Morgunblaðið - 22.05.2009, Page 26
26 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2009
Sumarhús
Þrastahólar - Grímsnesi
Snyrtilegt og nýstandsett 58 m²
sumarhús á góðri 5.500 m²
eignarlóð. 100 m² sólpallur.
Upplýsingar í síma 898-1598.
Lækkað verð aðeins 14,4 millj.
Skoða skipti á hjólhýsi.
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Sumarbústaðaland til sölu
Sölusýning á laugardag kl. 13-16 í
landi Kílhrauns á Skeiðum. Kalt vatn,
sími og rafmagn að lóðarmörkum.
Verið velkomin. Hafið samband í síma
824 3040 eða 893 4609.
www.kilhraunlodir.is
Spennandi gisting
Ættarmót, fyrirtækjahópar, golfhópar,
saumaklúbbar, kínahópar, hvata-
ferðir o.fl. o.fl. Bjóðum upp á frábæra
aðstöðu fyrir alla hópa og fjölskyldur.
Heitir pottar og grill. Stutt í sundlaug.
Allar sjónvarpsstöðvar -líka ef þú ert
boltanörd.
www.minniborgir.is
og Gsm 868-3592.
Rotþrær-siturlagnir
Heildarlausnir - réttar lausnir.
Heildarfrágangur til sýnis á staðnum
ásamt teikningum og leiðbeiningum.
Borgarplast, www.borgarplast.is
s. 561 2211 - Völuteigi 31 -
Mosfellsbæ.
GESTAHÚS 20 m²
44 mm bjálki til sölu.Verð kr. 789.000.
Spónasalan ehf.
Smiðjuvegi 40, gul gata,
sími 567 5550.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Leðurtöskugerð
Sumardagskráin tilbúin. Ekki missa af
námskeiði þetta sumarið. Kjörið fyrir
einstaklinga, saumaklúbba og
gæsahópa. Uppl. í s. 578 1808 og á
www.leduroglist.is
Byrjendanámskeið í tennis
Skemmtileg byrjendanámskeið í
tennis fyrir fullorðna í sumar. Sumar-
skráning hafin. Tíu tíma námskeið.
Upplýsingar í síma 564 4030 og á
tennishollin.is
Til sölu
Úrval af vönduðum handskornum
trémunum frá Slóvakíu á góðu verði.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Vertu örugg/ur í fríinu !
Fáðu þér öryggishólf frá Rökrás.
Rökrás ehf. Kirkjulundi 19.
Sími 565 9393. www.rokras.is.
MERCEDES BENZ S 220 CDI
Ekinn 99 þús. km. Sjálfskiptur,
keyless go, fjarlægðar hraðastillir,
nudd í sætum, stillanlegir demparar,
hæðarstillir, Zenon ljós o.fl.
Uppl. í s. 544 4333 og 820 1071.
Mercedes Benz E 220 CDI
dísel. Avandgarde, sk. 09.2005.
Sjálfskiptur, topplúga o.fl.
Uppl. í síma 544 4333 og 820 1070.
Matador heilsársdekk útsala
165R13 kr. 3.900
155/70R13 kr. 5.500
165/65R14 kr. 7.900
185/65R14 kr. 8.900
195/65R15 kr. 9.900
215/55R16 kr. 16.900
Kaldasel ehf.
hjólbarðaverkstæði,
Dalvegi 16 b, Kópavogi
s. 544 4333.
Hjóla- og bílaflutningakerra
til sölu - Lækkað verð
Lengd 6,60 m, breidd og hæð 2,50 m.
Verð 3,5 millj. Tilboð 1.990 þús. Áhv.
1.200 þús. Glitnir. Afb. 25 þús. Uppl. í
s: 898-1598.
Handslípaðar kristalsljósakrónur
frá Tékklandi og Slóvakíu. Mikið
úrval. Frábær gæði og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
FORD FIESTA 1.6 L DÍSEL
til sölu. Sk. 09.2005. Ekinn 7 þús.
km. Rafmagnsrúður, samlæsingar,
útvarp og CD.
Uppl. í síma 544 4333 og 820 1070.
Ýmislegt
Teg. Bethany - mjög glæsilegur í
D,DD,E,F,FF,G,GG,H skálum á kr.
9.990,
Teg. Amelie - virkilega haldgóður
og flottur í D,DD,E,F,FF,G,GG,H
skálum á kr.9.990
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10 - 14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Blómaskór. Margir litir.
Eitt par 1.000 kr., tvö pör 1.690 kr.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
Hjólbarðar
Til sölu 41” dekk á 20”
krómfelgum - Lækkað verð
Passar undir Ford 350 og Harley
Davidson. Verð: 350 þús.
Uppl. í s: 898-1598.
Kaldasel ehf.
hjólbarðaverkstæði, Dalvegi 16b,
201 Kópavogi. S. 544 4333
Gegn framvísun auglýsingar fæst
15% afsláttur af vinnu og Matador
dekkjum föstud. 22.05.2009.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Iðnaðarmenn
Pípulagningaþjónusta
Jónas pípulagningameistari.
S: 896-0074.
Pípulagnaþjónusta - Stillingar
kerfa - Get bætt við smáverkefnum í
pípulagnaþjónustu, ásamt stillingum
stjórnb. o.fl. Vönduð vinnubrögð.
Föst verðtilboð. Lögg. pípul.meistari.
Sími 893 7124.
Svanhvít, ástkær
mágkona mín og vin-
kona, verður borin til
grafar í dag.
Missirinn er mikill og sorgin
djúp. Hún var mér og syni mínum
sem klettur, ávallt reiðubúin að
hjálpa og vernda, rausnarleg og
réttsýn.
Ég er henni svo óendanlega
þakklát fyrir allt.
Ég votta elsku Þresti, Daney
Rós, Svövu, Þráni, Víði, fjölskyldu
okkar og vinum þeirra hjóna inni-
legrar samúðar.
Hver minning dýrmæt perla að liðn-
um lífsins degi,
hin ljúfu og góðu kynni af alhug
þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem
gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Sonný Þorbjörnsdóttir.
Svanhvít Rósa
Þráinsdóttir
✝ Svanhvít RósaÞráinsdóttir
fæddist í Vest-
mannaeyjum 6. jan-
úar 1964. Hún lést á
Landspítalanum í
Fossvogi 7. maí síð-
astliðinn og fór útför
hennar fram frá
Kópavogskirkju 19.
maí.
Frænka mín Svan-
hvít er látin langt um
aldur fram. Eftir
stutt og erfið veikindi
yfirgefur hún þetta
líf og heldur á vit
nýrra heimkynna.
Svanhvít var stóra
frænka mín þótt hún
væri bara fimm mán-
uðum eldri en ég.
Hún var elsta stelpan
af barnabörnum Jóns
og Klöru á Látrum í
Vestmannaeyjum
sem bæði eru látin.
Er við kvöddum ömmu í janúar sl.
átti enginn von á því að Svanhvít
myndi fylgja henni aðeins örfáum
mánuðum síðar.
Sem jafnaldra systkinabörn lék-
um við okkur saman sem smábörn
og síðan sem unglingar þegar við
Nonni bróðir dvöldumst á sumrin á
Látrum. Þar var alltaf mikið líf og
fjör svo minnti stundum á járn-
brautarstöð þar sem barnabörn og
vinir þeirra sem og fullorðið fólk
kom og fór liðlangan daginn. Svan-
hvít var mikill orkubolti og ásamt
vinnu sinnti hún mörgum verkefn-
um af miklum skörungskap. Hún
tók þátt í alls kyns sjálfboða- og fé-
lagsstörfum og nutu margir henn-
ar á því sviði. Orka hennar var allt-
af mikil og í lok janúar þegar við
fórum saman á þorrablót sagði hún
okkur frá því að hún og Þröstur
ætluðu að fara hringinn á mótor-
hjólunum, sú ferð þeirra bíður
betri tíma í öðrum heimi. Að Svan-
hvít skuli nú vera fallin frá er mjög
mikið áfall fyrir Þröst og Daneyju
Rós augastein hennar og biðjum
við öll fyrir þeim. Umhyggja henn-
ar fyrir þeim var ótakmörkuð og til
marks um það sagði hún við
mömmu sína nokkrum dögum fyrir
andlátið „mamma, getur þú flutt í
bæinn í nokkra mánuði og passað
upp á hann Þröst minn og Daneyju
Rós því ég hef miklar áhyggjur af
þeim“. Fráfall Svanhvítar er líka
mjög mikið áfall fyrir einkabróður
hennar Víði en þau voru mjög náin
og er missir hans mikill.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Minningin um eðalmanneskju lif-
ir og biðjum við góðan guð að
styrkja og varðveita Þröst, Dan-
eyju Rós, Svövu, Þráin og Víði í
sorg sinni.
Úlfar Örn, Elín og synir.
Stundum er maður minntur all-
harkalega á hve lífið getur verið
ósanngjarnt og óskiljanlegt. Svan-
hvít mamma hennar Daneyjar er
dáin. Það óraði engan fyrir því að
þetta myndi enda svona, er hún
var greind með gigtarsjúkdóm fyr-
ir nokkrum vikum.
Svanhvít var einstaklega barn-
góð og var heimili þeirra Þrastar
alltaf opið vinum Daneyjar.
Það er erfitt að trúa því að við
eigum ekki eftir að heyra glaðværu
röddina hennar eða sjá fallega
brosið hennar aftur.
Elsku Þröstur og Daney, þið
hafið staðið ykkur ótrúlega vel á
erfiðum tímum.
Með þessu ljóði sem amma eins
bekkjarfélaga Daneyjar orti viljum
við þakka Svanhvíti samfylgdina.
Við erum rík að hafa fengið að
kynnast Svanhvíti Rósu Þráins-
dóttur og eiga um hana aðeins góð-
ar minningar.
Blóm var eitt til bana slegið
burt úr lífsins ólgusjó
minningar þið mætar eigið
meðan lífs það anda dró.
Almættisins óravegi
aldrei skilja munum við
hljóður grátur hinsta á degi
hægt um losar orkusvið.
Öll við sendum óskir hlýjar
ykkar til á sorgarstund
er leggið þið á leiðir nýjar
lofið draum um endurfund.
Huga ykkar hlýja og næra
hún mun vaka yfir hér
daga og nætur dóttir kæra
og deyfa sorg í huga þér.
Áfram munu árin líða
undur fljótt við leik og störf
föður áttu faðminn blíða
fara í með alla þörf.
(ÞAJ.)
Fyrir hönd foreldra og barna í 6.
S, Snælandsskóla,
María, Ingibjörg og Sigríður.
Elsku Svanhvít, það er svo
óraunverulegt að sitja hérna og
skrifa til þín eins og þú sért ekki
hér.
Við erum ekki búin að meðtaka
þetta allt saman, þetta gerðist svo
snögglega.
Mágkona mín og besta vinkona,
þegar sólargeisli ykkar Þrastar,
hún Daney Rós, var skírð baðst þú
mig að sauma skírnarkjólinn henn-
ar og halda henni undir skírn, á
sama tíma kom ég með nýjan maka
og samband okkar varð enn nán-
ara.
Við vorum eins og heimalningar
hjá ykkur og þið hjá okkur. Þú
varst alltaf svo brosmild og fjörug,
alltaf tilbúin að rétta hjálparhönd
og dugleg að hóa fólki saman.
Við áttum yndislega tíma saman,
margar ferðir voru farnar innan-
lands og alltaf farin ein til tvær
ferðir til útlanda á ári.
Þegar við misstum dóttur okkar
varst þú stoð og stytta í okkar
sorgum, þær mörgu ferðir sem þú
og Þröstur fóruð með okkur til
Englands voru ómetanlegar.
Við höfum fengið að fylgjast með
uppeldi Daney Rósar. Verðum við
ævinlega þakklát fyrir það og mun-
um við halda því áfram, elsku
Svanhvít mín.
Á sunnudeginum fyrir andlát
þitt þá töluðum við við þig í síma,
þú varst svo glöð og bjartsýn.
Elsku Þröstur, Daney, Svava,
Þráinn og Víðir. Guð gefi ykkur
styrk til að takast á við sorgina.
Minning þín mun ævinlega lifa í
hjarta okkar, elsku Svanhvít.
Valborg og Karl
(Vallý og Kalli).