9 5 9 1 3 8 7 0 0 1 8 2 3 5 7 1 1 6 2 6 2 2 8 3 8 3 1 9 5 4 4 0 2 8 6 5 2 0 5 1 5 9 2 4 6 7 2 3 7 9 2 4 3 9 1 2 1 3 5 2 2 8 4 6 3 2 1 2 4 4 0 8 3 5 5 2 3 3 4 5 9 5 4 0 7 2 7 3 0 2 4 7 4 1 2 3 9 0 2 3 2 1 1 3 2 1 9 0 4 1 1 9 6 5 2 7 1 0 6 0 2 0 2 7 3 3 2 0 2 6 2 1 1 3 4 2 7 2 3 2 3 1 3 2 5 4 5 4 1 2 2 3 5 2 7 4 0 6 0 3 9 8 7 3 4 3 8 2 8 6 6 1 3 7 9 8 2 3 4 1 0 3 2 5 7 7 4 1 3 1 4 5 2 8 6 2 6 0 9 0 8 7 3 8 4 2 3 2 4 3 1 4 0 5 5 2 3 4 2 9 3 2 6 6 4 4 1 4 5 3 5 2 9 0 6 6 1 2 2 2 7 4 1 6 0 3 6 1 0 1 4 2 4 3 2 3 6 4 7 3 2 7 5 3 4 1 8 7 0 5 3 4 9 3 6 1 6 0 3 7 4 3 3 7 4 0 0 2 1 4 5 9 7 2 3 6 5 8 3 2 8 9 3 4 1 9 5 7 5 4 1 6 9 6 1 9 0 6 7 4 7 7 6 4 0 7 8 1 4 9 0 8 2 4 3 0 5 3 3 1 3 3 4 2 2 4 1 5 4 5 8 7 6 2 0 7 5 7 5 2 4 3 4 4 6 1 1 5 6 1 2 2 4 5 7 9 3 3 4 9 1 4 2 3 9 8 5 4 6 0 4 6 2 4 1 3 7 5 4 2 2 4 7 5 4 1 5 8 3 6 2 4 9 0 0 3 3 8 1 6 4 3 2 3 4 5 4 7 7 6 6 2 4 8 5 7 5 8 5 2 4 7 5 7 1 5 9 6 4 2 4 9 4 9 3 4 4 6 5 4 3 5 5 7 5 4 8 7 6 6 2 5 3 6 7 5 9 8 8 4 9 6 5 1 6 2 4 0 2 4 9 7 3 3 4 5 0 8 4 4 3 5 9 5 5 1 6 2 6 2 5 7 2 7 6 6 1 4 5 9 5 0 1 6 5 3 8 2 5 1 9 0 3 5 1 3 5 4 4 5 9 2 5 5 4 8 9 6 2 6 0 5 7 7 1 4 0 6 1 4 9 1 6 5 4 6 2 5 8 7 0 3 5 2 7 5 4 5 4 2 3 5 5 8 0 8 6 2 6 1 2 7 7 5 2 0 6 2 0 5 1 6 6 5 1 2 5 9 3 6 3 5 3 3 9 4 6 6 0 1 5 5 9 8 0 6 2 9 7 8 7 7 8 4 4 6 7 2 3 1 6 7 3 8 2 6 5 0 2 3 5 3 4 1 4 6 7 8 5 5 5 9 9 4 6 3 3 3 1 7 8 0 2 6 6 7 6 4 1 7 0 0 5 2 6 6 2 0 3 5 3 8 0 4 7 0 9 1 5 6 2 6 1 6 4 1 6 5 7 9 3 4 8 6 8 5 7 1 7 6 1 9 2 7 0 0 9 3 5 7 6 5 4 8 1 6 1 5 6 5 9 6 6 4 6 1 0 7 9 7 3 8 6 9 9 4 1 8 0 6 7 2 7 3 8 6 3 5 7 8 3 4 8 6 1 0 5 6 7 3 8 6 4 8 8 3 7 0 3 0 1 8 8 5 1 2 7 4 3 0 3 5 8 4 0 4 8 8 0 4 5 6 7 8 8 6 4 9 3 2 7 0 9 7 1 8 9 8 2 2 7 9 8 4 3 6 1 0 6 4 9 0 6 2 5 6 9 0 4 6 5 1 1 5 7 7 9 7 1 9 2 1 9 2 8 1 0 4 3 6 6 5 8 4 9 1 1 1 5 7 4 4 6 6 5 3 9 2 7 8 8 7 1 9 3 6 7 2 8 1 8 1 3 6 7 5 3 4 9 1 5 0 5 7 5 3 9 6 5 5 1 3 8 2 2 8 2 0 9 8 2 2 8 3 0 6 3 6 9 4 5 4 9 3 5 0 5 8 0 0 7 6 5 6 5 2 Næsti útdráttur fer fram 28. maí 2009 Heimasíða á Interneti: www.das.is FÆTURNIR eru undirstaða lík- amans. Þeir flytja okkur þangað sem við þurfum að komast. Því er afskaplega mik- ilvægt að þeir haldist heilbrigðir lífið út. Að horfa á fullkomna fætur nýfædds barns er stórkostlegt. Eins og blævængur. Tærnar breiða úr sér og teygja sig í allar áttir. En ekki líður langur tími þar til við förum að hafa áhrif á fæt- urna. Örsmá bein fótanna eru sem brjósk og það er auðvelt að aflaga þau. Sokkar sem eru of þröngir og skór sem ungbörn eru klædd í löngu áður en þörf er fyrir skófatnað, allt hefur þetta áhrif á fæturna. Fyrstu skórnir eru vel valdir og börnin taka fyrstu skrefin. En ótrúlega fljótt fer tískan að hafa áhrif á útlit skónna og þá oftast á kostnað fótanna. Táin mjókkar og hællinn hækkar. Merki- legt að tískukóngarnir skuli halda að stóratáin sé í miðjunni. Þegar á fullorðinsár er komið er margt sem hefur áhrif á fótheilsu. Sjúkdómar, þyngd og umönnun eru þættir sem hafa áhrif en misauðvelt að eiga við. En við ráðum miklu. Skór þar sem nóg pláss er fyrir allar tærn- ar og sem passa á fæturna er auðvit- að það sem við eigum að hafa að leið- arljósi þegar við veljum okkur skó. Þetta gildir um okkur öll. Maí er al- þjóðlegur fótverndarmánuður. Al- þjóðasamtök fótaaðgerðafræðinga, FIP, útnefnir maímánuð fótvernd- armánuð og leggja þá aðildarfélög FIP, þar á meðal Félag íslenskra fótaaðgerðafræðinga, áherslu á eitt tiltekið málefni ár hvert sem tengjast fótum. Í ár er sjónum beint að fótum og sykursýki. Fætur sykursjúkra eru í meiri hættu en annarra því fylgi- kvillar sjúkdómsins gera það m.a. að verkum að það getur verið erfitt að græða sár sem koma á fæturna. Því er eftirlit og umhugsun grund- vallaratriði. Þar geta fótaaðgerða- fræðingar gert gæfumuninn. Þeir hafa bóklegan grunn og verklega kunnáttu til að fylgjast með einkenn- um og geta veitt ráðgjöf um hverju fólk þarf að huga að og hvað það get- ur gert sjálft. Bæklingurinn „Fætur og syk- ursýki“ sem unninn var í samvinnu Félags íslenskra fótaaðgerðafræð- inga og Samtaka sykursjúkra er til hjá Samtökunum og er á heimasíðu þeirra www.diabetes.is. SÓLRÚN Ó. LONG SIGURODDSDÓTTIR, formaður Félags íslenskra fótaaðgerðafræðinga. Fætur og sykursýki Frá Sólrúnu Ó. Long Siguroddsdóttur: Sólrún Ó Long Siguroddsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.