Morgunblaðið - 22.05.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2009
Lægri lagerkostnaður
Eimskip býður fyrirtækjum að geyma
ótollafgreidda vöru eins lengi og óskað er.
EIMSKIP TOLLVÖRUGEYMSLA
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 525 7600 eða sendið fyrirspurnir á netfangið fzo@eimskip.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
0
2
9
6
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
GRÁUHNÚKAR eru sunnan Suður-
landsvegar og talsvert frá því svæði
sem Orkuveitan hefur nýtt hingað til
til orkuöflunar.
Ef vel tekst til með rannsóknir og
borun og svæðið reynist gjöfult eru
áform um að nýta orkuna til að
stækka núverandi Hellisheið-
arvirkjun um 45 MW. Uppsett afl
Hellisheiðarvirkjunar er nú 213 MW.
Búið er að leggja pípu frá Hellis-
heiðarvirkjun, undir Suðurlandsveg
upp að Gráuhnúkum. Pípan átti að
vera fyrir affallsvatn frá virkjuninni
en nú verður hlutunum snúið við og
pípan notuð til að flytja gufu og heitt
vatn til Hellisheiðarvirkjunar. Af-
fallsvatnið verður leitt í jörðu annars
staðar.
Áætlanir um niðurrennsli
Ein af athugasemdum Skipulags-
stofnunar snýr einmitt að affalls-
vatninu. Vill stofnunin að fjallað
verði ítarlega um hvernig áætlanir
um niðurrennsli vegna Hellisheiða-
virkjunar hafi gengið eftir miðað við
það sem kynnt var í matsskýrslum.
Gera þurfi grein fyrir núverandi nið-
urrennslisveitu við Gráuhnúka og
stöðu niðurrennslistilrauna á svæð-
inu norðan Hamragilsvegar.
Skipulagsstofnun telur ekki ljóst,
miðað við fyrirliggjandi gögn og
skýrslur Orkuveitunnar, hvers vegna
fyrirtækið telur ekki nauðsynlegt að
fyrir liggi niðurstöður rannsókn-
arborana áður en gert sé ráð fyrir því
að farið sé í matsferli framkvæmda.
Þarna sé fjallað um jarðhitanýtingu á
umfangsmiklu svæði við Gráuhnúka,
sem að stórum hluta sé óraskað.
Ekki síst þegar höfð sé í huga
reynsla af Stóra-Skarðsmýrarfjalli,
þar sem ekki var ráðist í borun rann-
sóknarholu til að kanna það svæði
frekar áður en áform um stækkun
fóru í matsferli. Skipulagsstofnun
telur að til að undirbyggja betur mat
á áhrifum fyrirhugaðra framkvæmda
hefði Orkuveitan átt að ráðast í bor-
un ofangreindrar rannsóknarholu.
Hún leggur áherslu á að í frummats-
skýrslu verði tekið mið af og fjallað
um endurnýjanleika jarðhitaauðlind-
arinnar, sjálfbærni fyrirhugaðrar
nýtingar og afturkræfni vinnslunnar.
Þá leggur Skipulagsstofnun
áherslu á að í frummatsskýrslu verði
gerð grein fyrir virkni hreinsibún-
aðar, m.a. hversu hátt hlutfall af
brennisteinsvetni sé stefnt að að
hreinsa úr lofti og hvenær áætlað sé
að hreinsibúnaður verði tekinn í
notkun.
Eins og ítrekað hefur komið fram í
fréttum hefur loftmengun frá Hellis-
heiðarvirkjun fundist á höfuðborg-
arsvæðinu og vinnur Orkuveitan að
lausn á því vandamáli.
Næstu skref tekin vegna
orkuvinnslu við Gráuhnúka
Skipulagsstofnun gerir nokkrar athugasemdir vegna matsáætlunar
Morgunblaðið/RAX
Orkuver Áform eru uppi um að orkan frá Gráuhnúkum verði leidd til Hellisheiðarvirkjunar og hún verði forsenda
þess að virkjunin verði stækkuð um 45 MW. Því er talið mikilvægt að vel takist til með jarðborun á svæðinu.
Í HNOTSKURN
»Framkvæmdin felur í sérvinnslu jarðhita, lagningu
vega, borteiga, borholur,
gufuveitu og efnistöku.
»Gráuhnúkasvæðið er flattog gróðurfar fábreytt.
»Við borun á niðurrennsl-isholum hefur hiti mælst
um 300 gráður, sem er með
því heitasta sem mælst hefur á
Hellisheiðarsvæðinu.
Skipulagsstofnun hefur fallist á
matsáætlun Orkuveitu Reykja-
víkur, sem hefur áform um orku-
öflun á nýju svæði við Gráuhnúka
í Ölfusi. Stofnunin gerir nokkrar
athugasemdir.
SÚ bifreið sem var sparneytnust í
hinni árlegu sparaksturskeppni FÍB
og Atlantsolíu reyndist hafa eytt
rúmum þremur lítrum á hverja
hundrað ekna kílómetra.
Niðurstöður keppninnar urðu þær
að í flokki bensínbifreiða með 0 til
1.200 cc vél sigraði Volkswagen Fox
með eyðslu upp á 4,02 lítra á hundr-
að km akstur. Í flokki bensínbifreiða
1.201 til 1.600 sigraði Toyota Yaris
Sol með 4,44 lítra og í flokki 1.601 til
2.000 sigraði Toyota Avensis, sedan
Sol með 5,07. Í flokki 2.500 til 3.500
sigraði Volvo C 30 með 6,09 lítra.
Í flokki dísilbifreiða með 1.201 til
1.600 cc vél sigraði Volkswagen Fox
1,4 Tdi með 3,31 lítra á hundraðið. Í
flokki 1.601 til 2.500 sigraði Skoda
Octavia með 3,02 lítra á hundraðið
og í flokki 2.500 til 3.500 sigraði
Toyota Landcruiser með 6,25 lítra á
hundraðið.
Keppnin fór fram á miðvikudag-
inn og hófst við bensínstöð Atlants-
olíu við Bíldshöfða. 22 bílar voru
skráðir til leiks. Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir borgarfulltrúi ræsti
keppendur.
Eyddi rúm-
um þremur
lítrum
Af stað Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir borgarfulltrúi ræsti bílana.
22 bílar voru skráðir í
sparaksturskeppni