Morgunblaðið - 22.08.2009, Page 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009
ÓLAFUR Ragn-
ar Grímsson, for-
seti Íslands,
gekkst í gær
undir aðgerð á
Landspítalanum
vegna axlar-
brots. Forsetinn
féll af hestbaki í
útreiðartúr ná-
lægt Borgarvirki
í Húnaþingi á
þriðjudagskvöld. Forsetinn var
fluttur með sjúkrabíl á Landspít-
alann.
Örnólfur Thorsson forsetaritari
segir að aðgerðin hafi gengið vel.
Óvíst er hve lengi Ólafur Ragnar
dvelur á spítala.
Forsetinn gekkst
undir aðgerð
Ólafur Ragnar
Grímsson
Á ÞESSU hausti
eru nemendur í
grunnskólum í
Reykjavík rúm-
lega 14.000, þar
af eru um 13.600 í
skólum í rekstri
Reykjavík-
urborgar og um
400 í sjálfstætt
starfandi grunnskólum. Rúmlega
1.300 börn eru að stíga sín fyrstu
skref í skóla. Nemendur í skólum
borgarinnar eru um 300 færri en
haustið 2008. Heildarfjöldi starfs-
manna í grunnskólum Reykjavík-
urborgar er um 2.500 í um 2.100
stöðugildum eða svipaður og síðustu
árin. Vel hefur gengið að manna
stöður í skólunum en um þessar
mundir er auglýst eftir fólki í nokkr-
ar stöður skólaliða.
Árbæjarskóli fjölmennastur
Fjölmennasti grunnskóli Reykja-
víkurborgar er Árbæjarskóli með
725 nemendur, en fámennastur er
Ártúnsskóli með 152 nemendur. Sjö
grunnskólar borgarinnar eru með
fleiri en 500 nemendur og 13 skólar
með 300 nemendur eða færri. Þrír
grunnskólar eru í byggingu; Sæ-
mundarskóli, en bygging hans er
komin vel á veg og gert er ráð fyrir
að kennsla hefjist í hluta nýbygging-
arinnar nú í haust. Bygging Norð-
lingaskóla er komin styttra á veg. Þá
er hafin bygging skólahúsnæðis í
Úlfarsárdal sem upphaflega var ætl-
að eingöngu fyrir leikskóla, en til að
byrja með verður byggingin nýtt
fyrir starfsemi leikskóla, yngri bekki
grunnskóla og frístundaheimili.
Fjöldi nemenda á stöðugildi hvers
kennara er um 11 og hefur verið
svipaður undanfarin ár. Meðalfjöldi
nemenda í bekk er 20,8 og hefur
hann verið svipaður í fjölda ára.
Gengur
vel að
manna
14 þúsund nemendur
í grunnskólunum
Í LJÓSI þeirrar háværu umræðu
sem var um inngöngu nemenda í
framhaldsskóla í vor og nýrra sam-
ræmdra könnunarprófa að hausti,
fer stjórn Heimilis og skóla – lands-
samtaka foreldra fram á það við
menntayfirvöld að þau gefi skýr
skilaboð um hvernig staðið verði að
inntöku nýnema í framhaldsskóla
næsta vor. Þetta kemur fram í álykt-
un frá félaginu.
Skýr skilaboð
um inntöku
„AUÐVITAÐ er þetta frekar fúlt,
en í staðinn vonumst við bara til að
enn fleiri láti sjá sig á hrútaþuklinu
í Sævangi á laugardaginn,“ segir
Arnar S. Jónsson í samtali við
strandir.is. Bændahátíð og þuklara-
balli, sem efna átti til í kvöld, hefur
verið aflýst vegna ónógrar þátt-
töku. Hins vegar verður efnt til
landsmóts í hrútadómum í Sæ-
vangi, sem stundum hefur líka ver-
ið nefnt meistaramót í hrútaþukli
og jafnvel heimsmeistaramót.
Landsmót í hrútadómum var
fyrst haldið haustið 2003 en það er
Sauðfjársetur á Ströndum sem
stendur að uppákomunni. Keppt er
í flokki vanra og óvanra þuklara og
vegleg verðlaun veitt þeim þremur
sem bestum árangri ná.
Þuklaraballi aflýst
vegna lítils áhuga
AÐEINS 31
kaupsamningi
var þinglýst á
höfuðborgar-
svæðinu 14.-20.
ágúst. Að með-
altali var 38
kaupsamningum
þinglýst á viku
undanfarna þrjá
mánuði. Á sama tímabili í fyrra
voru kaupsamningarnir 67 talsins
og árið 2007 voru þeir 222.
Í vikunni sem er að líða voru 25
samningar um eignir í fjölbýli og 6
samningar um sérbýli. Heildar-
veltan var 868 milljónir króna og
meðalupphæð á samning 28 millj-
ónir króna.
Þremur kaupsamningum var
þinglýst á Suðurnesjum 14.-20.
ágúst. Á sama tíma var 8 kaup-
samningum þinglýst á Akureyri.
Engum kaupsamningum var
þinglýst á Árborgarsvæðinu á tíma-
bilinu, samkvæmt upplýsingum frá
Fasteignaskrá Íslands.
Fáum kaupsamn-
ingum var þinglýst
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ÖSSUR Skarphéðinsson utanríkisráðherra átti tvíhliða
fundi með öllum þátttakendum í utanríkisráðherrafundi
Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna sem haldinn
var hér á landi í gær. Hann fór þar sérstaklega yfir
stöðu Icesave-málsins. Össur kynnti ráðherrunum
stöðu málsins á Alþingi og fór rækilega yfir þær breyt-
ingartillögur sem fjárlaganefnd hefur orðið sammála
um. Össur greindi frá þessu við setningu blaðamanna-
fundar í Eldborg við Svartsengi að loknum ráðherra-
fundinum í gær. Auk Össurar sátu blaðamannafundinn
þeir Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, Urmas
Paet, utanríkisráðherra Eistlands og Maris Riekstins,
utanríkisráðherra Lettlands.
Össur sagði að það hafi e.t.v. borið hæst á ráðherra-
fundinum að Carl Bildt fór yfir áherslur Svía sem for-
ysturíkis í Evrópusambandinu (ESB), einnig umsókn
Íslands um aðildarumsókn Íslands að ESB, stöðu
hennar og möguleika. Einnig voru efnahagsmál rædd,
en víðar en á Íslandi kreppir að í þeim efnum, að sögn
Össurar.
Carl Bildt, utanríkisráðherra Svíþjóðar, minntist á
aðildarumsókn Íslands að ESB og kvaðst vera þess
fullviss að Evrópa yrði betri fyrir alla Evrópubúa með
sterkari norrænni rödd. Hann kvaðst telja að Ísland
myndi styrkja þá rödd og aðild þess að ESB myndi
styrkja og dýpka norrænt samstarf. „Við höfum lýst
yfir samstöðu okkar með Íslandi þegar það tekst við
efnahagserfiðleikana sem það nú glímir við,“ sagði
Bildt.
Aðspurður um norrænu lánin til Íslands sagði Össur
að hann hafi rætt málið ítarlega við Carl Bildt. „Hann
taldi að málið væri það vel á vegi statt að ekki væri
ástæða til að óttast um afdrif þess,“ sagði Össur. Hann
sagði að menn hafi verið bjartsýnir á niðurstöðuna, en
allir bíði eftir niðurstöðu Alþingis.
Carl Bildt sagði að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS)
sé nú að aðstoða hóp landa í efnahagserfiðleikum og
þeirra á meðal séu t.d. Ísland og Lettland. Hann benti
á að það sé einungis á einu svæði í heiminum þar sem
AGS er að aðstoða ríki í vanda að nágrannar komi
einnig til liðs við áætlanir AGS og leggja fram aðstoð.
Það sé á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu og sé
til marks um samstöðu þjóða á þessu svæði.
Utanríkisráðherrar Eistlands og Lettlands, þeir Ur-
mas Paet og Maris Riekstins, nefndu báðir að um
þessar mundir eru liðin 18 ár frá því að lönd þeirra
endurheimtu sjálfstæði sitt. Báðir nefndu sérstaklega
þakklæti þjóða sinna til Íslands fyrir að hafa fyrst
ríkja viðurkennt endurheimt sjálfstæði þessara ríkja.
Áhyggjur af Afganistan og Sri Lanka
Á fundinum var m.a. rætt um kosningarnar í Afgan-
istan. Össur sagði að ráðherrarnir hafi ákveðið að
koma á framfæri áhyggjum sínum af því að svo virðist
sem núverandi forseti Afganistan hafi leitt í lög ákvæði
sem í raun feli í sér ofbeldi gagnvart konum.
Utanríkisráðherrarnir samþykktu einnig yfirlýsingu
þar sem þeir lýstu þungum áhyggjum sínum vegna
hundruð þúsunda flóttamanna sem eru á vergangi á
Sri Lanka. Þeir skora á stjórnvöld á Sri Lanka að
bregðast við ástandi mannúðarmála „og að taka taf-
arlaust þátt, með ábyrgum hætti, í víðtækum samn-
ingaumleitunum vegna stjórnmálaástandsins“.
Utanríkisráðherrum
kynnt staða Icesave
Carl Bildt sagði Norðurlönd og Eystrasaltið eina svæðið í
heiminum þar sem nágrannalönd leggja lið auk áætlana AGS
Morgunblaðið/Ómar
Nágrannar Utanríkisráðherrar fjögurra Norðurlanda og Eystrasaltsríkja sátu fyrir svörum að loknum fundi.
MEIRIHLUTI kennara við Landa-
kotsskóla skilar auðu í þeim deilu-
málum sem eru uppi innan skólans.
Fjölmiðlum barst í gær yfirlýsing frá
kennurum þar sem uppsögn Fríðu
Regínu Höskuldsdóttur skólastjóra
er hörmuð og hún sögð setja skóla-
starf í upplausn. Aðeins fjórir kenn-
arar af fjórtán sem starfa við skól-
ann skrifuðu undir.
„Hinir tíu kennara standa við deil-
una,“ segir Guðbjörg Magnúsdóttir,
varatrúnaðarmaður kennara. Skv.
heimildum Morgunblaðsins mun rík-
ur vilji vera meðal kennara að leggj-
ast á árar með skólanefndinni, að
leysa þann fjárhagsvanda sem skól-
inn er í með víðtækum aðhaldsað-
gerðum. Landakotsskóli fær frá
borginni fyrir hvern nemanda 75%
þeirrar upphæðar sem borgin greið-
ir opinberum skólum. Það sem uppá
vantar þarf skólinn sjálfur að brúa.
sbs@mbl.is
Meirihluti
kennara
skilar auðu
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
Borgartúni 21 | 105 Reykjavík | Sími : 569 6900, 800 6969
www.ils.is
Lán til íbúðakaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Úrræði í greiðsluvanda