Morgunblaðið - 05.07.2009, Page 55
Menning 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 2009
Stimplaðu þig inn í sumarið með N1
FERÐ INNANLANDS FYRIR
FJÖLSKYLDUNA
Ferð fyrir 4: Flug, gisting,
miðar í leikhús, gjafabréf út
að borða, afnot af bílaleigu-
bíl frá Avis og skotsilfur.
(Akureyri/Reykjavík)
PLAYSTATION 3
leikjatölva
GARMIN
staðsetningartæki í bílinn
með Íslandskorti
SEG DVD
ferðaspilari með 7” skjá
3x1x
3x
3x
KODAK EASY SHARE
myndavél
10x
BROIL KING PORTA-CHEF
ferðagasgrill
N1 INNKORT
10.000 kr.
10x
10x
FERÐASPIL
Spurt að leikslokum
FJÖLSKYLDUMÁLTÍÐ
á Serrano
BÍÓMIÐAR
fyrir 2 í Sambíóin
FJÖLSKYLDUÁRSKORT
í Fjölsk.- og húsdýragarðinn
Taktu þátt í skemmtilegum leik á ferðalaginu í sumar. Safnaðu stimplum í Vega-
bréfið þitt hjá þjónustustöðvum N1 um land allt, lærðu meira um landið þitt og
fáðu skemmtileg verðlaun. Þú skilar svo inn fullstimpluðu Vegabréfi og átt kost
á glæsilegum vinningi! Vertu með. Stimplaðu þig inn í sumarið með N1!
SUMARIÐ 2009
NÁÐU ÞÉRÍ VEGABRÉFÁ NÆSTUÞJÓNUSTU-STÖÐ N1
Gjafir fyrir duglega
stimplasafnara
Fjöldi glæsilegra
vinninga
10x
170
VIN
NIN
GAR
!
10x
10x
100x
BANDARÍSKA leikkonan Angel-
ina Jolie er sú tekjuhæsta og
valdamesta í Bandaríkjunum, skv.
úttekt tímaritsins Forbes. Jolie
leikur ýmist í heldur innihalds-
rýrum hasarmyndum á borð við
Mr. and Mrs. Smith eða drama-
tískum, listrænni kvikmyndum, á
borð við Changeling og A Mighty
Heart.
Þessi fjölbreytni í verkefnavali
færir henni annars vegar gríð-
arlegar tekjur, þ.e. fyrir has-
armyndirnar, og hins vegar við-
urkenningu fyrir leiklist, m.a.
Óskarsverðlaun fyrir kvikmyndina
Girl, Interrupted og tilnefningu
fyrir Changeling. Fyrir vikið er
Jolie moldrík en jafnframt valda-
mikil í kvikmyndabransanum, að
mati Forbes.
Jolie þénaði litlar 27 milljónir
dollara frá júní 2008 til júní á
þessu ári, rúma 3,4 milljarða ef
miðað er við gengi íslenskrar
krónu í gær. Á vef Abc News er
bent á að Hollywoodleikarar, þ.e.
karlarnir, séu með miklu hærri
laun en leikkonurnar. Leikarinn
Harrison Ford mun hafa þénað
mest allra síðastliðið ár, 65 millj-
ónir dollara eða 38 milljónum doll-
ara meira en Jolie.
Reuters
Jolie Rík og valdamikil.
Reuters
Ford Rakar inn seðlum.
Jolie og
Ford
tekjuhæst
LEIKARINN Matt Damon vill
endilega að kollegi hans ástralsk-
ur, Hugh Jackman, haldi titlinum
„Kynþokkafyllsti, núlifandi karl-
maðurinn“ (e. Sexiest Man Alive)
sem glanstímaritið People veitti
honum í fyrra.
„Kannski getur hann orðið
fyrstur til þess að halda titlinum í
tvö ár samfellt,“ segir Damon en
hann var talinn sá kynþokkafyllsti
á jarðríki áður en Jackman tók
við. Damon segist ætla að berjast
fyrir þessu.
Þá fer hann heldur illa með fé-
laga sína úr kvikmyndunum um
gengi Danny Ocean, þá George
Clooney og Brad Pitt, vill alls ekki
að þeir komi til greina í kyn-
þokkamati People. Clooney og Pitt
hafa enda báðir borið þennan
merka titil. Það komi hreinlega
ekki til greina að þeir hirði titilinn
í þriðja skipti. Báðir hafa sumsé
borið hann í tvö ár, þó ekki sam-
fleytt.
Jackman Loðinn um kjamma sem
Wolverine og ku löðra af kynþokka.
Vill að Jack-
man haldi
titlinum
LEIKARINN David Carradine
svipti sig ekki lífi. Þetta er mat
læknis sem sá um krufningu á líki
leikarans. Carradine fannst látinn
inni í fataskáp á hóteli í Bangkok
4. júní sl. með snúru vafða um
háls sér og aðra líkamsparta.
Meinafræðingurinn Michael Ba-
den segir leikarann hafa kafnað
en sjálfsvíg sé útilokað þar sem
leikarinn var bundinn. „Hann lést
ekki með eðlilegum hætti og svipti
sig ekki heldur lífi. Því hlýtur
þetta að hafa verið einhvers konar
slys,“ segir Baden en það voru
ættingjar Car-
radine sem
fengu hann til
að rannsaka lík-
ið.
Baden segir
ekki vitað hvað
gerðist nákvæm-
lega, í samtali
við Reuters. Þó
sé ekki útilokað
að leikarinn hafi látið lífið við
kynlífsiðkan og nú sé beðið eftir
niðurstöðu rannsóknar taílensku
lögreglunnar á málinu.
Svipti sig ekki lífi
að mati læknis
David Carradine