Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 24

Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009 12. ágúst 1979: „Ekki bætir það svo úr skák, að mitt á meðal okkar er fjöldi manns, sem telur það sína pólitísku og trúarlegu köllun að gera lítið úr hörmungum þeirra þjóða, sem eru ofurseldar alþjóða- kommúnismanum. Valdhafar Víet Nam og Kambódíu eiga hér sín ginningarfífl. Og ýmsir valdamiklir menn í þjóðfélaginu kalla til gistivin- áttu við ráðamennina í Kreml. Af- staða þessara manna gagnvart eigin þjóð lýsir sér svo í því, að hvatt er til lögbrota og hvert tækifæri notað til að brjóta niður efnahag landsins, ef því er að skipta. Svo mikið er blygð- unarleysið, að t.a.m. Svavar Gests- son viðskiptaráðherra notaði fyrsta daginn í valdastólnum til þess að hlakka yfir því, að hann ætti vel- gengni sína að þakka skipulögðum lögbrotum til þess að brjóta á bak aftur löglega kjörna ríkisstjórn í landinu. Á hinn bóginn ætlaðist hann til að sér yrði hlýtt, þegar hann setti gerðardóm á sjómenn.“ . . . . . . . . . . 13. ágúst 1989: „Stjórnendur einka- fyrirtækja hafa gert sér ljóst, að þeim samdrætti, sem nú stendur yf- ir í efnahags- og atvinnumálum verður að mæta í rekstri fyrirtækj- anna með stórauknu aðhaldi, fækk- un starfsmanna og aukinni hagræð- ingu á allan veg. Ríkisstjórnin hefur enn ekki horfzt í augu við þennan veruleika nema að litlu leyti. Vissu- lega ber að meta það að yfirvinna á vegum ríkisins hefur minnkað á þessu ári. Það er líka eftirtektarvert að fjölgun starfsmanna hins op- inbera er minni en áður. En þetta er ekki nóg. Hér þarf margfalt sterkari tök. Steingrímur Hermannsson virðist gera sér þetta ljóst þegar hann seg- ir að þjóðin hafi reist sér hurðarás um öxl. Á hans herðum hvílir hins vegar sú ábyrgð að hafa forystu um hvernig við skuli bregðast. Því mið- ur er stundum töluverður munur á orðum og athöfnum forsætisráð- herra. Yfirlýsingar hans sýna að hann gerir sér grein fyrir í hverju vandinn er fólginn, en hið sama verður ekki sagt um gerðir rík- isstjórnarinnar.“ Úr gömlum l e iðurum FyrirtækiðStjörnu-Oddi vinn- ur nú að hönnun og smíði sjálfvirks mælitækis, sem ætlað er að skrá hjartslátt, súrefnismettun blóðs og hita- stig í dýrum, svo eitthvað sé talið. Ætlunin er að tækið verði þegar upp er staðið á stærð við pillu og hægt verði að setja það í kviðarhol til dæmis tilraunadýra til að mæla áhrif lyfja á þau. Ef vel tekst til verður markaður fyrir þetta tæki um allan heim. Frá þessu er greint í frétt í Morgunblaðinu í gær. Þar kemur fram að smíði tækisins muni fara fram hjá Stjörnu- Odda hér á landi og hlutir í það komi víða að, þar á meðal frá Stjörnu-Odda. Mikilvægast er þó að hugvitið og tæknin eru þróuð á Íslandi. Nýsköpun getur verið með ýmsu móti. Fyrr á þessu ári fékk íslenska fyrirtækið Reykjavík Eyes alþjóðlegu hönnunarverðlaunin Univers- al Design Awards fyrir nýja gleraugnalínu, sem að öllu leyti var þróuð á Íslandi. Hér hafa verið nefnd tvö dæmi um nýsköpun á Íslandi, en vitaskuld eru þau mun fleiri. Í kreppunni er þörf á nýjum hugmyndum og ný- sköpun. Það er þörf á fyr- irtækjum, sem byggja á hug- viti og þekkingu. Ríkið getur ekki handstýrt slíku starfi eða uppbyggingu slíkra fyrirtækja, en það getur skapað hagkvæmar forsendur fyrir slíkt. Á undanförnum ár- um hefur gríðarlegt fé verið lagt í að skapa störf í kringum stóriðju. Með minni tilkostnaði hefði mátt efla nýsköpun, sem einnig getur leitt til fjölgunar starfa. Árangur af slíkri fjárfestingu sést reyndar ekki alltaf jafn greinilega og hann getur látið á sér standa. Það hefur verið tilhneiging til þess á Íslandi að vilja að af- rakstur fjárfestinga sé sýni- legur og ekkert er jafn sýni- legt og foldgnátt mannvirki. Stuðningur við nýsköpun felst hins vegar í því að efla menntun og styðja við rann- sóknir. Sá stuðningur má ekki einskorðast við grunnrann- sóknir heldur verður einnig að gera vísinda- og fræði- mönnum kleift að fylgja hug- myndum sínum eftir alla leið á framleiðslustigið. Stephen Ciesinski, sér- fræðingur í nýsköpun við rannsóknarstofnunina SRI í Kaliforníu, fjallaði um þetta á hnattvæðingarþingi norrænu forsætisráðherranna í Bláa lóninu í mars: „Nýsköpun snýst ekki einungis um þekk- ingarsköpun eða tækniþróun. Nýsköpun snýst einnig um nýtingu afurða hennar í at- vinnulífinu þar sem hún hefur gildi fyrir neytendur, þá sem kaupa vöruna. Ef hægt væri að betrumbæta þetta ferli, frá sköpun til notkunar þeirra vara sem af henni leiðir, væri hægt að bæta skilvirkni ferlisins stórlega. Þetta hefði í för með sér að mun fleiri ný- sköpunarafurðir ættu mögu- leika á markaðnum.“ Sparnaðarviðkvæðið á eftir að heyrast oft á Íslandi á næstu misserum, en það þarf líka átak til að komast út úr hremmingunum. Þess vegna þarf að ýta undir öfl frjósemi og sköpunar í þjóðfélaginu. Það þarf að nýta sköpunarkraftinn í samfélaginu } Mikilvægi nýsköpunar FRÉTTASKÝRING Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is D eilur um rekstur og fjármögnun heilbrigð- isþjónustu á Vest- urlöndum eru við- kvæmari en flest annað. Í Bandaríkjunum segja and- stæðingar Baracks Obama að hann vilji með heilbrigðistillögum sínum smeygja sósíalisma inn um bak- dyrnar. En í Danmörku gera vinstrimenn harða hríð að stjórn borgaraflokkanna vegna einkavæð- ingar í heilbrigðiskerfinu – og segja hana vilja smeygja kapítalisma inn um bakdyrnar, gera Danmörku am- eríska. Það sem hefur valdið hörðustu gagnrýninni á einkarekstur sjúkra- húsa og annarra heilbrigðisstofnana á Norðurlöndum er að þær fá greitt fyrir verk frá opinberum aðilum eins og hefðbundnar stofnanir (að vísu með takmörkunum) en geta samt greitt út hagnað. Danska stjórnin hefur beitt sér mjög fyrir einkarekstri í velferð- arþjónustunni, þ.á m. í heilbrigð- isþjónustu enda var kvartað yfir löngum biðlistum. Um milljón danskra skattgreiðenda kaupir nú sjúkratryggingar sinar hjá einka- reknum tryggingafélögum. Og mörg sjúkrahús eru einkarekin. Hvernig hefur gengið? Menn deila um niðurstöðurnar. Að sögn Politiken minnkaði algengur biðtími árin 2002-2005 eftir margvíslegum aðgerðum úr þrem í tvo mánuði. Samkvæmt reglum mega sjúklingar sem hafa þurft að bíða í meira en mánuð eftir aðgerð á opinberri stofnun sækja hana á einkarekinni sjúkrastofnun. Á síðustu tveim ár- um hefur hagnaður einkareknu spít- alanna meira en tvöfaldast. En bið- listarnir hafa hins vegar ekki styst neitt á sama tíma, þar ríkir stöðnun. Þessi þróun hefur reynst hvalreki fyrir þá sem tala gegn auknum einkarekstri. Gagnrýnt er einnig að einkareknu sjúkrahúsin keppi ekki sín í milli. En þau noti tækifærið og beiti yfirborgunum til að laða að sér hæfustu starfskraftana, lækna og aðra, frá opinberum stofnunum. Óttuðust samkeppnina Einkareknu spítalarnir fá borgað fyrir verk frá ríkinu eftir töxtum sem sagðir eru rausnarlegir. Og ný- lega sendi embætti danska ríkisend- urskoðandans frá sér harðorða skýrslu. Þar sagði að Lars Løkke Rasmussen, núverandi forsætisráð- herra en þá ráðherra heilbrigð- ismála, hefði árið 2006 hunsað alla hagkvæmni og lagt til hliðar tillögur um útboð og verðsamkeppni milli einkareknu aðilanna. Tillögurnar komu frá nefnd sem ráðherrann skipaði sjálfur og Sam- keppniseftirlitið hafði hrósað þeim mjög. En talsmenn einkareknu stofnananna voru á móti. Þeir sögðu að þeir sem töpuðu í útboðum hins opinbera yrðu að hætta starfsemi ef þeir fengju ekki tekjur frá ríkinu. Með öðrum orðum, að einkafyr- irtækin væru í reynd á ríkisspen- anum. Ef til vill sýnir þetta hve erf- itt geti verið að reka heilbrigðiskerfi þar sem endalaust verða árekstrar milli rekstrarformanna tveggja. Önnur hvor hugmyndafræðin, einkarekstur eða opinber rekstur, verði a.m.k. að hafa yfirhöndina þótt gera megi undantekningar. Í vafa ,,Að vera eða ekki vera,“ sagði Hamlet Danaprins. Danir veruleikans eiga erfitt með að gera upp við sig hve langt skuli ganga í því að einkavæða rekstur heilbrigðisþjónustunnar, hvort kostirnir vegi þyngra en gallarnir. Danskur einka- rekstur á ríkisspena? Hart er deilt um árangur af aukn- um einkarekstri í heilbrigðisþjón- ustunni í Danmörku. Fyrstu árin styttust biðlistarnir en ekki leng- ur og sumum vex í augum hagn- aður einkareknu spítalanna. MENN velta því fyrir sér hvort danska þjóðin vilji í reynd ganga jafnlangt í mark- aðshyggjuátt í heilbrigðis- þjónustu og raun ber vitni. Kannanir sýna áhyggjur af vaxandi ójöfnuði; margir vilja að sýnt verði fram á sparnað af einkarekstrinum. Leiðtogi Íhaldsflokksins, Lene Esper- sen, lagði nýlega til að taxtar einkareknu spítalanna fyrir verk frá ríkinu yrðu lækkaðir. Aðrir fullyrða að tölur um dýrt heilbrigðiskerfi hafi allt- af verið villandi. Ráðamenn, bæði til hægri og vinstri, hafi verið orðnir þreyttir á tali um fjársvelti og því tekið inn liði sem ekki séu reiknaðir með í heilbrigðisútgjöldum t.d. í Sví- þjóð eða Noregi. Hlutfallið hafi þá lagast – á pappírunum. Krónur og aurar Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ S jálfstæðisflokkurinn kynnti sig á ár- um áður sem kjölfestu í íslenskum stjórnmálum. Flokkurinn átti tölu- verða innistæðu fyrir þeirri fullyrð- ingu. Hann hafði til dæmis lengi vel forystu í að marka utanríkisstefnu landsins. Það má ekki gleymast að þetta er flokkurinn sem beitti sér fyrir inngöngu Íslands í NATÓ, sem var þarft og nauðsynlegt verk. Þetta árið, þegar aðildarumsókn til Evrópu- sambandsins var sett á dagskrá Alþingis, kaus þessi fyrrum kjölfestuflokkur að vera ekki ábyrgur þátttakandi í því að opna fyrir aukn- um samskiptum Íslendinga við lýðræðisríkin í Evrópu. Hann greiddi atkvæði gegn málinu í stað þess að breiða út sinn stóra faðm og bjóða alþjóðastrauma velkomna til landsins. Hvað er að gerast í Sjálfstæðisflokknum? Útbelgd þjóðremba er farin að ágerast í flokknum og það virðist veruleg hætta á því að hann einangrist og verði að harð- línuíhaldsflokki með takmarkað fylgi. Það hlakkar í and- stæðingum flokksins vegna þeirrar vafasömu stefnu sem flokkurinn er að taka. Hinir, sem eru fjölmargir, og bera virðingu fyrir flokki sem svo oft hefur verið rödd skyn- seminnar, hafa áhyggjur af þessari þróun mála. Nýr formaður Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Benedikts- son, virkar enn sem komið er hikandi og óöruggur. Í stað þess að hlusta á Evrópusinna í eigin flokki og gefa þeim svigrúm og frelsi hefur hann tekið afstöðu með þeim öfl- um innan flokksins sem þusa endalaust um afsal full- veldis gangi Ísland í Evrópusambandið. Evr- ópusinnuðum sjálfstæðismönnum virðist varla lengur vært í eigin flokki og hljóta að finna sér annan verustað. Nýr formaður er ekki að breikka eigin flokk heldur þrengja hann. Í Icesave-málinu á Sjálfstæðisflokkurinn svo engin svör. Kannski ekki skrýtið. Flokk- urinn sem lagði allt kapp á að efla frelsi í við- skiptum gerði það með slíkum djöfulgangi að afleiðingarnar hlutu að verða ógurlegar. Það er svosem engin furða að formaður Sjálfstæð- isflokksins skuli vera á hlaupum frá því máli og svara skringilega þegar hann mætir í fjöl- miðla. Staða Sjálfstæðisflokksins er dapurleg en góðar fréttir berast þó. Borgarstjórinn í Reykjavík, Hanna Birna Kristjánsdóttir, er einkar far- sæl í starfi, vinnur af vandvirkni og atorku og nýtur virð- ingar langt út fyrir raðir sjálfstæðismanna. Hún er ein- mitt þess konar leiðtogi sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf nauðsynlega í landsmálin. Í landsmálum er Sjálfstæðisflokkurinn orðinn valda- laus eftir að hafa getað vaðið um sviðið áratugum saman. Flokkurinn á hins vegar tækifæri í stjórnarandstöðu sem hann nýtir sér ekki. Hann á að koma fram sem ábyrgur flokkur með mótaðar tillögur og tala máli alþjóðlegrar samvinnu. Af hverju getur hann ekki gert það núna þeg- ar hann gat það svo auðveldlega áður fyrr? kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Sjálfstæðisflokkur – fyrir hverja?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.