Morgunblaðið - 22.08.2009, Síða 21

Morgunblaðið - 22.08.2009, Síða 21
Fréttir 21INNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009 Frábært land til ferðalaga Ljósifoss Blanda Laxá Krafla Végarður Búrfell Nánari upplýsingar um heimsókn til Landsvirkjunar eru á www.landsvirkjun.is og í síma 515 9000. Árangur fyrir alla 28 9 A • P Merktu þína uppáhalds áfangastaði inn á kortið. Er ekki upplagt að koma við hjá okkur í leiðinni? Nú fer hver að vera síðastur. Sýningum okkar fer að ljúka. Dimmir hratt á draugaslóð í Blöndustöð opið til 23. ágúst Andlit Þjórsdæla í Búrfellsstöð opið til 23. ágúst Afl úr iðrum jarðar í Kröflustöð opið til 7. sept Hvað er með Ásum? í Laxárstöð lokað List Kristjönu Samper í Ljósafossstöð opið til 23. ágúst Orkan frá Kárahnjúkum í Végarði opið til 30. ágúst Stöðvar Landsvirkjunar eru opnar alla eftirmiðdaga í sumar. Aðgangur er ókeypis. TÍU skilti með fræðslu um bann við akstri utan vega verða sett upp á leiðum inn á hálendið og áróðri dreift með bæklingum og stýrisspjöldum í bílaleigubílum samkvæmt samningi sem Vegagerðin, tryggingafélög og bílaleigur undirrituðu í gær. Sam- starf þetta er árangur af vinnu sam- ráðshóps um fræðslu gegn akstri ut- an vega sem umhverfisráðherra skipaði í upphafi árs. Fyrr í sumar gáfu Umhverf- isstofnun og umhverfisráðuneytið út bækling á fjórum tungumálum sem var dreift m.a. á bílaleigum og al- gengum ferðamannastöðum. Há- lendiseftirlit, samstarf Slysavarn- arfélagsins Landsbjargar, lögreglu, Umhverfisstofnunar og Landhelg- isgæslunnar fór af stað í sumar. Þá hefur Umhverfisstofnun búið til sér- stök eyðublöð og leiðbeiningar fyrir t.d. landverði til að skrá og tilkynna akstur utan vega til lögreglu og Um- hverfisstofnunar. Einnig hefur boð- skap gegn akstri utan vega verið komið á framfæri með fræðsluefni sem fylgir flestum bílaleigubílum. Loks hefur upplýsingum um akstur utan vega verið komið á framfæri á vefsvæði Umhverfisstofnunar: um- hverfisstofnun.is. Hægt er að skoða myndir af skemmdum í náttúru Íslands af völdum aksturs utan vega á heima- síðu Umhverfisstofnunar. Barist gegn utanvegaakstri Í HNOTSKURN »Umhverfisráðuneytiðvinnur einnig að því í samvinnu við Vegagerð- ina, Landmælingar, Um- hverfisstofnun og viðkom- andi sveitarfélög að skilgreina vegi á hálendi Íslands. »Markmiðið með þeirrivinnu er að eyða óvissu um hvaða slóða megi aka og hvaða slóðar hafi verið myndaðir í óleyfi. FJÓRIR útlendir karlmenn voru dæmdir, í þrjátíu daga fangelsi hver, í Héraðsdómi Reykjaness í vikunni fyrir að framvísa röngum vegabréf- um á Keflavíkurflugvelli. Komu þeir til landsins 13.-17. ágúst og voru handteknir við komuna. Fimmtudaginn 13. ágúst var 24 ára karlmaður frá Sómalíu handtek- inn eftir komu með flugi frá Osló. Maðurinn var á leið til Torontó og framvísaði norsku vegabréfi. Föstudaginn 14. ágúst var 25 ára karlmaður frá Sierra Leone hand- tekinn eftir komu með flugi frá Frankfurt. Sá var einnig á leið til To- rontó í Kanada og framvísaði fölsuðu kanadísku vegabréfi. Laugardaginn 15. ágúst var 28 ára karlmaður frá Íran handtekinn eftir komu með flugi frá Helsinki. Sá framvísaði fölsuðu dönsku vegabréfi. Mánudaginn 17. ágúst var 26 ára karlmaður frá Írak handtekinn eftir komu með flugi frá Osló. Sá framvís- aði fölsuðu tyrknesku vegabréfi. Hver um sig var dæmdur í 30 daga fangelsi. Að auki var hverjum hinna dæmdu gert að greiða verjanda tæp- lega 84 þúsund krónur. Frá áramótum hefur á þriðja tug manna verið handtekinn við komu til landsins í Leifsstöð með fölsuð eða stolin skilríki. Að lokinni afplánun er viðkomandi sendur til síns heima eða upprunalands. Morgunblaðið/ÞÖK Leifsstöð Margir hafa verið teknir þar undanfarið með fölsuð vegabréf. Framvísuðu röngum vegabréfum í Leifsstöð Eiga þriðjung almennra krafna Óttar Pálsson, forstjóri Straums, vill koma því á framfæri að við vinnslu aðsendrar greinar sem birtist í Morgunblaðinu í gær slæddist inn sú villa að íslenskir lífeyrissjóðir myndi þriðjung almennra kröfuhafa bank- ans. Þar átti að koma fram að ís- lenskir fjárfestar, þar á meðal lífeyr- issjóðir, eigi um þriðjung almennra krafna. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.