Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 21
21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
Sharon Marie Tate fæddist í Dallas
24. janúar 1943 og var því 26 ára
þegar hún var myrt. Faðir hennar var
í hernum og bjó fjölskyldan víðs-
vegar um Bandaríkin á uppvaxt-
arárum hennar og um tíma á Ítalíu.
Tate bar snemma af öðrum stúlk-
um og fór ung að sitja fyrir og keppa
í fegurðarsamkeppnum. Í kringum
tvítugt fór hún að koma fram í sjón-
varpi og í kjölfarið að taka að sér
smærri hlutverk í kvikmyndum.
Fyrsta alvöru hlutverk hennar var í
myndinni Eye of the Devil árið 1966
og í kjölfarið lék hún í The Fearless
Vampire Killers. Meðan á tökum á
þeirri mynd stóð féll hún fyrir leik-
stjóranum, Roman Polañski, sem
síðar varð eiginmaður hennar.
Hermt er að hjónaband þeirra
hafi verið gott enda þótt þau hafi
látið sér hjúskaparheitin í léttu rúmi
liggja, einkum Polañski. Hann tók
frægar myndir af spúsu sinni fyrir
Playboy í mars 1967.
Því næst lék Tate í myndinni
Don’t Make Waves á móti Tony Curt-
is. Persóna hennar þar var af
grynnri gerðinni – klæddist bíkíníi
út í gegn – og Tate var ekki ánægð
með stefnuna sem ferill hennar
hafði tekið.
Tilnefnd til Golden Globe
Í næstu mynd, Valley of the Dolls,
fékk hún á hinn bóginn tækifæri til
að sýna hvað í henni bjó og frammi-
staða hennar í gamanmyndinni The
Wrecking Crew með Dean Martin jók
hróður hennar ennfrekar. Var Tate
m.a. tilnefnd til Golden Globe-
verðlauna sem besti nýliðinn árið
1968. Sæta stelpan gat leikið.
Tate kom til álita í aðalhlutverkið í
mynd bónda síns Rosemary’s Baby
en Polañski þótt óþægilegt að troða
henni fram, þannig Mia Farrow fékk
hlutverkið.
Því miður fékk heimurinn ekki að
njóta Sharon Tate mikið lengur en
síðasta myndin sem hún lék í áður
en hún lést var 12 + 1 eftir Nicolas
Gessner. Þar þurfti að fela óléttuna.
Bíóspekinga fyrr og nú hefur
greint á um hæfileika Tate og hversu
langt hún hefði getað náð sem leik-
kona. Polañski hefur hins vegar
aldrei verið í vafa. Löngu seinna
minntist hann eiginkonu sinnar með
þessum orðum: „Það tala allir um
hvað hún var falleg, jafnvel falleg-
asta kona í heimi. En það muna
færri eftir því hvað hún var góð leik-
kona.“
Helst minnst fyrir fegurð
Hjón Sharon Tate og Roman Pol-
añski voru ástfangið par.
fanginu. Hollywood – og heimurinn
allur – var felmtri slegin. Hver gat
framið svo hræðilegan verknað?
Illa gekk að upplýsa málið og
spennan stigmagnaðist. „Ég hef
ekki í annan tíma kynnst svona
mikilli skelfingu,“ rifjaði rithöfund-
urinn Dominick Dunne upp síðar.
„Fólk var sannfært um að ríkir og
frægir væru upp til hópa í bráðri
hættu. Börn voru send úr bænum,
verðir ráðnir til starfa. Steve
McQueen var með byssu á sér í út-
för Jays Sebrings.“
Hvorki gekk né rak við rannsókn-
ina fyrr en í nóvember 1969. Susan
Atkins hafði þá verið tekin höndum
í tengslum við bílþjófnað og fór að
grobba sig af því við klefafélaga
sinn að hafa myrt Sharon Tate. Þau
digurmæli urðu dýrkeypt.
Fengu fyrirmæli frá Manson
Upprunalega gerði ákæruvaldið í
Los Angeles samkomulag við Atk-
ins um friðhelgi gegn því að hún
upplýsti málið og vísaði á
samverkamenn sína. Það gerði hún.
Spurð um ástæðu voðaverkanna gaf
hún þá skýringu að andlegur leið-
togi þeirra, Charles Manson, hefði
fyrirskipað þeim að myrða fólkið.
Watson átti að stjórna aðgerðum á
vettvangi en konurnar að gegna
honum í einu og öllu. Þau heyrðu til
Manson-fjölskyldunni, hópi ung-
menna sem hinn 35 ára gamli Man-
son hafði safnað í kringum sig og
voru öll háð örvandi efnum á þess-
um tíma, þrátt fyrir andúð Mansons
á þeim.
Atkins viðurkenndi einnig að
morðin á hjónunum Leno og Rose-
mary LaBianca, kvöldið eftir Tate-
morðin, hefðu verið framin af sama
hópi, auk fjórðu konunnar, Leslie
Van Houten.
Heimurinn fékk innsýn í sjúkan
hugarheim Mansons við rétt-
arhaldið. Hann leit á það sem sitt
hlutverk að stuðla að stríði milli
kynþátta og að Bítlarnir, sem hann
hafði dálæti á, hefðu varað við yf-
irvofandi helför í tónlist sinni. Gaf
hann helför þessari nafnið Helter
Skelter, eftir lagi Bítlanna. Greip
Manson til þess ráðs að láta fylgj-
endur sína slátra auðugu fólki á
heimilum sínum og láta grun falla á
herskáa hópa blökkumanna, svo
sem Svörtu pardusana, til að kynda
undir stríði milli kynþátta. Spá hans
var sú að svartir myndu fara með
sigur af hólmi í þeirri styrjöld en
þar sem þeir hefðu ekki burði til að
stjórna sjálfir myndu þeir gera
hann að leiðtoga þjóðarinnar. Á
endanum stæðu engir uppi nema
„hinir útvöldu“, þ.e. Manson-
fjölskyldan.
Flissandi sakborningar
Susan Atkins gekk snemma úr
skaftinu sem lykilvitni í málinu og
ákæruvaldið sneri sér þá að Lindu
Kasabian enda virtist þáttur hennar
í morðunum vera minni en hinna
þriggja sem voru á vettvangi. Kas-
abian reyndist trúverðugt og áreið-
anlegt vitni réttarhaldið út í gegn
enda þótt Manson og aðrir fjöl-
skyldumeðlimir reyndu ítrekað að
koma henni úr jafnvægi í vitnastúk-
unni. Til þess var tekið að stöllur
hennar, Atkins og Krenwinkel, fliss-
uðu reglulega eins og smástelpur.
Framburður Kasabian varð öðru
fremur til þess að Manson, Atkins,
Krenwinkel og Van Houten voru öll
sakfelld og dæmd til dauða 29. mars
1971. Watson, sem tekinn var hönd-
um í Texas, var síðar framseldur og
dómur í máli hans féll 21. október
sama ár. Geðlæknar fullyrtu að
hann hefði gert sér upp geðveiki og
hlaut hann einnig dauðadóm. Refs-
ingum allra fimm var breytt í lífs-
tíðarfangelsi eftir að dauðarefsingin
var lögð niður í ríkinu árið 1972. Öll
sitja þau enn í fangelsi og hafa
ítrekað fengið synjun um reynslu-
lausn.
Frægð morðingjanna, einkum
Mansons, hefur verið með miklum
ólíkindum og er stöðugt viðhaldið,
ekki síst af tónlistarmönnum. Allir
þekkja Marilyn Manson og hin vin-
sæla breska rokkhljómsveit Kasabi-
an heitir í höfuðið á lykilvitninu. Þá
bjó Trent Reznor úr Nine Inch Na-
ils um tíma í húsinu þar sem morðin
voru framin. Það hefur nú verið rif-
ið.
Þér er ekki treystandi
Þessi „dýrkun“ á misindisfólkinu
fór fyrir brjóstið á Doris, móður
Sharon Tate, og barðist hún meðan
hún lifði á hæl og hnakka gegn því
að það fengi reynslulausn. Varð
barátta hennar til þess að fórnar-
lömbum eða fjölskyldum þeirra var
leyft með lögum árið 1982 að leggja
orð í belg þegar tekin er afstaða til
reynslulausnar fanga. Skömmu áð-
ur en hún féll frá 1992 sagði Doris
Tate að sér hefði tekist að koma því
til leiðar að dóttir sín væri ekki
lengur bara fórnarlamb morðingja
heldur tákngervingur réttinda fórn-
arlamba glæpamanna.
Í eitt skipti ávarpaði hún Tex
Watson sjálf, augliti til auglitis:
„Hvaða miskunn, herra minn, sýnd-
ir þú dóttur minni þegar hún grát-
bað þig að þyrma lífi sínu? Hvaða
miskunn sýndir þú dóttur minni
þegar hún sagði: „Gefðu mér tvær
vikur til að fæða barnið mitt og
myrtu mig svo“? Hvenær fær Shar-
on reynslulausn? Munu fórn-
arlömbin sjö og jafnvel fleiri til rísa
upp frá dauðum losnir þú úr fang-
elsi? Þér er ekki treystandi.“
Illvirki Charles „Tex“ Watson fór fyrir hópnum á morðstað.
Systurnar þrjár Susan Atkins, Patricia Krenwinkel og Linda Kasabian til-
heyrðu allar hinni óhugnanlegu Manson-fjölskyldu.
N æ s t a l e i ð b e i n e n d a n á m s k e i ð
v e g n a æ f i n g a a k s t u r s
v e r ð u r m i ð v i k u d a g i n n 1 2 . á g ú s t
Upplýs ingar og innr i tun í s íma 567 0300. Opið 10–17 a l la daga.
B-réttindi:
Námskeið alla virka daga kl. 18–22
Dagnámskeið kl. 16–18
Helgarnámskeið
B-réttindi á pólsku, ensku og tælensku
Námskeið vegna akstursbanns
Námskeið til B-réttinda fyrir þá sem
þurfa að læra á sínum hraða í samvinnu
við Fjölmennt
Önnur námskeið:
Aukin ökuréttindi (meirapróf)
Vistakstur
Bifhjólanámskeið
Atvinnuleyfishafanámskeið í samvinnu
við Vegagerðina
Flutningur hættulegra efna ADR
Lærið þar sem þekking og reynsla er í fyrirrúmi. Yfir 40 ár í fagmennsku.
www.bi lprof. is
Vistakstur