Morgunblaðið - 22.08.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009
Eftir Einar Ben Þorsteinsson
Kárahnjúkar | Við Kárahnjúka-
stíflu Landsvirkjunar var á
fimmtudag vígt útilistaverkið
Hringiða. Verkið er eftir lista-
manninn Jónínu Guðnadóttur.
Hún vann samkeppni listamanna
um útilistaverk við Kárahnjúka.
Upphaflegar tillögur Jónínu
gerðu ráð fyrir verki við hverja af
þremur stíflum Kárahnjúkavirkj-
unar. Á síðari stigum var ákveðið
að eitt verk skyldi sett upp við
aðalstíflu Hálslóns. Þar stendur
verkið á útsýnisstað og er í raun
útsýnispallur þar sem sér yfir
stóran hluta Hálslóns, til Snæfells,
yfir stíflumúrinn og niður í Jök-
ulsárgljúfur.
Af Hringiðu fæst því góð yf-
irsýn yfir umfang og umhverfi
Kárahnjúkavirkjunar og verður
vafalaust heitur reitur fyrir ferða-
menn á þessum slóðum í framtíð-
inni.
Alveg eins og listamaðurinn
hugsaði sér
Verkið, sem er hringlaga platti
eða stétt, er gert úr íslensku
grjóti af Kárahnjúkasvæðinu.
Annars vegar úr hellugrjóti og
hins vegar úr sérsöguðu blágrýti.
Á stéttina er ritaður texti úr Völu-
spá og er letrið smíðað úr áli. Í
miðju verksins er hringur, 7,5
metra breiður, sem er breidd að-
rennslisganga Fljótsdalsstöðvar.
Spírall liggur svo frá ystu brún
verksins inn að miðju, sem táknar
hringiðuna að aðrennslis-
göngunum.
Listamaðurinn Jónína Guðna-
dóttir var hæstánægð með útkomu
verksins. „Verkið er nákvæmlega
eins og ég hafði hugsað mér það.
Ég er mjög ánægð með útkomuna
og ég hefði engu viljað breyta. Ég
vil sérstaklega taka fram að öll
vinna og samskipti vegna uppsetn-
ingar verksins voru afar ánægju-
leg og eftirminnileg.“
Það var fyrirtækið Listigarðar
ehf. sem sá um uppsetningu
verksins eftir að hafa átt lægsta
tilboðið í útboði Landsvirkjunar.
Að sögn Þorsteins Hilmarssonar
var heildarkostnaður við verkið
einhvers staðar á bilinu 20-30
milljónir króna. „Það hefur verið
hefð hjá Landsvirkjun að setja
upp listaverk við allar virkjanir
fyrirtækisins. Hringiða er eitt af
þremur listaverkum sem sett eru
upp við Kárahnjúka. Tvö önnur
listaverk voru vígð á síðasta ári.“
Morgunblaðið/EB
Á stíflu Útilistaverkið Hringiðan eftir Jónínu Guðnadóttur var vígt við Kárahnjúkastíflu á fimmtudag. Hægra meg-
in má sjá Hálslón og Snæfell í fjarska, stífluveggurinn er fyrir miðju og hnjúkurinn fjær til vinstri.
Hringiða við Hálslón
Listaverk Jónínu Guðnadóttur vígt við Kárahnjúkastíflu Unnið úr
grjóti af Kárahnjúkasvæðinu Á verkið er ritaður texti úr Völuspá úr áli
ALLS fluttu 4.252 frá landinu á
fyrri helmingi þessa árs en 2.720 til
landsins, að því er kemur fram á
fréttavef Hagstofunnar.
Flestir fluttu til Póllands, eða
1.247. Þeir sem fluttu frá Póllandi
til Íslands voru 667. Til Danmerkur
fluttu 676 en frá Danmörku 540.
Þeir sem fluttu til Noregs fyrstu
sex mánuði ársins voru 565 en 116
fluttu frá Noregi til Íslands.
Til Svíþjóðar fluttu 317 en 151
frá Svíþjóð til Íslands.
Fram kemur á vef Hagstofunnar
að meðalaldur brottfluttra á fyrri
helmingi ársins hafi verið 29,3 ár
miðað við 29,8 ár á sama tímabili í
fyrra.
Meðalaldur aðfluttra var 26,8 ár
á fyrstu sex mánuðum ársins en var
28,7 ár á sama tímabili í fyrra.
Mikill munur var á búferlaflutn-
ingum karla og kvenna milli landa.
Fyrstu sex mánuðina fluttu 1.233
fleiri karlar frá landinu en til þess
samanborið við 299 konur.
Kynjahlutfall landsmanna í heild
færist nær hefðbundinni skiptingu
hérlendis og var 1. júlí 1.024 karlar
á móti hverjum 1.000 konum.
Rúmlega 4.000
fluttu frá landinu
fyrri helming árs
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
ÖKUMENN í Reykjavík og ná-
grenni þurfa að gæta sérlega vel að
sér í umferðinni á næstu vikum því
1.300 sex ára nemendur hefja nám í
grunnskólum borgarinnar og um
það bil 100 fimm ára nemendur.
Umferðarþunginn eykst dag frá
degi um þessar mundir þar sem
sumarleyfum lýkur.
Reykjavíkurborg hvetur alla þá
borgarbúa sem geta nýtt sér reið-
hjól og almenningssamgöngur í
haust að gera það. Eitt af Grænu
skrefunum í Reykjavík kveður á um
vistvænar ferðavenjur og í sam-
ræmi við það hefur til að mynda
göngu- og hjólreiðastígurinn við
Ægisíðu verið tvöfaldaður og
strætisvögnum veittur forgangur.
Foreldrar ungra grunnskólanema
eru hvattir til að ganga með börn-
um sínum í skólann.
Ökumenn gæti að
sér vegna barna
LÖGREGLAN á Blönduósi stöðvaði
bifreið á norðurleið í reglubundnu
eftirliti, en í bílnum voru u.þ.b 50
grömm af amfetamíni. Karl og
kona á þrítugsaldri voru færð til yf-
irheyrslu. Grunur kviknaði um að
þau hefðu óhreint mjöl í pokahorn-
inu og voru þau færð ásamt bifreið-
inni á lögreglustöðina á Blönduósi
þar sem leit var gerð á þeim og í
bifreiðinni. Neituðu þau þráfald-
lega að nokkuð væri gruggugt við
ferð sína né að þau hefðu nokkuð að
fela. Kallaður var til lögreglumað-
ur með fíkniefnahund lögreglunnar
á Blönduósi og fljótlega eftir það
fundust ætluð fíkniefni í farangri
bifreiðarinnar, en karlmaðurinn
viðurkenndi að eiga efnið og hafa
ætlað það til sölu og dreifingar á
Norðurlandi, þá aðallega á Eyja-
fjarðarsvæðið.
Með um 50 grömm
af amfetamíni
Upphaflegar tillögur listakonunnar Jónínu Guðnadóttur gerðu ráð fyrir
verki við hverja af þremur stíflum Kárahnjúkavirkjunar. Á síðari stigum
var ákveðið að eitt verk skyldi sett upp við aðalstíflu Hálslóns.
Verkið, sem er hringlaga platti eða stétt, er gert úr íslensku grjóti af
Kárahnjúkasvæðinu. Í miðju verksins er hringur, 7,5 metra breiður, sem er
breidd aðrennslisganga Fljótsdalsstöðvar. Spírall liggur svo frá ystu brún
verksins inn að miðju, sem táknar hringiðuna að aðrennslisgöngunum.
Af Hringiðu fæst góð yfirsýn yfir umfang og umhverfi Kárahnjúkavirkj-
unar.
Eitt verk í stað þriggja