Morgunblaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 24
24 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009
Ólga á milli trúarhópa
Valdamiklir menn í röðum sjíta og súnníta í Írak kenna nú hvorir öðrum um
hryðjuverkin í Bagdad á miðvikudag, þau mestu í landinu í hálft annað ár
Eftir Svein Sigurðsson
svs@mbl.is
SJÍTAR og súnnítar í Írak kenna hvorir öðrum
um hryðjuverkin í Bagdad fyrr í vikunni en þau
urðu um 100 manns að bana og særðu og örkuml-
uðu mörg hundruð manns. Óttast margir, að átök
á milli trúarhópanna fari aftur vaxandi.
Nuri al-Maliki forsætisráðherra og sjíti sagði,
að hryðjuverkin væru „örvæntingarfull tilraun til
að að hafa áhrif á stjórnmálaþróunina og vænt-
anlegar þingkosningar“ og Íslamska æðstaráðið,
valdamikil stofnun meðal sjíta, sagði, að um væri
að ræða „skipulegan hernað“ en ekki bara einstök
sprengjutilræði. Kenndi það súnnítum um óöldina,
einkanlega fyrrverandi stuðningsmönnum Sadd-
ams Husseins.
Íslamski herinn, helstu skæruliðasamtök
súnníta, fullyrtu á móti, að hryðjuverkin í Bagdad
hefðu verið runnin undan rifjum Íraksstjórnar,
sem er að mestu skipuð sjítum, og Bandaríkja-
manna.
Bandaríkjamenn hafa dregið allt herlið sitt út
úr borgum og bæjum í Írak en um leið hefur óöldin
og ofbeldið aftur farið að láta á sér kræla. Hafa
margir miklar áhyggjur af ástandinu og óttast, að
liðsmenn helstu trúflokkanna, sjíta og súnníta, fari
aftur að berast á banaspjót.
Reuters
Hryðjuverk Eyðileggingin í sprengingunum á
miðvikudag var gífurleg og manntjónið mikið.
DAVID Cameron, leiðtogi breska
Íhaldsflokksins, hefur sakað stórfyr-
irtækin um að kynda undir óhollum
lífsháttum og eiga með því sína sök á
alls kyns kvillum, offitu, sykursýki,
áfengissýki og mörgum öðrum lífs-
stílssjúkdómum. Segir hann, að sigri
flokkur hans í kosningunum á næsta
ári, sem flest bendir til, muni hann
sem forsætisráðherra snúast gegn
þessu af alefli í því skyni m.a. að
draga úr sívaxandi álagi á heilbrigð-
iskerfið.
„Sannleikurinn er sá, að mörg fyr-
irtæki græða mikið á óhollustunni,“
sagði Cameron og bætti við, að hann
ætlaði að beita sér fyrir „ábyrgum
samningum“ við fyrirtækin til að
vinna gegn offitu og óhófsdrykkju.
Þá yrði reynt að koma í veg fyrir, að
óhollri vöru væri haldið að börnum.
Cameron sagði það sína skoðun,
að betra væri að ráðast gegn vand-
anum með þessum hætti, með því að
auka ábyrgð fyrirtækja og einstak-
linga, en með því sem hann kallaði
fyrirskipanaaðferð núverandi
stjórnar.
Í umræðum innan Íhaldsflokksins
hefur verið rætt um að takmarka
mjög notkun hertrar fitu, banna eða
takmarka verulega „ofurskammta“ á
veitinga- og skyndibitastöðum, tak-
marka mjög auglýsingar, sem beint
er til barna, og skylda þá, sem selja
vín eða skyndimat, til að greina frá
hitaeiningafjölda. Þá er talað um að
hækka skatta á áfengi.
Cameron hefur einnig tekið upp
hanskann fyrir breska heilbrigðis-
kerfið en einn þingmanna flokksins
lýsti því nýlega sem „mistökum í 60
ár“. Sagði Cameron, að Íhaldsflokk-
urinn myndi standa vörð um heil-
brigðiskerfið. Ummæli þingmanns-
ins fóru mjög fyrir brjóstið á
mörgum Bretum. svs@mbl.is
Segir stórfyrirtæki kynda
undir óhollum lífsháttum
David Cameron, leiðtogi breska Íhaldsflokksins, segist ætla
að bregðast mjög hart við verði hann forsætisráðherra
Reuters
Forsætisráðherra 2010? Came-
ron, leiðtogi breska Íhaldsflokksins.
FRAMBJÓÐENDUR í forseta-
kosningunum í Afganistan í fyrra-
dag voru um 30 en í kosningunum
til héraðsráðanna voru þeir 3.400.
Þekktu fæstir kjósendur eitthvað
til þeirra og því voru það oft ekki
málefnin, sem réðu valinu, heldur
ýmislegt annað, t.d. fríðleikinn.
Bendir margt til, að konurnar hafi
grætt á því.
„Ég man bara ekki hvern ég
kaus,“ sagði Abdul Bashir, 21 árs
gamall maður í Kabúl, en Ajmal, 18
ára, mundi vel hvað hann kaus.
Hann blaðaði í gegnum frambjóð-
endalistann og virti hverja mynd
fyrir sér. Loks staðnæmdist hann
við mynd af ungri stúlku.
„Man ekki hvað hún
heitir en hún er falleg“
„Ég kaus hana. Ég man ekki
hvað hún heitir en hún er falleg,“
sagði Ajmal með hjólabrettið undir
hendinni, í gallabuxum og litskrúð-
ugum skyrtubol.
Annar ungur maður, sem ekki
vildi láta nafns síns getið, kvaðst
hafa skoðað listann vel og síðan
kosið stúlku, sem honum fannst sú
fallegasta.
Mohammad Edris, 22 ára, kaus
líka stúlku en hann hafði áður séð
hana í sjónvarpinu, í afgönskum
stjörnuleitarþætti, sem sniðinn er
eftir „American Idol“.
„Ég kaus Faridu Tarana. Mér
líkar hún. Hún er falleg og syngur
vel,“ sagði Edris.
Sumir kusu aðeins þá, sem þeir
töldu vera af sama þjóðarbroti og
þeir sjálfir, en svo var líka til í
dæminu, að menn gæfust upp í
kjörklefanum og skiluðu auðu. Það
gerðu þeir Emal Wafa og Qais
Azimi.
„Ég fann engan, sem mér líkaði,
og til að vera ekki að kjósa ein-
hvern þrjót eða glæpamann ákvað
ég að skila auðu,“ sagði Azimi.
svs@mbl.is
Ekki verra
að vera
snoppufríð
Farida Tarana „Fögur var hún og
fríð að sjá, fallega leist mér hana á.“
FÉLAGAR í svokölluðum „Diablada“-danshópi í
Bólivíu efndu í fyrradag til mótmæla við þing-
húsið í La Paz. Var tilefnið það, að fegurðar-
drottningin Karen Schwarz eða Ungfrú Perú er
sökuð um að hafa „stolist“ í búninginn þeirra.
Ætlar hún að klæðast líkum búningi á þjóðbún-
ingakvöldi í keppninni um Ungfrú alheim. Hafa
stjórnvöld í Bólivíu mótmælt því formlega.
Búningur Diablada-dansaranna er þeim há-
heilagt mál og dansinn líka en hann er af trúar-
legum rótum runninn, orðinn til í þeirri deiglu,
sem bræddi saman fornar trúarhugmyndir ind-
íána í Andesfjöllum og þær kristnu og kaþólsku
hugmyndir, sem þangað bárust með spænsku
landvinningamönnunum.
Ofurskrautlegir dansarar
„Búningastuldi“ mótmælt
Reuters
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífar
fjölbreytt úrval, ,magnar upp daginn