Morgunblaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 46
46 MenningINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009
komin út á DVD
Tónlistarhátíð unga fólksinslauk með svokölluðu Ar-íukvöldi í Salnum í Kópa-vogi á sunnudagskvöldið.
Fjórir söngvarar komu þar fram
ásamt einum píanóleikara og fluttu
nokkur þekkt íslensk sönglög og
óperuatriði.
Eins og nafn hátíðarinnar ber
með sér er tónlistarfólkið ungt að
árum og það heyrðist. Sumar
raddirnar eru enn býsna ómótaðar,
þótt allir söngvararnir búi yfir
ótvíræðum tónlistarhæfileikum.
Steinunn Soffía Skjenstad hefur
fína sópranrödd sem hún hefur
enn ekki fyllilega á valdi sínu; hún
á þó eftir að ná því er fram líða
stundir.
Dóra Steinunn Ármannsdóttir
hefur sömuleiðis hljómmikla
mezzósópranrödd sem varð alltaf
stærri og fegurri eftir því sem á
leið.
Benedikt Kristjánsson tenór er
einnig mjög músíkalskur og Andri
Björn Róbertsson er auðheyrilega
efnilegur einsöngvari sem hefur
kraftmikla, breiða rödd og útgeisl-
un, en hún skiptir ekki litlu máli.
Ég hef ekki mikið um einstök
lög að segja. Alla söngvarana
skortir reynslu í að koma fram á
tónleikum, en það er auðvitað eitt-
hvað sem lærist með árunum.
Margt á efnisskránni var samt vel
áheyrilegt og kannski var það
áhrifamesta Hver á sér fegra föð-
urland í kvartettútfærslu sem var
vönduð og vel sungin. Einnig
mætti nefna Blómadúettinn úr
Lakmé eftir Delibes og Ég sé þig
eftir Áskel Jónsson, hvorttveggja
dúettar sem voru tilfinningaríkir
og fallega fluttir.
Matthildur Anna Gísladóttir lék
á píanóið og gerði það af natni og
næmi fyrir ólíkum blæbrigðum
tónlistarinnar.
Óneitanlega voru þetta vel
heppnaðir tónleikar.
Aríukvöldið ljúfa
Salurinn í Kópavogi
Söngtónleikar
bbbnn
Söngvararnir Steinunn Soffía Skjen-
stad, Dóra Steinunn Ármannsdóttir,
Benedikt Kristjánsson og Andri Björn
Róbertsson, ásamt Matthildi Önnu
Gísladóttur píanóleikara, fluttu tónlist
eftir ýmis tónskáld.
JÓNAS
SEN
TÓNLIST
Maður veit orðið aldreihvernig ný tónlist kem-ur til með að hljóma.Hvert tónskáld hefur
sinn stíl og það er engin ein stefna í
tónsmíðum sem er í tísku. Ég hafði
því ekki hugmynd um á hverju ég átti
von á tónleikum á fimmtudagskvöldið
í Langholtskirkju. Þar var
Opinberunarbók Jóhannesar meg-
inuppistaða verksins, sem bar nafnið
Vision of the Apocalypse. Það var
samið af Virginiu-Gene Rittenhouse.
Tónleikarnir voru haldnir af Óp-
erukórnum í Reykjavík undir stjórn
Garðars Cortes, en hljómsveitin sem
lék var The New England Youth En-
semble, stofnuð árið 1970 af tónskáld-
inu.
Tónlistin kom þægilega á óvart.
Hún samanstóð af aðgengilegum lag-
línum og notalegum hljómum, stíllinn
var nýklassískur og fremur einfaldur.
Einhver gæti sagt að slík tónlist væri
klisjukennd, og það væri að nokkru
rétt. Verkið var hins vegar svo
smekklega samansett, og það sam-
svaraði sér svo vel, að kunnuglegar
hendingar og hljómar, sem maður
hefur heyrt hundrað sinnum áður,
voru bara skemmtilegir.
Ég hugsa að Opinberunarbókin
hafi neikvæða ímynd í huga margra,
hún er jú um dómsdag og það er ekk-
ert víst að maður verði í vinningslið-
inu þegar þar að kemur. Í þeim bún-
ingi sem hér var boðið upp á var þó
fyrst og fremst einblínt á vonina.
Dómsdagur kom manni fyrir sjónir
sem nauðsynleg hreinsun og það var
allt eitthvað svo gott á eftir. Tónlistin
undirstrikaði þetta með glaðværð, en
líka miklu drama. Stundum var
dramað kómískt, t.d. átti ég erfitt
með að skella ekki upp úr þegar kór-
inn söng, þungbrýnn mjög, um fall
hórunnar miklu af Babýlon.
Kórinn var í fínu formi og söng af
viðeigandi tilfinningu. Heildarhljóm-
urinn var þéttur og kraftmikill, en
líka tær þegar við átti.
Einsöngvararnir voru hins vegar
dálítið misjafnir, enda mislangt
komnir í sönglistinni. Sumir voru frá-
bærir, aðrir með minni raddir. Allir
gæddu þó söng sinn réttu tilfinning-
unni. Svipaða sögu er að segja um
hljómsveitina. Hún samanstóð aðal-
lega af ungu fólki, en ég tók líka eftir
nokkrum gömlum brýnum úr Sinfón-
íuhljómsveit Íslands. Almennt talað
spilaði hljómsveitin ágætlega, helst
mátti finna að því að strengirnir voru
dálítið óhreinir í byrjun en það lagað-
ist þegar á leið.
Eins og sjá má voru hnökrar á
flutningnum, en það sem á vantaði
bætti leik- og sönggleðin upp. Út-
koman var hin ágætasta skemmtun
og gaf manni nýja sýn á Opinber-
unarbókina. Ég vona að ég lendi rétt-
um megin þegar sá lúðrablástur
hefst.
Langholtskirkja
Kórtónleikar
bbbmn
The Vision of the Apocalypse eftir Virg-
iniu-Gene Rittenhouse. Flytjendur: Óp-
erukórinn í Reykjavík og The New Eng-
land Youth Ensemble undir stjórn
Garðars Cortes. Einsöngvarar: Garðar
Thór Cortes, Fjóla Kristín Bragadóttir,
Ingibjörg Ólafsdóttir, Hallveig Guð-
mundsdóttir, Aron Axel Cortes og Bragi
Jónsson. Fimmtudagur 13. ágúst.
JÓNAS
SEN
TÓNLIST
Gleði og
skemmtun
á dómsdag!
Fréttir á SMS