Morgunblaðið - 02.07.2009, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 02.07.2009, Blaðsíða 30
30 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2009 Sudoku Frumstig 6 5 4 7 3 1 8 9 6 5 3 4 2 8 5 8 9 3 2 9 1 2 8 7 2 3 5 6 5 4 7 8 1 1 7 3 7 2 4 3 4 9 6 1 7 4 8 5 5 1 1 5 2 3 6 2 9 5 6 1 8 9 6 4 7 3 8 1 7 4 4 7 8 9 5 3 2 6 1 6 9 2 7 4 1 5 8 3 5 1 3 8 2 6 9 7 4 7 4 6 2 8 5 1 3 9 3 8 9 6 1 4 7 5 2 1 2 5 3 7 9 8 4 6 2 5 4 1 3 8 6 9 7 9 3 1 5 6 7 4 2 8 8 6 7 4 9 2 3 1 5 1 2 7 3 6 5 9 4 8 3 8 4 9 7 2 5 6 1 6 9 5 1 8 4 2 7 3 5 4 1 2 3 7 8 9 6 8 7 6 4 1 9 3 2 5 9 3 2 6 5 8 4 1 7 2 5 8 7 9 6 1 3 4 7 1 9 8 4 3 6 5 2 4 6 3 5 2 1 7 8 9 3 9 4 5 2 6 7 1 8 1 8 5 9 3 7 2 4 6 6 2 7 4 1 8 5 3 9 9 3 6 7 4 1 8 2 5 5 7 1 2 8 9 4 6 3 2 4 8 6 5 3 1 9 7 8 6 9 1 7 2 3 5 4 7 5 2 3 6 4 9 8 1 4 1 3 8 9 5 6 7 2 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er fimmtudagur 2. júlí, 183. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín. (Jóhannes 14,15.) Víkverji er hugsi yfir rauðgrænniríkisstjórn Steingríms J. og Jóhönnu Sigurðardóttur. Staðan er vissulega erfið, skuldirnar miklar og brýnt að bregðast við tæplega 500 milljóna króna hallarekstri rík- issjóðs á degi hverjum. En rauð- græna ríkisstjórnin er að mati Vík- verja á undarlegri vegferð. Skattahækkanir bitna sem fyrr á þeim sem þegar bera þyngstar byrðar, meðaltekjufólki og barna- fólki. Og ríkisstjórnin boðar frekari glaðning til handa þeim sem þegar eru að kikna undan skattpíningunni. Einhvern tímann var sagt að hægt væri að mjólka kú svo að nyt- in félli úr henni. x x x Niðurskurðurinn, sem norrænuvelferðarstjórninni dettur fyrst í hug að beita, er látinn skella þungt á þeim sem fyrir höfðu lökust kjörin, ellilífeyrisþegum og ör- yrkjum. Í gær, 1. júlí, tóku gildi breytingar á lögum um almanna- tryggingar, breytingar sem skerða kjör bótaþega. Víkverji hélt að svo mikið væri búið að naga í tekjur hjá þeim sem byggja afkomu sína að verulegu leyti eða eingöngu á kerfi almanna- trygginga, að lengra yrði vart geng- ið. En velferðarstjórn Steingríms J. og Jóhönnu Sigurðardóttur er ósammála Víkverja. Ef marka má þær ráðstafanir sem nú er gripið til er verulegt svigrúm, ef til vill um- talsvert svigrúm til að skerða enn frekar tekjur elli- og örorkulífeyr- isþega. x x x Á sama tíma og þessi skerðingtók gildi, sátu ráðherrar heil- brigðis-, félags- og tryggingamála með norrænum starfssystkinum sínum og ræddu velferð í kreppu. Í sameiginlegri ályktun ráðherranna segir orðrétt: „Ef Norðurlandaþjóðirnar vilja vera leiðandi á heimsvísu í velferð- armálum verða þau að vera sam- taka um að slá skjaldborg um vel- ferðarkerfið.“ Víkverji veltir því fyrir sér hvort þetta sé sama skjaldborgin og slá átti um heimilin í landinu. víkver- ji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 skopvísa, 8 snúin, 9 skýja- þykkni, 10 elska, 11 les, 13 mannsnafn, 15 hringiðu, 18 svip- að, 21 rekistefna, 22 gleðjast, 23 óalið, 24 rifin í tætlur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 hikar, 4 fákur, 7 glatt, 8 kúlan, 9 tún, 11 reit, 13 kimi, 14 ærinn, 15 slór, 17 ásjá, 20 hló, 22 ormar, 23 ljúfa, 24 aðrar, 25 geiga. Lóðrétt: 1 hagur, 2 krapi, 3 rétt, 4 fíkn, 5 kuldi, 6 runni, 10 úrill, 12 tær, 13 kná, 15 slota, 16 ólmar, 18 skúti, 19 ábata, 20 hrár, 21 ólag. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Lóðrétt | 2 báran, 3 fífl, 4 komast við, 5 hnötturinn, 6 sárt, 7 skordýr, 12 vond, 14 gervitanngarð, 15 róa, 16 reika stefnulítið, 17 sori, 18 gróði, 19 gauragangur, 20 tómt. Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. d4 e6 2. c4 Rf6 3. Rf3 b6 4. a3 Ba6 5. Dc2 Bb7 6. Rc3 c5 7. e4 cxd4 8. Rxd4 Bc5 9. Rb3 Rc6 10. Bg5 Rd4 11. Rxd4 Bxd4 12. Bd3 Db8 13. Re2 h6 14. Bd2 Bc5 15. b4 Be7 16. O-O O-O 17. f4 a5 18. e5 Re8 19. bxa5 bxa5 20. Hab1 Bxa3 21. f5 Bb4 22. Bxb4 axb4 23. Hxb4 Dc7 24. Kh1 exf5 25. Bxf5 Bc6 26. Dd2 Dxe5 27. Hb3 Rd6 28. Bb1 Hfe8 29. Rg3 Hab8 30. Hc3 He7 31. c5 Re4 32. Bxe4 Bxe4 33. h3 Bg6 34. Kh2 Hc8 35. Dc1 d5 36. c6 d4 37. Hc5 Dd6 38. Dc4 Staðan kom upp á Sigeman-mótinu sem lauk fyrir skömmu í Málmey í Sví- þjóð. Sigurvegari mótsins, Nigel Short (2674) frá Englandi, hafði svart gegn Ivani Sokolov (2669) frá Hollandi. 38… Bd3! 39. Dxd3 Dxc5 40. Rf5 De5+ 41. Kh1 He6 42. Rxd4 Hd6 43. Df5 Dxf5 44. Rxf5 He6 45. Hc1 h5 46. Kh2 g6 og svartur vann skömmu síðar. Svartur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Þvingun án talningar. Norður ♠KDG94 ♥KD93 ♦G63 ♣Á Vestur Austur ♠73 ♠1085 ♥52 ♥G87 ♦ÁD952 ♦1074 ♣D1052 ♣9864 Suður ♠Á62 ♥Á1064 ♦K8 ♣KG73 Suður spilar 6G. Besta slemman er ótvírætt 6♥ í suð- ur, en leiðin þangað reyndist torfær í bikarleik Símonar Símonarsonar og Guðmundar Hermannssonar. Sex grönd voru spilið á báðum borðum. Liðsmaður Símonar spilaði tígli að kóngnum og fór niður, en hinum megin hafði sveitarforinginn spurnir af tíg- ulstyrk í vestur. Björn Eysteinsson vakti í norður á Precision-laufi, Guð- mundur svaraði sterkt með 2G, Björn spurði um háliti og svarið á 3♦ sýndi hjartalit. „Dobl,“ sagði vestur, útspilsv- ísandi. Í framhaldinu tókst Birni ekki að fá Guðmund til að melda hjarta, gafst á endanum upp og stökk í 6G. Út kom spaði. Guðmundur tók fimm slagi á litinn og henti laufi og tíguláttu. Tók ♣Á, spilaði hjarta fjórum sinnum og endaði heima. Þrjú spil á hendi: ♦K og ♣KG í suður og … aumingja vestur. Stjörnuspá (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það getur oft reynst erfitt að fá annað fólk á sitt band. Horfðu í spegil og veittu þér þá viðurkenningu sem þú átt inni. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú átt auðvelt með að hrífa áhrifa- mikið fólk með þér þessa dagana. Nú er tími til að slappa af og síðan skaltu vinna úr hlutunum. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Ef þú stendur með þér, leyf- irðu öðrum að gera það sama. Kannski verður þú líka beðin(n) að taka að þér listrænt verkefni. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Haltu þig við jörðina og þá verða engin ljón á veginum. Reyni ein- hver að ráðskast með þig í dag muntu taka það óstinnt upp. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Í dag er gott að láta eitthvað eftir sér. En reiknaðu fyrst út hvað þú skuldar mikið og mundu að lengi má manninn reyna. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það mun reyna verulega á þig í dag, en þú ert tilbúinn í slaginn og hef- ur ráð til þess að sjá fram úr erfiðleik- unum. Ný hárgreiðsla væri frábær fyrir þig. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú hefur auga fyrir verðmæti og safnið þitt er meira virði en þig grunar. Mundu að verður er verkamaður launa sinna og það á við um þig sem aðra. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Undarlegur dagur er í vændum. Haltu í trygga vini og geymdu þá í innsta hring, þar sem þeir eiga heima. Vertu viss um að hlusta vand- lega á það sem aðrir segja. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það léttir lífið að hafa gam- ansemina alltaf við höndina. Haltu bara þínu striki, þinn tími mun koma. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Ábyrgð þín á börnum liggur þungt á þér enda er einhver svartsýni að angra þig í dag. Láttu óþolinmæðina þroska þig. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þig langar til að koma skipu- lagi á hlutina bæði í vinnunni og á heimilinu og hefja að því loknu nýjan kafla. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú veist sitt af hverju en til allr- ar hamingju veistu ekki allt, enda væri það mjög þreytandi fyrir þá sem eru í kringum þig. 2. júlí 1876 Skoska gufuskipið Verona lagði af stað frá Akureyri til Glasgow með 752 Norðlend- inga sem voru að flytja til Nýja- Íslands. Mun það hafa verið fjölmennasta förin héðan til Vesturheims. 2. júlí 1907 Tveir þýskir menn, jarðfræð- ingur og listmálari, drukknuðu á Öskjuvatni, dýpsta vatni landsins. Minningartafla um slysið var sett upp árið 1951. 2. júlí 1937 Einkasnekkja Adolfs Hitlers, Aviso Grille, kom til Reykjavík- ur frá Kiel, að vísu án Hitlers. Tilgangurinn var að reyna sjó- færni skipsins, sem var 2.600 smálestir. Í áhöfn voru 240 manns. 2. júlí 2000 Bítillinn Paul McCartney, einn þekkt- asti tónlist- armaður aldarinnar, kom til Ís- lands ásamt vinkonu sinni Heather Mills. Þau ferð- uðust um landið í nokkra daga, nutu veðurblíðunnar og skoð- uðu helstu náttúruperlurnar. 2. júlí 2000 Þingvellir voru samþykktir á heimsminjaskrá Menningar- málastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) á fundi í Suzhou í Kína. Á skránni eru staðir sem taldir eru hafa ein- stakt gildi fyrir alla heims- byggðina. 2. júlí 2005 Björk Guðmundsdóttir kom fram á Live 8 tónleikunum í Japan, en þeir voru sagðir stærsti tónlistarviðburður sög- unnar. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … „HVER veit nema ég veiði svo lax í Ölfusá,“ segir Þorlákur Karlsson, forseti Viðskiptadeildar Há- skólans í Reykjavík. Hann ver afmælisdeginum í sumarbústaðnum á Hrauni í Ölfusi við að dytta að og vinna í lóðinni, en Þorlákur ólst upp á Hrauni og er sveitapiltur inn við beinið. Afmælið var aldrei sérstaklega stór viðburður þegar hann var ungur, enda mikið að gera í sveit- inni í júlíbyrjun og enginn skóli. Þorlákur er því ekkert sérstaklega mikið afmælisbarn í sér. „En ég kem heim seinnipartinn og þá hlýtur eitthvað að gerast,“ segir Þorlákur. Fjölskyldan er nefni- lega öll í vinnunni, bæði Kristjana Skúladóttir eiginkona hans og syn- irnir tveir og komust því ekki með í bústaðinn. Þorlákur er nú í sumarfríi en svo vill til að hann sinnir þó tveimur störfum um stundarsakir. 1. ágúst næstkomandi lætur Þorlákur af starfi forseta viðskiptadeildar HR eftir margra ára stjórnunarstörf og snýr sér eftir það aftur að rannsóknum og kennslu. „Svo hef ég tekið við kennslufræði- og lýðheilsudeild HR á meðan forsetinn þar er í barneignarleyfi.“ Því má segja að Þorlákur sé á tveimur stöðum í einu en þó í sumarfríi. onundur@mbl.is Þorlákur Karlsson á 55 ára afmæli í dag Á tveimur stöðum í einu 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Röng kross- gátumynd birtist í Morgun- blaðinu gær, 1. júlí. Beð- ist er vel- virðingar á mistökunum og rétt mynd mynd birt hér til hægri. Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.