Morgunblaðið - 09.08.2009, Qupperneq 1
9. Á G Ú S T 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
213. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
WIKILEAKS»4
Vefsíðan Wikileaks.org hefur verið starfrækt
frá 2006. Markmið hennar er m.a. að veita
„lekendum“ og þeim, sem standa frammi
fyrir pólitískum ofsóknum, refsingum eða
ofbeldi vernd til að koma upplýsingum sín-
um á framfæri. Þegar lánabók Kaupþings
lak á síðuna harðneituðu forsvarsmenn
hennar kröfu Kaupþings um að fjarlægja
upplýsingarnar. Þeir kváðust hvorki aðstoða leif-
ar Kaupþings né viðskiptavini bankans við að fela
„óhreinan þvott“ sinn fyrir alþjóðasamfélaginu.
HJÓNIN Erna Lúðvíksdóttir og
Svisslendingurinn Erwin Glauser
kynntust hjá IKEA í Sviss og starfa
nú hjá fyrirtækinu í Kína. Þau eiga
tvö ættleidd börn frá Suður-Afríku,
Björk fjögurra ára og Smára, sem
er að verða sex ára. „Börnin eru að
læra sitt fjórða og fimmta tungu-
mál núna,“ segir Erna. „Þau eru al-
talandi á íslensku, sænsku og
ensku, skilja vel þýsku og eru byrj-
uð í kínverskunni. Það er stutt í það
að þau hafi fullt vald á kínversk-
unni.“ Erna segist alltaf tala ís-
lensku við börnin en segir að Erwin
sé ekki alveg nógu duglegur að tala
við þau á þýsku. Þau séu best í
sænsku og ensku og því skipti hann
oft yfir í annað hvort þeirra mála.
„Við hjónin tölum saman á þýsku
og börnin svara okkur yfirleitt á
sænsku. Þannig að við tölum iðu-
lega þrjú tungumál heima á sama
tíma.“ |12
Morgunblaðið/Heiddi
Þrjú tungumál í gangi samtímis
[ . . . ] „ég hætti að pæla í umhverfinu
og varð sama um hvað sagt var við
mig og um mig. Ég hélt ég væri að
verða aftur ég, en fattaði ekki að ég
var að breytast í allt annan Baldvin,“
segir Baldvin Sigurðsson, sem byrj-
aði að fikta við kannabis þegar hann
var 14 ára. „Ég varð fyrir einelti í
skóla og hugsaði sem svo að það væri
allt betra en það líf sem ég lifði,“
heldur hann áfram.
Annað átti eftir að koma á daginn,
hann var kominn út í dagneyslu í 9.
bekk, seldi kannabis til að fjármagna
neysluna, laug og sveik sína nánustu
og fékk lélegar einkunnir í skóla.
Víti til varnaðar
Hann fór þó í menntaskóla og
kveðst þá hafa gripið til þess að
bragða í fyrsta skipti áfengi því
kannabisefnin voru hætt að virka
þar sem líkaminn var orðinn svo þol-
inn. Þrátt fyrir margar „heiðarleg-
ar“ tilraunir fann hann ekki fró í
áfengi og byrjaði þá í dagneyslu á
amfetamíni, kókaíni og e-töflum.
„Ég átti enga gleði lengur,“ segir
hann og lýsir lífi sínu sem helvíti.
Hinn 4. júní í fyrra vaknaði hann
úti á túni í Keflavík eftir mánaðar-
tripp, bað vin sinn um aðstoð og hef-
ur síðan verið að vinna sig upp úr
neyslunni og vandanum. „Það verður
mitt eilífðarverkefni,“ segir Baldvin,
sem er 19 ára og heimsækir nú
grunnskóla og reynir að vera krökk-
unum víti til varnaðar. | 26
Baráttan
eilífðar-
verkefni
Baldvin Sigurðsson
gekk í gegnum „hel-
víti“ kannabisfíknar
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Von Baldvin vinnur að því að end-
urheimta gleðina í lífi sínu.
Víða er samkynhneigð ólögleg og fordæmd.
Verst er ástandið í Mið-Austurlöndum og
Asíu og sums staðar liggur dauðarefsing við
samkynhneigð. Fjölmenni í gleðigöngu á
Hinsegin dögum, sem samkynhneigðir, tví-
kynhneigðir og transgender fólk hefur efnt
til undanfarin ár, er eitt merki þess að hér býr
þessi hópur við einna mest réttindi og öryggi
sem þekkist í heiminum. Regnbogafáninn
er tákn mannréttindabaráttu hans og
fjölbreytni mannlífsins.
Með hýrri há á
Hinsegin dögum
FRELSI OG HELSI»8
Vefsíða sem verndar
persónur og lekendur
[ ]Búda og Pest gengu íhjónaband árið 1873[ ]
TENGSL
Feðgarnir Friðþjófur
og Helgi Daníelsson
GENGISVÍSITALA
BJÖRGVINS
HALLDÓRSSONAR
SHARON TATE EITT
FÓRNARLAMBA
CHARLES MANSONS
SUNNUDAGUR