Morgunblaðið - 22.08.2009, Síða 36

Morgunblaðið - 22.08.2009, Síða 36
36 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 2009 ✝ Björg Svavars-dóttir fæddist á Höfn 12. ágúst 1951. Hún lést á Land- spítalanum við Hring- braut laugardaginn 15. ágúst síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Guðrún Hálfdanar- dóttir, húsfreyja, f. 30. janúar 1928 og Svavar Vigfússon, sjómaður, f. 20. júlí 1918, d. 14. apríl 1984. Systkini Bjarg- ar eru Guðný Hafdís, f. 24. mars 1949, Vigfús, f. 2. októ- ber 1955 og Snæfríður Hlín, f. 26. júlí 1966. Björg giftist á sjómannadag, 3. júní 1973, Hauki Helga Þorvalds- syni, f. 30. september 1943. Börn þeirra: 1) Birnir Smári, f. 5. sept- ember 1971, sambýliskona Jana Nielsen, f. 5. mars 1973. Synir þeirra eru Haukur Jákup, f. 20. ágúst 1996 og David Thor, f. 18. október 2003. 2) Þorvaldur Borgar, f. 7. júní 1974, giftur Fanneyju Sjöfn, f. 17. júní 1976. Börn þeirra eru Andrea Rún, f. 30. janúar 2000 og Haukur Helgi, f. 22. september 2006. 3) Kristján Rúnar, f. 28. febr- úar 1980. Björg starfaði við fiskvinnslu- og afgreiðslustörf hjá Kaupfélagi Austur-Skaftfellinga eins og margt ungt fólk á þeim tíma. Hún tók þátt í upp- byggingu útgerð- ar félagsins Stemmu og starfaði þar við síldarsöltun og fleira. Björg lauk sjúkraliðanámi frá Framhaldsskóla Austur-Skafta- fellssýslu 1993. Hún starfaði á Skjólgarði, hjúkrunarheimilinu á Höfn, síðar Heil- brigðisstofnun Suðausturlands, við umönnun og handavinnukennslu. Auk þess starfaði hún síðustu ár við textíl- og handavinnukennslu við Grunnskóla Hornafjarðar. Björg átti sæti í félagsmálaráði Horna- fjarðar og sat eitt kjörtímabil sem varabæjarfulltrúi. Hún var einnig í stjórn menningarnefndar Austur-Skaftafellsýslu. Björg var mikil hannyrðakona og prjónaði og saumaði mikið og nutu margir góðs af hagleik hennar. Vann hún til viðurkenninga á því sviði. Björg unni umhverfi sínu og hafði mikið dálæti á blóma- og trjá- rækt. Hún lét sér mjög annt um heimili sitt, fjölskyldu og var vina- traust. Björg verður jarðsungin frá Hafnarkirkju í dag, laugardaginn 22. ágúst, og hefst athöfnin kl. 14. Þýtur í stráum þeyrinn hljótt, þagnar kliður dagsins. Guð er að bjóða góða nótt í geislum sólarlagsins. (Trausti Á. Reykdal.) Það er komið að kveðjustund. Í dag kveðjum við elsku Björgu okk- ar. Við stöndum eftir með sáran söknuð og hryggð í hjarta. Þá er gott að finna hlýjuna og samúðina frá góða fólkinu sem sýndi hjálp og elskusemi með nærveru sinni á erf- iðri stund. Líka öllum þeim sem fjarri voru og sendu bænir og góðan hug. Guð blessi eiginmann, syni, tengdadætur, litlu ömmubörnin og systkinin þrjú og þeirra fjölskyldur. Elsku Björg. Þökk fyrir góðu stundirnar sem við áttum með þér. Guð geymi þig, Mamma. Við söknum þess að fá ekki heimabökuðu kökurnar þínar. Við söknum þess að fá ekki símtal frá þér á sunnudögum. Við söknum þess að fá ekki að sjá þig brosa að vitleysunni í okkur. Við söknum þess að fá ekki að hringja í þig og spyrja þig ráða. Við söknum þess að fá ekki pakka frá þér með einhverju prjónuðu. Við söknum þess að fá ekki sms frá þér á miðvikudögum. Við söknum þess að fá ekki alla veisluréttina frá þér. Við söknum þess að fá ekki að heyra þig hlæja. Við söknum þess að fá ekki að kyssa þig bless. Við söknum þess að fá ekki að snerta þig. Við söknum þín. Þú varst, þú ert og verður alltaf hetjan okkar. Þorvaldur Borgar, Birn- ir Smári og Kristján Rúnar. Kæra Björg. Það er okkur sem áttum þig að vini og félaga erfið raun að sætta okkur við að þú skulir í blóma lífsins hrifin brott úr jarðlífi, sárt að sjá þig lúta í lægra haldi fyr- ir illskeyttum andstæðingi þrátt fyr- ir einstaka og hetjulega baráttu, erf- itt að sætta okkur við að hugrekki þitt og áræði fékk ekki frekara brautargengi í lífinu og óréttlátt að þú skyldir ekki fá að deila áfram þínum mikla mannauði með þeim er þér unna og voru þér svo kærir. Kæra Björg, við viljum reyna að takast á við sorgina og söknuðinn með því að minnast yndislegrar samferðar okkar, góðra samveru- stunda og samhugar í gleði og sorg. Efst í huga er þakklæti til þín og forsjónarinnar fyrir að hafa leitt leiðir okkar saman. Hjá þér kynnt- umst við mörgu af því dýrmætasta og besta sem í einni manneskju býr. Einlægni þín, fölskvalaus gleði og umhyggja fyrir öðrum var einstök. Hógværð og hjálpsemi voru dyggðir sem þú deildir í ríkum mæli. Gest- risni og góðlátlegt viðmót var þér eðlislægt og öllum veitt. Kjarkur og þor var þér í blóð bor- inn og marga erfiða hólmgönguna háðir þú með hugrekki, bjartsýni og trúfestu að vopni. Við dáðumst af dirfsku þinni og dug og samglöddust þér í mörgum unnum sigrum. Hæst reis hugrekki þitt og lífsvilji í loka- orrustunni. Með hugarró og æðru- leysi tókst þú á við örlög þín sem veittu þér í lokin friðsama og sátt- fúsa lausn frá sárri raun. Kæra vinkona. Við munum sakna þín um ókomin ár. Þú verður okkur hvatning til að þakka og meta að verðleikum það sem okkur er gefið í þessu lífi. Hvatning til að takast á við erfiðleika með yfirvegun og festu. Hvatning til að miðla öðrum af andlegum og veraldlegum efnum. Hvatning til að sannfærast um að maður er manns gaman og þýðing- armikið er að deila með öðrum sorg og gleði. Hvatning til að veita þeim sem okkur eru kærastir umhyggju og ástúð. Kæra Björg. Þú varst lif- andi hvatning þess að allir rækti vel garðinn sinn og skili honum af sér í þeim blóma sem sómi er af. Þú greindir hið fagra frá hinu fánýta og lifðir í fullvissu um vöxt alls þess sem nýtur einlægrar aðhlynningar. Þar einn leit naktar auðnir, sér annar blómaskrúð. Það verður, sem þú væntir. Það vex, sem að er hlúð. ... (Kristján frá Djúpalæk.) Fjölskylda þín var þér ákaflega dýrmæt. Hún naut væntumþykju þinnar í ríkum mæli. Þér var mjög umhugað um að hún fyndi hinn rétta lífstón og skynjaði mikilvægi sam- stöðu og vináttu. Þú verndaðir þína nánustu í orðsins fyllstu merkingu. Besta dæmið um það er hversu vel þú barst þig í erfiðum veikindum og reyndir að afstýra því að aðrir bæru þær byrðar sem þá voru á þig lagð- ar. Elsku Björg. Við kveðjum og þökkum. Það var okkur gæfa að eiga þig sem sannan og traustan vin. Brosið þitt ljúfa og blik í auga lifir í minningunni. Hugrekki, yfirvegun og æðruleysi einkenndi þig. Ást og umhyggja í garð þinna nánustu og annarra var óþrjótandi lind sem þú veittir úr á lífsferli þínum.Megi náð- arfaðmur Guðs umvefja þig um alla eilífð. Hauki syni mínum og bróður okk- ar, sonum hans og fjölskyldum vott- um við okkar dýpstu samúð. Kristín Pétursdóttir, börn og fjölskyldur þeirra. Gekk ég út í ljóðalönd, lesa skyldi blóm í vönd, fann þar aðeins flög og bera steina. Sendi ég þér nú sölnað blað, systir, fyrirgefðu það. Ég vona samt þú vitir hvað ég meina. (Örn Arnarson.) Það er ekki auðvelt að ætla sér að skrifa minningarorð um hana Björgu systur. Hún var næstelst af okkur systkinunum og var haldreip- ið okkar og algjör hetja. Hún barðist við krabbamein í mörg ár, hafði stundum betur, en varð svo því mið- ur undan að láta. Af mörgu er að taka úr minninga- kössunum. Við eldri systurnar slóg- um skjaldborg um þá yngstu sem fæddist þegar við vorum orðnar „hálf-fullorðnar“ og saumuðum við, prjónuðum og keyptum föt á hana. Þá var Björg í essinu sínu. Svo fór hún til Danmerkur og var þar í heilt ár. Mikið var hennar saknað þá. Hún var óskaplega forfrömuð þegar hún kom heim, talaði næstum með dönskum hreim, en bara stutta stund. Til lengri tíma litið breyttust matarvenjurnar á heimilinu okkar. Það er eftirminnilegt þegar þau Haukur rugluðu saman reytum sín- um eftir að hafa leikið saman í „Gullna hliðinu.“ Hún lék Maríu mey og hann Kölska. Undarlegt par en æðislegt þó. Allar götur síðan hafa þau búið hamingjusamlega saman við Vogabrautina. Þær eru ófáar gleðistundirnar sem stórfjölskyldan hefur eytt þar saman í góðu yfirlæti hvort sem það var í jólaboði eða öðru boði. Þá var alltaf skylda að spila eft- ir matinn og jafnvel taka lagið. Ferðirnar út í Hellisholt eru orðn- ar fjölmargar. Þar þurfti að byggja sumarbústað, setja niður kartöflur og taka upp, fara í berja- og sveppamó og sækja jólatré, oftast með fulla bíla af börnum. Ekki má heldur gleyma nestinu sem var alltaf borðað undir berum himni í bland við hlátrasköll, glens og gamanyrði. Í fyrravor fórum við systkinin með mömmu okkar í afmælisferð. Bara við fimm. Ferðinni var heitið til Ed- inborgar. Við höfðum nýlega upp- götvað það að við höfðum aldrei ferðast saman og úr þessu varð að bæta. Ferðin var frábær og ómet- anlegt fyrir okkur öll að fá þetta tækifæri til að vera saman. Við kveðjum systur okkar sem var umfram allt yndisleg systir, dóttir, eiginkona, móðir, tengdamóðir og amma. Megi Guð vera með ykkur öllum og styrkja í sorg ykkar. Hinsta kveðja frá systrum þínum sem nú eru Bjargarlausar. Guðný og Snæfríður. Elsku systir. Það er þyngra en orð fá lýst að kveðja þig svona snemma. Við lifð- um í voninni um að þér myndi batna eins þú hafðir svo oft gert frá því að þú greindist fyrst með krabbamein fyrir 15 árum. Ég man þegar við vorum lítil hvað þú varst dugleg að leika þér í dúkku- húsinu þínu og skipuleggja það í smáatriðum. Þú hafðir í nógu að snú- ast við að útbúa húsgögn úr pappa- kössum og eldspýtustokkum, sauma og prjóna föt á dúkkurnar. Þegar litla systir okkar fæddist fórstu að búa til föt á hana og síðan strákaföt á syni þína og börn systkina þinna. Mikið varstu glöð þegar loks fædd- ust sex stelpur í systkinahópnum eftir að átta strákar höfðu litið dags- ins ljós. Þá gastu farið að búa til stelpuföt og seinna voru það föt á barnabörnin. Fötin sem þú saumaðir og prjónaðir voru hreinustu lista- verk. Þau vöktu ekki bara gleði barnanna sjálfra heldur allra sem þau sáu. Þú varst alltaf drifkrafturinn í stórfjölskyldunni að gera eitthvað saman. Þú gafst ekkert eftir þó að það færi að halla undan fæti hjá þér. Þú skipulagðir meira að segja hum- arveislu fyrir alla þá sem voru á staðnum þegar þú komst heim á Höfn og áttir bara fjórar vikur eftir ólifaðar. Þú skipulagðir einnig hver ættu að vera næstu skref í íbúð móð- ur okkar þegar núverandi fram- kvæmdir væru um garð gengnar. Þér var alltaf annt um það að öllum í stórfjölskyldunni liði vel, meira að segja þegar þú sjálf varst orðin sár- þjáð. Elsku Haukur, Binni, Valdi, Stjáni, tengdadætur og barnabörn. Ég sendi ykkur mínar innilegustu samúðarkveðjur. Björg mín, hjartans þakkir fyrir samfylgdina. Þinn bróðir, Vigfús. Elsku mágkona. Þótt ég hafi verið þess aðnjótandi að fylgja þér þín síðustu spor hér í þessu jarðlífi og fá að kveðja þig í faðmi fjölskyldunnar undir verndar- væng frábærs starfsfólks á deild 11 E á Landspítalanum, á ég samt erf- itt með að trúa því að ég eigi aldrei aftur eftir að sjá þig. Þú varst svo einstaklega hlý og góð, svo heil- steypt og aðlaðandi, kona sem mað- ur vill alls ekki að hverfi á brott. Vegir lífsins geta verið illskiljanleg- ir. En minningarnar um þig eiga svo sannarlega eftir að hlýja mér um hjartarætur. Þær eru ótal margar og allar á einn veg, yndislegar. Ég man t.d. hvað ég kynntist þér á sérstakan hátt í upphafi. Þú, Haukur og fleiri ættingjar frá Höfn komuð til að sýna leikrit í Ósló og þið heim- sóttuð okkur Fúsa á sama tíma. Leikritið fékk afar góðar undirtekt- ir, það tók því tíma að kynnast ykkur í eigin persónu að leikritinu loknu. Þér og stórfjölskyldunni var svo sannarlega margt til lista lagt. Ég gleymi því ekki þegar þið kíktuð inn til mömmu þinnar á Höfn þar sem við dvöldum í fríum okkar. Þá sung- uð þið gjarnan og lékuð saman á hljóðfæri, sem var einstök og mögn- uð upplifun. Í einni heimsókninni vildir þú alls ekki að ég færi í jóla- köttinn. Þú sagðir mér að velja mér snið og kaupa efni. Nokkrum klukkutímum seinna, á sjálfri Þor- láksmessu, eignaðist ég ofurfallegan jólakjól. – Svona varst þú. Það vakti athygli mína hvað þið Haukur voruð með eindæmum barn- góð hjón. Þið rædduð og nostruðuð á ótal vegu við öll systkinabörnin, sem ekki voru fá. Þú prjónaðir og saum- aðir á þau ófá fötin og til að kóróna saumaskapinn settir þú járnbraut- arlest, hús og önnur listaverk á þau. Ég gleymi aldrei kápunum á stelp- urnar sem voru hver með sínu sniði, allar fóðraðar með hettu. Þetta var meistarasmíð. Þótt að það væri Haukur, strák- arnir þínir og þeirra fjölskyldur sem áttu fyrst og fremst hug þinn og hjarta, léstu alltaf stórfjölskylduna þig miklu varða. Ég man t.d. þegar móðir þín varð veik og þurfti að leggjast inn á spítlala, hvað þú hugs- aðir vel um aldraða ættingja hennar á meðan, en mörg hver þeirra þurftu mikla umönnun. Enginn hefði getað hoppað í hennar mikilvæga hlutverk og leyst það eins vel af hendi og þú, alveg hnökralaust. Það var alltaf svo notalegt að heimsækja ykkur Hauk. Það var eins og áhyggjur og stress stórborg- arinnar gufuðu upp um leið og geng- ið var inn um dyrnar. Maður fann strax hvað maður var innilega vel- kominn. Í umræðunum um lífsins gagn og nauðsynjar var alltaf stutt í léttleikann og glaðværðina. Ekki sökuðu afburða matar- og baksturs- hæfileikar þínir. Umhyggjan gagn- vart allt og öllu var umvefjandi, virð- ing fyrir fólki, umhverfinu, fyrir samfélaginu öllu. Hlýja, gleði og traust einkenndi samband ykkar Hauks. Elsku Björg, allir sem kynntust þér unnu þér heitt og ekki að ástæðulausu. Ég kveð þig með mikl- um söknuði en missir Hauks, strák- anna ykkar, barnabarnanna, móður þinnar, systkina og stórfjölskyld- unnar, er þó mestur. Megi minning- in um einstaka manneskju gefa þeim öllum styrk til að takast á við fram- tíðina. Sigurlaug Hauksdóttir Við frænkurnar viljum minnast þess þegar Björgu datt í hug að halda frænkupartí fyrir okkur þegar við vorum litlar. Þá var okkur, systk- inadætrum hennar, boðið í miklar búninga- og smáréttaveislur á sumr- in heim til hennar. Þegar fyrsta frænkupartíið var haldið vorum við 4-7 ára gamlar og varð það reglu- legur viðburður sem við biðum spenntar eftir. Frænkupartíin voru ekkert lítið ævintýraleg og eftirminnileg. Það var alltaf frábært veður og Björg lét okkur ávallt líða eins og sönnum hefðarfrúm. Þegar við mættum var Björg búin að finna til fín föt, skó, hatta og hárkollur af ýmsu tagi úr fataskápnum fyrir okkur að máta. Við prófuðum ýmsar samsetningar og Björg hrósaði okkur alltaf fyrir lokaniðurstöðurnar. Þá var komið að andlitsmálningunni, en hún gat tekið dágóða stund, þar sem við vönduð- um okkur mjög með misgóðri út- komu. Veislukosturinn sem Björg hafði útbúið með miklum metnaði vakti alltaf mikla lukku. Þar voru m.a. kleinuhringir með heitu súkku- laði helltu yfir, grillaðar kokteilpyls- ur, ávextir, ostar og glös skreytt ávaxtasneiðum og slaufum. Við spjölluðum saman uppdubbaðar á háleitum nótum, hlógum og nörtuð- um mátulega smekklega í veigarnar. Björg fylgdist með okkur úr fjar- lægð, brosandi út í annað yfir leik- araskapnum í okkur. Í einu partíinu minnumst við þess að hafa trítlað á háu hælunum út í búð með Björgu að kaupa ís. Á leið- inni til baka tók blaðaljósmyndari Eystrahorns mynd af okkur sem birtist í næsta blaði. Af því vorum við afar stoltar enda vel tilhafður hópur. Frænkupartíin eru síður en svo minningin ein í dag. Enn í dag hitt- umst við og gerum okkur glaðan frænkudag og höldum góðu sam- bandi þrátt fyrir fjarlægðirnar á milli okkar. Við teljum okkur heppnar að hafa kynnst Björgu, hún var alltaf hlýleg, gestrisin, kát og svo uppátækjasöm að sameina okkur stelpurnar á þenn- an eftirminnilega og frumlega máta. Hún hefur gefið okkur svo margt í gegnum tíðina og látið gott af sér leiða, sannkölluð fyrirmyndar- frænka og hetja. Takk fyrir allar frá- bæru minningarnar. Við munum sakna þín og halda frænkupartíun- um áfram þér til heiðurs og okkur til ánægju. Frænkuklúbburinn: Alexandra, Embla, Hrefna Rún, Ingibjörg, Röskva og Sædís Harpa. Í dag kveðjum við kæran vin og samstarfskonu sem fallin er frá langt fyrir aldur fram. Björg Svav- arsdóttir var mikill skörungur og tókst á við sjúkdóm sinn af miklu æðruleysi og kjarki. Hlýja og nær- gætni einkenndu hana í lífi og starfi. Björg starfaði við heilbrigðisþjón- ustu á Hornafirði frá 1985 er hún hóf störf á Skjólgarði. Árið 1993 útskrif- aðist hún sem sjúkraliði og starfaði á hjúkrunar- og sjúkradeild HSSA við fag sitt um árabil. Eftir að starfs- þrek til aðhlynningar og vaktavinnu þvarr skipti Björg um gír og nutum við starfskrafta hennar þá í umsjón með lager stofnunarinnar sem hún sinnti af sömu alúð og dugnaði. Það er okkur mikill heiður að hafa unnið Björg Svavarsdóttir Elsku amma B. Ég þakka þér fyrir að hjálpa mér og kenna mér ýmislegt, til dæmis að prjóna og að sauma. Þú kenndir mér líka allar bænirnar sem ég kann. Þú varst góð kona og varst alltaf að gefa mér fullt af fal- legum hlutum. Þú gafst mér vettlinga og peysur, glös og styttur, lampa og margt, margt fleira. Þú varst besta amma í heimi og ég hugsa alltaf til þín. Þín ömmu-stelpa, Andrea Rún. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.