Morgunblaðið - 02.07.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.07.2009, Blaðsíða 22
22 Minningar MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚLÍ 2009 ✝ Eyþór Arnórssonfæddist í Reykja- vík 15. júlí 1955. Hann lést á sjúkra- húsi Akraness 23. júní síðastliðinn. Foreldrar hans eru hjónin Arnór Karls- son, f. 7. maí 1931, d. 10. október 2000, og Sigurbjörg Guð- mundsdóttir, f. 4. apríl 1925. Bróðir Eyþórs var Unnar, f. 14. maí 1959, d. 11. desember 1996. Sonur Eyþórs og Margrétar Guðmundsdóttur er 1) Arnór, f. 18. nóvember 1976, kvæntur Haf- dísi Björk Albertsdóttur, synir þeirra Bjarki, f. 18. júlí 2003, og Ægir, f. 3. nóvember 2007. Dóttir Eyþórs og Sigrúnar Pálmadóttur er 2) Eva Lind, f. 15. desember 1980, dóttir hennar er Snædís Birta, f. 2. ágúst 2001. Eiginkona Eyþórs er Hugrún Fanney Vilhjálmsdóttir, f. 16. september 1962. Börn þeirra eru: 3) Fannar Þór, f. 24. októ- ber 1982, sambýliskona Elín Guðrún Tómasdóttir. 4) Sig- urbjörg, f. 10. september 1990. Fóstursonur Eyþórs og sonur Hugrúnar er 5) Heiðar Logi Sig- tryggsson, f. 11. maí 1980, sambýlis- kona Guðbjörg Ösp Einarsdóttir, sonur þeirra er Davíð Logi, f. 19. desem- ber 2007, fyrir á Heiðar Sædísi Ósk, f. 7. september 1998. Eyþór fæddist í Reykjavík en flutti svo árið 1956 í Breiðdalsvík með foreldrum sínum og bjó þar til ársins 1964 þegar fjölskyldan flutti á Sauðárkrók. Árið 1983 fluttust þau Eyþór og Hugrún í Hlíðarbæ í Hvalfjarðarsveit þar sem hann bjó þar til yfir lauk. Eyþór vann ýmis störf en aðal- starf hans var vélavinna sem átti hug hans allan. Eyþór var mikið náttúrubarn og unni sér hvergi betur en í guðsgrænni náttúrunni með sem minnst af þægindum nú- tímans og má þar nefna bílferðir um fáfarna vegi hálendisins og veiði í góðra vina hópi. Útför Eyþórs fer fram frá Hall- grímskirkju í Saurbæ í Hvalfjarð- arsveit í dag, 2. júlí, kl. 14. Elsku pabbi minn, ég trúi þessu varla að þú sért farinn frá okkur þó svo að það hafi verið aðdragandi að því. Nú þegar ég sest hérna niður og hugsa um þig koma mér í hug allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an. Við gátum rætt mikið um vélar og allt sem tengist þeim. Við unnum mikið saman og þú kenndir mér svo margt í kringum vinnuna og varst þú besti maðurinn í það og vonandi hef ég lært mikið af þér. Við vorum ekki alltaf sammála og en oftast komumst við þó að niðurstöðu um málin. Það var frábært að fá að kynnast þér svona vel. Ég kveð þig með miklum söknuði og ég mun allt- af minnast þín, elsku pabbi. Fannar Þór. Elsku pabbi minn. Nú hefurðu loksins fengið friðinn eftir þessi erf- iðu veikindi sem þú barðist við. Ég trúi því ekki að þú sért farinn, ég sakna þín svo mikið og vildi óska að þú værir ennþá hérna heill heilsu með okkur. Þú varst alltaf svo sterk- ur og sagðist alltaf hafa það svo „fínt“, þrátt fyrir öll veikindin. Ég var alltaf litla stelpan þín og þú pass- aðir alltaf svo vel upp á mig. Það sem stendur mér efst í minni eru all- ar ferðirnar sem við fjölskyldan fór- um í saman, t.d. útlandaferðin til Te- nerife, veiðiferðin á Arnarvatnsheiði og allar heimsóknirnar á krókinn til ömmu. Ég gæti endalaust talið því þær voru svo margar ferðirnar sem við fórum í. Þú hafðir rosalega gam- an af útiverunni og af veiði, þér fannst líka gaman að hlusta á tónlist og gerðir mikið af því, sérstaklega síðustu ár. Þú unnir líka vinnunni þinni og gast talað mikið um gröfur og bíla. Það er svo margt sem mig langar að segja en læt þetta duga í bili og þakka þér fyrir allar góðu stundirn- ar og fyrir að vera svona góður og elskulegur pabbi. Ég geymi allar góðu minningarn- ar í hjarta mínu og bið guð að geyma þig. Sigurbjörg. Elsku Eyþór, mig langar að minn- ast þín í nokkrum orðum. Mér fannst þú mikill maður sem ég leit upp til. Þú varst maður fjölskyld- unnar og passaðir vel upp á þína, varst góður vinur og mikið náttúru- barn. Oft kom fyrir að maður hristi bara hausinn yfir þér þegar þú varst stundum á leiðinni upp á hálendið að skoða, en þetta varst bara þú, enda sló það mig mikið þegar þú varðst veikur því alltaf fannst mér þú einn af þeim sterkari sem og þú varst. Mig langar að þakka fyrir að hafa kynnst eins miklum manni og þú varst og ég mun minnast þín um ókomna tíð. Guð geymi þig. Þinn Heiðar Logi. Elsku „kúturinn“ minn þá er kom- ið að kveðjustundinni. Þegar ég hugsa um síðustu tíu árin átta ég mig á því hversu heppin ég er að hafa fengið að kynnast þér og hversu vel þú og fjölskyldan þín tók- uð á móti mér. Mér fannst alltaf gott að koma yfir á fjórtán, eins og við köllum húsið þitt og Hugrúnar, því þú tókst alltaf svo vel á móti mér og svo varstu alltaf til í að spjalla, já, eða þræta um hvernig landið liggur, ég held að þú hafir notið þess jafn vel og ég að fá að þræta aðeins um staðarhætti og annað. Í mínum aug- um varstu ekta íslenskur víkingur þar sem náttúran og allt sem landið gefur var þitt. Alltaf varstu til í að aðstoða ef það var eitthvað sem mig vantaði hjálp við og hversu oft var það sem þú skutlaðir mér í vinnuna eða sóttir mig þegar það var mikill snjór og ég þorði ekki á mínum bíl þá kom vík- ingurinn upp í þér og þá var gaman að spjalla við þig í rólegheitunum þar sem þú varst sennilega að róa mitt litla hjarta í „óveðrunum“. Ég gæti haldið svona lengi áfram en nú ætla ég að kveðja þig. Þú varst gull að manni og ég þakka þér fyrir allt sem þú gafst af þér. Megi Guð styrkja fjölskylduna og Guð geymi þig. Þín tengdadóttir Elín Guðrún. Vinur okkar og mágur, Eyþór, er látinn. Barátta hans við illvígan sjúkdóm er á enda. Góður drengur er fallinn frá í blóma lífsins eftir hetjulega baráttu við skæðan sjúkdóm, sem hann tókst á við af miklu æðruleysi. Þar var Ey- þóri best lýst, rólegur og dulur en samt ákveðinn og tók því sem að höndum bar hverju sinni.Það er stórt skarð sem hann skilur eftir sig í fjölskyldunni. Hann var mikill fjöl- skyldumaður og traustur vinur. Ey- þór var frábær verkmaður til allra verka og eru mörg verk hans sem bera þess merki að þarna var lista- maður á ferð og var hann eftirsóttur eftir því. Síðasta áratuginn vann hann við sitt eigið vinnuvélafyrir- tæki, sem hann byggði upp með fjöl- skyldu sinni og vann þar með Fann- ari syni sínum. Eyþór hafði gaman af ferðalögum og veiðiskap í góðra vina hópi og mun hans verða sárt saknað úr þeim ferðum, sem og öðrum samveru- stundum sem við áttum oft saman. Margar minningar sækja á hug- ann á svona stundum en engin orð geta linað sárasta sársaukann. Minningin um góðan dreng lifir áfram. Elsku Hugrún, Sibba, Fannar, El- ín, Heiðar og Guðbjörg, við sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðj- ur. Einnig vottum við Sigurbjörgu móður hans og öðrum börnum hans, Arnóri og Evu Lind, okkar innileg- ustu samúð. Megi guð styrkja ykkur og fjölskylduna í sorginni. Hallfreður og Kristný. Sárt þykir mér að þurfa að kveðja þig, Eyþór. Fyrstu kynni mín af þér voru þeg- ar ég byrjaði að vinna í Ferstiklu fyrir níu árum, mér er minnistæðast hvað þú varst alltaf almennilegur, ósjaldan var manni boðið í grill eftir langan vinnudag og áttir þú það líka til að koma og hjálpa okkur að ganga frá ef mikið var búið að vera að gera. Samband mitt við þig og Hugrúnu hélst þótt ég væri hætt að vinna í Ferstiklu og fannst mér alltaf gott að koma í sveitina til ykkar, enda alltaf vel tekið á móti mér. Það var því mjög ánægjulegt þegar ég náði mér í mann að þá fékk ég bestu tengdaforeldra sem hægt er að hugsa sér, þig og Hugrúnu. Húmor þinn var góður og man ég margar góðar stundir í sveitinni þar sem mikið var hlegið og þrátt fyrir öll veikindi þín þá hélstu húmornum fram á síðustu stundu. Jóna sagði við mig að það væri ótrúlegt hvað yndislegir menn eins og þú þyrftu oft að kveðja allt of snemma og er ég henni sammála. Ég á mjög margar góðar minningar um þig og ég er ótrúlega heppin að hafa fengið að kynnast þér. Guðbjörg Ösp. Þetta er hann Eyþór, hann er vélamaður að norðan. Þetta eru orð systur minnar er hún kynnti okkur fyrir tæpum 30 árum. Fljótlega hófu þau búskap á Akranesi og bjuggu þar um tíma, en byggðu sér framtíð- arheimili á Hvalfjarðarströndinni. Nú þegar sól er hæst á lofti og nátt- úran skartar sínu fegursta er mágur minn allur eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Stærsta hluta ævi sinnar vann Eyþór á þungavinnuvél- um og þá lengst á sínum eigin vél- um; sonurinn Fannar hefur unnið í mörg ár við þá útgerð með honum. Einnig ráku þau, hann og Hugrún, loðdýrabú um tíma og náðu góðum tökum á skinnaverkun. Eyþór var einstaklega laginn vélamaður, og reyndar var hann laginn og verk- hagur við hvaðeina sem hann tók sér fyrir hendur. Eyþór var mikill nátt- úruunnandi og naut sín vel á hálendisferðum, einnig hafði hann gaman af að kasta fyrir fisk, var þol- inmóður og athugull. Ég fór í nokkr- ar veiðiferðir með honum, m.a. í Breiðdalinn þar sem hann sleit barnsskónum, á Arnarvatnsheiðina þar sem hann var með hópinn sinn, Hallá á Skagaströnd er ofarlega í huga, þar áttum við góða daga með sonum okkar. Mér þó efst í huga er við fórum tveir síðla sumars í fyrra í Fljótin með viðkomu hjá móður hans á Sauðárkróki, í þeirri ferð var nátt- úrubarnið í essinu sínu. Eyþór mágur minn var stór og æðrulaus í sínu veikindastríði og gafst ekki upp fyrr en í fulla hnef- ana. Að lokum þakka ég og fjölskylda mín mági mínum samfylgdina og sendi systur minni, móður hans, börnum hans og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúðarkveðjur. Farðu í friði, kæri vinur. Pétur Óðinsson. Eyþór Arnórsson Þóra Kristjónsdóttir ✝ Þóra Kristjóns-dóttir fæddist á Djúpavogi 2. júlí 1930. Hún lést laug- ardaginn 6. desem- ber síðastliðinn og var kvödd í Seyð- isfjarðarkirkju 15. desember. Meira: mbl.is/minningar ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, sonur, bróðir, mágur, afi og langafi, HALLDÓR GUÐMUNDSSON, Aðalstræti 28, Akureyri, lést á heimili sínu þriðjudaginn 23. júní. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 3. júlí kl. 13.30. Bragi Halldórsson, María Pétursdóttir, Kristján Halldórsson, María Magnúsdóttir, Svala Guðmundsdóttir, Guðmundur M. Guðmundsson, Jónína Guðríður Davíðsdóttir, Jósef Kristján Guðmundsson, Kolbrún Þórunn Guðmundsdóttir, Hrafnkell Guðmundsson, Steinunn Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Móðursystir okkar, MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR, dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, lést föstudaginn 26. júní. Útförin verður gerð frá Höfðakapellu fimmtudaginn 9. júlí kl. 13.30. Kolbrún Matthíasdóttir, Guðný Matthíasdóttir, Jón Matthíasson, Halldór Matthíasson. ✝ Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, G. HÓLMFRÍÐUR JÓNSDÓTTIR fóstra, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi miðvikudaginn 1. júlí. Fyrir hönd aðstandenda, Sigurður Jónsson, synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, KJARTAN JÓNSSON skrifstofumaður, Kríuhólum 4, lést á líknardeild Landspítala Landakoti þriðju- daginn 30. júní. Útförin fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi miðvikudaginn 8. júlí kl. 13.00. Einar Kjartansson, Marcia Maren Vilhjálmsdóttir, Árni Kjartansson, Margrét Örnólfsdóttir, Ólafur Kjartansson, Kristín Dúadóttir, Elín Kjartansdóttir, Agnar Kristjánsson, Arnfríður Kjartansdóttir, Jóhann Ragnar Kjartansson, Jónína Guðjónsdóttir, Óttar Kjartansson, Hanna Kristín Sigurðardóttir, Bryndís Arngrímsdóttir, afabörn, langafabörn og systkini hins látna. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, ÖRN HARÐARSON, Snorrabraut 61, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum laugar- daginn 27. júní. Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 3. júlí kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Droplaugarstaða eða að láta líknarfélög njóta þess. G. Kristín Jónsdóttir, Arna Hörður Arnardóttir, Guðrún Ásta Arnardóttir, Jón Sævarsson, Ásthildur Erla Gunnarsdóttir, Skúli Skúlason, Inga Kristín Skúladóttir, Ágústa Rut Skúladóttir, Magnús Jón E. Gunnarsson, Hanna Rún Eiríksdóttir, Gunnar Þorri Magnússon, Ísak Einir Magnússon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.