Morgunblaðið - 09.08.2009, Side 45
Menning 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. ÁGÚST 2009
Útsölustaðir:
Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum,
Maður lifandi, Blómaval, Á grænni
grein, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa
og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík,
Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin,
Hagkaup, Lyfjaval, Yggdrasill, Reykjavíkur
apótek, Árbæjarapótek, Heilsuver, Apótek
Vesturlands, Vala Sólheimum, Barnaversl-
anir og sjálfstætt starfandi apótek um allt
land.
Vilt þú létta á líkamanum eftir
grillveislurnar í sumar
safinn er
vatnslosandi
Safinn virkar vel á eðlilega
úthreinsun líkamans
Lífrænt ræktaður, án aukaefna
Losar bjúg
Léttir á liðamótum
Losar óæskileg efni úr
líkamanum
Góður fyrir húð, hár og neglur
Blanda má safann með vatni
Má einnig drekka óblandað
Velkomin að skoða
www.weleda.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Bodrum – Tyrkland
frá kr. 129.900
Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum til sumarleyfisperlunnar
Bodrum í Tyrklandi 14. eða 21. ágúst í 2 vikur (15 nætur í ferð 21. ágúst). Í boði er
frábært sértilboð á gistingu með "öllu inniföldu" á Hotel Sunway ***, notalegu
og vel staðsettu hóteli í hinum líflega bæ Gumbet. Hér er "allt innifalið" sem fel-
ur m.a. í sér morgun-, hádegis- og kvöldverð auk innlendra óá-
fengra og áfengra drykkja (til kl. 23). Fyrir ýmsa aðra þjónustu á
hótelinu getur þurft að greiða sérstaklega.
Bodrum bíður þín með einstakan menningararf, stórbrotna nátt-
úrufegurð, töfra Eyjahafsins, frábæran mat og ótrúlega hagstætt
verðlag! Sumarleyfisstaðurinn Bodrum í Tyrklandi er einn eftir-
sóttasta áfangastaður Tyrklands.
Verð kr. 129.900
2 vikur með öllu inniföldu
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna með eitt barn,
2-11 ára, í herbergi með "allt innifalið" í 14 næt-
ur á Hotel Sunway *** (15 nætur í ferð 21.
ágúst). Verð m.v. gistingu í tvíbýli kr. 149.900.
Sértilboð 14. og 21. ágúst.
14. eða 21. ágúst
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Ótrúlegt sértilboð
Hotel Sunway ***
2 vikur með allt innifalið
M
bl
11
28
54
0
Undir miðjan, fjórða áratug-inn hélt kreppan miklaBandaríkjunum í helj-argreipum. Jafnvel vell-
ríkir auðmenn urðu henni að bráð og
fóru umvörpum í gjaldþrot, hvað þá
almenningur sem missti atvinnu og
lifibrauð í tugmilljónavís. Þetta er
sögutími Public Enemies eða Þjóð-
aróvina, en það nafn festist við þá
sem sáu sín sóknarfæri í blóði drifinni
glæpastarfsemi, ekki síst banka-
ránum.
Þrír aldarfjórðungar eru liðnir, á 4.
áratugnum var léleg samskipta-
tækni, engir gemsar, tölvur, þotur,
svo eitthvað sé nefnt; það ríkti hálf-
gerð steinöld miðað við samtímann
og létti bófunum iðju sína. Einn sá
nafntogaðasti var John Dillinger
(Depp), var alræmdur fyrir allt að því
yfirnáttúrlega heppni við bankarán
og ekki síður að sleppa úr höndum
réttvísinnar, úr hverju rammgerðu
fangelsinu á fætur öðru. Hann lifði
hratt og hátt, varð þjóðhetja eða e.k.
Hrói höttur í augum glorsoltins al-
mennings sem fannst stjórnvöld
ganga ömurlega að bæta lífskjörin.
Fyrst og fremst var Dillinger stál-
heppinn óþokki sem vílaði ekki fyrir
sér að drepa laganna verði. Hann
borgaði fyrir sitt lúxuslíf utan múr-
anna, með blýi.
Myndin hefst á mögnuðu flóttaat-
riði þar sem Mann leggur línuna hvað
koma skal. Depp undirleikur bank-
aræningjann með fólslegt blik í auga,
heilinn í hópi fáliðaðs gengis afbrota-
manna sem minna í háttum og hugs-
unarhætti á útlaga villta vestursins.
Fylgst er annars vegar með yfirreið
þeirra um miðríkin, rænandi, rupl-
andi, drepandi, og hinsvegar „G-
mönnum“ hinnar nýstofnuðu Alrík-
islögreglu, FBI, undir stjórn J. Edg-
ars Hoover (Crudrup). Hann setur
Melvin Purvis (Bale), í það erfiða
hlutskipti að koma lögum yfir Dill-
inger, þjóðaróvin nr. 1., dauðan eða
lifandi. Dillinger er lengi vel skrefinu
á undan FBI, á flæking um miðríkin
og Flórída, þar sem bófarnir lifa hátt
á milli vélbyssuskothríða, bankarána
og ævintýralegra undankomuleiða úr
höndum réttvísinnar og ramm-
gerðum fangelsum. Í leiðinni verður
Dillinger ástfanginn af öðru fórn-
arlambi kreppunnar, hinni fögru en
fátæku Billie Freschette (Cotillard).
Líkt og fleiri verk Manns er Public
Enemies frekar listræn en söluvæn,
hann leggur meira upp úr hárfínum
smáatriðum í endursköpun kreppu-
áranna en ofurbrellum og þeim mein-
fyndna kjafthætti og glórulausu per-
sónusköpun sem einkennir
gangmyndir samtímans. Public Ene-
mies er ósvikin veisla fyrir augað,
tekin af snillingnum Dante Spinotti
og það er mikið notuð seiðmögnuð og
tregafull tónlist frá þessum tímum,
flutt m.a af Diönu Krall og Billie Ho-
liday.
Aukahlutverkin eru feikivel mönn-
uð, sérstaklega er Lang minnsstæður
(í fyrsta sinn á löngum ferli), sem lög-
reglumaðurinn Winstead, og Cotil-
lard er eftirminnileg sem hin lánlausa
Billie. Ástarsaga hennar og Dill-
ingers er fordæmd frá upphafi,
tengslin þeirra á milli sýna örlítið
undir yfirborð þessa fjarlæga ná-
unga, Dillingers. Hann er túlkaður af
einum besta leikara samtímans en
hann er í lausu lofti og þar er handrit-
inu um að kenna. Það fegrar ófétið á
köflum en lengst af siglir hann óræð-
ur í gegnum myndina. Ef ætlunin er
að vekja samúð með þessari vafa-
sömu goðsögn, hefur það ekki tekist
þegar á heildina er litið. Bale er jafn-
vel steinrunnari en nokkru sinni áður
en Crudup og Riblisi og leikkonan,
sem fer með hlutverk rúmenska
svikakvendisins, gera góða mynd
betri.
Önnur athyglisverð hlið sem velt
er upp í Public Enemies er afstaða
mafíunnar gagnvart „einyrkjum“ á
borð við Dillinger. Skipulögð glæpa-
starfsemi er að leggja undir sig
Bandaríkin á sama tíma og smá-
skálkarnir verða til þess að alrík-
islögreglan fæðist. Þyngist þá róð-
urinn hjá mafíunni, sem vildi ekki
síður Dillinger og hans nóta feiga en
lögregluyfirvöld. Veröldin er sann-
arlega kaldhæðin þegar sá gállinn er
á henni.
Public Enemies er metnaðarfull og
nístandi myrk og rís hátt á sínum
bestu köflum en það er eins og vanti
skarpari fókus á Dillinger og hans of-
beldisfulla og ófélega lífshlaup.
saebjorn@heimsnet.is
List „Líkt og fleiri verk Manns er Public Enemies frekar listræn en sölu-
væn,“ segir Sæbjörn m.a. Hér er Johnny Depp í hlutverki John Dillinger.
Borgað í blýi
Sambíóin, Laugarásbíó
Public Enemies
bbbmn
Leikstjóri: Michael Mann. Aðalleikarar:
Johnny Depp, Christian Bale, Marion
Cotillard, Billy Crudup, Stephen Dorff,
Jason Clarke, Stephen Lang. 85 mín.
Bandaríkin. 2009.
SÆBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYND
Hafa verið til íslenskir þjóð-
aróvinir? Svarið er neitandi, a.m.k.
í líkingu við illfygli á borð við Dill-
inger, Pretty Boy Floyd og þeirra
nóta. Sjálfsagt vilja einhverjir til-
nefna allnokkra hvítflibbaskálka,
en það er önnur saga. Hins vegar
kom fyrir atvik seint á sjötta eða
snemma á sjöunda áratugnum,
sem minnir ofurlítið á Dillinger og
ástandið sem hann og hans líkar
sköpuðu vestan hafs. Það var einn
fagran veðurdag að nokkrir fangar
brutust út af Litla Hrauni, stálu
jeppabifreið og sögur komust á
kreik að flóttamennirnir væru
vopnaðir og lífshættulegir. Útvarp-
ið fylgdist með gangi mála, fólk
lamaðist af hræðslu og faldi vesk-
in sín, en sem betur fer urðu
flóttamennirnir fljótlega bens-
ínlausir og þar með hættulausir.
En múgsefjun hafði fæðst og rætt
var um aðalforkólfinn með ótta-
blandinni virðingu fram eftir öld-
inni.
Íslenskir þjóðaróvinir?
KONA hefur ráðin ritstjóri breska tónlistartímaritsins
NME, sem er eitt áhrifaríkasta blað sinnar tegundar í
heiminum. Krissi Murison er 27 ára gömul og hafði
verið við störf hjá NME í sex ár þar til hún hætti í
febrúar á þessu ári. Var hún þá búin að vinna sig upp í
stöðu aðstoðarritstjóra en var þá ráðin inn á Nylon-
tímaritið, sem gerir út frá New York. Ráðamenn NME
freistuðu hennar hins vegar með ritstjórastöðunni og
gengið var frá ráðningunni í vikunni en hún tekur
formlega við 1. september. Murison verður fyrsta kon-
an til að ritstýra NME í 57 ára sögu þess, en ritstjórar
hafa alls verið ellefu. Það verður óneitanlega for-
vitnilegt að fylgjast með efnistökum blaðsins á haust-
mánuðum, hvort kvenlægar áherslur aukist með rit-
stjóranum nýja. Ekki veitir af í þessum mjög svo
karllæga heimi rokks og popps.
Kona ritstýrir NME
Ritstýra Krissi Murison.