Morgunblaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 22.08.2009, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009 „Í SVANALÍKI lyftist moldin hæst“ segir í kvæði skáld- jöfursins Einars Benediktssonar og kannski má líka segja það um þetta listaverk í borginni Stavropol í Rússlandi. Það er að vísu úr því óeðla efni gúmmíi, úr gömlum hjólbarða, en allt er þetta þó af einni og sömu rót runnið. svs@mbl.is Reuters Svanurinn minn syngur STÓRFYRIRTÆKIN Amazon, Microsoft og Yahoo hafa ákveðið að taka saman höndum og berjast gegn tilraunum Google til að koma á fót því, sem kalla mætti stærsta bóka- safn í heimi. Óttast margir, að það muni umbylta öllum bókaiðnaðinum og þeim aðgangi, sem fólk hefur haft að menningararfleifð alls mannkyns. Fyrirtækin þrjú ætla að taka þátt í samtökum eða framtaki, sem kall- ast Opin bók, en það er á vegum Int- ernet Archive, óháðrar stofnunar, sem veitir ókeypis aðgang að bók- um, sem hún hefur sett í stafrænt form. Brewster Kahlo, stofnandi Int- ernet Archive, sagði í viðtali við BBC, breska ríkisútvarpið, að Google væri að reyna að einoka bókasafnsnotkun, að verða í raun „eina bókasafnið“. Einokunartilburðir? Google gerði í fyrra samning við útgefendur og rithöfunda en þeir höfðu þá höfðað mál gegn fyrirtæk- inu, sem þeir sökuðu um að hafa skannað bækur í heimildarleysi og brotið þannig gegn höfundarrétti og útgáfurétti. Var samið um að höf- undar og útgefendur skyldu setja sín verk inn í sérstaka réttindaskrá gegn ákveðinni greiðslu. Lagði Go- ogle fram 125 milljónir dollara í því skyni. Áttu höfundar og útgefendur að fá 70% af andvirði seldra bóka en Google 30%. Google átti einnig að fá rétt til að skanna „munaðarlaus“ verk en þá er átt við bækur án rétt- hafa. Talið er, að það eigi við um 50 til 70% allra bóka, sem gefnar hafa verið út frá árinu 1923. Frestur til að gera athugasemd við þetta samkomulag rennur út 4. september en snemma í október mun dómari í New York meta rétt- mæti þess. Nefna má þó, að banda- ríska dómsmálaráðuneytið er að kanna hvort samningurinn brjóti í bága við gildandi lög um hringa- myndun. Kahlo sagði í viðtalinu við BBC, að í raun væri öll bókamenningin í húfi, allur bókasafnsheimurinn og op- inber stuðningur við hann, öll hin fjölskrúðuga bókaútgáfa og flest það, sem menn tengdu við bækur. Áhyggjur af persónuvernd Andstaða við þennan hugsanlega Google-samning hefur farið mjög vaxandi að undanförnu og víst þykir, að tilkoma risanna þriggja, Micro- soft, Yahoo og Amazon, mun gefa henni aukinn slagkraft. Margir hafa líka áhyggjur af per- sónuverndinni. Venjulegar bóka- safnsbækur getur fólk lesið án þess að óttast, að einhver sé á gægjum en öðru máli getur gegnt um netið eins og alkunna er. svs@mbl.is Sameinast í andstöðu við Google-bókasafnið Morgunblaðið/Golli Menningin Er hætta á að Google verði banabiti bókasafnanna? Margir óttast að fyrirætlanir Google séu tilræði við þá fjöl- skrúðugu menningu, sem felst í bókasöfnum og bókaútgáfu BERTEL Haarder, menntamála- ráðherra Danmerkur, segir að hindra verði unglinga á skólaskyldu- aldri í að skrópa í skóla, t.d. megi senda þeim smáskilaboð á morgn- ana. Dugi það ekki verði sveitar- félögin að senda fólk til að draga unglingana úr rúminu, segir hann í viðtali við nettímaritið Altinget.dk. „Til eru fyrirtæki sem taka að sér slíka þjónustu gegn greiðslu,“ segir Haarder. „Ég vil eindregið hvetja sveitarfélög, ráðgjafa og mennta- stofnanir til að ýta hressilega við sinnulausum unglingum vegna þess að það kemur að gagni.“ Danska stjórnin vinnur nú að stefnumótun þar sem tekið verður á málefnum 16-17 ára unglinga með það í huga að draga úr hætt- unni á að þau lendi utangarðs í samfélaginu. Haarder segir að koma verði í veg fyrir að ung- lingar haldi að hægt sé að sleppa við að leggja nokkuð á sig og lifa síðan á velferð- arhjálp. Hættulegt sé að láta 16-17 ára unglinga afskiptalausa, þá geti þeir gleymst. Það kosti sveitarfélög- in ekkert að gleyma þeim þar sem þau þurfi ekki að veita fjárhagslega aðstoð fyrr en börnin ná 18 ára aldri. kjon@mbl.is Skrópararnir verði sóttir heim til sín Bertel Haarder SAMÞYKKT var nýlega með yfir- gnæfandi meirihluta í póstkosningu á Nýja-Sjálandi að foreldrum skuli heimilt að löðrunga börn sín til að aga þau án þess að það teljist vera afbrot. Fyrir tveim árum voru samþykkt lög sem banna foreldrum að beita líkamlegum refsingum gegn börn- um. Voru meðal annars notuð þau rök að tíðni ofbeldis gegn börnum væri hærri í landinu en víðast hvar. Um 54% kjósenda tóku þátt í póstkosningunni og munu nær 90% hafa stutt leyfi til að löðrunga. Nið- urstaðan er þó ekki bindandi og sagðist John Kay forsætisráðherra ekki ætla að beita sér fyrir breyt- ingu á lögunum. kjon@mbl.is Foreldrar vilja fá að löðrunga börnin sín B í l d s h ö f ð a 2 0 • R e y k j a v í k • s í m i 5 8 5 7 2 0 0 OPIÐ ALLA DAGA höfum opnað outle t 3. hæð Húsgag na
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.