Morgunblaðið - 22.05.2009, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 22.05.2009, Blaðsíða 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2009 ✝ Matthildur Jóns-dóttir fæddist á Frakkastíg 6 í Reykjavík 8. febrúar 1922. Hún andaðist á hjúkrunarheimilinu Sóltúni 13. maí síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Jón Ár- mann Benediktsson bóndi, ættaður frá Eystri-Reyni í Innri- Akraneshreppi, f. 17. des. 1897, d. 2. des. 1963 og Valdís Ragn- heiður Jónsdóttir húsfreyja, ættuð frá Leiti í Dýra- firði, f. 26. okt. 1892, d. 10. okt 1962. Hálfsystir Matthildar, sam- mæðra var Bergþóra, látin. Matt- hildur átti fjórar alsystur, Sigríði, Ingunni, látin, Ruth, látin, og Guð- björgu. Hinn 16. maí 1941 giftist Matt- hildur Ívari Hannessyni vélfræð- ingi frá Ánanaustum í Reykjavík, f. 15. feb. 1913, d. 19. nóv. 1996. Þau bjuggu lengst af sínum búskap í Granaskjóli 11 í Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Ingunn húsmóðir, f. 29. maí 1942, gift Guðmundi Jónssyni húsasmíða- meistara, d. 18. maí 2008, þau eiga 3 börn og 8 barnabörn. 2) Valdís Ragnheiður bankastarfsmaður, f. 20. mars 1948, gift Viðari Stefánssyni lögreglufulltrúa, þau eiga 4 börn og 9 barnabörn. 3) Herdís framkvæmdastóri, f. 12. janúar 1950, gift Inga Þór Vigfússyni flug- virkja, þau eiga 4 börn, 9 barna- börn og 1 barnabarnabarn. 4) Ívar vélfræðingur, f. 1. maí 1958, kvænt- ur Árnýju Sigríði Jakobsdóttur full- trúa, þau eiga 4 börn og 1 barna- barn. Afkomendur Matthildar og Ívars eru 43. Útför Matthildar verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag 22. maí og hefst athöfnin kl. 15. Mig langar til þess að kveðja tengdamóður mína með nokkrum orðum. Ég kom á heimili hennar fyrst fyrir rúmum fjórum áratugum og hitti þar fyrir húsmóður sem á okkar tímum kallast af gamla skól- anum. Húsmóður sem starfaði á heimili sínu og gerði það vel. Ég man ánægjustundirnar sem fylgdu hverri máltíð á heimilinu. Húsbóndinn kom heim í mat í hádeg- inu og þær stundir urðu á hverjum degi verðmætar vegna góðs undir- búnings húsmóðurinnar. Matthildur giftist ung manni sín- um, Ívari Hannessyni vélstjóra. Þau urðu sérlega samrýmd þrátt fyrir að þau væri mjög ólík. Þau gerðu allt saman og tilvera þeirra byggðist á væntumþykju og á heimilinu sem þau lögðu mikla rækt við. Matthildur og Ívar voru vinmörg og heimilið að Granaskjóli 11 var fjölsótt af vinafólki þeirra enda var þar gott að koma. Borðstofa þeirra var vettvangur skoðanaskipta, en pólitískar skoðanir voru einsleitar og hefðu fallið vel inn í þjóðfélags- ástandið nú um stundir. Ívar var félagshyggjumaður og haldinn mikilli réttlætiskennd og samkvæmur því í öllum sínum lífs- háttum. Matthildur var honum sam- stiga í því. Ég hafði gaman og gagn af að hlusta á þjóðfélagsumræður sem ungur maður og hlusta á ákveðnar skoðanir í umræðunum í Granaskjól- inu. Ívar lagði sitt til málanna í hægð sinni þegar gestirnir mættu til fund- ar og Matthildur skerpti á áherslu- punktunum. Matthildur nefndi oft við mig þeg- ar hún sem ung stúlka fór á Siglu- fjörð á síld og átti góðar minningar frá æsku sinni, en hún ólst upp í stórum systrahópi. Starfsvettvangur hennar var þó að mestu heimilið og lagði hún mikla vinnu þar af mörkum sem skilaði sér í frábærum aðbúnaði heimilisfólks- ins og annarra er þangað komu. Ívar lést í nóvember árið 1996 eftir langvarandi veikindi. Mikil breyting varð á högum Matthildar við það og virtist sem hún hefði misst aðaltil- gang lífs síns. Hún bjó áfram á heim- ili sínu að Granaskjóli 11, en líkaði einveran ekki vel. Hún fékk áfall í október árið 2002 og eftir það var hún rúmliggjandi. Síðustu æviárin bjó hún á hjúkr- unarheimilinu Sóltúni við gott atlæti. Starfsfólkinu þar eru færðar þakkir frá aðstandendum Matthildar. Fjölskyldan sótti hana tíðum heim á Sóltún og Ívar sonur hennar sem var hennar helsta stoð og stytta kom til hennar daglega og kunni hún sannarlega að meta það. Að leiðarlokum þakka ég Matt- hildi fyrir góð kynni og vináttu í ára- tugi. Ég naut þess að búa á heimili hennar tvo vetrarparta á árum áður við gott atlæti og á um það góðar minningar. Hvíldu í friði. Viðar Stefánsson Við erum mörg sem höfum verið svo lánsöm að eiga samastað í tilver- unni undir verndarvæng ömmu Matthildar. Hvernig sem veröldin snerist var amma alltaf til staðar með hlýjan faðminn. Í Granaskjólinu hjá Matthildi og Ívari áttum við öll okkar skjól og sælureit. Amma var húsmóðir af guðs náð og tók lagið um leið og hún hrærði í pottunum. Hún stýrði heimilishaldinu af ráðdeild og samviskusemi og kryddaði tilveruna með sinni eðlislægu glaðværð og lífs- gleði. Amma upplifði bæinn Reykja- vík vaxa og verða að risavöxnu út- hverfi. Barnsskónum sleit hún á Langholtinu í stórum systrahóp á býlinu Fögrubrekku. Fagrabrekka stóð upp af Laugardalnum sem þá hét nú reyndar Laugamýri. Til að komast í skólann þurftu systurnar í fyrstu að brölta suður yfir Sogamýr- ina yfir að forvera Laugarnesskóla. Þegar kennsla hófst í Laugarnes- skóla þá var amma ein af sveitastelp- unum sem skokkuðu þar um. Amma fór ung með eldri systrum sínum á síldarvertíð til Siglufjarðar. Á þeim árum var stórborgarbragur yfir Siglufirði og átti amma margar kærar minningar frá þeim sumrum. Amma og afi kynntust á Siglufirði, afi Ívar var þá vélstjóri á einum af Fossum Eimskipafélagsins. Að lok- inni síldarvertíð sigldi amma suður til Reykjavíkur með afa. Eftir það varð ekki aftur snúið, snemmsumars árið 1941 giftu þau sig og réttu ári síðar fæddist mamma. Þau bjuggu fyrst á Karlagötunni en fluttu síðan vestur yfir læk í Granaskjólið. Þar höfðu afi Ívar og félagar stofnað byggingarsamvinnufélag um bygg- ingu sænsku húsanna við Nesveg og Granaskjól. Upphaflega horfðu amma og afi inn í Hvalfjörð út á Jök- ul og upp á Skaga frá Granaskjólinu. Með tíð og tíma minnkaði þó útsýnið með aukinni byggð. Amma hafði græna fingur, trén og blómin voru henni kær og fengu sinn skammt af nærgætni og alúð. Vorið 1991 komu afi og amma í heimsókn til okkar í Kaupmannahöfn. Afi lóðsaði okkur um og rifjaði upp þegar hann sigldi á gömlu höfuðborgina okkar. Einn daginn voru þau sposk á svip og vildu endilega bjóða okkur Röggu út að borða. Yfir kvöldverðinum ljóstruðu þau því upp að nú ættu þau 50 ára brúðkaupsafmæli. Þau voru enn eins og ástfangnir unglingar. Missir ömmu var mikill þegar afi Ívar féll frá. Hún hélt þó sínu striki sem horn- steinn fjölskyldunnar. Síðustu árin dvaldi amma á Sóltúni og naut þar góðrar umönnunar. Hún var stál- minnug og fylgdist grannt með fjöl- skyldunni, afmælisdaga allra barna- barnabarna hafði hún á hraðbergi. Hún hélt lengi í þann draum að snúa aftur í Granaskjólið en hreyfihömlun kom í veg fyrir það. Hún missti þó aldrei móðinn og brosti hvað sem leið verkjum í skrokknum. Og nú fór sól að nálgast æginn, og nú var gott að hvíla sig, og vakna upp úngur einhvern daginn með eilífð glaða kríngum þig. Nú opnar fángið fóstran góða og faðmar þreytta barnið sitt; hún býr þar hlýtt um brjóstið móða og blessar lokað augað þitt. Hún veit, hve bjartur bjarminn var, þótt brosin glöðu sofi þar. (Þorsteinn Erlingsson) Blessuð sé minning Matthildar Jónsdóttur. Jón Guðmundsson og fjölskylda. Elsku amma. Þá er kallið komið. Við kveðjum þig með söknuði en gott er að vita að núna líður þér vel, nú ertu frjáls. Veikindi þín voru löng og ströng og breyttust lífsgæði þín mik- ið. Hlutir sem þú elskaðir að gera eins og handavinna, heimsækja fólk- ið þitt o.fl. voru teknir frá þér að mestu og var það þér þungbært og erfitt oft á tíðum. Það eru margar minningar sem koma upp í hugann þegar við hugsum tilbaka. Þær voru nú ófáar stundirnar sem við áttum með henni ömmu í Granaskjólinu. Alltaf var tekið með gleði á móti okk- ur og ekki munum við nú eftir henni ömmu í fýlu enda ávallt stutt í hlát- urinn hjá ömmu. Eldhúsið var alltaf aðalstaðurinn á Granaskjólinu, þar sátum við og gæddum okkur á góð- gæti sem amma töfraði fram og alltaf var nóg til. Þá sat amma með kaffi- bollann sinn, spjallaði og horfði útum eldhúsgluggann. Ekki þótti henni verra að vera með smá rúgbrauð með kaffinu sínu. Heimilið hennar ömmu var ofboðslega fallegt, alltaf svo hreint og fínt og í minningunni þá glansaði á mublurnar í stofunni. Garðurinn var sá flottasti í götunni, fullur af blómum og háum trjám. Amma hafði unun af því að hugsa um garðinn og heimsótti hún Grana- skjólið árlega á þessum tíma eftir að hún veiktist þegar vorlaukarnir eru í blóma og veðrið svo fallegt. Amma var mikil húsmóðir og lifði hún fyrir fjölskylduna sína, börnin sín, barna- börnin og svo barnabarnabörnin þegar þau komu í heiminn eitt af öðru og eru þær ófáar hosurnar sem amma hefur prjónað á litla fætur í gegnum árin. Amma var virkilega góð manneskja sem bauð alla vel- komna á heimili sitt. Ekki breyttist viðmót hennar þó hún lægi lengi á spítala og síðan á Sóltúni. Alltaf ljómaði hún þegar við komum og sér- staklega þegar litlu barnabarna- börnin voru með. Við eigum eftir að sakna þín mikið, þú varst svo skemmtileg og góð, elsku amma. Vilborg Viðarsdóttir og Júlíana Viðarsdóttir. Elsku besta amma, eða „stut- tamma“ eins og við systkinin vorum vön að kalla hana til aðgreiningar frá langömmu, er búin að kveðja okkur í bili. Við vitum þó að hún er ekki al- farin frá okkur því við eigum svo sannarlega margar og fallegar minn- ingar um hana sem munu ylja okkur um ókomna tíð. Amma var yndisleg- asta amma í heimi, með stórt hjarta og nóg af kærleika sem við höfum svo sannarlega notið alla okkar tíð. Nú er komið að því að leiðir skilji um sinn en við viljum trúa því að við hitt- umst aftur, seinna, en þangað til vit- um við að þau afi gæta okkar allra. Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífs þíns nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði nú sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Amma, við elskum þig alltaf. Þín barnabörn, Valdís, Inga Þóra, Eva Dögg og Davíð Örn. Elsku amma mín, mig langar að minnast þín með örfáum orðum. Þú varst mér svo kær, það er erfitt að hugsa sér að þú sért farin frá okkur en þú varst búin að vera svo veik að maður mátti vita að þetta myndi ger- ast fyrr eða síðar. Alltaf þótti mér gaman að koma til ykkar afa í heim- sókn og á ég mér yndislegar minn- ingar af þér og afa, það er mér minn- isstætt hversu hjartahlý og góð þú varst. Þar sem þú ert farin af þessu til- verustigi óska ég þess að þú sért komin á betri stað og þér líði vel, ég mun alltaf hugsa til þín, elsku amma mín. Hvernig er hægt að þakka, það sem verður aldrei nægjanlega þakkað. Hvers vegna að kveðja, þann sem aldrei fer. Við grátum af sorg og söknuði en í rauninni ertu alltaf hér. Höndin sem leiddi mig í æsku mun gæta mín áfram minn veg. Ég veit þó að víddin sé önnur er nærveran nálægt mér. Og sólin hún lýsir lífið eins og sólin sem lýsti frá þér. Þegar að stjörnurnar blika á himnum finn ég bænirnar,sem þú baðst fyrir mér. Þegar morgunbirtan kyssir daginn, finn ég kossana líka frá þér. Þegar æskan spyr mig ráða, man ég orðin sem þú sagðir mér. Vegna alls þessa þerra ég tárin því í hjarta mínu finn ég það, að Guð hann þig amma mín geymir á alheimsins besta stað. Ótti minn er því enginn er ég geng áfram lífsins leið. Því með nestið sem amma mín gaf mér, veit ég að gatan hún verður greið. Og þegar sú stundin hún líður að verki mínu er lokið hér. Þá veit ég að amma mín bíður og með Guði tekur við mér. (Sigga Dúa.) Davíð Örn Ingason. Elsku langamma, Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt, hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa) Mikið var gaman að búa hjá þér, elsku amma Matthildur. Minningin um árin í Granaskjólinu er mér svo kær. Það var ómetanlegt að geta ávallt leitað til þín. Þú varst heill viskubrunnur og ég vart talandi á ís- lensku. Alltaf varstu full af lífi og húmor, en engan hef ég hitt sem hafði jafn mikinn húmor fyrir sjálf- um sér, eins og þú. Þú hlóst hátt og dátt og aðrir hlógu með. Í seinni tíð sannaðir þú að sóttin er aðeins hamla á líkamanum en ekki viljanum og síst af öllu lífsgleðinni. Ég mun sakna þín sárt en þú munt fylgja mér sem hlý minning um kæran vin, yndislega langömmu, góðan kennara og frá- bæra fyrirmynd. Sigurrós Jónsdóttir. Matthildur Jónsdóttir Elsku amma Matthildur, takk fyrir að hafa alltaf verið svona góð við okkur, þú svo sannarlega kenndir okkur margt, meðal annars að búa til langbestu aspassúpuna. Það var alltaf hægt að treysta á þig, þú leyfðir okk- ur alltaf að gista, spilaðir við okkur og veittir okkur ógleymanlegan félagsskap. Nú þegar þú ert farin mun- um við minnast þín sem bestu ömmu í heimi sem gerði nánast allt fyrir barna- börnin sín. Við munum sárt sakna þín og okkar minningar um þig munu verða í hjörtum okkar að eilífu. Megir þú hvíla í friði, Margrét Lilja og Matthildur (Mattý). HINSTA KVEÐJA ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ANDRÉS BERGSSON, Klapparstíg 5, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri laugardaginn 16. maí. Útför hans fer fram frá Glerárkirkju mánudaginn 25. maí kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir. Arnar Andrésson, Hrefna K. Hannesdóttir, Gísli Andrésson, Jón Andrésson, Margrét Pálsdóttir, Guðrún Andrésdóttir, Jakob Tryggvason, afa- og langafabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, FANNEY SOFFÍA SVANBERGSDÓTTIR, Þingvallastræti 38, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 5. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Hjartans þakkir fyrir samúð og hlýjan hug. Steinunn Árnadóttir, Sigurður J. Sigurðsson, Ragnhildur Thoroddsen, Hildur, Arnar, Árni Fannar, Ólafur Björn, Sigurður Árni og langömmubörn. ✝ Elskulegur móðurbróðir minn, PÁLMI ALFREÐ JÚLÍUSSON frá Syðra-Skörðugili, Skagafirði, verður jarðsunginn frá Glaumbæjarkirkju laugar- daginn 23. maí kl. 14.00. Fyrir hönd frændfólks og vina, Ásdís Sigrún Sigurjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.