Morgunblaðið - 05.07.2009, Blaðsíða 42
42 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
✝ Rafn Benedikts-son fæddist í
Reykjavík 14. maí
1935. Hann lést 23.
júní sl. Foreldrar
hans voru Laufey A.
Stefánsdóttir, f. á
Eskifirði 13.7. 1910,
d. 3.12. 2000 og
Benedikt Hjart-
arson, f. í Búðardal
4.2. 1909, d. 7.2.
1990. Rafn átti einn
albróður, Ásgeir, f.
1933, d. 1988. Hálf-
systir Rafns sam-
mæðra er Guðný Kristín Garð-
arsdóttir, f. 1953. Hálfbræður
samfeðra eru Sigurður, f. 1926,
Atli, f. 1937 og Kjartan, f. 1949,
d. 1993.
Fyrri kona Rafns var Helena
Hálfdanardóttir, f. 1935. Þau
slitu samvistum. Börn þeirra
eru: 1) Baldur, f. 1954, kvæntur
Elinóru K. Guðjónsdóttur, f.
1955. Dætur þeirra eru a) Hel-
ena, hún á tvær dætur, b) Lauf-
ey Guðrún, hún á tvö börn, og c)
Brynja. 2) Guðbjörg Linda, f.
Henry Rebbeck, f. 1973. Börn
þeirra eru Isabella Lilja, f. 1998,
og Atli James, f. 2000. Fyrir átti
Hulda þrjú börn: 1) Hjalta Reyn-
isson, f. 1958. 2) Jónu Birnu
Reynisdóttur, f. 1960. Sonur
hennar er Þórólfur Beck Guð-
jónsson, f. 1985. 3) Arnar Reyn-
isson. Börn hans eru Tómas
Freyr, f. 1986, Hulda Hrund, f.
1997, og Óðinn, f. 1997.
Um miðjan sjötta áratuginn
hóf Rafn hænsnarækt í Smálönd-
um og var hann með þann rekst-
ur í rúm 20 ár. Hann var einn af
frumkvöðlum við framleiðslu
poppkorns hér á landi. Stofnaði
Maxí popp laust eftir 1970. Auk
poppsins framleiddi fyrirtækið
snakk og sælgæti og sá um
pökkun ýmissa afurða. Rafn
lærði bókhald og hafði umsjón
með bókhaldi nokkurra fyr-
irtækja. Rafn starfaði í mörg ár
með Sjálfsbjörgu, félagi fatlaðra
og var varaformaður Reykjavík-
urdeildarinnar frá árinu 1970 og
formaður árin 1977–1983. Hann
var auk þess í mörgum ráðum
og nefndum á vegum Sjálfs-
bjargar.
Útför Rafns fór fram 2. júlí, í
kyrrþey.
Meira: mbl.is/minningar
1957, gift Stefáni
Jóhanni Stef-
ánssyni, f. 1957.
Synir þeirra eru a)
Hlynur Orri, f.
1983, b) Arnaldur
Smári, f. 1987, og c)
Davíð Már, f. 1991.
3) Brynhildur
Björk, f. 1962, gift
Sigursteini Magn-
ússyni, f. 1963.
Fyrri maður hennar
er Arnþór Ein-
arsson, f. 1958.
Börn þeirra eru a)
Birgir Rafn, f. 1981. Hann á tvo
syni, og b) Aníta, f. 1984. 4) Arn-
heiður Edda, f. 1965, gift Erling
Erlingssyni, f. 1965. Börn þeirra
eru Bjarki, f. 1988, Rafn, f.
1991, og Ingi, f. 1995.
Seinni kona Rafns var Hulda
Hjaltadóttir, f. 1938. Börn þeirra
eru: 1) Benedikt Rafn, f. 1973,
kvæntur Magneu Sif Agnars-
dóttur, f. 1975. Börn þeirra eru
Snæfríður, f. 2004, og Egill Agn-
ar, f. 2007. 2) Laufey Björg, f.
1975. Maður hennar er Justin
Nú þegar birtan er hvað mest
kveðjum við pabba og gleðjumst
yfir að hafa fengið að lifa með
honum í öll þessi ár. Síðasta sím-
talið hans var rétt áður en hann
lést. Það lá vel á honum að vanda,
hann var glaður og var að dunda
sér á Smiðjuveginum eins og
hann gerði svo oft. Þessi dagur
virtist ætla að verða öðrum líkur.
Það var í Bjarnarborg 14. maí
árið 1935 að lítill drengur fæddist
vel fyrir tímann og var honum í
fyrstu vart hugað líf. Lífsbarátt-
an byrjaði því snemma.
Fram undir tvítugt bjó pabbi á
Bjarnastöðum við Tunguveg.
Hann hafði gaman af söng og var
vel liðtækur hljóðfæraleikari.
Hann sá til þess að við krakk-
arnir lærðum á hljóðfæri og við
sungum mikið saman á góðum
stundum.
Hann vann ýmis störf sem ung-
ur maður. Um tíma keyrði hann
hjá Nýju-Sendibílastöðinni. Hon-
um leið alla tíð vel á bak við stýr-
ið og var boðinn og búinn ef ein-
hver þurfti að láta skutla sér á
milli staða og ekki var það nú
verra ef farþeginn þurfti að fara
langt. Jafnvel alla leið austur á
Firði. Þegar við vorum krakkar
keyrði hann okkur á skíði og þótt
heilsan leyfði ekki að hann renndi
sér sjálfur niður brekkurnar lagði
hann á sig að bíða eftir okkur á
bílaplaninu tímunum saman, svo
við gætum rennt okkur.
Við lok sjötta áratugarins var
pabbi það illa farinn af gigt að
hann varð að hætta á Sendibíla-
stöðinni. Hann var þá búinn að
koma sér upp hænsnarækt í Smá-
löndum í útjaðri Reykjavíkur þar
sem hann var með rekstur í rúm
20 ár. Hann varð síðar frum-
kvöðull við framleiðslu popp-
korns, stofnaði Maxí popp laust
eftir 1970 og rak það í rúm 30.
Atvinnureksturinn varð til þess
að við systkinin unnum öll náið
með pabba á sumrin og meðfram
námi. Við vorum ekki há í loftinu
þegar við hjálpuðum honum við
að bera út egg til viðskiptavina
og sáum um að koma poppi í bíó
og sjoppur. Hann keyrði og við
hlupum á milli staða með eggja-
stæður og poppsekki. Pabbi próf-
aði sig áfram með annan varning
meðfram poppinu. Hann lærði
bókhald og hafði umsjón með því
hjá nokkrum fyrirtækjum. Í okk-
ar huga gat pabbi allt þrátt fyrir
þá fjötra sem líkaminn setti hon-
um.
Pabbi var félagslyndur og
starfaði með Sjálfsbjörgu, félagi
fatlaðra. Auk þess var hann mik-
ill fjölskyldumaður og hvatti stór-
fjölskylduna til að hittast reglu-
lega svo sem á þorrablótum og af
hvers kyns tilefnum. Hann var
minnugur á afmælisdaga, skírn-
ar- og fermingardaga, eða aðra
merka daga sem honum þótti vert
að halda uppá. Ekki sjaldan hóf-
ust símtölin frá honum á þessa
leið: „Veistu hvaða dagur er í
dag?“
Nú þegar komið er að kveðju-
stund minnumst við pabba fyrst
og fremst fyrir fádæma dugnað,
seiglu, jákvæðni og þrautseigju
sem einkenndi allt hans líf. Þrátt
fyrir áralanga baráttu við skæða
gigt sem setti mark sitt á lífs-
hlaupið frá unglingsaldri til dán-
ardags, þá bar hann sig ávallt vel.
Hann var umtalsgóður, tók sam-
ferðafólki sínu eins og það var,
fékkst ekki um lífsgæði sem
stóðu honum ekki til boða og
sagði alltaf „allt gott“ þegar gest
bar að garði.
Við vorum stolt af pabba.
Blessuð sé minning hans.
Baldur, Guðbjörg Linda,
Brynhildur Björk, Arn-
heiður Edda, Benedikt
Rafn og Laufey Björg.
Rafn Benediktsson vinur minn
er látinn. Ég hrökk við þegar ég
sá dánartilkynningu um Rabba í
blöðunum, en við höfðum talað
um að hittast að mér finnst fyrir
stuttu síðan, og var hann hress
og kátur eins og venjulega. En
tíminn er svo miklu fljótari að
líða en maður áttar sig á. Áður en
varir er það orðið of seint. Við
vorum báðir félagar í Sjálfsbjörg
félagi fatlaðra á höfuðborgar-
svæðinu, Rabbi var í stjórn fé-
lagsins í mörg ár, en á þessum
árum var félagslífið mjög líflegt,
fundir, spilakvöld, ferðalög, en
síðast og ekki síst kjarabaráttan
fyrir kjörum fatlaðra. Rabbi átti
stóran þátt í að þoka þeim málum
til betri vegar. Hann varð síðan
formaður félagsins um árabil og
skilaði hann félaginu með miklum
sóma, til betri framtíðar. Nokkr-
um árum síðar tók ég við for-
mennsku í Sjálfsbjörg Rabbi
studdi mig þá með góðum ráðum
og leiðbeindi mér um margt, og
alltaf var sjálfsagt að taka þátt
og hjálpa til. Þannig var hann
bara. Rabbi minn ég vil færa þér
kærar þakkir fyrir afar góðan og
gjöfulan vinskap við mig og fjöl-
skyldu mína. Við munum öll eftir
poppinu þínu sem var það besta á
landinu!
Aðstendum Rafns Benedikts-
sonar votta ég mína innilegustu
samúð.
Gunnar Reynir Antonsson.
Rafn Benediktsson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Yvonne Tix
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
SVERRIR LEÓSSON
útgerðarmaður,
Aðalstræti 68,
Akureyri,
verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju þriðjudaginn
7. júlí kl. 13.30.
Auður Magnúsdóttir,
Magnús Sverrisson, Unnur Dóra Norðfjörð,
Ásthildur Sverrisdóttir, Jóhann Björgvinss.,
Ebba Sverrisdóttir, Sveinbjörn Bjarnason,
Ragnhildur Sverrisdóttir, Steinar Sigurðsson,
afabörnin og langafastrákarnir.
✝
Útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður, sonar og afa,
ÞÓRHALLS STEINGRÍMSSONAR
kaupmanns,
Sogavegi 158,
Reykjavík,
verður gerð frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 8. júlí
kl. 11.00.
Jarðsungið verður frá Skarðskirkju í Landsveit kl. 15.00.
Þorgerður K. Halldórsdóttir,
Þóra Kristín Þórhallsdóttir, Árni Þór Steinarsson,
Rakel Ósk Þórhallsdóttir, Elmar Sigurðsson,
Berglind Björk Þórhallsdóttir, Sigurður Árnason,
Helga María Þórhallsdóttir, Ívar Daníelsson,
Þóra Kristín Kristjánsdóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg frænka okkar,
SIGRÍÐUR THORLACIUS,
sem andaðist mánudaginn 29. júní, verður
jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 8. júlí
kl. 15.00.
Gylfi Thorlacius,
Sigríður Thorlacius,
Stefanía María Pétursdóttir.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
JÓN SVEINSSON
fyrrv. útgerðarmaður,
Víkurbraut 30,
Hornafirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju þriðjudaginn
7. júlí kl. 14.00.
Þeir sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimili Heilbrigðis-
stofnunar Suðausturlands eða Björgunarfélag Hornafjarðar.
Sigríður Helga Axelsdóttir,
Ragnhildur Jónsdóttir, Grétar Vilbergsson,
Axel Jónsson, Fanney Þórhallsdóttir,
Sveinbjörg Jónsdóttir, Ómar Frans Fransson
og fjölskyldur.
✝
Ástkær systir okkar og frænka,
RAGNA HARALDSDÓTTIR,
Dídí,
hjúkrunarfræðingur,
Æsufelli 2,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítala Landakoti mánu-
daginn 29. júní.
Jarðarförin fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 10. júlí kl. 15.00.
Sigurður Haraldsson,
Gunnar Haraldsson, Ragnheiður Eiríksdóttir
og fjölskyldur.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
ALBERTS ÓLAFSSONAR
bakarameistara.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar B4 á
Landspítalanum Fossvogi fyrir frábæra umönnun,
hlýhug og virðingu.
Ragnhildur Einarsdóttir
og vandamenn.