Morgunblaðið - 22.05.2009, Síða 12

Morgunblaðið - 22.05.2009, Síða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. MAÍ 2009 ÁGENGAR framandi dýra- og jurtategundir ógna fjölbreytni lífríkis víða um heim. Ísland er ekki undanskilið. Hér hafa „frekar“ tegundir dýra og plantna troðið sér inn og gengið á hlut þeirra sem fyrir voru. Helsta hættan er sú að lífríkið verði einsleitara og snauðara eftir innrásina. Snorri Baldursson, líffræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands, segir að tegundir breið- ist aðallega út með tvennum hætti; náttúrlegum og svo beint eða óbeint fyrir tilstilli manna. Hann segir það vera í eðli flestra tegunda plantna og dýra að leita nýrra búsvæða. Útbreiðslusvæði þeirra breytist með breyttu loftslagi eða um- hverfi. Margar nýjar tegundir hafa numið hér land á undanförnum árum og fæstar teljast vera ógn enda falla þær eðlilega að því lífríki sem fyrir er. Öllu alvarlegri alla jafna eru innrásir tegunda sem menn flytja á nýja staði, oft langt að. „Lífverur berast t.d. með kjölfestuvatni skipa sem menn flytja á milli heimshafanna. Það getur verið fullt af alls konar kvik- indum sem er svo sleppt með vatninu,“ sagði Snorri. „Menn grafa skurði eins og Súez- skurðinn og Panamaskurðinn og opna leiðir milli vistkerfa.“ Menn hafa einnig viljandi flutt dýr og plöntur á nýja staði.“ Snorri bendir á að hingað hafi verið fluttar og ræktaðar yfir 10 þúsund plöntutegundir. Þær eru víða í görðum eða trjásöfn- um. Flestar eru bundnar við manngert umhverfi, en einstaka „sleppa“ út í villta náttúru og örfáar geta valdið miklum usla. Nefna má lúpínu, skóg- arkerfil og mosann hæruburst til dæmis um plöntur sem hafa ráðist inn í íslenskt gróðurlendi. Ef loftslag hlýnar til frambúðar segir Snorri að skilyrði geti skapast fyrir tegundir, sem hafa hingað til verið bundnar við garða, til að fjölga sér í villtri náttúru og gera líffræðilega innrás. Breytt landnýting á borð við skógrækt hefur t.d. myndað nýja gerð af búsvæðum. „Fæstir hafa neitt á móti nýjum tegundum,“ sagði Snorri. „Lífríkið er síbreytilegt og nýjar tegundir koma og fara eftir því sem umhverfið breytist. Það veldur ekki áhyggjum. En sumar tegundir eru yfirgangssamar. Þær eru oft frum- kvöðlategundir í sínum náttúrlegu heimkynnum, fjölga sér hratt, eru duglegar og kynslóðatími þeirra er stuttur. Menn hafa áhyggjur af þeim.“ Snorri sagði þessar tegundir eyða þeirri líf- fræðilegu fjölbreytni sem fyrir væri. Það væri heilbrigð skynsemi að sporna við innrás þeirra. „Við reynum að hindra að hættulegir sjúkdóm- ar og meindýr berist hingað, líkt og við spornum gegn því að erlend glæpasamtök nái hér fótfestu! Alveg eins ber okkur að hindra að tegundir sem sannarlega spilla upprunalegu lífríki landsins ber- ist hingað og breiðist út um landið.“ Fjölbreytni lífríkisins ógnað  Ágengar tegundir ógna fjölbreytni þess lífríkis sem fyrir er og gera það snauðara  Milli 10 og 15 þús- und plöntutegundir hafa verið fluttar hingað til lands  Sumar hafa gert innrás í íslenskt gróðurlendi Í HNOTSKURN »Dagurinn í dag er helg-aður líffræðilegri fjöl- breytni. Af því tilefni halda Náttúrufræðistofnun Íslands og umhverfisráðuneytið morgunverðarfund á Hótel Sögu. »Svandís Svavarsdóttir um-hverfisráðherra setur fundinn og vísindamenn munu gera grein fyrir stöðu líf- rræðilegrar fjölbreytni hér á landi. Einnig nýjum tegundum sem kunna að ógna fjölbreytni íslenska lífríkisins. Snorri Baldursson líffræðingur. Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is ALASKALÚPÍNAN er tvímælalaust sú jurt sem líf- ríki Íslands stafar mest ógn af, að mati Þóru Ellenar Þórhallsdóttur, grasafræðings og prófessors við Há- skóla Íslands. Hún segir lúpínuna besta dæmið um framandi plöntu sem breiðst hefur út í íslensku líf- ríki. Þóra Ellen er einn fyrirlesara á morgunverðarfundi í dag um ágeng- ar framandi tegundir. Alaskalúpínan var flutt inn haust- ið 1945 til landgræðslu. Henni var sáð víða um land, oftast í örfoka eða gróðursnautt land, til uppgræðslu. „Þeir sem dreifðu lúpínunni upp- haflega töldu að hún myndi hörfa undan öðrum gróðri með tíð og tíma. Nú horfum við upp á að lúpínan er að verða af- skaplega útbreidd. Sums staðar þar sem hún er búin að vera í 30-40 ár eru engin merki um að hún sé að hörfa og það er ekkert víst að hún hörfi,“ sagði Þóra Ellen. Lúpínan getur sennilega ráðist inn í flest ís- lensk vistkerfi þar sem ekki er of votlent fyrir hana. Hún getur farið yfir graslendi og mólendi. „Í þjóðgarðinum í Skaftafelli hefur lúpína nú komið sér fyrir í elsta hluta Bæjarstaðaskógar. Á Íslandi er ekki hægt að finna náttúrleg plöntusamfélög sem eru mikið lokaðri heldur en gömlu birkiskógarnir,“ sagði Þóra Ellen. Lengi var talið að lúpína þrifist ekki á hálendinu. Raunin er þó önnur. Lúpínu hefur nú verið dreift í austurjaðri Þjórsávera, við Jökulheima, vestan Vatna- jökuls í hátt í 700 metra hæð yfir sjó og við Gæsavötn norðan Vatnajökuls í um 900 m.y.s. Á báðum síðast- nefndu stöðunum blómguðust plöntur síðastliðið sum- ar og Þóra Ellen telur líklegt að lúpína hafi þar fellt fræ. Meðal annarra plantna sem teljast vera ógnvaldar er skógarkerfill sem er áberandi í suðurhlíðum Esj- unnar. Hann hefur breiðst mjög hratt út, einkum í kjölfar lúpínu. Einnig má nefna alaskavíði. Þóra Ellen telur að fleiri trjákenndar tegundir geti orðið ógnvald- ar, þótt ekki sjáist mikið af þeim villtum enn. Í þeim flokki nefnir hún t.d. alaskaösp, stafafuru og fleiri víðitegundir. Þóra Ellen telur að nú þurfi að sýna sér- staka aðgát. „Það sem hefur stöðvað útbreiðslu innfluttra teg- undir á Íslandi hingað til er loftslagið: það hefur verið of erfitt fyrir flestar tegundir sem berast hingað. Með hlýnandi loftslagi lækkar þessi þröskuldur heilmikið,“ sagði Þóra Ellen. Íslenska flóran er fremur tegundafátæk og landið víða illa farið eftir aldalanga ofbeit. Þóra Ellen segir fjarri því að það að bæta við nýjum tegundum sé sama og að auðga flóruna. Ágengu innfluttu tegundirnar, líkt og lúpína og skógarkerfill, myndi stórar breiður þar sem mjög fáar aðrar tegundir plantna þrífast og þær mynda einsleit og tegundafátæk samfélög. Ágengar tegundir eru nú taldar ein helsta ógnin við varðveislu líffræðilegrar fjölbreytni á hnattræna vísu. Morgunblaðið/Eyþór Lúpína Ýmislegt bendir til þess að lúpínan muni ekki hörfa af sumum svæðum þar sem loftslagið hentar. Alaskalúpínan hefur gert innrás í vistkerfið  Lúpínan getur sennilega ráðist inn í flest íslensk gróðurlendi, að undanteknum svæðum á borð við votlendi Þóra Ellen Þórhallsdóttir NÝJUM tegundum óvelkominna smá- dýra fjölgar hér og er líklegt að svo verði áfram, ekki síst ef loftslag hlýn- ar. Erling Ólafsson, skordýrafræð- ingur hjá Nátt- úrufræðistofnun Íslands, nefndi fyrst Spánarsnigil- inn þegar hann var spurður hvaða óvelkomna smá- dýr kæmi fyrst upp í huga hans. „Spánarsnigillinn skemmir flest sem fyrir honum verð- ur og enginn hemur hann, nema kannski Vetur konungur – en dugar samt ekki til,“ sagði Erling. Annað nýlegt skaðlegt smádýr hér er birkikemba, lítið fiðrildi sem fannst fyrst í Hveragerði fyrir nokkrum ár- um en er nú komið í Fossvogshverfið. „Hún fer ansi illa með birkitré,“ sagði Erling. Eng- inn veit hvaðan birkikemban kom en hún er algeng í Evrópu. Ekki er vitað hvort birki- kemban mun fara út í skógana eða halda sig í görðum. Einhverjar sníkjuvespur kunna að uppgötva lirfur fiðrildisins en það get- ur tekið tíma áður en jafnvægi kemst á. „Nýir landnemar sem verða mein- semd eru oft verstir í upphafi, svo að- lagast þetta.“ Í Hveragerði hefur einnig numið land folafluga, sem er ný hrossa- flugutegund hér á landi. Folaflugan er miklu stærri en gamalþekkta hrossa- flugan. Folaflugan er til vandræða því hún eyðileggur gróður. Athyglisvert er að þessar tvær tegundir fundust fyrst í Hveragerði. Erling benti á að þangað bærist margt sem flutt væri inn til garðyrkju. Þar eru líka kjör- aðstæður vegna jarðhita og gróð- urhúsa. „Það má fullyrða að mjög mörg af þeim smádýrum sem lifa hér hafi kom- ið með manninum. Eftir miðja síðustu öld hefur þetta verið að aukast,“ sagði Erling. Mikilli aukningu vöruflutn- inga, stærri farartækjum og flutn- ingatækni á borð við vörugáma fylgdu stórauknir pödduflutningar um heim- inn. Líklega er ómögulegt að stöðva útbreiðslu þessara smádýra. Nýjar pöddur nema land Spánarsnigill Hann ku vera mikill skemmdarvargur og étur allt. Birkikemba veldur skaða á birki. Erling Ólafsson  Minkurinn var fluttur inn til loð- dýraeldis vegna skinnanna á 4. ára- tug síðustu aldar. Hann slapp og gerði innrás í íslenska náttúru og hefur valdið miklum usla í fuglalífi og eins fiskivötnum.  Kanínur hafa sloppið hér eða verið sleppt og þykja víða til vandræða. Þær éta blóm og ungar hríslur í görðum, gróðrarstöðvum og kirkju- görðum. Eins hreiðruðu þær um sig í lundaholum í Vestmannaeyjum og úthýstu lundunum. Kanínuplágan í Ástralíu er frægt dæmi um innrás. Menn fluttu kanínur til Ástralíu. Þær fjölguðu sér gríðarlega og höfðu hroðaleg áhrif á gróður.  Vatnanökkvi eða vatnahýasinta er frá Suður-Afríku en hefur borist víða um Evrópu. Hún þekur yfirborð vatna, skyggir á sólarljósið og kæfir þannig allt annað líf í vatninu. Plant- an er svo gróskumikil að hún getur truflað siglingar um skipaskurði og stíflað kælikerfi bátavéla. Miklu er kostað til að eyða þessari plöntu í Evrópulöndum.  Nílarkarfa var sleppt í Viktor- íuvatn í Afríku. Hann er gráðugur og étur nánast allar innfæddar teg- undir fiska í vatninu. Nílarkarfinn er þó veiddur í miklum mæli og til hagsbóta fyrir mannfólkið en um leið skaðvaldur með tilliti til líf- fræðilegrar fjölbreytni í vatninu.  Rússar fluttu Alaskakrabba úr Japanshafi í Barentshaf. Nú breiðist hann hratt út og er að fikra sig niður með ströndum Noregs. Hann er frekur og eyðir öllu sem fyrir er. Alaskakrabbinn er veiddur til mat- ar.  Sebraskel barst úr Kaspíahafi í vötnin miklu í Bandaríkjunum og hefur breiðst þar gríðarlega út. Skelin tímgast mjög ört, drepur inn- lendar skeljar og sest á allt sem fyrir er. Hún er meðal annars til stórkost- legra vandræða í inntaksopum virkj- ana og öðrum mannvirkjum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.