Morgunblaðið - 09.08.2009, Síða 17
17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Rafskutlur
-frelsi og nýir
möguleikar
Einfaldar í notkun
og hagkvæmar
í rekstri
VITA er í eigu Icelandair Group.
VITA er lífið
VITA | Skútuvogi 13a | Sími 570 4444GROUP
EVRÓPURÚTUR 2009
Aukaferð til Kemer í Tyrklandi
Kemer er fallegur 20 þúsund manna strandbær, 40 km vestur af Antalyu í Asíuhluta Tyrklands. Bærinn
liggur sunnarlega við Miðjarðarhafið og Taurusarfjöllin, yfir 3.000 metra há, skýla einstakri náttúrufegurð
svæðisins fyrir köldum vindum sem leika um Miðjarðarhafið á þessum árstíma. Búast má við milli 20 og 25
stiga hita í ferðinni.
Hótelið Viking Star (www.vikingturizm.com) er 5 stjörnu lúxushótel þar sem allt er innifalið. Góður matur
og drykkur allan daginn. Bæði sauna og hamam (tyrkneskt bað) eru í boði innan veggja hótelsins. Hótelið er
staðsett í miðbæ Kemer og liggur aðalgatan (verslunargatan) með fram hótelinu að smábátahöfninni og
ströndinni.
Verðlag er enn mjög gott í Tyrklandi og ber verð ferðarinnar vitni um það. Flogið verður í beinu leiguflugi.
Gott jafnvægi er á milli frítíma og skoðunarferða. Meðal skoðunarferða er heimsókn til Kappadókíu, tveggja
daga ferð og gist uppí í fjöllum. Þar voru fyrstu heimkynni kristinna manna í frumkristni. Eins verður siglt
að borginni Kekova rétt undan ströndinni, en hún sökk í sæ og er undir vernd UNESCO.
Nánari upplýsingar á VITA.is undir Einstakt líf og hjá Guðnýju eða Silju Rún í
síma 570 4444 – þær taka einnig við pöntunum.
Fararstjóri
Friðrik G. Friðriksson
Verð 215.000 kr.
á mann í tvíbýli, plús 30.000 kr. fyrir einbýli.
Innifalið : Beint flug, flugvallaskattar, allur akstur og
skoðunarferðir, gisting með fullu fæði og íslensk fararstjórn
(nema drykkir í skoðunarferðum).
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
V
IT
46
91
0
08
.2
00
9
10.-19. október
Gunnar Hersveinn heimspekingur komst m.a. svo að orði um heimsókn sína til Kappadókíu í Morgunblaðinu 12. apríl 2007:
„Tildrög ferðar minnar í Kappadókíu eru þau að ég hitti Friðrik G. Friðriksson fararstjóra á hóteli í Miðjarðarhafsborginni
Antalíu og fékk að slást í för með hópnum hans. Friðrik telur Kappadókíu vera eitt best varðveitta og merkilegasta
leyndarmál ferðaþjónustunnar.
Næsta dag héldum við í Göreme-þjóðgarðinn í Kappadókíu sem jafnframt er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar er líkt og að
maður sjái inn í álfheima, sjái híbýlin sem þeir gera sér í klettum. En hér voru engir álfar á ferð heldur menn sem reistu
munka- og nunnuklaustur, kirkjur og aðrar vistarverur í klettum. Hér hafa kristnir menn tekið Jesús á orðinu og byggt
kirkju sína ekki aðeins á kletti heldur í kletta.
Í Göreme er hægt að flækjast daglangt og skoða fagurskreyttar bergkirkjur og undrast við hvert fótmál. Undrunin var
sambærileg við þá sem ég naut þegar ég skoði píramíðana í Kaíró. Vitað er að Páll postuli kom á ferðum sínum um heiminn
til Kappadókíu og stofnaði söfnuð.“
Eftir Ingvar Örn Ingvarsson
ingvarorn@mbl.is
Almannarómur segir að krák-ur séu fremur vel gefnirfuglar og líklega muna ein-
hverjir eftir krákunni í Eden sem
hafði ágætis orðaforða og var hin
besta skemmtun fyrir unga sem
aldna.
Fuglar af hröfnungaætt eru al-
gengir á norðurhveli jarðar og hef-
ur gáfnastimpillinn loðað við þá í
langan tíma, meðal annars voru
þeir Huginn og Muninn hrafnar Óð-
ins og táknuðu visku og spádóms-
gáfu.
Krákur og skyldir fuglar bregða
oft á leik og geta verið stríðnir en
fáum hefur líklega dottið í hug að
krákur geti bjargað sér með því að
útbúa áhöld.
Vandinn leystur
Það eru sem sagt ekki aðeins
simpansar og menn sem hafa gáfur
til að útbúa og nota verkfæri heldur
geta krákur það líka.
Á Youtube má sjá stutt mynd-
skeið með kráku sem reynir að
næla sér í mat úr djúpu röri. Rörið
er of hátt til þess að krákan nái
með goggnum alla leiðina í matinn,
sem er í lítilli fötu með hanka.
Krákan bregður því á það ráð að ná
í lítinn vír svo hún nái alla leið í
hankann á fötunni.
Eftir nokkrar tilraunir áttar
krákan sig á því að þetta mun ekki
ganga upp og þá tekur hún vírinn
upp úr og beygir endann á honum í
krók.
Þar næst reynir hún aftur við
hankann á fötunni og eftir tvær til
þrjár tilraunir hefur hún heppnina
með sér, dregur fötuna upp úr og
kemst í ætið.
Myndbandið má sjá á Youtube
með því að slá inn í leitina „Tool-
Making Crows“.
Það voru vísindamenn við háskól-
ann í Oxford sem stóðu að tilraun-
inni og hefur hún vakið talsvert
mikla athygli og hafa vísindamenn-
irnir skráð niður fleiri verkefni sem
krákurnar, sem eru af svokallaðri
Ný-Kaledóníu-krákutegund, hefur
leyst farsællega. Meðal annars hafa
krákur notað áhöld til að ná í enn
önnur áhöld og má því vera ljóst að
þær geta leyst nokkuð flókin verk-
efni.
Klárustu krákurnar virðast þó
vera frá Japan því þær hafa fundið
leið til að opna múskathnetur.
Krákurnar fljúga upp með hnet-
urnar og sleppa þeim á vegi, bíða
svo eftir að bílar aki yfir þær og
hirða svo upp innihaldið. Það sem
kemur hinsvegar verulega á óvart
er að krákurnar áttuðu sig á því að
þetta var áhættusamt, því tóku þær
upp á því að sleppa hnetunum á
gangbrautum og hirða þær upp þar
þegar gangandi vegfarendur fara
yfir á grænu ljósi – og bílarnir eru
stopp. Það má sjá myndskeið af
þessu á Youtube með því að slá inn
„Wild crows inhabiting the city use
it to their advantage“.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Klárir Hrafnar og krákur eru snjallir fuglar og geta bæðið brugðið á leik og leyst nokkuð flókin verkefni.
Klárar krákur
Coca Cola er frægur og vin-
sæll gosdrykkur eins og allir
vita og þekkt er að fólk kemur
sér upp neysluvenjum sem oft
eru sérstakar þegar gos-
drykkir eru annars vegar. Kók
og prins er ein þeirra, kók og
pylsa önnur. Þá eru þeir líka til
sem standa á því fastar en fót-
unum að kók í gleri sé betra en
kók í plastflösku eða dós.
Í hefðbundnu kaffistofu-
spjalli berast margs konar
skýringar á því hvernig á því
geti staðið að kók bragðist
mismunandi. Sumir segjast
reyndar ekki finna neinn mun en aðrir
segja meira gos í dósunum og plastinu
sem hugsanlega geti haft áhrif á
bragðskynið. Coca Cola-fyrirtækið
segir hins vegar að munurinn sé eng-
inn, því blandan sé alltaf nákvæmlega
sú sama.
Umbúðirnar skipta máli
Tímaritið Popular Science hefur
nýlega kannað málið og komist að nið-
urstöðu sem á eftir að verða sumum
fagnaðarefni – öðrum ekki.
Tímaritið segir að talsmenn Coca
Cola hafi haldið því fram að það sé
enginn bragðmunur á milli Coca Cola
í mismunandi umbúðum því þess sé
gætt í hvívetna að blandan sé alltaf sú
sama alls staðar í heiminum. Tals-
menn fyrirtækisins halda því fram að
um sé að ræða sálræn áhrif þess að
opna glerflöskuna, sem tekin er beint
úr kæliskáp eins og fersk mat-
vara, samanborið við það að
opna dós sem keypt er úr sjálf-
sala. Semsagt, áhrifin séu sál-
ræn þar sem umhverfið í fyrra
tilfellinu minnir á kaup á fersk-
vöru, en í því seinna minnir um-
hverfið á kaup á … nið-
ursuðuvöru. Af þessum sökum
geti fólk upplifað kók í gleri sem
ferskara og bragðbetra.
Sara Risch, sem er matvæla-
efnafræðingur hjá Institute of
Food Technologists, sem er
stofnun matvælasérfræðina í
Bandaríkjunum, segir að um-
búðir geti svo sannarlega haft áhrif á
bragðið. Risch segir nefnilega að þótt
reynt sé að koma í veg fyrir bragð-
áhrif í matvælaeftirliti geti lítið magn
efna eins og polýmers, sem er notað til
að fóðra áldósir að innan, og acetalde-
hýðis, sem er að finna í plastflöskum,
haft áhrif þar sem efnin berast í
drykkina.
Risch segir nefnilega að umbúðir
og matvæli geti bundist að einhverju
leyti en glerflöskur séu þær eigin-
leikum gæddar að erfiðast sé fyrir
matvæli að taka upp bragð úr gleri.
Samkvæmt þessu ætti hreinasta
bragðið að fást úr glerflöskunni þótt
ekkert sé sagt um hvort það sé endi-
lega best. Þar ræður smekkur fólks
algjörlega en ljóst er að munurinn er
einhver á milli umbúða þótt hann sé
lítill – ef marka má könnun Popular
Science.
Er kók í gleri betra?