Morgunblaðið - 22.08.2009, Side 29

Morgunblaðið - 22.08.2009, Side 29
SÍMI 440 1000 WWW.N1.IS Meira í leiðinni Menningarnótt allan sólarhringinn N1 Hringbraut er ómissandi áfangastaður fyrir þá sem ætla að njóta stemningarinnar í miðbænum á Menningarnótt. Þú nærð þér í snöggan og ljúffengan bita, kaffi og með því, snakk fyrir partíið eða bara hvað sem þig vantar í gleðina. Góða skemmtun! N1 Hringbraut ÚR BÆJARLÍFINU MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009 Sumartíminn styttist óðum. Veðr- áttan hefur leikið við bæjarbúa. Sum- arið hefur verið hlýtt og þurrt og logndagar margir. Svipuð veðrátta var reyndar bæði 2007 og 2008. Að sögn Trausta Jónssonar,veðurfræð- ings hafa flest sumur síðustu 12 – 14 árin verið hagstæð miðað við það ástand sem ríkjandi var áratugina á undan. Það er greinilegt að við erum stödd á hlýindaskeiði.    Góðu sumarveðri fylgir fjöldi ferða- manna. Í sumar hafa heimsótt Hólm- inn fleiri ferðamenn áður. Tjald- svæðið og götu bæjarins hafa iðað af lífi virka daga jafnt sem um helgar. Sem dæmi um það hafa yfir 4.000 ferðamenn skoðað Eldfjallasafn Har- aldar Sigurðssonar og eins hefur fjöldinn allur heimsótt Vatnasafnið, Norska húsið og Amtbókasafnið.    Mikil fjölgun farþega og bíla var með Ferjunni Baldri í sumar og sama á við skoðunarferðir um Breiðafjarð- areyjar. Hjá Sæferðum ehf fengust þær upplýsingar að júlímánuður hafi verið sá langbesti í sögu félagsins. Aldrei hefur annar eins fjöldi ferðast með skipum félagsins. Með Baldri fóru 19.000 farþegar í júlí á móti 15.500 í fyrra. Bílar sem Baldur flutti yfir fjörðinn í júlí voru 4.000 og er það 400 bílum fleira en í fyrra. Svo er komið að bílaþilfarið í Baldri er full- nýtt í júlí. Í sumar fór Baldur 2 ferðir á dag , en frá og með 20. ágúst er ein ferð daglega og verður svo í vetur.    Ferðamenn kalla á þjónustu. Í sumar hefur fjöldi fólks haft atvinnu við ferðaþjónustu og er hún orðin mik- ilvægur þáttur í atvinnulífi bæjarins. Gallinn er þó sá hve stutt tímabilið er því það nær varla yfir meira en þrjá mánuði. Áhugi er fyrir því að lengja ferðamannatímann, og í því sambandi er m.a. horft til heita vatnsins sem er talið allra meina bót.    Líkur eru á því að Ferjan Baldur þjóni Vestmannaeyingum í þrjár vik- ur í september á meðan Herjólfur fer í slipp. Eindregin tilmæli hafa komið frá samgönguyfirvöldum til Sæferða um að fá Baldur leigðan á meðan við- gerðir á Herjólfi fara fram. Yfirvöld telja það ekki verjandi að leigja skip frá útlöndum vegna kostnaðar og eru þess viss að Baldur geti á auðveldan hátt fyllt í skarðið.    Fréttablaðið kemur ekki lengur í Hólminn né á aðra staði á Snæfells- nesi. Fréttablaðið var áður sent með áætlunarbíl daglega og lá frammi á Bensínstöðinni og í Bónus. Í vor var tekin sú stóra ákvörðun að hætta þeirri þjónustu, líklega í þeim tilgangi að minnka kostnað. Snæfellsnesið vigtar því ekki þungt hjá eigendum blaðsins.    Það er rólegt við höfnina þessa dag- ana. Engir bátar stunda sjóinn frá Hólminum og verður líklegast ekki breyting á fyrr en á nýju kvótaári sem hefst 1. september. Grásleppu- vertíðinni lauk þann 10. ágúst. Stykk- ishólmshöfn er ein af þeim höfnum þar sem mestu magni er landað af grásleppuhrognum. Á þessari vertíð var engin breyting þar á. Aðeins á Drangsnesi var landað meira magni. 25 bátar stunduðu grásleppuveiðar frá Hólminum í sumar. Það eru fleiri bátar, en undanfarin ár. Alls var land 159 tonnum af hrognum sem er um 17 % minna magn en í fyrra. En grá- sleppukarlar fá aflasamdráttinn bættan með miklu hærra hrogna- verði en í fyrra. Undir lok vertíðar voru karlarnir að fá allt að 1.000 kr fyrir hvert kíló. Þeir geta því unað glaðir við sitt.    Danskir dagar, bæjarhátíð Hólmara, fara fram í dag. Danskir dagar hafa fest sig í sessi, enda haldnir árlega í 16 ár og eru með elstu bæjarhátíðum landsins. Oftast hafa Danskir dagar verið aðra helgina eftir versl- unarmannahelgi,en núna var þeim seinkað um viku og eru á sama tíma og Menningarnótt Reykvíkinga. Fjölbreytt dagskrá er í gangi í all- an dag og lýkur hátíðinni með bryggjuballi og flugeldasýningu í kvöld. Í gærkvöldi voru hverfa- samkomur þar sem íbúar og gestir þeirra hittust hver í sínu hverfi og áttu gott kvöld saman. Landsmenn eru velkomnir í bæinn til að eiga ánægjulega stund. Morgunblaðið/Gunnlaugur Auðunn Árnason Fagurt Í brunn á þessum stað sóttu Hólmarar vatnið í gamla daga. Gunnlaugur Auðunn Árnason fréttaritari STYKKISHÓLMUR Guðmundur Hagalín Guðmunds-son sendi kveðju til frænda síns Jóhannesar Kristjánssonar eft- irhermu, sem bíður eftir nýju hjarta í Gautaborg. Það voru nokk- ur stöðluð svör við spurningum um líðan Jóhannesar, sem dynja á Guð- mundi. Sú fyrsta er svohljóðandi: „Hvað er að frétta af Jóhannesi?“ Af stað í himna rölti reið, raunar nokkuð lúinn. En drengur miðja dokar leið þó dælan væri fúin. Og hvað var gert? Lögðu saman liðnir og menn, lofa ber og skilja Jói hérna allur enn er með Drottins vilja. Hvernig hefur hann það núna? Þetta er býsna mikið mál mikil hörkuvinna, að lífga aftur líf og sál og labba heim til sinna. Nær hann sér? Dafnar nóg og nær sér vel nálægt miðjum vetri; afar góður að ég tel og aldrei verið betri. Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir vegna byltu forsetans: Ólafur er ern og skýr, Ólafur er glettinn, Ólafur er fimur fír en fákurinn er dettinn. Og Karl Kristensen kirkjuvörður í Víðistaðakirkju veltir fyrir sér gangi þjóðmálanna í breiðu sam- hengi: Þjóðin á bágt í þrálátu aurahraki þrýstingur vex - er sárara en tárum taki þótt Jóhanna skjaldborg vel yfir lýðnum vaki hún varnar því ekki að forsetinn detti af baki. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Fréttir og Jóhannes

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.