Morgunblaðið - 22.08.2009, Side 1

Morgunblaðið - 22.08.2009, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 2. Á G Ú S T 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 226. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is Við höldum með stelpunum okkar Ítarleg umfjöllun um EM 2009 í Morgublaðinu «AFKIMAR OPNAÐIR FARIÐ UM ÓEIGIN- LEGAN LAUGAVEG «LISTAHÁTÍÐ EDDU HEIÐRÚNAR Gleðiorg ómar um Óðinstorg Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is ÞRIGGJA manna teymi sérfræðinga frá Nýja Kaupþingi starfar nú inni í Högum með það fyrir augum að vernda hagsmuni bankans og leggja mat á verðmæti eigna félagsins, sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum Morgunblaðsins. Bankanum er þetta heimilt því hann er með veð í 95,7% hlut í Högum. Um er að ræða sérfræðinga bank- ans á sviði útlána og fyrirtækjaráð- gjafar. Þau félög sem mynda rekstur Haga eru m.a. Bónus, Hagkaup, 10- 11, Útilíf og tískuverslanir eins og Zara, Debenhams, Topshop, Coast, Oasis o.fl. Bónus og Hagkaup að veði Hagar var móðurfélag innlendrar starfsemi Baugs en félagið var skilið frá rekstri Baugs í júlí á síðasta ári þegar eignarhaldsfélagið 1998 ehf., sem er dótturfélag Gaums og í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjöl- skyldu, keypti 95,7% í Högum af Baugi. Kaupin voru fjármögnuð með 30 milljarða króna láni frá Kaupþingi Hagar í gjörgæslu Kaupþings  Teymi sérfræðinga frá Nýja Kaupþingi starfar nú inni í Högum með það fyrir augum að vernda hagsmuni bankans  Fjármagnaði kaup Gaums á Högum frá Baugi  Lán á gjalddaga á næsta ári gegn veði í öllum eignarhlut félagsins í Högum. Þetta lán er með einum gjalddaga á árinu 2010. Ef 1998 ehf. getur ekki greitt lánið getur Nýja Kaupþing gengið að veðinu og tekið yfir þau fyrirtæki sem áður mynduðu innlenda starfsemi Baugs. Bankinn er sem stendur að meta til hvaða að- gerða eigi að grípa ef 1998 ehf. getur ekki staðið í skilum, samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins. Finnur Árnason, forstjóri Haga, kannast ekki við þetta. Hann segir að ástæða þess að sérfræðingar Kaup- þings séu að fara yfir bókhaldið sé vegna svokallaðs virðisrýrnunar- prófs. „Undanfarin ár hefur Capacent séð um þetta en að þessu sinni er það fyr- irtækjaráðgjöf Kaupþings. Þetta er gert að beiðni endurskoðenda okkar, KPMG. Við leituðum tilboða og tilboð fyrirtækjaráðgjafar Kaupþings reyndist hagstæðast,“ segir Finnur. Vill gefa lántakanda svigrúm Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hefur Nýja Kaupþing ekki gengið að Högum og tekið félagið yfir þar sem bankinn vilji gefa 1998 ehf. svigrúm til að mæta gjalddögum lána. Raunverulegt verðmæti Haga þurfi jafnframt að liggja fyrir áður, en það kann að vera mun hærra en lánið frá bankanum. Einnig þurfi að tímasetja slíka aðgerð vel. ALLS tóku 164 þátt í sundi frá Skarfakletti út í Viðey síðdegis í gær og hafa aldrei svo margir tekið þátt í sjóhópsundi hér á landi til þessa. Vin- sældir sjósunds hafa aukist mikið að undanförnu eins og góð þátttaka í gær vitnar vel um. Þeir sem að sundinu í gær stóðu voru meðal annars svonefndir Ermarsundgarpar, sexmenningar sem ætla boðsund báðar leiðir yfir Ermarsundið milli Bretlands og Frakklands í næsta mánuði. Morgunblaðið/Kristinn SKUTLA SÉR Í SJÓ VIÐ SKARFAKLETT TÖLVUSTÝRÐUR kortagrunnur, merktur fyrirtækinu R. Sigmunds- son, sýnir jeppaslóða inn í friðland Þjórsárvera, þvert á það sem fram kemur á kortum Landmælinga. Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrver- andi umhverfisráðherra, vekur at- hygli á þessu í grein sem hún ritar í blaðið í dag undir fyrirsögninni „Stjórnlaus vegagerð á hálendi Ís- lands“. Kolbrún lagði upp í gönguferð um friðland Þjórsárvera fyrir rétt- um mánuði. „En á fjórða degi vorum við minnt óþyrmilega á slóðann á tölvustýrða kortagrunninum. Þegar við óðum Miklukvísl við Nautöldu gengum við fram á djúp hjólför eft- ir jeppa á árbakkanum, ekki bara einn jeppa heldur marga,“ ritar Kolbrún. | 31 Jeppaslóði í friðland Þjórsárvera Sýndur í bílatölvum Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is MEIRIHLUTI Alþingis samþykkti á ellefta tím- anum í gærkvöldi, eftir 2. umræðu, frumvarp um ríkisábyrgð á lántöku Tryggingasjóðs innstæðu- eigenda vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Frumvarpið gengur nú til þriðju og síðustu umræðu. Fjárlaganefnd hittist fyrir hádegi í dag til að ræða málið milli umræðna. Í atkvæðagreiðslu vegna frumvarpsins í heild samþykktu 49 þingmenn Samfylkingarinnar, Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna frumvarp- ið, auk Þráins Bertelssonar og Þórs Saari, þing- manns Borgarahreyfingarinnar. Þingmenn Fram- sóknarflokksins voru á móti, auk Birgittu Jónsdóttur, þingmanns Borgarahreyfingarinnar, en Margrét Tryggvadóttir sat hjá. Fyrsta at- kvæðagreiðslan var um frávísunartillögu Fram- sóknarflokksins, en hún var felld með 48 atkvæð- um gegn 10, en 2 greiddu ekki atkvæði. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, sagði fyrir atkvæðagreiðsluna í gær- kvöldi, að þrátt fyrir að flokkurinn styddi breyt- ingartillögur meirihluta fjárlaganefndar þá dygðu þær ekki til þess að hægt væri að styðja málið í heild. Sagði Bjarni að gera þyrfti meiri breyting- ar. Fyrirvörunum, sem breytingartillögurnar fela í sér, er öðru fremur ætlað að koma í veg fyrir að skuldbindingarnar sem falla á ríkið, vegna ríkis- ábyrgðar á lántöku tryggingasjóðs, verði efnahag landsins of þungbærar. Í þeim felst meðal annars að hagvöxtur í landinu ráði því hversu mikið verð- ur endurgreitt af lánum á ári, og eftir atvikum ekki greitt, ef hagvöxtur er enginn.| 14 Þingið samþykkti Icesave Frumvarp vegna ríkisábyrgðar á Icesave-skuldunum samþykkt eftir 2. umræðu á Alþingi í gærkvöldi  Sjálfstæðismenn segja að gera þurfi meiri breytingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.