Morgunblaðið - 05.07.2009, Síða 30
30 Sprotafyrirtæki
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
Brennandi áhugi á bílum ogeinskær uppfinningasemi erlíklega kveikjan að sprota-fyrirtækinu Jökum ehf.
Fyrirtækið hefur þróað nýstárlega
fjallabíla fyrir ferðaþjónustuna á Ís-
landi.
Sem kunnugt er sækja erlendir
ferðamenn mikið í hina óblíðu ís-
lensku náttúru. Það getur hinsvegar
verið þrautin þyngri að aka með
ferðamenn um Ísland þar sem veg-
irnir fara hvorki vel með farþega né
farartæki. Ari Arnórsson hjá Jökum
ehf. hefur tekið það að sér að þróa
heildstæða lausn fyrir ferðaþjón-
ustuna. Í meginatriðum felst hún í
því að laga ferðatækin að vegakerfi
landsins því í vegakerfinu og náttúru
landsins eru verðmætin falin. Það er
með öðrum orðum mikil áhætta falin
í því að bæta vegakerfið í kringum ís-
lenskar náttúruperlur því þá er hætt
við því að aðdráttaraflið, t.d. sú til-
finning að ekið sé í óbyggðum, hverfi.
Ari segir að framleiðsla Jaka sé
mikilvæg á þrenna vegu. „Smíðin á
Íslandi er gjaldeyrissparandi, hún
hjálpar líka fyrirtækjum sem eiga
undir högg að sækja um þessar
mundir og í þriðja lagi eru tekjurnar
sem koma af notkun bílanna í gjald-
eyri og því er smíðin gjaldeyrisskap-
andi. Við útflutning gæti svo gjald-
eyrissköpunin aukist til muna,“ segir
Ari. Að sögn Ara sækja ferðamenn
mikið í lúxus-jeppaferðir og oft er
viðskiptahópurinn efnað eldra fólk
sem ekki getur brölt upp í mikið
breytta bíla. Ari segir að þetta sé
vandamál allsstaðar í heiminum og
bílarnir frá Jökum ehf. svari kröfum
um betra aðgengi og meiri þægindi.
„Ég spyr, hversvegna á fólk að geta
notið þæginda innanbæjar í skoð-
unarferðum, en ekki utanbæjar, ein-
mitt þegar náttúran er gróf. Þessi bíll
sem við erum með sannar að það er
hægt að njóta náttúrunnar á auðveld-
an og ódýran hátt.“
Ari vill ekki fara þá leið að bæta
vegakerfið til að auðvelda aðgang
ferðamanna að náttúruperlum lands-
ins. Hann segir að einn helsti kostur
landsins í augum ferðamanna sé ein-
mitt hversu torfært það er. Það væri
þannig óðs manns æði að bæta að-
stæður of mikið þar sem nóg er af
þesskonar ferðaþjónustu allsstaðar í
heiminum.
Pantanir frá útlöndum
Ari segir að gríðarlegur skortur sé
á farartækjum af þessu tagi, ekki
bara á Íslandi heldur allsstaðar í
heiminum. Í dag séu tveir kostir í
boði fyrir ferðaþjónustufyrirtæki,
annarsvegar rútur sem eru byggðar
á vörubílahönnun og því hastar og
erfiðar í torfærum, og hinsvegar eru
til svokallaðir kálfar eða breyttir
jeppar, sem hafi betri eiginleika en
takmarkaðan farþegafjölda. Jakar
leysa þetta vandamál með torfæru-
tæki sem hefur fengið heitið AlVeg
en það farartæki tekur yfir tuttugu
manns í sæti, en býr bæði yfir þæg-
indum og torfærugetu. Niðurstaðan
er bíll sem Ari segir að sé mun hag-
kvæmari fyrir ferðaþjónustuna enda
sé hægt að ná verulega niður verðinu
á því sem kallað er farþegakílómetri.
Ari segir ennfremur áhuga vera
fyrir hendi erlendis. „Mikið breyttir
bílar hafa verið seldir úr landi í tals-
verðum mæli t.d. á vegum Arctic
Trucks og hafa þeir náð miklum ár-
angri við að selja úr landi þessa þekk-
ingu. Það sem við gerum núna hins-
vegar er að í stað þess að breyta t.d.
Ford bílum þannig að þeir henti
ferðaþjónustunni betur þá hönnum
við nýjan bíl sem hentar fullkomlega
og um leið sköpum við möguleika fyr-
ir hærri framlegð.“
Til að koma framleiðslunni af stað
hefur sú leið verið valin að finna sér-
hæfð fyrirtæki til samstarfs. Jakar
eru þannig í samstarfi við Íslenska
NýOrku svo unnt verði að knýja bíl-
ana áfram með innlendri vistvænni
orku, Háskólann í Reykjavík en það-
an fæst hjálp í frumkvöðlastarfsemi,
Háskóla Íslands og einnig er verið að
leita samstarfs við Listaháskóla Ís-
lands.
Hálendið í hásæti
Morgunblaðið/Golli
Stór Eins og sjá má af farangursgeymslu bílsins þá er hann engin smá smíði.
Sprotastarfssemi Auðunn Arnórsson, meðstjórnandi í Jökum ehf., hefur aðstoðað við ýmis verk í gegnum árin, Ari
Arnórsson stofnandi Jaka, Ásgeir Eiríksson rekstrarhagfræðingur og MBA, fyrrum forstjóri Strætó og meðeigandi
í Jökum og Birgir Grímsson frá V6 sprotasetri í Mosfellsbæ.
Útbúnaður Ari Arnórsson vinnur við
afþreyingarkerfi bílsins.
Verkefni Smíði AlVegs var samtarfsverkefni nokkurra fyrirtækja.
Þægindi Það fer vel um fólk í AlVeg
fjallarútunni enda góð sæti og pláss.
Kaldidalur, Kjölur, Sprengisandur,
Ódáðahraun, Brúar- og Vest-
uröræfi, Lónsöræfi og Land-
manna- og Síðuafréttur eru allt
vinsælir staðir á hálendi Íslands
og auðvitað Þórsmörk og Land-
mannalaugar sem lengi hafa ver-
ið vinsælir áfangastaðir erlendra
ferðamanna sem íslenskra. Þessir
staðir eiga það allir sameiginlegt
að vera nokkuð torsóttir, í það
minnsta ef þangað á að ferðast í
fullkomnum þægindum. Það er
hinsvegar hluti aðdráttaraflsins
að erfitt ferðalagið til nátt-
úruperlanna sé viðburður út af
fyrir sig og þessvegna eru ofur-
jeppaferðir á Íslandi vinsæl grein
innan ferðaþjónustunnar. Með
sérhönnuðum bílum, hönnuðum
sérstaklega fyrir útsýnisakstur í
torfærum, þarf ekki að hossast
um á 15 kílómetra hraða. Það má
spyrja sig að því hvort Þórsmörk
héldi sínu aðdráttarafli ef öll leið-
in væri t.d. brúuð.
Umhverfið í fyrsta sæti
AUKAKRÓNUR
2 gallabuxurá ári
fyrirAukakrónur
A-kortin
Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig
Þú getur keypt þér nýjar Diesel gallabuxur að vori og hausti hjá fjölmörgum verslunum NTC
fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða eitthvað annað sem þig
langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna.
Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is
* M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum.
Sjá nánar á www.aukakronur.is.
*
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
4
2
2
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.